Síða 2 af 3

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Lau 09. Ágú 2008 18:15
af Skapvondur
Vá viljið þið ekki bara gerast bílastæðalöggur eða???

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Lau 09. Ágú 2008 18:49
af Pandemic
Það vantar alla aðstöðu hérna á landi til að kenna utanvegarakstur, akstur í hálku og annað sem tengist íslenskum aðstæðum. Ég veit t.d að brautir hafa verið byggðar í Þýskalandi með sprinkler-kerfi til að gefa akstursmönnum þá reynslu að missa bílinn í bleytu. Þetta er eitthvað sem hver maður þarf að prófa. Ég persónulega tel mig betur undir það búin að missa bílinn eftir að hafa verið að keyra soldið á ís, þá finnur maður almennilega hversu mikla stjórn maður hefur, sem er ekki mikil. Annars helvíti mögnuð staðreynd hestaíþróttir hafa valdið fleiri alvarlegum meiðslum heldur en hraðakstur í Bretlandi. Og sem dæmi er útreiðar ein hættulegasta íþrótt í heimi.

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Lau 09. Ágú 2008 19:33
af Blackened
Pandemic skrifaði:Það vantar alla aðstöðu hérna á landi til að kenna utanvegarakstur, akstur í hálku og annað sem tengist íslenskum aðstæðum. Ég veit t.d að brautir hafa verið byggðar í Þýskalandi með sprinkler-kerfi til að gefa akstursmönnum þá reynslu að missa bílinn í bleytu. Þetta er eitthvað sem hver maður þarf að prófa. Ég persónulega tel mig betur undir það búin að missa bílinn eftir að hafa verið að keyra soldið á ís, þá finnur maður almennilega hversu mikla stjórn maður hefur, sem er ekki mikil. Annars helvíti mögnuð staðreynd hestaíþróttir hafa valdið fleiri alvarlegum meiðslum heldur en hraðakstur í Bretlandi. Og sem dæmi er útreiðar ein hættulegasta íþrótt í heimi.


Ég held að ég hafi heyrt það einhverstaðar (sel það ekki dýrara en ég keypti) að það hafi fleiri mænuskaðast við hestamennsku heldur en bílslys hérna á íslandi og endað í hjólastól fyrir vikið
Og mér þykir það í rauninni ekki einusinni ólíklegt
Annars er maður undirbúinn undir allt sem getur gerst held ég eftir 3 vetur á gömlum subaru 1800 með þungan bensínfót og nóg pláss útum allt :twisted:
..en ég er ekki að segja að það hefði sennilega verið betra að nota braut til þess að leika sér á honum heldur en götur bæjarins.. en það verður ekki á allt kosið.. það er ljóst

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Sun 10. Ágú 2008 18:13
af Skapvondur
Ætlaði til Laugarvatn dag einn en keyrði óvart fram hjá því og fór en sunnar, þar kom einhver einn fáranlegasti hálkublettur, fyrst fann ég fyrir því að stýrið var ekki alveg að responda og svo fór ég bara gjörsamlega að missa stjórnina á bílnum og ég var kominn á hlið og var ennþá á 75 km/klst., sko á hlið svo snérist í veit ekki hversu marga hringi og staðnæmdist loksins, svo komu fleiri bílar í viðbót og horfði bara á kaupann slida á fullri ferð að mér og flaug útaf, það munaði innan við hálfan meter að hann hefði rekist á mig, þrír í viðbót á eftir allt á sama hálkublettinum, vorum svona 5-6 allt í alls á víð og dreif um veginn annaðhvort flognir útaf eða snérumst við á veginum og út á kannt! Allir nema 2 snéru við.

En lásu þið um 16 ára ökuníðinginn á fjórhjóli í miðbæ Hafnarfjarðar? Stakk svo af þannig að félagi hans datt af...

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Þri 12. Ágú 2008 15:35
af Gúrú
Áttu link á þetta slys á Visir.is?

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Þri 12. Ágú 2008 15:45
af sigurbrjann
haha andlit

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Þri 12. Ágú 2008 15:53
af Skapvondur
Hef ekki glætu hvort þetta hefur verið skráð eða ekki, það skemmdist enginn bíll, held ég! Var bara feginn að geta komist til baka! Þetta vara allavega nokkru lengra eftir að hafa farið fram hjá afleggjaranum til Laugarvatns! Það sem ég sá og man er að við runnum allir til og frá og í hringi og restuðum út í kannt!

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Þri 12. Ágú 2008 18:11
af Gúrú
og ég var kominn á hlið og var ennþá á 75 km/klst., sko á hlið svo snérist í veit ekki hversu marga hringi



Jahhá.

Ertu á einhversskonar skriðdreka?

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Mið 13. Ágú 2008 11:11
af Skapvondur
Nei, held að það sé dálítið erfitt fyrir skriðdreka að skauta??? Þetta var bara fáranlegasta svell sem ég hef kynnst, klaki undir öllu og blautur snjór ofan á sem gerði allt illt verra! Svo var ég á eld gömlum heilsársdekkjum búin að missa allt grip!

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Þri 26. Ágú 2008 16:18
af Pandemic
Afsakaðu það en það er ekki að marka orð af mörgu sem þú segir?
Þú getur skoðað dagbók lögreglunnar, mbl.is og vísi.is ásamt tjónum á bifreiðum í þínu nafni og ég stórefast um að þetta stemmi.


Gerði lauslega leit á visir.is og mbl.is og ekkert fannst og við getum sagt okkur sem svo að svona stór bílahrúga hefði ratað í fréttirnar.

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Þri 26. Ágú 2008 17:46
af Gúrú
Híhí hann er bannaður

Efast svo hrikalega um að hann hafi verið með bílpróf.

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Þri 26. Ágú 2008 19:01
af CendenZ
svona djók er fyndið á rásum einsog á btspjallinu.

En þetta er rosalega þreytandi hérna

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Þri 26. Ágú 2008 21:10
af lukkuláki
Mér finnst ánægjulegt að sjá að það eru nokkrir hérna sem skilja út á hvað starf lögreglunnar gengur
lög og reglur eru eitthvað sem á að fara eftir alveg sama hvort þú sért sammála lögunum eða ekki.
Það er góð ástæða fyrir því að þessi lög eru sett og fólk á oftast að geta farið að lögum í einu og öllu.
Það er samt skiljanlegt að menn geti "gleymt" sér og farið "óvart" of hratt en það er samt lögbrot
þó það sé ekki einbeittur brotavilji. Þið lærið það þegar þið verðið stórir og lærið að meta of virða lögregluna
hún er jú til þess að hjálpa okkur.
Ég fékk mér bíl með hraðastilli (cruise control) og það hefur reddað mér í mörg ár snilld :)

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Þri 26. Ágú 2008 23:37
af hsm
Ef að menn eru sáttir við að brjóta lög þá verða þeir líka að vera sáttir við afleiðingarnar.

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Mið 27. Ágú 2008 00:02
af ManiO
Loksins kom sektin, litlar 50 þús krónur.

En HSM, ég hef ekkert á móti því að borga hraðasekt, reyndar finnst mér það fullgróft að vera sektaður fyrir þann hraða sem ég var á á beinum kafla á reykjanesbrautinni við fullkomnar aðstæður. Það sem ég er að kvarta undan að sektin kemur ekki innan tveggja vikna, og það að sumir fái sektina sína í hendurnar ári eftir er glæpsamlegt.

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Mið 27. Ágú 2008 00:17
af Klemmi
Þetta finnst mér alveg ótrúlega skrítinn hugsunarháttur. Þú getur fundið út hversu mikilli sekt þú mátt búast við og lagt þann pening til hliðar.
Finnst furðulegt að fólk geti ekki lagt til hliðar pening ef það á ekki að borga hann innan skamms.
Getur jafn vel sett hann inn á bók þangað til sektin kemur og fengið smotterís vexti :) Auk þess er yfirleitt hægt að semja við blessuðu lögguna um að skipta sektinni niður á mánuði.

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Mið 27. Ágú 2008 00:29
af Zorglub
lukkuláki skrifaði:Mér finnst ánægjulegt að sjá að það eru nokkrir hérna sem skilja út á hvað starf lögreglunnar gengur
lög og reglur eru eitthvað sem á að fara eftir alveg sama hvort þú sért sammála lögunum eða ekki.
Það er góð ástæða fyrir því að þessi lög eru sett og fólk á oftast að geta farið að lögum í einu og öllu.
Það er samt skiljanlegt að menn geti "gleymt" sér og farið "óvart" of hratt en það er samt lögbrot
þó það sé ekki einbeittur brotavilji. Þið lærið það þegar þið verðið stórir og lærið að meta of virða lögregluna
hún er jú til þess að hjálpa okkur.
Ég fékk mér bíl með hraðastilli (cruise control) og það hefur reddað mér í mörg ár snilld :)


Tja, eftir að hafa lent í því að löggan var að reyna að mana mann upp í kappakstur, akandi eins og vitleysingar í kringum mig á ómerktum bíl, þá fer nú frekar lítið fyrir virðingu á mínu heimili. Ekki nema að ég virði marga einstaklinga sem bera búningin með sóma en því miður er allt of mikið um óhæfa menn inn á milli.
Þeir hafa það þó reindar sér til vorkunar að ég var náttúrulega óvinur þjóðfélagsins NR 1, ungur maður á svörtum sportbíl Mynd

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Mið 27. Ágú 2008 02:24
af hsm
4x0n skrifaði:Loksins kom sektin, litlar 50 þús krónur.

En HSM, ég hef ekkert á móti því að borga hraðasekt, reyndar finnst mér það fullgróft að vera sektaður fyrir þann hraða sem ég var á á beinum kafla á reykjanesbrautinni við fullkomnar aðstæður. Það sem ég er að kvarta undan að sektin kemur ekki innan tveggja vikna, og það að sumir fái sektina sína í hendurnar ári eftir er glæpsamlegt.

Skil þig vel þar sem ég var tekinn fyrir áramór á 56km þar sem er 30km og fékk að vita strax í lögreglubílnum að ég fengi 20.000 kr sekt og ég er ekki búinn að fá rukkun fyrir því enn, en svo var ég aftur tekin á 96km þar sem er 90km (myndavél) fyrir stuttu síðan og hún kom nokkrum dögum seinna 10.000 kr.
Þetta er náttúrulega ótrúlegur seinagangur.
En ég vil taka það fram að ég reini alltaf að keyra eins og maður, en maður getur stundum gleymt sér, sérstaklega er erfitt að halda sér á 30km nema vera með hugann algerlega við hraðan.
Og ég var alls ekki að meina að allir sem eru teknir fyrir hraðakstur séu að keyra hratt viljandi.
En því miður getur maður ekki notað þá afsökun að maður gleymdi sér aðeins til að sleppa.

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Mið 27. Ágú 2008 08:55
af lukkuláki
4x0n skrifaði:Loksins kom sektin, litlar 50 þús krónur.

En HSM, ég hef ekkert á móti því að borga hraðasekt, reyndar finnst mér það fullgróft að vera sektaður fyrir þann hraða sem ég var á á beinum kafla á reykjanesbrautinni við fullkomnar aðstæður. Það sem ég er að kvarta undan að sektin kemur ekki innan tveggja vikna, og það að sumir fái sektina sína í hendurnar ári eftir er glæpsamlegt.


Finnst þér fullgróft að vera sektaður á of miklum hraða á beinum kafla á reykjanesbrautinni já ?

En þú átt að vita að hámarkshraði miðast við bestu aðstæður það þýðir að þú máttir vera á 90 þar sem þú varst miðað við að aðstæður væru góðar en það þýðir ekki að þú megir keyra hraðar þar vegna þess að þetta er svo góður vegur og það er svo gott veður og jaríjarí.

Hámarkshraði er hámarkshraði = Við BESTU aðstæður.
Þú mátt ekki ákveða sjálfur að hækka hámarkshraðann vegna þess að þér finnast aðstæður betri en þær verða bestar það er ekki svo erfitt að skilja þetta.

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Mið 27. Ágú 2008 09:00
af lukkuláki
Zorglub skrifaði:
lukkuláki skrifaði:Mér finnst ánægjulegt að sjá að það eru nokkrir hérna sem skilja út á hvað starf lögreglunnar gengur
lög og reglur eru eitthvað sem á að fara eftir alveg sama hvort þú sért sammála lögunum eða ekki.
Það er góð ástæða fyrir því að þessi lög eru sett og fólk á oftast að geta farið að lögum í einu og öllu.
Það er samt skiljanlegt að menn geti "gleymt" sér og farið "óvart" of hratt en það er samt lögbrot
þó það sé ekki einbeittur brotavilji. Þið lærið það þegar þið verðið stórir og lærið að meta of virða lögregluna
hún er jú til þess að hjálpa okkur.
Ég fékk mér bíl með hraðastilli (cruise control) og það hefur reddað mér í mörg ár snilld :)


Tja, eftir að hafa lent í því að löggan var að reyna að mana mann upp í kappakstur, akandi eins og vitleysingar í kringum mig á ómerktum bíl, þá fer nú frekar lítið fyrir virðingu á mínu heimili. Ekki nema að ég virði marga einstaklinga sem bera búningin með sóma en því miður er allt of mikið um óhæfa menn inn á milli.
Þeir hafa það þó reindar sér til vorkunar að ég var náttúrulega óvinur þjóðfélagsins NR 1, ungur maður á svörtum sportbíl Mynd


Sýndu meiri þroska en þeir og aktu bara eins og maður.
Ég er algerlega 100% sammála þér með það að það eru margir hálfvitar í lögreglunni sem ættu frekar að vera að gera eitthvað annað en að sinna lögreglustörfum. En það breytir ekki því að þeir eru lögreglumenn og eru þessvegna með okkur í "vasanum" við tökum þessu með ró og kvörtum við hærra setta ef okkur finnst illa fram komið við okkur.

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Mið 01. Okt 2008 11:41
af zcar
Hún kemur, þarft bara að eyða öllum peningnum þínum fyrst. Tók hálft ár fyrir mig:

janúar: Keyrði fullur + tekinn
febrúar til júní: stress
júlí: hélt ég væri sloppinn
júlí: keypti bíl
ágúst: SKULD og BURT MEÐ PRÓFIÐ

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Mið 01. Okt 2008 13:35
af CendenZ
zcar skrifaði:Hún kemur, þarft bara að eyða öllum peningnum þínum fyrst. Tók hálft ár fyrir mig:

janúar: Keyrði fullur + tekinn
febrúar til júní: stress
júlí: hélt ég væri sloppinn
júlí: keypti bíl
ágúst: SKULD og BURT MEÐ PRÓFIÐ



OG þú áttir það skilið að missa prófið.

OG það varst þú sem stofnaðir til skulda, ekki löggann.

Annars, takk fyrir að vekja gamlan þráð.
:D

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Mið 01. Okt 2008 14:24
af Pandemic
Var að pæla, var að keyra niður Gullinbrúna áðan og tók eftir að grænn súbarú legazy með tengdamömmubox var lagður við strætóstoppið, datt mér þá í hug að vinur minn hafði verið tekinn á 120 af svipuðum bil þannig ég hægi á mér niður í svona 63. Ég var með sólgleraugun á mér og tók eftir því þegar ég leit í afturrúðuna á bilnum að það kom rautt ljós, ekki beint flass heldur rautt ljós úr stórum kassa kannski 20x20cm á stærð.
Var ég tekinn eða var þetta laserinn sem ég hef séð útaf gleraugunum?

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Mið 01. Okt 2008 14:41
af lukkuláki
Það vantar nú bara í þessu slæma árferði og peningaleysi fólks að löggan liggi í leyni og skelli á mann sektum á stöðum þar sem maður er eins og hálfviti ef maður fylgir umferðarlögum þá er ég að tala um götur eins og Gullinbrú þar sem er 60 km. hámarkshraði en það er varla nokkur maður sem ekur á þeim hraða þar eða götur þar sem hámarkshraði er 30 og maður væri fljótari að labba. En samt lög eru lög og best að reyna að fara eftir þeim.

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Mið 01. Okt 2008 16:49
af zedro
Pandemic skrifaði:grænn súbarú legazy með tengdamömmubox

Já sami bíll var staðsettur rétt fyrir útan húsið hjá mér bara aðeins neðar í götunni. Var að skjótast í klippingu og hugsaði „hann er nú bara bilaður or sum“ enda uppá grasinu.
Sem betur fer ók ég í gagnstæða átt frá honum, slapp með skrekkinn..... or did I? DADADADAMM :lol: Var ekki fyrren ég var á heimleið í rólegheitur að ég tek eftir að hann er
enn á sama stað og þá loksin tekur mar eftir földu bláu ljósunum :P

En já ég ber mikla virðingu fyrir lögreglunni og fylgi öllum lögur eftir fremstu getu, einsog flestir þá á mar til að vera með blífót af og til í gengum ævina.
Ef mar er tekinn þá bara bítur maður í súra eplið borgar sektina og tekur í höndina á lögreglumanninum fyrir að sinna starfinu sínu :)