Síða 2 af 2

Re: Símhringingar fyrirtækja

Sent: Þri 21. Sep 2010 18:32
af biturk
roadwarrior skrifaði:Ég er með leyninúmer og hef alltaf verið skráður þannig allveg frá því að ég fékk mér gemsa fyrir fjöldamörgum árum síðan. Fæ nánast aldrei símtöl hvorki frá Hagstofu, Símafyrirtækjum eða öðrum. Síðasta símtal sem ég fékk var frá símanum þar sem ég hef viðskifti þar sem mér var boðið að fá frían router og sjónvarpslykil (já það er langt síðan) en ég afþakkaði í hvelli því ég á minn eigin router og horfi ekki á íslenskt sjónvarp (er með SKY )
Sé ekki ástæðu til að hafa símanúmerið í símaskrá því að allir þeir sem þurfa að hringja í mig hafa númerið hjá mér og aðrir sem þurfa að ná í mig verða þá bara að finna það út með öðrum leiðum.

tek undir þetta, efþú þarft að hafa samband við mig þá geturu bara haft fyrir því, sé enga ástæðu til að vera í símaskrá :japsmile

Re: Símhringingar fyrirtækja

Sent: Þri 21. Sep 2010 18:59
af GuðjónR
Það mætti halda að strákarnir á Reykjavík síðdegis hafi verið að lesa þennan þráð, þeir voru að tala um þetta topic í dag og hringdu meðal annars í ja.is

Re: Símhringingar fyrirtækja

Sent: Þri 21. Sep 2010 19:09
af Nariur
til hamingju!

Re: Símhringingar fyrirtækja

Sent: Þri 21. Sep 2010 19:09
af chaplin
Það er nú samt ekkert jafn slæmt og BT var back in the days, ég var örugglega 12-13 ára og sagt að skrá mig í SMS "klúbb" og ég ætti mjög góðar líkur að vinna blabla eitthvað. Ég eins vitlaus og ég var (og er) skráði mig í klúbbinn, í hverri viku í heilt ár fékk ég 2-3 sms frá BT að láta mig vita að þeir væri með tilboð á blabla og næsti sms leikurinn þeirra væri að byrja ect.

Sama hversu oft ég sagði þeim að taka mig af listanum á virkaði það ekki neitt, endaði með að þurfa rífa rosalegan kjaft til að láta taka mig af listanum.

Re: Símhringingar fyrirtækja

Sent: Þri 21. Sep 2010 19:39
af Sallarólegur
Var að vinna við svona úthringingar fyrir fyrirtæki sem heitir Kol, þeir fá sína lista hjá Hagstofunni, frétti að þeir væru rándýrir. Fullt af fólki á listunum er bannmerkt(X) en listarnir eru oft 2-3 ára gamlir. Einn fyrrv. vinnufélagi minn lenti einusinni í því að reyna ná í mann, konan hans svaraði, en hún sagði að maðurinn hennar væri dáinn.

Græðið ekkert á því að vera með dónaskap, þetta fólk sem hringir út sér ekki um þessa lista, og þó þið biðjið um að láta þetta ekki koma fyrir aftur eru góðar líkur að þessir eldgömlu listar breytist ekkert.

BTW þetta er mannskemmandi vinna, nema með viiiiiiiiiiiirkilega góðum félagsskap og starfsanda.

Re: Símhringingar fyrirtækja

Sent: Þri 21. Sep 2010 19:42
af Hargo
GuðjónR skrifaði:Það mætti halda að strákarnir á Reykjavík síðdegis hafi verið að lesa þennan þráð, þeir voru að tala um þetta topic í dag og hringdu meðal annars í ja.is
Hver veit nema að Kristófer Helgason eða Þorgeir Ástvaldsson leynist á bak við eitthvað nickið hérna :lol:

Re: Símhringingar fyrirtækja

Sent: Þri 21. Sep 2010 20:00
af GuðjónR
Hargo skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Það mætti halda að strákarnir á Reykjavík síðdegis hafi verið að lesa þennan þráð, þeir voru að tala um þetta topic í dag og hringdu meðal annars í ja.is
Hver veit nema að Kristófer Helgason eða Þorgeir Ástvaldsson leynist á bak við eitthvað nickið hérna :lol:
Það kæmir mér ekkert á óvart :besserwisser

Re: Símhringingar fyrirtækja

Sent: Mið 22. Sep 2010 09:51
af Danni V8
Ég var alltaf að fá símhringingar og sms einu sinni. Síðan fór ég úr frelsi og yfir í reikning og síðan þá hef ég aðeins einu sinni fengið símhringingu. Það var NOVA að reyna að fá mig yfir og greyjið drengurinn sem að hringdi í mig var að vekja mig eftir erfiða næturvakt og ég skafaði sko ekkert af því þegar ég var að tala við hann.

Hef sjaldan misst skapið eins illa og þá :shock:

Re: Símhringingar fyrirtækja

Sent: Mið 22. Sep 2010 18:07
af intenz
gardar skrifaði:Fínt að keyra black-list á símanum sem skellir automatic á viss númer....

Er með númer hjá nokkrum fyrirtækum á svörtum lista hjá mér, auk þess að blocka hringingar frá private numbers... :)
Android ftw!

Komdu með þessi númer. :)

Re: Símhringingar fyrirtækja

Sent: Mið 22. Sep 2010 18:14
af intenz
Gothiatek skrifaði:Svara bara eins og Seinfeld.

http://www.youtube.com/watch?v=hllDWSbuDsQ" onclick="window.open(this.href);return false;
Snilld, prufa þetta næst! :D

Re: Símhringingar fyrirtækja

Sent: Mið 22. Sep 2010 18:51
af Hargo
intenz skrifaði:
gardar skrifaði:Fínt að keyra black-list á símanum sem skellir automatic á viss númer....

Er með númer hjá nokkrum fyrirtækum á svörtum lista hjá mér, auk þess að blocka hringingar frá private numbers... :)
Android ftw!

Komdu með þessi númer. :)
Var einmitt að hugsa um daginn hversu sniðugt það væri að geta bara sent ákveðin númer beint í talhólfið hjá manni. Er þetta bara hægt á Android símum?

Re: Símhringingar fyrirtækja

Sent: Mið 22. Sep 2010 19:12
af intenz
Hargo skrifaði:
intenz skrifaði:
gardar skrifaði:Fínt að keyra black-list á símanum sem skellir automatic á viss númer....

Er með númer hjá nokkrum fyrirtækum á svörtum lista hjá mér, auk þess að blocka hringingar frá private numbers... :)
Android ftw!

Komdu með þessi númer. :)
Var einmitt að hugsa um daginn hversu sniðugt það væri að geta bara sent ákveðin númer beint í talhólfið hjá manni. Er þetta bara hægt á Android símum?
Örugglega ekki, en ég get vel ímyndað mér að Steve Jobs leyfi sínum notendum þetta ekki. :-({|=

Re: Símhringingar fyrirtækja

Sent: Mið 22. Sep 2010 19:26
af GuðjónR
Ég svara aldrei leyninúmerum, aldrei.
Enda í 99% tilfella símtöl sem maður myndi hvort sem er sjá eftir að svara.
Vildi að ég gæti stillt símann minn þannig að hann myndi ingora innhringingar frá leyninúmerum.

Re: Símhringingar fyrirtækja

Sent: Mið 22. Sep 2010 20:21
af Daz
Ég er orðinn vel þjálfaður í að kveðja sölumenn og aðra af þeirri tegund örsnöggt. Um leið og ég átta mig á hvað er á ferðinni þá segji ég einfaldlega "Hef ekki áhuga, ekki hafa samband við mig aftur. Takk fyrir." *Skell* (og ekkert vera að hafa áhyggjur af því að ég sé að grípa fram í fyrir hringjaranum, það er honum líklega í hag að komast sem fyrst í næsta símtal).

Reyndar er ekki hringt mjög oft í mig lengur, ætli ÉG sé kominn á svartann lista :shock: :twisted:

Re: Símhringingar fyrirtækja

Sent: Mið 22. Sep 2010 20:50
af gardar
intenz skrifaði:
gardar skrifaði:Fínt að keyra black-list á símanum sem skellir automatic á viss númer....

Er með númer hjá nokkrum fyrirtækum á svörtum lista hjá mér, auk þess að blocka hringingar frá private numbers... :)
Android ftw!

Komdu með þessi númer. :)

Hendi saman lista fljótlega og sendi þér Gaui minn :)

Ég er svo að blocka sms-spam líka...

Ég á sjálfur ekki android síma, heldur síma með symbian uiq og nota þetta forrit http://melonmobile.com/Products/Advance ... rview.aspx" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Símhringingar fyrirtækja

Sent: Mið 22. Sep 2010 21:12
af Hargo
gardar skrifaði: Ég á sjálfur ekki android síma, heldur síma með symbian uiq og nota þetta forrit http://melonmobile.com/Products/Advance ... rview.aspx" onclick="window.open(this.href);return false;
Þetta er sniðugt forrit. Er með Nokia 5230, spurning um að prófa þetta.

Re: Símhringingar fyrirtækja

Sent: Mið 22. Sep 2010 22:52
af Lallistori
Vá las þennann þráð í gær og hugsaði hversu heppinn ég væri að hafa bara fengið 1 svona símtal áður og það var fyrir 4 árum síðan , svo hringir einhver frá Lifandi vísindi í dag og bjóða mér eitthvað tilboð :lol:

Re: Símhringingar fyrirtækja

Sent: Fim 23. Sep 2010 00:06
af JReykdal
Ekki láta troða þeirri skýringu í nefið á ykkur að þeir fái númerin frá Hagstofunni.

Hagstofan er ekki með neina símaskrá.

Helvítis pakkið var frekar iðið í einhverja mánuði að hringja í mig en eftir að hafa útskýrt frekar alvarlega fyrir liðinu að ég væri með bannmerkingu í símaskrá hef ég ekki heyrt í þeim lengi.

Þangað til að næsti siðlausi sölumaðurinn ákveður að stofna svona fyrirtæki.