Síða 2 af 2

Re: Kælingar MOD(kæla herbergið)

Sent: Þri 01. Jún 2010 13:12
af KermitTheFrog
Þá þarftu bara að bæta við viftum til að auka loftflæði í tölvunni þinni.

Re: Kælingar MOD(kæla herbergið)

Sent: Þri 01. Jún 2010 13:25
af Gunnar
er með 3x 140mm viftur. 1 neðst(inn) og 2 efst(út).
3x 120mm viftur. 1 að blása út að aftan(út), ein að blása á hdd(inn). og ein í 5.25 hólfinu að blása á ssd og inní kassann.

Re: Kælingar MOD(kæla herbergið)

Sent: Þri 01. Jún 2010 13:31
af KermitTheFrog
Vá, hvar býrðu? Á sólinni?

Re: Kælingar MOD(kæla herbergið)

Sent: Þri 01. Jún 2010 13:35
af bixer
getur líka notað gömul farsímahleðslutæki, ég er með 2*92 mm í herberginu mínu og 2 farsímahleðslutæki, mæli með því að þú takir bara viftu úr gömlum aflgjafa eða eitthvað. getur örugglega óskað eftir gömlum símahleðslutækjum á barnalandi eða hérna

ef þú hefur áhuga á að vita meira um þetta, sendu mér einkapóst eða eitthvað

Re: Kælingar MOD(kæla herbergið)

Sent: Þri 01. Jún 2010 13:47
af urban
Gunnar skrifaði:ofninn er ískaldur.
er með nokkuð öfluga kælingu(sérð hana i undirskrift)
vill ekki fá mér vaskælingu, hræddur um að það leki og eiðileggi eitthvað. :)

ef að það er rétt gengið frá þeim í upphafi og vel lekaprófaðar, þá eru voðalega takmarkaðar líkur á því að þær leki
og þó svo að þær kæmu til með að leka eitthvað, þá er alls ekkert víst að það kæmi til með að skemma eitt né neitt

Re: Kælingar MOD(kæla herbergið)

Sent: Þri 01. Jún 2010 13:56
af g0tlife
á minni vél er ég með 2x 200m 3x 120mm og örgjafakæling og með viftustilli að framan fyrir þetta. Þarft nú ekki mikið meira en þetta til að halda vélinni kaldri.

Re: Kælingar MOD(kæla herbergið)

Sent: Mið 02. Jún 2010 05:55
af gardar
Ef þú ert virkilega harður á því að kæla herbergið, þá er air conditioner eina vitið.

Getur verslað svona eins og maður notar úti á spáni

Mynd

Nú eða svona portable gæja, hef séð slíkar græjur t.d. á skrifstofum hérna á klakanum

Mynd