Síða 2 af 2
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Fös 14. Jan 2011 20:55
af intenz
GuðjónR skrifaði:intenz skrifaði:GuðjónR skrifaði:Ég held bara að við íslendingar verðum að fara að passa okkur aðeins hvað við látum frá okkur á netinu svona yfir höfuð.
Ekki endilega að óttast google, bara svona almennt. Hvað hefur maður ekki oft séð statusa eins og "Verð ekki heima í viku, er farinn í bústað" > frábærar upplýsingar fyrir þjófa.
En þeir vita ekki að Doberman hundurinn minn tekur vel á móti þeim

Skilurðu hann eftir einan heima í viku?

Já, það er alveg í góðu sko ... hann borðar bara póstberann ef hann verður svangur
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Fös 14. Jan 2011 20:59
af GuðjónR
hehehehe

Re: Anonymous leitarvél
Sent: Fös 14. Jan 2011 22:56
af rapport
Ég vil ítreka boðskapinn sem Guðjón var með. Fólk verður að passa sig á netinu.
Fyrst var netið nafnlaust og nær engin leið að rekja hvað koma raunverulega frá hverjum en í dag grípur maður nokkur post af spjallsvæði og getur flétt upp hálfri ævi einhvers á netinu.
- Leikskólar eru með síður
- Grunnskólar eru með síður og nemendafélög þeirra.
- Framhaldsskólar eru með síður og sérstaklega nemendafélögin þeirra.
- Íþróttafélög eru með síður.
- Fyrirtæki og stofnanir eru með síður.
Að ógleymdum öllum fréttamiðlum og slúðursíðum.
Fólk sem er "active" í samfélaginu skilur eftir svik svakalega slóð sem er bara ekkert svo auðvelt að rekja.
Internetið er ekki uppfullt af ónafngreinanlegu fólki, internetið er orðið samfélag sem hefur sitt "domain" þar sem ýmis misjöfn lög gilda, líklega mun SÞ sameinast um lög internetsins líkt og um lög á alþjóðlegum hafsvæðum. Þetta mun gerast, internetið verður yfirlýst sem "alþjóðlegt" og alþjóðlegar reglur verða látnar gilda for better or worse. Fyrir utan einhver örfá lönd líklega... BNA verða líklega seinastir til að gefa eftir einhver völd sem þeir hafa kroppað til sín.
En fólk verður að átta sig á þessum breytingum og fara haga sér í samræmi. Internetið er fyrri alla og upplýsingarnar sem fólk setur á internetið eru þar fyrir allra augum um alla framtíð.
Það er svolítið spes að hugsa til þess að börnin manns munu hugsanlega fara í leitarvélina "Dirtonyourparents.com" þar sem einhver er búinn að taka saman í einn gagnagrunn hvaða notendanöfn á spjallsíðumvoru tengd við hvaða e-mail accounta og tengja þá accounta við kreditkortanúmer (eða whatever) og svo við real fólk.
Þar munu börnin okkar lesa þessa pósta okkar og gjörsamlega tapa sér yfir hvað við erum barnaleg og skilningssljó, fordómafull og vitlaus.
Og hvað verður okkar svar?
"Ég hélt að það væri ekki hægt að rekja þetta til mín..." ...eins og það sé einhver afsökun fyrir að haga sér eins og hálviti á netinu...
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Lau 15. Jan 2011 04:56
af Nariur
allar upplýsingar um mig, sem eru á netinu, eru einskis virði... ég veit ekki með ykkur.
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Lau 15. Jan 2011 13:14
af rapport
Nariur skrifaði:allar upplýsingar um mig, sem eru á netinu, eru einskis virði... ég veit ekki með ykkur.
Nkl. þú ert þá bara búinn að vera duglegur að passa þig...
Hellingur af fólki sem hefur akkúrat verið að blogga og sagt eitthvað sem það sér eftir og getur ekki tekið til baka t.d. Hundadrápsmálið á Akureyri, það hefur verið vitnað í blogg í nauðgunarmálum, "Bjarni Harðar" o.s.frv.
Það má telja upp allan anskotann fljótt og örugglega.
Í raun er þetta ekki það versta heldur þegar fyrirtæki og stofnanir eru að vinna með/safna/skrá persónuupplýsingar og gæta ekki öryggis eins og krafist er af þeim skv. lögum t.d. þetta á Akureyri í seinustu viku þar sem tölvu var stolið, afritunartaka augljóslega ábótavant og upplýsingarnar skv. lögum "viðkvæmar persónuupplýsingar" og þær líklega ekki dulkóðaðar eða verndaðar á neinn hátt.
Svona STUPID fyrirtæki og stofnanir eru helsta ógnin þar sem þar er að finna "verðmætar" upplýsingar um fólk fyrir siðlausa einstaklinga/fyrirtæki til að nota.
Það þekkist t.d. á Íslandi að tryggingafélög selji ekki tryggingar til fólks sem er í ættum þar sem erfðasjúkdómar þekkjast þrátt fyrir læknisskoðanir sem sýni að viðkomandi sé ekki með sjúkdóminn.
CreditInfo = dæmt ólögleg gagnasöfnun og miðlun eftir áralangt starf...
Ekki að ég sé einhver fanatic, vil bara hvetja fólk til að passa sig hvað það setur á netið og líka að passa sig með hvað það lætur uppi viðstofnanir og fyrirtæki.
Skv. lögum um rafræna sjúkraskrá þá á fólk t.d. rétt á að fá upplýsingar (ef óskað er) um þá heilbrigðisstarfsmenn sem hafa skoðað sjúkraskrá viðkomandi. Spurning hvort einhver hafi beðið um þetta og komist að einhverju misjöfnu.
Spurning líka um hvort einhverjir fleiri gagnagrunnar líkt og
þessiséu í gangi án þess að fólk viti.
Þetta er kannski ekkert sem almennur borgari á að óttast en hann ætti samt að hafa varann á...
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Mán 17. Jan 2011 00:45
af coldcut
Kannski örlítið off-topic...
Eru stjórnendur Facebook að reyna að skemma síðuna eða? Finnst svolítið eins og þeir séu með rannsókn á því hvað langt er hægt að ganga í því að vita allt um fólk.
Sjá
http://nakedsecurity.sophos.com/2011/01 ... ne-number/" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Mán 17. Jan 2011 09:07
af beatmaster
Nariur skrifaði:allar upplýsingar um mig, sem eru á netinu, eru einskis virði... ég veit ekki með ykkur.
Aldrei verslað neitt online?
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Mán 17. Jan 2011 11:56
af Nariur
beatmaster skrifaði:Nariur skrifaði:allar upplýsingar um mig, sem eru á netinu, eru einskis virði... ég veit ekki með ykkur.
Aldrei verslað neitt online?
kreditkortanúmer... ó, jæja, ég gef það. Það er samt ekki mjög mikið og bara í höndum blizzard og steam... þ.e. ef þeir geyma það
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Mið 19. Jan 2011 15:14
af gardar
Þar sem google er þægilegasta leitarvélin, afhverju ekki að nota bara scroogle frekar en startpage og aðrar síður?
http://www.scroogle.org/" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Mið 19. Jan 2011 16:22
af BjarkiB
Ein spurning, tld. á facebook allar upplýsingarnar sem maður er búinn að setja inn. Ef ég ákveð að taka þær út, eru þær ennþá eitthversstaðar inná database? Heyrði líka að það sé ekki hægt að eyða mynd allveg úr kerfinu.
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Mið 19. Jan 2011 17:00
af beatmaster
Tiesto skrifaði:Ein spurning, tld. á facebook allar upplýsingarnar sem maður er búinn að setja inn. Ef ég ákveð að taka þær út, eru þær ennþá eitthversstaðar inná database? Heyrði líka að það sé ekki hægt að eyða mynd allveg úr kerfinu.
Þú gerir þér grein fyrir því að Facebook á myndirnar sem að þú setur inn til þeirra?
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Mið 19. Jan 2011 17:08
af BjarkiB
beatmaster skrifaði:Tiesto skrifaði:Ein spurning, tld. á facebook allar upplýsingarnar sem maður er búinn að setja inn. Ef ég ákveð að taka þær út, eru þær ennþá eitthversstaðar inná database? Heyrði líka að það sé ekki hægt að eyða mynd allveg úr kerfinu.
Þú gerir þér grein fyrir því að Facebook á myndirnar sem að þú setur inn til þeirra?
Já geri mér grein fyrir því, en þeir hljóta að losa þetta út eitthvertíman?
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Mið 19. Jan 2011 17:39
af gardar
Tiesto skrifaði:Ein spurning, tld. á facebook allar upplýsingarnar sem maður er búinn að setja inn. Ef ég ákveð að taka þær út, eru þær ennþá eitthversstaðar inná database? Heyrði líka að það sé ekki hægt að eyða mynd allveg úr kerfinu.
Það veit enginn nema þeir sem standa að baki facebook, en ég tel mjög líklegt að þeir haldi afrit af öllum gögnum sem send hafa verið inn til þeirra.
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Mið 19. Jan 2011 17:57
af appel
Oftast er það þannig að gögnum er aldrei eytt, þau eru bara merkt eydd og gerð óaðgengileg.
Jafnvel þó þú breytir gögnum, þá gæti kerfið verið hannað þannig að það geymir allar breytingar (ekki oft þannig, þó stundum).