Síða 2 af 2

Sent: Mán 10. Nóv 2003 19:24
af Castrate
Það var einn gaur á smell með AMD 64 bita örgjörva sem hann keypti úti. þannig að þú verður því miður ekki fyrsti íslendingurinn :(

Sent: Mán 10. Nóv 2003 19:32
af Nemesis
af hverju er ekki upgreidað beint í 128 eða 256? bara pæling :D

Sent: Mán 10. Nóv 2003 21:18
af RadoN
er það eitthvað hægt núna?
ef það væri hægt, hversvegna þá ekki bara að uppfæra í milljón THz ? :wink:

Sent: Mán 10. Nóv 2003 23:04
af gnarr
@radon bits og hertz er ekki aaaalveg það sama.. eða ertu kanski sona gaur sem að er með 2 gígabæta örgjörfa og 200gígahertz harðann disk

Sent: Þri 11. Nóv 2003 09:49
af RadoN
ohh, NEI!
ég var ekki að meina það :evil:
ég hélt bara kanski að þeir gætu ekkert uppfært allt strax í 256bit örgjörva o.s.frv. !

Sent: Þri 11. Nóv 2003 09:57
af gnarr
ahh.. ok ;) það liggur áralangur reikningur bakvið þessa örgjörfa. því fleiri bit sem þeir eru því flóknari. ef að þeir myndu bara koma með 512bita örgjörfa alltíeinu núna, væri nánast bókað mál að hann væri ÚLTRA böggaður og líklega ekkert góður.

það sem að fæstir vita er að örgjörfar eru í rauninni "forritaðir". örgjörfi byggist upp á instruction settum sem að eru kóðuð í örgjörfann af þeim sem að hönnuðu hann. í núinu eru bara til instruction set fyrir 8- 16- 32- og 64-bita örgjörfa, kanski örfá fyrir 128bita. ef að þú værir með 128bita nánast instruction lausann örgjörfa, þá er nánast bókað mál að hann væri mjög hægur við hvað sem þú værir að gera, nema kanski að gera einfalda reikninga.

til að svara fox, þá er hægt að gera mun öflugri örgjörfa með mun öflugri og hraðvirkar instructions með 64bitum heldur en nokkurntíman með 32bitum. þar að auki eru 32bita örgjörfa alveg að verða komnir að því marki að það gerir lítið að auka gígahertzin.

Sent: Þri 11. Nóv 2003 12:34
af Nemesis
er þá ekki betra að bíða eftir nýrri kynslóð af 64 bita örrunum, til að þeir séu betur forritaðir og skili þ.a.l. betri vinnslu? :o

Sent: Þri 11. Nóv 2003 13:06
af Fox
Er ég að skylja það rétt að 64bit örgjörfi, sem afkastar jafn miklu og 32bit örgjörfi, hitnar minna?

Sent: Þri 11. Nóv 2003 21:45
af Hlynzi
Sko, ég er fylgjandi AMD örgjörvum.
Mér finnst 64 bit núna show business, fyrir þá sem eru ekki með server. En samt kúl að vera með þetta. Þeir performa jú öðruvísi.

Kannski er munurinn svipaður í dísil og bensín vél í bíl.

Bensín skilar meiri hestöflum(eða 32 bit örri) (hz), en dísillinn torkar meira (eins og 64 bita örrinn)

Það er mín skilgreining.


Sent: Þri 11. Nóv 2003 23:29
af MezzUp
hmm, fullt af kolröngum pælingum í gangi hjá mörgum held ég, lesið bara þetta alltsamann og þá þurfa menn ekkert lengur að giska á hver munurinn er.