Síða 2 af 3

Re: Hvernig fannst ykkur skaupið ?

Sent: Lau 01. Jan 2011 03:20
af Black
Fínt skaup, hef samt aldrei séð neitt frábært skaup.. skaup er bara skaup :catgotmyballs

Re: Hvernig fannst ykkur skaupið ?

Sent: Lau 01. Jan 2011 03:22
af BjarkiB
Hef aldrei dottið almennilega í hláturinn við að horfa á skaupið, og ekki breytist það í þetta skiptið.

Re: Hvernig fannst ykkur skaupið ?

Sent: Lau 01. Jan 2011 03:32
af ingisnær
alveg ágætt mætti vera betra...

Re: Hvernig fannst ykkur skaupið ?

Sent: Lau 01. Jan 2011 03:37
af Jim
Það var skotið ansi hart á sum fyrirtækin... t.d. Iceland Express og PwC.

Re: Hvernig fannst ykkur skaupið ?

Sent: Lau 01. Jan 2011 04:03
af jonkallin
mér fanst þetta alveg ágætt besti brandarinn sem er sannur hvað hefur náð botninum oftar en ísland ? Herjólfur

Re: Hvernig fannst ykkur skaupið ?

Sent: Lau 01. Jan 2011 05:43
af Frantic
Mér fannst það mjög gott enda mjög fast skotið eins og með Pricewaterhousecooper auglýsinguna og sjálfstæðisflokkurinn var tekinn vel í gegn.
Ég held að fólk þurfi að taka betur eftir öllu ruglinu og spillingunni í þjóðfélaginu okkar til að fatta almennilega skaupið. En þeir sem þekkja spillinguna hérna hefur örugglega hlegið meira en aðrir. :megasmile

Re: Hvernig fannst ykkur skaupið ?

Sent: Lau 01. Jan 2011 05:57
af hauksinick
Sá einhver london taxann þarna? =D>

Re: Hvernig fannst ykkur skaupið ?

Sent: Lau 01. Jan 2011 11:36
af GrimurD
Alger snilld! Þeim sem fannst þetta ekki fyndið hafa annaðhvort ekki nógu grófan húmor eða skildu ekkert hvað var í gangi.

Re: Hvernig fannst ykkur skaupið ?

Sent: Lau 01. Jan 2011 11:41
af GuðjónR
Missti af því :(
Var að hlaupa á eftir litla ofvirka allan tímann.
Er ekki búin að athuga hvort það sé á voddiu.

Re: Hvernig fannst ykkur skaupið ?

Sent: Lau 01. Jan 2011 11:56
af Dazy crazy
GuðjónR skrifaði:Missti af því :(
Var að hlaupa á eftir litla ofvirka allan tímann.
Er ekki búin að athuga hvort það sé á voddiu.
Það er allavega hérna

Mér fannst þetta þrusufínt skaup

Re: Hvernig fannst ykkur skaupið ?

Sent: Lau 01. Jan 2011 13:39
af rapport
jonkallin skrifaði:mér fanst þetta alveg ágætt besti brandarinn sem er sannur hvað hefur náð botninum oftar en ísland ? Herjólfur
en þegar BTB felldi krónuna...

Ég hló upphátt þegar mótmælendurnir fóru að dansa þegar það var hrópað "Landkynning" og þegar dansað var yfir Skólavörðustíginn... en það var kannski bara vegna þess að ég þekkti til þessara myndavéla og fannst þær fáránlegar frá degi 1.

Re: Hvernig fannst ykkur skaupið ?

Sent: Lau 01. Jan 2011 13:49
af biturk
fannst það helvíti gott alveg hreint

hefði samt mátt skjóta miklu meira og harðar á ríkisstjórnina okkar, ef þeir hefðu nú bara tekið hana almennielga í gegn!


fannst gott skotið á jónínu ben og gunnar í krossinum.....á verulega sniðugan hátt :lol:

þeir sem segja ár eftir ár að skaupið sé lélegt það eru þeir sem fylgjast bara einfaldlega ekkert með eða eru hreinlega bara fýlupokar :-$

Re: Hvernig fannst ykkur skaupið ?

Sent: Lau 01. Jan 2011 13:53
af blitz
Oftast er það þannig að þeim sem finnst skaupið slappt eru krakkar eða þá einstaklingar sem eru ekki inní málefnum líðandi stundar.

Frábært skaup eins og undanfarin ár :beer

Re: Hvernig fannst ykkur skaupið ?

Sent: Lau 01. Jan 2011 14:05
af Hnykill
Gott skaup.. það fengu margir skömm í hattinn sem áttu það svo sannarlega skilið =)

Re: Hvernig fannst ykkur skaupið ?

Sent: Lau 01. Jan 2011 14:21
af benson
Vá getiði verið aðeins neikvæðari? Það var náttúrulega fyndnast í heimi þegar kellingin drap sig frekar en að horfa á Hringekjuna!

Re: Hvernig fannst ykkur skaupið ?

Sent: Lau 01. Jan 2011 14:59
af JohnnyX
Virkilega gott og hnitmiðað skaup!

Re: Hvernig fannst ykkur skaupið ?

Sent: Lau 01. Jan 2011 15:01
af vesley
Fannst skaupið bara vera nokkuð gott.

Hefði samt viljað sjá Jón Gnarr leika sig sjálfann:D

Gunni náði honum nú nokkuð vel en hann var bara ekki nógu líkur honum.

Re: Hvernig fannst ykkur skaupið ?

Sent: Lau 01. Jan 2011 15:14
af Hjaltiatla
Það var ágætt.Mér fannst atriðið standa uppúr þegar konan var á spítalanum og átti að slappa af með þáttinn Hringekjuna í gangi en tók öndunarvélina úr sambandi frekar :japsmile

Re: Hvernig fannst ykkur skaupið ?

Sent: Lau 01. Jan 2011 15:22
af GuðjónR
Hjaltiatla skrifaði:Það var ágætt.Mér fannst atriðið standa uppúr þegar konan var á spítalanum og átti að slappa af með þáttinn Hringekjuna í gangi en tók öndunarvélina úr sambandi frekar :japsmile
hahahaha, ég hugsa að ég myndi gera það sama :)

Re: Hvernig fannst ykkur skaupið ?

Sent: Lau 01. Jan 2011 16:20
af Klemmi
Jim skrifaði:Það var skotið ansi hart á sum fyrirtækin... t.d. Iceland Express og PwC.
Iceland Express á það fyllilega skilið.... já ég er bitur eftir að hafa þurft að hanga á flugvelli í rúman sólarhring án þess að fá neitt í staðin s.s. gistingu eða matarpening eða neitt annað. Það er alveg ótrúlegt hvað sólarhringur er lengi að líða þegar þú ert fastur inn á flugvelli og mátt ekkert fara.

Re: Hvernig fannst ykkur skaupið ?

Sent: Lau 01. Jan 2011 16:54
af lukkuláki
Ánægður með skaupið svona í heildina.
Átti svo sem ekki von á miklu en fékk ágætis skemmtun skil samt þá sem voru ekki ánægðir að því leiti að það var oft erfitt að sjá
hvern hinn og þessi átti að vera að leika og maður þarf að fylgjast vel með fréttum ef maður átti að fatta marga "brandarana" þarna og skotin.
Það geri ég og var því vel með á nótunum :) mér finnst að það mætti slaka á pólitíkinni og koma með fyndið efni sem ekki varðar endilega pólitík.
Fannst flott skot á Sóley Tómasdóttur þarna
Jón Bjarnason var frábær og Gunnar helga hélt þessu algerlega uppi.

Þetta var fengið að láni
http://www.youtube.com/watch?v=IhJQp-q1Y1s

Re: Hvernig fannst ykkur skaupið ?

Sent: Lau 01. Jan 2011 20:18
af playmaker
Þetta skaup var nokkuð gott frá mínum bæjardyrum séð. Nokkur atriðanna voru virkilega góð en ég verð bara að minnast á atriðið þegar skólakrakkarnir voru að dansa í kringum jólatréð og í hvert skipti sem eitthvað sem tengist kristinni trú var sungið var þokulúðurinn þeyttur. Alger snilld!

Re: Hvernig fannst ykkur skaupið ?

Sent: Lau 01. Jan 2011 21:07
af Raidmax
Æjji ég er bara kominn með leið á þessu ríkisstjórnargríni það er bara orðið of mikið afþví :S annars var það alveg áhorflegt

Re: Hvernig fannst ykkur skaupið ?

Sent: Lau 01. Jan 2011 23:41
af intenz
Þetta var ágætis skaup þegar á heildina er litið. Mér fannst samt helvíti gott grínið þegar Björgólfur felldi krónuna. :megasmile

Re: Hvernig fannst ykkur skaupið ?

Sent: Sun 02. Jan 2011 00:57
af Sallarólegur
Óttalega klént... og illa editað.