Síða 2 af 4

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 12:35
af hagur
Maður veit ekki hvort maður eigi að hlægja eða gráta.

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 12:36
af GuðjónR
Í hádegisfréttum var viðtal við konu hjá Símanum og henni leyst bara asskoti vel á þessa hugmynd.
Hvað er eiginlega að?

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 12:36
af rapport
Þetta er mjög órökrétt og verður ekki gert.

Mig grunaði að eitthvað væri að fara gerast því að fyrr í vikunni kom frétt þar sem niðurhali var kennt um minni sölu á CDs.

Þessi grein dæmir sig samt sjálf hún er svo vitlaus...

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 12:38
af rapport
GuðjónR skrifaði:Í hádegisfréttum var viðtal við konu hjá Símanum og henni leyst bara asskoti vel á þessa hugmynd.
Hvað er eiginlega að?
Hvernig heldur þú að þetta komi bókhaldslega út fyrir Símann?

Þeir þurfa að rukka VSK ofaná þetta en hafa engan kostnað á móti = þeir geta farið að eyða meira VSK frjálst.

Bara bull...

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 12:38
af depill
AntiTrust skrifaði:Þetta er bara svo mikið bull. Það er í þeirra höndum (STEF, MPAA, öll höfundarréttafyrirtæki) að búa til tækni sem gerir ólöglega afritun ómögulega.
Hmm gætu nú bara ekki eitt neitt í piracy heldur keppt við það. Það er alltaf stór hópur sem er tilbúinn að borga fyrir að horfa á efnið, það er bara spunring um greiðsluvilja.

Þannig að ef að tónlist væri án DRM væri ekki endalaust af licensing issues þannig að allir gætu selt tónlist ( ekki bara tonlist.is, með sumt DRM sumt ekki, selja suma tónlist eða suma ekki ) á sanngjörnu verði væri þetta non-issue.

Hefði markaðurinn jafnframt elt upp það trend strax að fólk nennti ekki út á video-leiguna og hefði strax komið með VoD á eðlilegu verði væri þetta minna issue.

Hætta að eyða að elta upp piracy, koma með markaðslausnir sem gera það að verkum að fólk nennir ekki að eyða tíma í að finna ólögleg lög. Ef diskur myndi kosta svona 990 kr stafrænn myndi ég örugglega kaupa hann, aldrei skilið þetta stafræn sala = svipað dýr og retail.

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 12:41
af depill
rapport skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Í hádegisfréttum var viðtal við konu hjá Símanum og henni leyst bara asskoti vel á þessa hugmynd.
Hvað er eiginlega að?
Hvernig heldur þú að þetta komi bókhaldslega út fyrir Símann?

Þeir þurfa að rukka VSK ofaná þetta en hafa engan kostnað á móti = þeir geta farið að eyða meira VSK frjálst.

Bara bull...
Ehh, þeir þurfa nottulega að standa skili á gjöldum og það er alltaf síðasti leggurinn sem greiðir VSKinn þú áttar þig á því. Hefur ekkert með VSKinn að gera að þeir græði á því, heldur að þeir muni setja álagningu þarna á milli. Skil samt ekki afhverju Síminn ætti að vera hrifinn af þessu, þarna er STEF basicly að setjja gjald sem verður þá kannski 2-5% sem mun gera ólöglegt niðurhal löglegt. Sem þýðir að fólk mun hafa minna samviskubit og mun niðurhala meira og leigja minna á VoD.

En VSKurinn virkar þannig
Heildsali ( selur með vsk til Símans ) -> Síminn greiðir fullt verð til heildsala, en notar vsk til endurgreiðslu. Setur álagningu á vöruna og leggur svo vskinn á eftir það -> Neytandinn greiðir loka verð á vskinum og þar með hæsta mögulega vskinn í keðjunni en það verður ekki tvísköttun og Síminn græðir ekkert á því.

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 12:42
af GuðjónR
depill skrifaði:...aldrei skilið þetta stafræn sala = svipað dýr og retail.
Þetta kallast græðgi.

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 12:42
af Ripparinn
Ég er oft kendur við torrent heiminn og fylgst mjöög mikið með aðgerðum STEF og SMÁÍS gegnum árin.
Þegar Vaktarseríurnar voru í fullum gangi fór allt af stað í því samfélagi, allt fór í fréttirnar, ekkert gerist, nákvæmlega ekkert, þeir sögðust ætla að gera eitthvað en það gerðist aldrei.
Efast ég um að nokkur mðaur vilji borga "auka gjöld" yfir það sem ef núna. Nógu dýrt fyrir. Það er lítið hægt að gera til að stoppa ólöglegt niðurhal í heiminum, þetta er eins og með torrent síðurnar, ef ein fer niður koma 2 í staðin.

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 12:47
af GuðjónR
Ripparinn skrifaði:Ég er oft kendur við torrent heiminn og fylgst mjöög mikið með aðgerðum STEF og SMÁÍS gegnum árin.
Þegar Vaktarseríurnar voru í fullum gangi fór allt af stað í því samfélagi, allt fór í fréttirnar, ekkert gerist, nákvæmlega ekkert, þeir sögðust ætla að gera eitthvað en það gerðist aldrei.
Efast ég um að nokkur mðaur vilji borga "auka gjöld" yfir það sem ef núna. Nógu dýrt fyrir. Það er lítið hægt að gera til að stoppa ólöglegt niðurhal í heiminum, þetta er eins og með torrent síðurnar, ef ein fer niður koma 2 í staðin.
=D>

http://www.visir.is/siminn-vill-nanari- ... 0488286385" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 12:49
af JohnnyX
Þeir eru bara að hugsa um rassgatið á sjálfum sér! Eina sem þeir vilja er að hámarka gróða. Ég er of pirraður til þess að ná að koma þessu vel frá mér, reyni kannski seinna í dag :x

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 12:58
af Daz
Ég skil ekki þennan greinaflokk sem þessi sunna@frettabladid.is er að skrifa. Fyrst kom grein um að sala á erlendri tónlist hefði lækkað í takt við aukna útbreiðslu ADSL tenginga, rætt er eingöngu við söluaðila tónlistar á Íslandi og allir halda því fram að hér sé niðurhali að kenna. Engum dettur í huga að aukin kaup frá erlendum stafrænum verslunum gætu útskýrt eitthvað.
Íslensk tónlist stendur í stað sölulega séð, ÞRÁTT FYRIR EFNAHAGSHRUN, það er útskýrt svo að erfiðara sé að sækja sér íslenska tónlist ólöglega. Svo vilja íslenskir réttahafar sem ekki hafa tapað sölu leggja auka gjald á nettengingar til að fá meiri STEF gjöld til að greiða íslenskum rétthöfum.

Hvar í fjandanum lærði þetta fólk um orsök og afleiðingar og almenn rök??

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 12:59
af ponzer
Hætta þessu hellvítis rugli. áfram flattr

http://www.flattr.com" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 13:00
af AntiTrust
Ég á svo bágt með að trúa því að Síminn sé að skoða þetta með e-rjum vott af alvöru að ég á ekki orð. Bara það að þeir skuli ekki neita þessu alfarið undireins gefur mér tilefni til að segja upp allri minni þjónustu þar.

Djöfull sýður á manni.

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 14:04
af hauksinick
AntiTrust skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Stefgjöld á kúbein!
Kúbein er hægt að nota til að brjótast inn í tónlistarverslanir og stela þaðan diskum með tónlist.
Stefgjöld á bíla. Það er hægt að keyra í burtu úr tónlistarversluninni.
Stefgjöld á bensín!!

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 14:19
af Daz
Stefgjöld á stefgjöld!

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 14:20
af GuðjónR
Daz skrifaði:Stefgjöld á stefgjöld!
Tvístefun.

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 14:31
af jakobs
Eru þeir nú ekki þegar með skatt á öllum hörðum diskum, geisladiskum, kasettum o.fl. Á svo að bæta þessu ofan á.
Þarna eru STEFarar að skjóta sig enn og aftur í fótinn. Þetta verður aðeins til að auka ólöglegt niðurhal, og fólk á eftir
að réttlæta það með rökunum: "Ég er búinn að borga fyrir þetta niðurhal mitt með skatti á net-aðgangi, geisladiskum o.fl."

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 14:50
af Teitur Tæknimaður
Úr frétt: http://www.visir.is/article/2010194189345" onclick="window.open(this.href);return false;
„Það er auðvitað ekki hlutverk fjarskiptafyrirtækja að vera löggæsluaðili í þessu samhengi. Við getum ekki borið ábyrgð á því sem fólk segir í símana sína eða hvað það gerir á internetinu,"
X2

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 14:57
af AntiTrust
„Það er auðvitað ekki hlutverk fjarskiptafyrirtækja að vera löggæsluaðili í þessu samhengi. Við getum ekki borið ábyrgð á því sem fólk segir í símana sína eða hvað það gerir á internetinu,"
Þetta er e-ð sem hefði átt að koma frá Símanum til að byrja með!

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 16:09
af appel
Setjum STEF-skatt á vatnsveiturnar.

Því jú auðvitað, þeir sem stela tónlist drekka vatn, og því á að rukka gjald af vatni.

:catgotmyballs

Kafískt.

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 16:23
af wicket
AntiTrust skrifaði:
„Það er auðvitað ekki hlutverk fjarskiptafyrirtækja að vera löggæsluaðili í þessu samhengi. Við getum ekki borið ábyrgð á því sem fólk segir í símana sína eða hvað það gerir á internetinu,"
Þetta er e-ð sem hefði átt að koma frá Símanum til að byrja með!
Síminn sagði orðrétt í fréttinni : Útfæra þarf hugmyndina áður en að afstaða er tekin til hennar.

Annars er Vodafone og Síminn þá að stinga sig í fótinn. Vodafone og Síminn lokuðu á 4chan síðuna íslensku á sínum tíma og töldu sig þar vera að gera gott mót. Sú ákvörðun er akkúrat öfug miðað við það sem að upplýsingafulltrúi Vodafone er að segja þarna.

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 17:41
af littli-Jake
gardar skrifaði:Verður þá löglegt að hala niður músík? Eða ætla þeir að rukka fyrir þetta og halda því svo ennþá fram að það sé ólöglegt að hala henni niður?


Annars er merkilegt að það eigi að refsa öllum internetnotendum fyrir glæp sem sumir þeirra fremja. Svona rétt eins og ef öllum bíleigendum yrði send stöðumælasekt mánaðarlega, því sumir leggja ólöglega.
Nákvæmlega það sem ég var að pæla. Ef þessi þvæla verður að veruleika þíðir það þá ekki að fólki sé heimilt að ná í allt það efni sem það listir af netinu. Ef svo er munn ég legja mig allan fram um að ná í sem mest.

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 17:51
af Benzmann
ef tónlistarmenn eru að græða svona lítinn pening, þá ættu þeir bara að fá sér nýja vinnu, því það er það sem eðlilegt fólk gerir ! en ekki að vera að leggja allskonar fáránlega skatta ofaná almenning.

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 17:54
af CendenZ
Þar fyrir utan þá fá tónlistarmenn afskaplega lítin hlut af þessu, aðalega klassískuhljómsveitirnar og sinfó sem fá mest.

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 18:45
af vesley
Þetta er ekkert annað en fáránlegt.

Og miðað við fjölda hótanna sem hafa komið frá t.d. Smáís og STEF þá kæmi mér ekki á óvart að þetta væri hræðsluáróður.