Síða 2 af 2

Re: Yfirlýsing frá eiganda MacLantic

Sent: Fös 18. Des 2009 21:15
af depill
Jamm endilega hendið á mig þeir sem vilja hjálpa til hérna á vaktinni og gera Mac Spjallið :)

Svona nokkrar hugmyndir er að gera nokkur tutorial, halda uppi fréttum í gegnum spjallborðið ( þannig það sé hægt að spjalla um það helsta sem er að gerast ) og leyfa verðlöggur, en ég verð að játa það að ég hata það við til sölu þráðinn ( sem er líka vont fyrir seljendur ) að það eru einhver algjörlega óraunhæf verðhugmyndir þarna og það má ekki einu sinni ræða það.

En já þeir sem hafa áhuga á að vera stjórnendur, contributers ( með t.d. hugmyndir, tutorial's og fleirra ) endilega bara PMa mig :)

Re: Yfirlýsing frá eiganda MacLantic

Sent: Sun 20. Des 2009 10:09
af Zorky
Mér líst vel á þessa hugmynd endilega kýlið á þetta

Re: Yfirlýsing frá eiganda MacLantic

Sent: Sun 20. Des 2009 12:28
af GuðjónR
Zorky skrifaði:Mér líst vel á þessa hugmynd endilega kýlið á þetta
http://mac.vaktin.is/" onclick="window.open(this.href);return false;

Ennþá í vinnslu...

Re: Yfirlýsing frá eiganda MacLantic

Sent: Sun 20. Des 2009 12:37
af JohnnyX
GuðjónR skrifaði:
Zorky skrifaði:Mér líst vel á þessa hugmynd endilega kýlið á þetta
http://mac.vaktin.is/" onclick="window.open(this.href);return false;

Ennþá í vinnslu...
kemur bara vel út

Re: Yfirlýsing frá eiganda MacLantic

Sent: Sun 20. Des 2009 12:41
af GuðjónR
JohnnyX skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
Zorky skrifaði:Mér líst vel á þessa hugmynd endilega kýlið á þetta
http://mac.vaktin.is/" onclick="window.open(this.href);return false;

Ennþá í vinnslu...
kemur bara vel út
Já depill er búinn að standa sig vel :)

Re: Yfirlýsing frá eiganda MacLantic

Sent: Fim 07. Jan 2010 10:10
af elfmund
er Depill horfinn ?

Re: Yfirlýsing frá eiganda MacLantic

Sent: Fim 07. Jan 2010 12:20
af GuðjónR
elfmund skrifaði:er Depill horfinn ?
Sæll elfmund, long time no C. :)

Ég sé að depill var hér síðast í gær.

Hvernig fór þetta með fína iPhone'inn þinn sem þú misstir og brotnaði?
Fékkstu tjónið bætt úr tryggingum? (sá myndina af þér á maclantic) ...
Mér varð svo um að ég hætti við að fá mér iPhone...í bili allaveganna.

Re: Yfirlýsing frá eiganda MacLantic

Sent: Fös 08. Jan 2010 19:58
af Stuffz
C'Mon!!!
essi gaur ætti að temja sér þykkari skráp eða aldrei stofna svona síðu í fyrsta lagi.

og svo smá "Game-Theory Profiling" (með þeim fyrirvara að þetta sé algjörlega skot útí bláinn:)

"umræður sem koma mér í bága stöðu í mínu persónulega lífi og angra mig daginn inn og út" basically þá er hann að segja að hann sé að láta undan þrýstingi á vinnustað sínum, kennir eitthverju sem angrar hann daginn inn og út mögulega eitthverjir samstarfsmenn eða yfirmaður, en líklegra er aðalástæðan að honum finnist hann ekki eins öruggur með að halda starfinu enda tímabil niðurskurðar og uppsagna um þessar mundir, "Þessari ákvörðun minni verður hvorki haggað né breytt á meðan ég vinn þar." Þessi yfirlýsing er ákveðin trygging. Hann réttlætir þetta sennilega fyrir sér á þann veg að það sé betra að síðan sé ritskoðuð svona og sumir verði fúlir en að hann mögulega missi vinnuna og geti ekki haldið henni úti og allir verði fúlir, "Með von um skilning og gleðileg eplajól," ég fyrir mína parta skil þessa afstöðu alveg, hann hefur sjálfsagt haldið þessarri síðu úti mestmegnis óritskoðaðri í eitthvern góðan tíma áður og á sjálfsagt hrós skilið fyrir það, en þar sem það er náttúrulega eitt að skilja og annað að vera sammála, þá liggur beinast við að segja að ef maðurinn er ekki að þola frjálsa tjáningu þá ætti hann að láta annan taka við sem gerir það.

Re: Yfirlýsing frá eiganda MacLantic

Sent: Fös 08. Jan 2010 20:03
af AntiTrust
Plebbi.

Allt sem segja þarf um þennan gauk.

Re: Yfirlýsing frá eiganda MacLantic

Sent: Þri 12. Jan 2010 10:22
af jonrh
Ég sé þessa breytingu hjá Bjögga sem betrumbót, allir þessir "apple umboðið er ömurlegt kek!" þræðir eru orðnir alltof þreittir, það vita allir að það er ömurlegt. Flott hjá ykkur að gera mac.vaktin.is, mun vonandi hreinsa í burtu krabbameinið sem hefur herjað á þetta annars frábæra spjallborð; Maclantic.

Re: Yfirlýsing frá eiganda MacLantic

Sent: Þri 19. Jan 2010 17:38
af Stuffz
vitlaust box

Re: Yfirlýsing frá eiganda MacLantic

Sent: Þri 19. Jan 2010 17:41
af Stuffz
arrgh +refresh :P