Síða 2 af 2

Re: Sumarið búið, hvað tekur við?

Sent: Fim 12. Ágú 2010 13:20
af Danni V8
Byrja aftur í skóla eftir allt of langt frí frá honum!

Hef ekki farið í skóla síðan 2006.

Ætla að halda áfram með námið sem þarf til að verða bifvélavirki. Kann samt alveg allt sem þarf að kunna, bara lærði það ekki í skóla og þá er það ekki tekið með :(

Re: Sumarið búið, hvað tekur við?

Sent: Fim 12. Ágú 2010 13:27
af JohnnyX
Danni V8 skrifaði:Byrja aftur í skóla eftir allt of langt frí frá honum!

Hef ekki farið í skóla síðan 2006.

Ætla að halda áfram með námið sem þarf til að verða bifvélavirki. Kann samt alveg allt sem þarf að kunna, bara lærði það ekki í skóla og þá er það ekki tekið með :(
þá ættiru að rúlla þessu upp! Nýtir bara extra tímann í félagslífið í skólanum ;)

Re: Sumarið búið, hvað tekur við?

Sent: Fim 12. Ágú 2010 13:36
af Kobbmeister
Tölvufræði í Tækniskólanum 3. önn :D

Re: Sumarið búið, hvað tekur við?

Sent: Fim 12. Ágú 2010 13:53
af Opes
Versló!

Re: Sumarið búið, hvað tekur við?

Sent: Fim 12. Ágú 2010 13:58
af JohnnyX
Opes skrifaði:Versló!
like

Re: Sumarið búið, hvað tekur við?

Sent: Mán 23. Ágú 2010 15:20
af Jim
.

Re: Sumarið búið, hvað tekur við?

Sent: Mán 23. Ágú 2010 15:27
af vesley
Halda áfram í menntaskólanum og mitt markmið er nú bara að ná öllu saman og klára á réttum tíma.

Og svo bara vinna eins mikið og ég mun geta.

Re: Sumarið búið, hvað tekur við?

Sent: Mán 23. Ágú 2010 16:53
af Páll
Ég er nú bara að byrja í 10 bekk, rosalega er maður ungur miðað við fólkið hérna... :lol:

Re: Sumarið búið, hvað tekur við?

Sent: Mán 23. Ágú 2010 16:58
af hauksinick
Pallz skrifaði:Ég er nú bara að byrja í 10 bekk, rosalega er maður ungur meðað við fólkið hérna... :lol:
Same !....miðað*

Re: Sumarið búið, hvað tekur við?

Sent: Mán 23. Ágú 2010 17:08
af k0fuz
Klára þessar 2 annir sem eftir eru af menntaskóla og vinna með.

Re: Sumarið búið, hvað tekur við?

Sent: Mán 23. Ágú 2010 19:46
af Hjaltiatla
Halda áfram í tölvunarfræðinni í Hr og vinna með skóla.

Re: Sumarið búið, hvað tekur við?

Sent: Mán 23. Ágú 2010 20:13
af Nariur
3. ár á eðlisfræðilínu í MA

Re: Sumarið búið, hvað tekur við?

Sent: Mán 23. Ágú 2010 20:20
af BjarkiB
Byrjar 9.Bekkurinn, markmiðið er að ná meðaleinkunni yfir 9,3. Svo er það náttúrulega bara meiri tölva á veturnar :lol: .

Re: Sumarið búið, hvað tekur við?

Sent: Mán 23. Ágú 2010 20:55
af gutti
Vinna æfa svo bara að telja niður í stórmótið sem ég er fara í http://www.specialolympicsee.eu/ee_2010 ... Games.aspx" onclick="window.open(this.href);return false; :D

Re: Sumarið búið, hvað tekur við?

Sent: Mán 23. Ágú 2010 21:00
af BjarkiB
gutti skrifaði:Vinna æfa svo bara að telja niður í stórmótið sem ég er fara í http://www.specialolympicsee.eu/ee_2010 ... Games.aspx" onclick="window.open(this.href);return false; :D
Gangi þér vel! hvað er langt í það? í hverju keppiru?

Re: Sumarið búið, hvað tekur við?

Sent: Mán 23. Ágú 2010 21:04
af bAZik
Síðasta ár menntaskóla, og refsa járninu, illa.

Re: Sumarið búið, hvað tekur við?

Sent: Mán 23. Ágú 2010 21:28
af gutti
Tiesto skrifaði:
gutti skrifaði:Vinna æfa svo bara að telja niður í stórmótið sem ég er fara í http://www.specialolympicsee.eu/ee_2010 ... Games.aspx" onclick="window.open(this.href);return false; :D
Gangi þér vel! hvað er langt í það? í hverju keppiru?
23 dagar þangað til

ég er keppa í kraftlyftingar móti byrjað September 18 -24 mætum á 15 September til 24

Re: Sumarið búið, hvað tekur við?

Sent: Mán 23. Ágú 2010 21:35
af intenz
bAZik skrifaði:Síðasta ár menntaskóla, og refsa járninu, illa.
Járninu as in 20 kg bekkpressustöng? :D

Re: Sumarið búið, hvað tekur við?

Sent: Mán 23. Ágú 2010 21:58
af bAZik
intenz skrifaði:
bAZik skrifaði:Síðasta ár menntaskóla, og refsa járninu, illa.
Járninu as in 20 kg bekkpressustöng? :D
Nákvæmlega!

Tek reyndar 110kg í bekk, but no need to brag. :roll:

Re: Sumarið búið, hvað tekur við?

Sent: Mán 23. Ágú 2010 22:34
af Hvati
klára síðasta menntaskólaárið :)

Re: Sumarið búið, hvað tekur við?

Sent: Mán 23. Ágú 2010 22:39
af Saber
Halda áfram með Rafeindavirkjann í TS eftir 5 ára fjarveru. :crazy

Re: Sumarið búið, hvað tekur við?

Sent: Þri 24. Ágú 2010 00:18
af Sæþór
Sjómannslíf, sjómannslíf, ástir & ævintýr

Re: Sumarið búið, hvað tekur við?

Sent: Þri 24. Ágú 2010 00:20
af KermitTheFrog
Helvítis skólinn. Sjáum til hvort þetta sé síðasta árið mitt. Ef ekki þarf ég að bæta við mig önn. Er i FG á náttúrufræði. Ekki það að námið sé erfitt, ég bara nenni svo alls ekki að vera í skóla. Ætla að drífa mig að klára þetta.

Ætla vonandi að ná að fjárfesta í bíl í vetur. Svo er bara að sjá hvað tíminn færir mér.

Re: Sumarið búið, hvað tekur við?

Sent: Þri 24. Ágú 2010 01:53
af binnip
Tölvubraut í Tækniskólanum hér :)

Re: Sumarið búið, hvað tekur við?

Sent: Þri 24. Ágú 2010 02:11
af Gerbill
Einkaþjálfaranám hjá Keili og júju refsa járninu eins og sumir, haha ^^