Síða 2 af 2
Re: þarf 50 metra netkapal
Sent: Mið 30. Jún 2010 05:39
af Krisseh
Smíðið ykkar eigin staur sitthvoru meginn

Re: þarf 50 metra netkapal
Sent: Mið 30. Jún 2010 05:45
af Danni V8
Kaupa bara 50 metra utandyra framlengingarsnúru og síðan svona:
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=4883" onclick="window.open(this.href);return false; og tengja í báða enda. Ég notaði svona lausn einusinni á milli hæða hérna heim hjá mér þar sem ég nennti ekki að fara að bora á milli eða vera með endalaust af lan snúru um allar tröppur.
Re: þarf 50 metra netkapal
Sent: Mið 30. Jún 2010 08:14
af bixer
hahahaha
ég á svona netrafmagnssendi, það er bara hræðilegur hraði á þessu dóti!
eins og ég sagði þá bý ég á botnlanga sem enginn keyrir hjá, það verður ekkert vesen sérstaklega ef ég verð með spýtur sitt hvorum meginn við snúruna þegar þetta fer yfir götuna. það eru engir krakkar í hverfinu sem ættu að geta skemmt fyrir okkur...
Re: þarf 50 metra netkapal
Sent: Mið 30. Jún 2010 08:32
af Jimmy
Hlýtur að geta látið Nonna redda þessu fyrir þig.. Þeir voru allavega alltaf með heilu kílómetrana af cat5 köplum á keflum hjá sér á tímabili, trúi ekki öðru en að það sé eitthvað eftir

Re: þarf 50 metra netkapal
Sent: Mið 30. Jún 2010 10:58
af ponzer
Getur nú ekki verið mikið mál að tala við einnhvern rafvirkja á svæðinu og fá hann til að græja 50m kapal, þeir eru oftast að kaupa þetta í 300m+ rúllum/kössum.
Re: þarf 50 metra netkapal
Sent: Mið 30. Jún 2010 12:26
af bixer
já, ég tala bara við nonna. verst að ég er alltaf að vinna á opnunartímanum hans...
Re: þarf 50 metra netkapal
Sent: Mið 30. Jún 2010 16:52
af littli-Jake
Klemmi skrifaði:Kobbmeister skrifaði:
hafa 4 metra háar stengur á sithvorum endanum

Ég er hrifnari af helling af gasblöðrum í miðjunni!
voru sumir að horfa á Up?
Re: þarf 50 metra netkapal
Sent: Mið 30. Jún 2010 17:58
af roadwarrior
Ekki viss um að þetta gangi nema strengja fyrst stálvir á milli og festa svo Cat kapalinn á stálvírinn. Ástæðan fyrir því að ég segi þetta er sú að kapallinn þolir ekki nema ákveðna vegalengd áður en hann fer að sligast undan sjálfum sér. Annað er spurning um sjálfan kapalinn hvort hann þolir langtíma útveru. Þeir kaplar sem mest eru notaðir í dag eru ætlaðir til notkunar innanhús en það er hægt að fá sérstakan kapal sem er ætlaður til að vera úti en hann er mun dýrari.
Mæli með að þú fáir þér hraðvirka þráðlausa senda. Miklu einfaldara og ég trúi því ekki að pingið dett mikið niður ef þú vandar valið á þeim.
Re: þarf 50 metra netkapal
Sent: Mið 30. Jún 2010 18:09
af Danni V8
bixer skrifaði:hahahaha
ég á svona netrafmagnssendi, það er bara hræðilegur hraði á þessu dóti!
eins og ég sagði þá bý ég á botnlanga sem enginn keyrir hjá, það verður ekkert vesen sérstaklega ef ég verð með spýtur sitt hvorum meginn við snúruna þegar þetta fer yfir götuna. það eru engir krakkar í hverfinu sem ættu að geta skemmt fyrir okkur...
Það fer nú bara allt eftir hversu gott unit þú ert með.
http://www.youtube.com/watch?v=VIjzseyxfG8" onclick="window.open(this.href);return false; Hér er t.d. review um eitt svona 200mb sem að er samkvæmt þessu með mjög góðan hraða og no-lag gaming.
Ég er ekki að segja að þetta er besta lausnin, en þetta er betri lausn að mínu mati en að draga lan snúru yfir götuna, sérstaklega þar sem lan snúrur eru ekki gerðar til að vera úti og eru þar af leiðandi mjög viðkvæmar fyrir bílum að keyra yfir þær og svoleiðis.
Re: þarf 50 metra netkapal
Sent: Mið 30. Jún 2010 18:25
af Orri
Hvað með að vera bara allir á sama Hamachi servernum ?
Persónulega nota ég samt Tunngle

Re: þarf 50 metra netkapal
Sent: Mið 30. Jún 2010 18:34
af bixer
https://vefverslun.siminn.is/vorur/adra ... ini_200mb/" onclick="window.open(this.href);return false; ég á svona, ætti þetta að virka vel?
Re: þarf 50 metra netkapal
Sent: Mið 30. Jún 2010 18:42
af styrmir
það kostar 98 krónur meterinn í tölvu tek og 98 fyrir hvert tengi.
Re: þarf 50 metra netkapal
Sent: Mið 30. Jún 2010 23:10
af axyne
Get smíðað fyrir þig svona snúru.
Myndi notast við hefbundin innanhús CAT5E tölvustreng. tæki fyrir það 7 þús efni + vinna ef þú getur sótt í rvk.
get að sjálfsögðu ekkert ábyrgst að kapallinn haldist heill hjá þér, það yrði þitt vandamál.
En ég notaði einu sinni heilan vetur hefbundin ídráttar cat5E frá kjallara og uppá á 3H meðfram húsinu. (hékk bara)
tók hann síðan niður þegar ég flutti, var aldrei vandamál.
þannig fín skítaredding ef þú ert ekki tilbúinn að borga mikið.
hafðu samband í PM ef þú hefur áhuga.
Re: þarf 50 metra netkapal
Sent: Mið 30. Jún 2010 23:18
af bixer
ég ætla að skoða þetta aðeins, tékka hvort einhver á siglufirði geti reddað mér eða eitthvað
Re: þarf 50 metra netkapal
Sent: Mið 30. Jún 2010 23:35
af rapport
Ég fer á Sigló um verslunarmannahelgina...
Ef þú dílar við einhvern hérna í bænum þá get ég reynt að grípa þetta með mér...
Re: þarf 50 metra netkapal
Sent: Fim 01. Júl 2010 22:51
af bixer
upp, ef einhver vill tjá sig eitthvað um þessar hugmyndir eða eitthvað...
Re: þarf 50 metra netkapal
Sent: Fös 02. Júl 2010 15:05
af hagur
Er ekki málið að gera þetta bara alvöru?
http://www.linuborun.is/" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: þarf 50 metra netkapal
Sent: Fös 02. Júl 2010 18:06
af Klemmi
Nohhh! Mig langar í svona græju :'D
Re: þarf 50 metra netkapal
Sent: Fim 08. Júl 2010 09:51
af Benzmann
þetta er örugglega eitt fyndnasta sem ég hef séð hér á vaktinni
en í þínu tilfelli myndi ég bara setja upp hamachi á öllum tölvunum.
Re: þarf 50 metra netkapal
Sent: Fim 08. Júl 2010 10:24
af kubbur
hvað með að fræsa rauf í götuna og troða snúrunni þar á milli
Re: þarf 50 metra netkapal
Sent: Fim 08. Júl 2010 13:03
af bixer
hamachi er endalaust vesen, það þarf of mikið config til að það virki