Síða 2 af 2

Re: Hefur einhver verslað við búðina?

Sent: Fim 24. Feb 2011 11:49
af Meso
Ég er mjög sáttur með alla þjónustu sem ég fékk, öllum tölvupóstum var svarað um hæl,
eina sem ég get sett út á er að sjónvarpið var viku lengur á leiðinni en var áætlað,
en þetta var í byrjun Jan svo ég get alveg skilið að einhverja tafir hafi verið úti hjá birgjanum.

Re: Hefur einhver verslað við búðina?

Sent: Fim 24. Feb 2011 13:23
af methylman
Var að bera saman verð á SODIMM þarna hjá honum og verðið er nokkrum krónum HÆRRA en bæði hjá computer.is og tolvutek

http://www.tolvutek.is/index.php?cPath=1_28_30

http://www.computer.is/vorur/5251/

http://budin.is/vara/ram-so-dimm-ddr-1g ... cl3-/20399

miðað við verð og gæði þá er tölvutek með besta verðið og ALLS ekki bjóðandi að bíða viku eða meir eftir vörunni

Re: Hefur einhver verslað við búðina?

Sent: Fim 24. Feb 2011 13:44
af Addi_rokk
Þeir eru ekkert ódýrir í tölvuíhlutum

Er að spá í að kaupa mér nýjan örgjörva, AMD Phenom II X4 955, og hann kostar:

Búðin.is : 29,990.-
Tölvulistinn : 25,990.- (sem var dýrast áður enn ég tékkaði á budin.is)
Tölvuvirkni : 19,860.-

Þetta á við um fleiri íhluti sem ég kíkti á.
Þeir eru kannski ódýrir í sjónvörpum, en ekki alveg að gera sig í tölvu dótinu. :dissed

Re: Hefur einhver verslað við búðina?

Sent: Fim 24. Feb 2011 14:00
af Meso
Já, ég gerði svaka góð kaup í sjónvarpinu sem var meira en 100þ kr ódýrara en Elko,
en þegar ég skoðaði tölvuvörur þá sá ég að þær voru ekkert ódýrari og jafnvel dýrari en annars staðar.

Re: Hefur einhver verslað við búðina?

Sent: Fim 24. Feb 2011 15:01
af REX
Meso skrifaði:Já, ég gerði svaka góð kaup í sjónvarpinu sem var meira en 100þ kr ódýrara en Elko,
en þegar ég skoðaði tölvuvörur þá sá ég að þær voru ekkert ódýrari og jafnvel dýrari en annars staðar.

Hvaða sjónvarp var það?

Re: Hefur einhver verslað við búðina?

Sent: Fös 25. Feb 2011 14:47
af Meso
REX skrifaði:
Meso skrifaði:Já, ég gerði svaka góð kaup í sjónvarpinu sem var meira en 100þ kr ódýrara en Elko,
en þegar ég skoðaði tölvuvörur þá sá ég að þær voru ekkert ódýrari og jafnvel dýrari en annars staðar.

Hvaða sjónvarp var það?


60" LG plasmi 60PK250

Fékk það á 319.900 á sama tíma kostaði það 429 minnir mig í Elko

Re: Hefur einhver verslað við búðina?

Sent: Fös 25. Feb 2011 14:53
af Páll
Það er verðvernd hjá elkó ;)

Re: Hefur einhver verslað við búðina?

Sent: Fös 25. Feb 2011 14:59
af Meso
Páll skrifaði:Það er verðvernd hjá elkó ;)


Mér er alveg sama, ég kýs frekar að versla hjá þeim sem eru ódýrastir,
plús að þessi verðvernd er djók hjá þeim, ég hefði fengið það 10þ kr ódýarar þá hjá Elko
plús að það var uppselt hjá þeim.

Re: Hefur einhver verslað við búðina?

Sent: Fös 25. Feb 2011 15:33
af hsm
Páll skrifaði:Það er verðvernd hjá elkó ;)

Elko er ekki með verðvernd gagnvart netverslunum.