Síða 2 af 10
Re: Síminn að taka viðskiptavini sína í ósmurt?
Sent: Sun 26. Okt 2008 15:36
af Harvest
Ég fékk flott bréf frá Tali núna:
Við hjá TAL erum raun ekki að "takmarka" niðurhal, heldur vörum við aðeins við ef farið er yfir 80GB á 30 dögum vegna þess að slík notkun telst sem truflun á þjónustu annara notenda.
Við stöðvum heldur aldrei niðurhal eða tengingar, heldur er í versta falli farið í heftun á hraða, sé farið ítrekað yfir 80GB á mánuði.
Það er ekki fyrirhugað að breyta þessu fyrirkomulagi á næstunni.
Ég sendi þetta á móti:
Ég skil alveg að þetta sé takmarkað að einhverju leyti og það er ágætt.
Hinsvegar hef ég ítrekað verið að lenda í verulegum takmörkunum hjá ykkar helsta keppinaut og það er af því að ég fer yfir 20 gb á viku. Nú á hinsvegar að breyta því og það á að takmarka mig eftir 10 gb á viku.
Þetta er auðvita frekar mikil afturför í fjarskiptum finst mér.
Fyrir "ungt" fyrirtæki eins og Tal held ég að þið gætuð rakað að ykkur viðskiptavinum með að vera ekki með svona vitleysu eins og hin símafyrirtækin (vera að lækka erlenda gagnamagnið hjá manni og láta mann borga það sama fyrir).
Allavega, vildi ég bara vekja athygli ykkar á þessu (þetta er einn af punktumum af hverju fólk ætti að verða viðskiptavinir ykkar).
Ég er hef einnig vakið athygli á þessu á netinu og vona að það skili árangri.
Fyrir mitt leyti mun ég flytja viðskipti mín til ykkar í næstu viku og veit ég að margir munu gera slíkt hið sama.
Vonandi breyta þeir þessu ekki hjá sér, þá þarf maður að gera eitthvað ennmeira úr þessu
Re: Síminn að taka viðskiptavini sína í ósmurt?
Sent: Sun 26. Okt 2008 15:45
af depill
Harvest skrifaði:Ég fékk flott bréf frá Tali núna:
Tal þjónustufulltrúi skrifaði:
Við hjá TAL erum raun ekki að "takmarka" niðurhal, heldur vörum við aðeins við ef farið er yfir 80GB á 30 dögum vegna þess að slík notkun telst sem truflun á þjónustu annara notenda.
Við stöðvum heldur aldrei niðurhal eða tengingar, heldur er í versta falli farið í heftun á hraða, sé farið ítrekað yfir 80GB á mánuði.
Það er ekki fyrirhugað að breyta þessu fyrirkomulagi á næstunni.
Vonandi breyta þeir þessu ekki hjá sér, þá þarf maður að gera eitthvað ennmeira úr þessu
Þar sem ég hef unnið í nokkrum deildum í fjarskiptadeildum veit ég alveg að þjónustufulltrúar fá yfirleitt bara að vita að breytingum sama daginn, kannski daginn á undan þær eru gerðar. Það sem ég óttast með Tal er 2, Tal er í 51% eigu Teymis, Tal kaupir alla þjónustu af Vodafone ( transit, og aðgang að grunneti bæði fyrir símtöl og ADSL ). Ég óttast að það verði þrýstingur á þá að lækka gagnamagn eða jafnvel að Vodafone hækki verð á móti þeim.
Ég vona ekki ekki, en óttast það og þess vegna held ég að það sé í góðu lagi að hinnkra aðeins eftir því hvað Tal gerir, ég held að næstu mánaðarmót eigi eftir að segja mikið, það er þægilegt að gera breytingar þá.
Ég vona hins vegar að annað hvort komi nýtt sjálfstætt fjarskiptafyrirtæki hérna ( t.d. erlent ) og skapi aftur samkeppni á markaðinum, eða jafnvel að einhver kaupi út hlut Teymis í Tal. Tvíkeppni er ekki samkeppni.
Re: Síminn að taka viðskiptavini sína í ósmurt?
Sent: Sun 26. Okt 2008 15:56

Þetta er alveg rétt hjá þér. Ég er bara ekki að fara að sjá að það sé erlent/nýtt fyrirtæki að rísa upp núna í fjarskiptum. Öll fyrirtæki skýla sér núna bakvið lélegt gengi osf. og hækka eins og brjálæðingar.
Á meðan hinsvegar ættum við að styrkja þá sem að eru ekki í þeim pakka.
Fyrst svona er komið fyrir hja Tali (að þeir eru í raun ekki í samkeppni) er alveg spurning um að bíða fram að mánaðarmótum eins og þú talar um.
Annars ætla ég niðrí Tal í næstu viku og tala við einhverja háttsetta þar. Nú á maður að nýta sér tengslin sem maður á inní svona skítakompaný
sem íslensk fyrirtæki eru (mörg hver).
Re: Síminn að taka viðskiptavini sína í ósmurt?
Sent: Sun 26. Okt 2008 16:46
af jonsig
CraZy skrifaði:10gb á viku..ég held að það sé ekki hægt, það er bara því miður ekki neitt. Mikið hlakkar mér til að fara flytja af þessu bölvaða skeri.
Þeim er sko slétt sama , þeir eru örugglega feignir að losna við þig ,misnotandi torrent útí eitt - þeir hafa ennþá 90% þjóðarinnar til að okra á
En að mínu mati verður aldrei í lagi með netþjónustu á íslandi meðan einkaaðilar eiga grunn netið , þeir geta þá lagt fyrirtæki með bætta net þjónustu í fyrirrúmi í einelti .(örrugglega 100 stk óbeinar leiðir trúið mér)
Og talandi um að Póst og fjarskiptastofnun þurfi að leggja blessun sína á hækkanir á leigu grunn nets ?! hefur það ekki sýnt sig undanfarið að þessar eftirlitsstofnanir eins og fjármálaeftirlitið hafa verið sofandi á verðinum, meðan bakvið tjöldin var settur upp einhver sirkus til að fjármagna þensluna
Re: Síminn að taka viðskiptavini sína í ósmurt?
Sent: Sun 26. Okt 2008 18:17
af machinehead
Harvest skrifaði:Ég fékk flott bréf frá Tali núna:
Við hjá TAL erum raun ekki að "takmarka" niðurhal, heldur vörum við aðeins við ef farið er yfir 80GB á 30 dögum vegna þess að slík notkun telst sem truflun á þjónustu annara notenda.
Við stöðvum heldur aldrei niðurhal eða tengingar, heldur er í versta falli farið í heftun á hraða, sé farið ítrekað yfir 80GB á mánuði.
Það er ekki fyrirhugað að breyta þessu fyrirkomulagi á næstunni.
Ég sendi þetta á móti:
Ég skil alveg að þetta sé takmarkað að einhverju leyti og það er ágætt.
Hinsvegar hef ég ítrekað verið að lenda í verulegum takmörkunum hjá ykkar helsta keppinaut og það er af því að ég fer yfir 20 gb á viku. Nú á hinsvegar að breyta því og það á að takmarka mig eftir 10 gb á viku.
Þetta er auðvita frekar mikil afturför í fjarskiptum finst mér.
Fyrir "ungt" fyrirtæki eins og Tal held ég að þið gætuð rakað að ykkur viðskiptavinum með að vera ekki með svona vitleysu eins og hin símafyrirtækin (vera að lækka erlenda gagnamagnið hjá manni og láta mann borga það sama fyrir).
Allavega, vildi ég bara vekja athygli ykkar á þessu (þetta er einn af punktumum af hverju fólk ætti að verða viðskiptavinir ykkar).
Ég er hef einnig vakið athygli á þessu á netinu og vona að það skili árangri.
Fyrir mitt leyti mun ég flytja viðskipti mín til ykkar í næstu viku og veit ég að margir munu gera slíkt hið sama.
Vonandi breyta þeir þessu ekki hjá sér, þá þarf maður að gera eitthvað ennmeira úr þessu
Ég mun gera slíkt hið sama. Bara vegna þess hversu illa mér líkar við Símann
Re: Síminn að taka viðskiptavini sína í ósmurt?
Sent: Sun 26. Okt 2008 18:47
af TechHead
Síminn bye bye
Mun leita til Vodafone eða Tal eftir mánaðarmót, sömuleiðis allir ættingjar mínir og vinir sem ég hef sagt frá þessum níðandi breytingum á skilmálum Internetþjónustu Símans.
Re: Síminn að taka viðskiptavini sína í ósmurt?
Sent: Sun 26. Okt 2008 18:59
af emmi
Veit ekki betur en að Vodafone séu búnir að lækka niðurhalið hjá sér líka.
Re: Síminn að taka viðskiptavini sína í ósmurt?
Sent: Sun 26. Okt 2008 19:47
af TechHead
emmi skrifaði:Veit ekki betur en að Vodafone séu búnir að lækka niðurhalið hjá sér líka.
Ekki samkvæmt skilmálum á heimasíðu þeirra:
http://vodafone.is/internet/adsl/skilmalar#7 Til þess að tryggja öryggi í gagnaflutningum frá útlöndum áskilur Vodafone sér rétt til að synja áskrifanda um þjónustu um stundarsakir eða til frambúðar, fari niðurhal á gagnamagni erlendis frá yfir 80 GB á mánuði.
Re: Síminn að taka viðskiptavini sína í ósmurt?
Sent: Sun 26. Okt 2008 19:58
af AngryMachine
emmi skrifaði:Veit ekki betur en að Vodafone séu búnir að lækka niðurhalið hjá sér líka.
Mér sýnist að Vodafone bjóði ekki lengur upp á 'ótakmarkað niðurhal' eða 'verðþak'. Þannig að ég fæ ekki séð að nýir kúnnar séu mikið betur settir hjá Voda en hjá Símanum, nema mönnum finnist það skipta einhverju miklu máli hvort að gígabætunum sé skammtað í vikuskömmtum eða mánaðarskömmtum. Þessir 'Gull' pakkar Voda eru hreint út sagt ömurlegir, samaber:
Stórnotendum stendur til boða pakki sem innifelur 40 GB erlent gagnamagn á mánuðu án aukagjalds. Sannkallað ofurnet þar á ferðinni!
Sannkallað kjaftæði frekar.
Ég hef verið hjá þeim í þónokkurn tíma og er með áskrift með verðþak (80gb á mánuði, eftir það cap dauðans). Það er ekki búið að tilkynna neitt en það getur varla verið meira en tímaspursmál áður en þeir fara að breyta skilmálum núverandi kúnna til samræmis við nýja verðskrá.
Re: Síminn að taka viðskiptavini sína í ósmurt?
Sent: Sun 26. Okt 2008 20:13
af beatmaster
TechHead skrifaði:Síminn bye bye
Mun leita til Vodafone eða Tal eftir mánaðarmót, sömuleiðis allir ættingjar mínir og vinir sem ég hef sagt frá þessum níðandi breytingum á skilmálum Internetþjónustu Símans.
Það er nú ekki glæsilegt að stofna til viðskipta hjá Vodafone eins og er, þetta er það sem er í boði núna
Pakkar Hraði Gagnamagn* Verð Vodafone Gull
Huggulega netið Mesti hraði 5 GB 4.190 kr. 3.690 kr. afsl.
Flotta netið Mesti hraði 10 GB 5.190 kr. 4.690 kr. afsl.
Ofur netið Mesti hraði 40 GB 6.190 kr. 5.690 kr. afsl.
Fyrir þá sem þurfa meira Mesti hraði 80 GB 9.190 kr. 8.690 kr. afsl.
Þetta eru allt 12 MB tengingar
Re: Síminn að taka viðskiptavini sína í ósmurt?
Sent: Sun 26. Okt 2008 20:25
af Aimar
með hvaða forriti skoðið þið niðurhalshraðann? innlendan og erlendan hraða?
Re: Síminn að taka viðskiptavini sína í ósmurt?
Sent: Sun 26. Okt 2008 20:41
af GuðjónR
beatmaster skrifaði:TechHead skrifaði:Síminn bye bye
Mun leita til Vodafone eða Tal eftir mánaðarmót, sömuleiðis allir ættingjar mínir og vinir sem ég hef sagt frá þessum níðandi breytingum á skilmálum Internetþjónustu Símans.
Það er nú ekki glæsilegt að stofna til viðskipta hjá Vodafone eins og er, þetta er það sem er í boði núna
Pakkar Hraði Gagnamagn* Verð Vodafone Gull
Huggulega netið Mesti hraði 5 GB 4.190 kr. 3.690 kr. afsl.
Flotta netið Mesti hraði 10 GB 5.190 kr. 4.690 kr. afsl.
Ofur netið Mesti hraði 40 GB 6.190 kr. 5.690 kr. afsl.
Fyrir þá sem þurfa meira Mesti hraði 80 GB 9.190 kr. 8.690 kr. afsl.
Þetta eru allt 12 MB tengingar
Það er stutt síðan besti pakkinn hjá VodaFone á rúmar sex þúsund krónur eins og hjá símanum, svo hika þeir ekki við að hækka um ~50%
Finnst það ekkert betra en að skerða skilmálana eins og síminn gerir.
Það er enginn munur á kúk og skít.
Re: Síminn að taka viðskiptavini sína í ósmurt?
Sent: Sun 26. Okt 2008 21:47
af DOT COM
Mótmælum þessum aðgerðum og skráum okkur á þennan lista:
http://getraunir.xbox360.is/view.php?id=12
Re: Síminn að taka viðskiptavini sína í ósmurt?
Sent: Sun 26. Okt 2008 21:51
af Frikkasoft
Re: Síminn að taka viðskiptavini sína í ósmurt?
Sent: Sun 26. Okt 2008 21:52
af machinehead
Jeiij. Enn einn net-undirskiftarlistinn. That's gonna do it.
Bara einfaldlega að segja upp áskriftinni við Símann og Vodafone.
Re: Síminn að taka viðskiptavini sína í ósmurt?
Sent: Sun 26. Okt 2008 21:54
af GuðjónR
machinehead skrifaði:Jeiij. Enn einn net-undirskiftarlistinn. That's gonna do it.
Bara einfaldlega að segja upp áskriftinni við Símann og Vodafone.
Og fara hvert?
Re: Síminn að taka viðskiptavini sína í ósmurt?
Sent: Sun 26. Okt 2008 21:56
af Harvest
Finst þetta frábært framtak.
Lætur í ljós óánægju okkar með þetta.
Re: Síminn að taka viðskiptavini sína í ósmurt?
Sent: Sun 26. Okt 2008 22:00
af DOT COM
machinehead skrifaði:Jeiij. Enn einn net-undirskiftarlistinn. That's gonna do it.
Bara einfaldlega að segja upp áskriftinni við Símann og Vodafone.
Ert þú kannski einn af þessum íslensku hryðjuverkamönnum?
Gætirðu gert eitthvað róttækara?
Re: Síminn að taka viðskiptavini sína í ósmurt?
Sent: Sun 26. Okt 2008 22:08
af Harvest
Ég sendi öllum helstu dagblöðum línu um þetta...
Það er víst samt ekki að fara gera mikið gang.... ÞAR SEM VODAFONE ER SAMI PAKKI OG BLÖÐIN!
Re: Síminn að taka viðskiptavini sína í ósmurt?
Sent: Sun 26. Okt 2008 22:16
af emmi
Uhm eh einmitt. Eins og Símanum sé ekki nákvæmlega sama þó að þeir sem valda mesta álaginu á netkerfið þeirra fari eitthvað annað? Þeir verða ábyggilega ánægðir með að losna við þessa stórnotendur.
Re: Síminn að taka viðskiptavini sína í ósmurt?
Sent: Sun 26. Okt 2008 22:18
af machinehead
DOT COM skrifaði:machinehead skrifaði:Jeiij. Enn einn net-undirskiftarlistinn. That's gonna do it.
Bara einfaldlega að segja upp áskriftinni við Símann og Vodafone.
Ert þú kannski einn af þessum íslensku hryðjuverkamönnum?
Gætirðu gert eitthvað róttækara?
Róttækara. Kallaru svona undirskriftarlista róttækt? Helduru að fyrirtækin taki eitthvað mark á þeim?
GuðjónR skrifaði:machinehead skrifaði:Jeiij. Enn einn net-undirskiftarlistinn. That's gonna do it.
Bara einfaldlega að segja upp áskriftinni við Símann og Vodafone.
Og fara hvert?
Allavega sjá til hvað TAL gerir.
Re: Síminn að taka viðskiptavini sína í ósmurt?
Sent: Sun 26. Okt 2008 22:18
af Harvest
emmi skrifaði:Uhm eh einmitt. Eins og Símanum sé ekki nákvæmlega sama þó að þeir sem valda mesta álaginu á netkerfið þeirra fari eitthvað annað? Þeir verða ábyggilega ánægðir með að losna við þessa stórnotendur.
Ef að maður hugsar alltaf svona í viðskiptum þá verður maður aldrei ríkur...
Re: Síminn að taka viðskiptavini sína í ósmurt?
Sent: Sun 26. Okt 2008 22:19
af machinehead
emmi skrifaði:Uhm eh einmitt. Eins og Símanum sé ekki nákvæmlega sama þó að þeir sem valda mesta álaginu á netkerfið þeirra fari eitthvað annað? Þeir verða ábyggilega ánægðir með að losna við þessa stórnotendur.
Þú ert nú varla stórnotandi ef þú dl OG ul 10GB á viku. Þarft ekki torrent til þess! (nema með ul hlutann)
Re: Síminn að taka viðskiptavini sína í ósmurt?
Sent: Sun 26. Okt 2008 22:21
af emmi
Þú verður aldrei ríkur á því að selja heimanotendum ADSL tengingu. Hvað þá notendum sem eru að downloada tugum GB af efni sem já er oftast nær varið höfundarrétti. Peningarnir liggja í fyrirtækjaþjónustu í dag, ekki heimanotendum.
Re: Síminn að taka viðskiptavini sína í ósmurt?
Sent: Sun 26. Okt 2008 22:26
af machinehead
emmi skrifaði:Hvað þá notendum sem eru að downloada tugum GB af efni sem já er oftast nær varið höfundarrétti.
Hvað kemur það málinu við.