Síða 2 af 2

Re: Hvaða forrit noti þið til að spila tónlist ?

Sent: Mið 28. Apr 2010 21:46
af n0nni
LOL, að heyra í ykkur

Re: Hvaða forrit noti þið til að spila tónlist ?

Sent: Mið 28. Apr 2010 23:57
af AntiTrust
n0nni skrifaði:LOL, að heyra í ykkur
Sagði hinn týpíski Mac notandi.

Re: Hvaða forrit noti þið til að spila tónlist ?

Sent: Fim 29. Apr 2010 00:36
af BjarniTS
AntiTrust skrifaði:
n0nni skrifaði:LOL, að heyra í ykkur
Sagði hinn týpíski Mac notandi.
trololol

Veit ekki hvort var meira biturt, þitt komment eða hans :D

Re: Hvaða forrit noti þið til að spila tónlist ?

Sent: Fim 29. Apr 2010 00:39
af viddi
Foobar2k - Win
Amarok (1.4 ofc) - Linux

Re: Hvaða forrit noti þið til að spila tónlist ?

Sent: Fim 29. Apr 2010 00:43
af cure
Winamp búinn að nota hann síðan hann kom á markað :) á ipod og iphone og ég nota winamp einfaldlega til að setja inn lög, setti itunes einhverntíman upp og ég var ekki að fíla það,
svo er svo auðvelt að deleta lögum af ipod í winamp og einnig setja inn :D

Re: Hvaða forrit noti þið til að spila tónlist ?

Sent: Fim 29. Apr 2010 03:45
af AntiTrust
BjarniTS skrifaði: trololol

Veit ekki hvort var meira biturt, þitt komment eða hans :D
Engin biturð Bjarni minn, statistics. Af öllum þeim umræðum sem ég hef tekið þátt í með "Apple Vs. Rest" ívafi er oftar en ekki fátt um málefnaleg, hvað þá upplýst svör frá mönnum Mac-megin við línuna.

Þetta var gott dæmi um slíkt.

Re: Hvaða forrit noti þið til að spila tónlist ?

Sent: Fim 29. Apr 2010 08:36
af ManiO
iTunes og Foobar.

Re: Hvaða forrit noti þið til að spila tónlist ?

Sent: Fim 29. Apr 2010 09:37
af Meso
Foobar núna, notaði Deliplayer áður.

Re: Hvaða forrit noti þið til að spila tónlist ?

Sent: Fim 29. Apr 2010 09:39
af chaplin
Winamp, forever and ever!

Re: Hvaða forrit noti þið til að spila tónlist ?

Sent: Fim 29. Apr 2010 10:16
af Pandemic
Var að nota Zune en er farinn aftur í WMP

Re: Hvaða forrit noti þið til að spila tónlist ?

Sent: Fim 29. Apr 2010 10:44
af Daz
Winamp, eftir að ég áttaði mig á hversu auðvelt var að virkja media takkana á lyklaborðinu mínu í honum.

Re: Hvaða forrit noti þið til að spila tónlist ?

Sent: Fim 29. Apr 2010 10:55
af GuðjónR
Er ekki Winamp vírus ?

Re: Hvaða forrit noti þið til að spila tónlist ?

Sent: Fim 29. Apr 2010 11:01
af Halli25
GuðjónR skrifaði:Er ekki Winamp vírus ?
Nei iTunes er það, Nota winamp fyrir ipodinn minn þar sem iTunes böggaði mig yfirgengilega

Re: Hvaða forrit noti þið til að spila tónlist ?

Sent: Fim 29. Apr 2010 11:30
af Daz
GuðjónR skrifaði:Er ekki Winamp vírus ?
Mikið rétt. Eins og Apple og músabendlar.

Re: Hvaða forrit noti þið til að spila tónlist ?

Sent: Fim 29. Apr 2010 12:09
af gardar
viddi skrifaði: Amarok (1.4 ofc) - Linux

=D> =D>

Er reyndar tiltörulega nýhættur að nota hann, vegna þess að mig langar ekki að fylla vélina mína af kde dóti.

Fór yfir í MPD, mæli með því að þú kíkir á hann við tækifæri :)
http://mpd.wikia.com/" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Hvaða forrit noti þið til að spila tónlist ?

Sent: Fim 29. Apr 2010 12:51
af n0nni
AntiTrust skrifaði:
BjarniTS skrifaði: trololol

Veit ekki hvort var meira biturt, þitt komment eða hans :D
Engin biturð Bjarni minn, statistics. Af öllum þeim umræðum sem ég hef tekið þátt í með "Apple Vs. Rest" ívafi er oftar en ekki fátt um málefnaleg, hvað þá upplýst svör frá mönnum Mac-megin við línuna.

Þetta var gott dæmi um slíkt.
Ég hef alltaf átt windows vélar, þar til nýlega. Ég notaði aldrei iTunes vegna þess, eins og þú bentir réttilega á, þá fylgir því allskonar drasl/sull sem ég hafði engan áhuga á. Ég notaði alltaf annaðhvort winamp eða wmp.

Mér finnst bara fyndið að sjá hvað þið hatið apple mikið, ótrúlegt reyndar. Annar hver maðurinn hérna sem notar itunes lætur fylgja með afsökun eða einhversskonar réttlæting á því hvers vegna hann notar itunes, eins og hann sé að gera eitthvað rangt og viti uppá sig sökina (vondur strákur [-X ).

Er Windows Media Player til fyrir makkann minn?

Re: Hvaða forrit noti þið til að spila tónlist ?

Sent: Fim 29. Apr 2010 13:29
af Tiger
Ég nota iTunes og hef ekkert útá það að setja og gef lítið fyrir þetta epla hatur og andúð hérna. Virkar fínt fyrir mig, hef iTunes store sem er möst (eru þið ekki annars allir með löglega tónlist í tölvunum ykkar?). Á pc tölvu, en Apple síma þannig að ég nota og kaupi bara það sem henntar mér óháð framleiðanda, er ekki grunnhyggnari en það.

Já og spurning að trítla í BestBuy á morgun og fá sér einn iPad 3G og nýta iTunes enn betur ;)

Re: Hvaða forrit noti þið til að spila tónlist ?

Sent: Fim 29. Apr 2010 14:02
af Daz
Snuddi skrifaði:Ég nota iTunes og hef ekkert útá það að setja og gef lítið fyrir þetta epla hatur og andúð hérna. Virkar fínt fyrir mig, hef iTunes store sem er möst (eru þið ekki annars allir með löglega tónlist í tölvunum ykkar?). ...
Eftir því sem ég best veit leyfa Apple Íslendingum ekki að versla á Itunes :(

Re: Hvaða forrit noti þið til að spila tónlist ?

Sent: Fim 29. Apr 2010 14:09
af Tiger
Daz skrifaði:
Snuddi skrifaði:Ég nota iTunes og hef ekkert útá það að setja og gef lítið fyrir þetta epla hatur og andúð hérna. Virkar fínt fyrir mig, hef iTunes store sem er möst (eru þið ekki annars allir með löglega tónlist í tölvunum ykkar?). ...
Eftir því sem ég best veit leyfa Apple Íslendingum ekki að versla á Itunes :(
Það er nú eins einfalt að stofna iTunes reikning sem virkar og að rista sér brauð.