Síða 2 af 4

Sent: Mið 26. Nóv 2003 11:03
af gumol
ekki gleyma appelsíninu ;)

Sent: Mið 26. Nóv 2003 11:22
af axyne
mér finnst montain dew nú best. :8)

Sent: Mið 26. Nóv 2003 11:34
af gnarr
mér fannst það líka gott þangað til að ég byrjaði að overdoze-a á sykrinum. Mix Exotic er samt MESTI sumar drykkur sem að hefur verið fundinn upp!

Sent: Mið 26. Nóv 2003 11:50
af gumol
Kókómjólkin er líka alltaf góð, en það er ekkert gos í henni :?

Sent: Mið 26. Nóv 2003 11:53
af gnarr
og TRÓPÍ! með aldinkjöti! það er BESTAST!

Sent: Mið 26. Nóv 2003 11:56
af Roger_the_shrubber
Mountain Dew er snilldar drykkur en ég hef tekið upp á þeim ósóma að drekka Pepsi-X í miklu mæli :? sem væri ekkert skrítið fyrir utan það að mér finnst það mesti óþverri :evil: Einnig sakna ég Vanillu Coke :cry:

En hvað örgjörva varðar, gæti mér hugsanlega ekki verið meira sama.


=Fanboyismi heillar mig eigi=

Sent: Mið 26. Nóv 2003 13:09
af RadoN
ég er Coke-maður í alla staði.. :) drekk líka óhemju mikið af því :?

Sent: Mið 26. Nóv 2003 13:21
af Yank
AMD vs Intel
Linux vs Windows
PC vs Mac
Kók vs Pepsí

:roll:


Allavega hvar værum við ef ekki væri samkeppni á milli AMD og Intel.
kv. Yank

Sent: Mið 26. Nóv 2003 13:27
af gnarr
líklega á 100.000króna 486dollu :p

Sent: Mið 26. Nóv 2003 13:38
af Roger_the_shrubber
Yank skrifaði:Allavega hvar værum við ef ekki væri samkeppni á milli AMD og Intel.
kv. Yank
Fyrir nokkrum árum síðan, t.d.? Er AMD bara tiltölulega nýlega farinn að komast í almennilega samkeppni við Intel? Var ekki Intel lengi með einokun á örgjörva-markaðnum? Mig minnir það, en eigi kann ég góð skil á sögu tölvunnar og þróun :wink:




=Ég ætla ekkert að fara að predika, ég læt aðra um það=

Sent: Mið 26. Nóv 2003 14:01
af gnarr
amd eru búnir ða vera alveg þokkalega lengi. ég á tölvu með 133mhz k5 örgjörfa. hver man svo ekki eftir cyrix..

það hefur alltaf verið samkeppni, bara ekki alltaf amd

Sent: Mið 26. Nóv 2003 17:06
af Bendill
RadoN skrifaði:ég er Coke-maður í alla staði.. :) drekk líka óhemju mikið af því :?
Minn maður! Kók er bestasti besti drykkur í heimi!
Annars er ég farinn að drekka minna af því á dag, er kominn niðrí tvo lítra á dag :lol:

Sent: Fös 28. Nóv 2003 07:56
af Castrate
Vatn > Kók/pepsi/alltheilagosdrykkjaklabbið

Sent: Fös 28. Nóv 2003 08:19
af viddi
kók er best

en ég kýs AMD

Sent: Fös 28. Nóv 2003 08:52
af Hlynzi
Egils appelsín er málið !

Sent: Fös 28. Nóv 2003 10:42
af halanegri
Hmmm, kannski aðeins fyrir utan umræðuefnið....

Sent: Fös 28. Nóv 2003 13:48
af Castrate
ha? bíddu er þetta ekki vatnið.is? hohoho :)

Annars er amd málið og stálið eins og GuðjónR orðaði það :)

Sent: Lau 29. Nóv 2003 23:34
af Framed
Mountain Dew blívar!!

En annars þá er ég Intel maður. Og það kemur til út af vandamálum sem vinur minn átti í með AMD fyrir reyndar talsverðu síðan.
Hann lenti í því að tölvan hjá honum átti í hinum mestu vandræðum með að keyra þónokkra leiki. Það lýsti sér þannig að suma leiki gat hann ekki keyrt, suma gat hann keyrt en þeir voru alltaf að frjósa og síðan voru sumir leikir sem keyrðu svo hægt að þeir voru óspilanlegir.
Sömu leiki var ég að keyra án vandræða á intel vél með lægri mhz tölu. Við prufuðum að svissa á skjákortum og hljóðkortum. Og prufuðum ýmislegt annað en allt kom fyrir ekki, það lagaðist ekkert.
Og þar sem annar vinur þessa vinar míns var í sömu vandræðum með annað móðurborð og eftir að hafa talað við nokkra "sérfræðinga" þá komumst við að þeirri niðurstöðu að orsökin hafi verið ósamhæfni milli AMD og Intel.
Eftir þetta þá einfaldlega treysti ég ekki örgjöfum frá AMD. Ég er nokkuð viss um að þetta sé ekki vandamál lengur en ég kaupi ekki vörur sem ég treysti ekki.

Kveðja Framed

Sent: Lau 29. Nóv 2003 23:39
af ICM
Framed skrifaði:Mountain Dew blívar!!

En annars þá er ég Intel maður. Og það kemur til út af vandamálum sem vinur minn átti í með AMD fyrir reyndar talsverðu síðan.
Hann lenti í því að tölvan hjá honum átti í hinum mestu vandræðum með að keyra þónokkra leiki. Það lýsti sér þannig að suma leiki gat hann ekki keyrt, suma gat hann keyrt en þeir voru alltaf að frjósa og síðan voru sumir leikir sem keyrðu svo hægt að þeir voru óspilanlegir.
Sömu leiki var ég að keyra án vandræða á intel vél með lægri mhz tölu. Við prufuðum að svissa á skjákortum og hljóðkortum. Og prufuðum ýmislegt annað en allt kom fyrir ekki, það lagaðist ekkert.
Og þar sem annar vinur þessa vinar míns var í sömu vandræðum með annað móðurborð og eftir að hafa talað við nokkra "sérfræðinga" þá komumst við að þeirri niðurstöðu að orsökin hafi verið ósamhæfni milli AMD og Intel.
Eftir þetta þá einfaldlega treysti ég ekki örgjöfum frá AMD. Ég er nokkuð viss um að þetta sé ekki vandamál lengur en ég kaupi ekki vörur sem ég treysti ekki.

Kveðja Framed
dude þetta er svona pre-200mhz vandamál. Ef þú horfir á þetta með þessum augum þá værirðu ennþá að nota 3Dfx skjákort, það var vandamál með öll önnur 3D kort nema 3Dfx fyrstu árin og engir leikaframleiðendur studdu önnur kort almennilega eins og nVIDIA, sama er með AMD og Intel, það kemst engin upp með að framleiða leiki lengur sem styðja ekki AMD.

Sent: Sun 30. Nóv 2003 00:56
af Framed
Dude :roll: þetta var reyndar 500 mhz CPU. Og n.b. fyrsta 3D kortið sem ég fékk var TNT1 kort og það var ekkert sem ég gat ekki keyrt á því. Þ.e.a.s. ef leikurinn studdi bara 3dfx þá skipti ég bara yfir á software acceleration. Þetta var ekki og getur ekki verið valmöguleiki þegar kemur að ósamhæfni í CPU.
Þar fyrir utan eins og ég sagði hérna áðan þá er ég nokkuð viss um að þetta sé ekki vandamál með neina leiki eða annan hugbúnað lengur en ég bara treysti AMD ekki.
Myndir þú nota eitthvað frá fyrirtæki sem þú treystir ekki?

Kveðja Framed

Sent: Sun 30. Nóv 2003 01:12
af Arnar
AMD er málið og stálið!
Allir leikir keyra fínt hér á AMD "druslu" :)

Sent: Sun 30. Nóv 2003 01:13
af ICM
Nei en ég treysti engum nema 3Dfx fyrstu árin, samt treysti ég öðrum skjákorts framleiðendum núna þar sem vandamálin eru ekki lengur til staðar sem voru í "gamladaga" (og btw TNT1 var hræðilegt í samanburði við 3Dfx í leikjum sem studdu bæði kortin) og að skipta yfir í software rendering þá ertu ekki að nota vélbúnaðin á skjákortinu heldur er það 95% vinna á örgjörvan svo það er ekki spennandi. Hverjum þætti gaman að slökkva á öllum eiginleikum bara til að geta keyrt forritið illa og óstöðugt.

Sent: Sun 30. Nóv 2003 01:20
af Framed
Pointið er að þó að maður hafi verið með skjákort sem leikurinn studdi ekki þá var samt hægt að keyra hann. Það er ekki hægt ef leikurinn virkar ekki á CPU-inum.
Það getur vel verið að þessi skoðun mín breytist einhvern tímann í framtíðinni. Það er meira að segja næstum því alveg öruggt. En á meðan ég hef þessa skoðun þá mæli ég með Intel.

Kveðja Framed

Sent: Sun 30. Nóv 2003 01:25
af ICM
Framed skrifaði:Pointið er að þó að maður hafi verið með skjákort sem leikurinn studdi ekki þá var samt hægt að keyra hann. Það er ekki hægt ef leikurinn virkar ekki á CPU-inum.
Það getur vel verið að þessi skoðun mín breytist einhvern tímann í framtíðinni. Það er meira að segja næstum því alveg öruggt. En á meðan ég hef þessa skoðun þá mæli ég með Intel.

Kveðja Framed
Ástæðan fyrir því að ég tók þetta fram er að AMD örgjörvar eru færir um allt sem intel örgjörvar áður voru færir um og forrit sem nýta intel tækni sem AMD örgjörvar eru ekki með er hægt að slökkva á intel eiginleikunum og gerist það sjálfkrafa í 99% tilfella svo það er eins og með software rendering, þú getur keyrt þau en ekki eins hratt.

Sent: Sun 30. Nóv 2003 02:38
af WarriorJoe
Úff, mikið talað hérna..

1. Kók/ómjólk eru aðaldrykkirnir




2. Ég ætla nuna að fara verzla mér vél..

Valið stendur á milli Pentium 4 2.5(533), Pentium 4 3.0 GHZ(800)..

Eða... AMD 3000XP (400)

Þessi vél á að vera vél sem mun endast mér lengi, og er 90% hugsuð til að spila leiki..

Hvort ætti ég að fá mér Pentium 4 eða AMD ef ég er að leita að örgjörva sem á að endast, verða ekki úreltur strax, og er að standa sig drullu vel í leikjum.