Síða 2 af 2

Re: The Dark Knight [WARNING possible Spoilers]

Sent: Þri 19. Ágú 2008 07:22
af halldorjonz
Sallarólegur skrifaði:Batman "gellan" var sick ljót vá. Heath Ledger var frábær. Mjög góð, en heldur löng mynd.
já þarna katie eða eitthvað? hún var nú fín í andlitinu í begins, en þarna.. what?

Re: The Dark Knight [WARNING possible Spoilers]

Sent: Þri 19. Ágú 2008 07:51
af Predator
halldorjonz skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Batman "gellan" var sick ljót vá. Heath Ledger var frábær. Mjög góð, en heldur löng mynd.
já þarna katie eða eitthvað? hún var nú fín í andlitinu í begins, en þarna.. what?
Vá áttaðiru þig ekki á því að þetta er allt önnur leikkona sem leikur í þessari mynd? :lol: Sú sem leikur í þessari mynd heitir Maggie Gyllenhall en stelpan sem lék í Batman Begins heitir Katie Holmes.

Re: The Dark Knight [WARNING possible Spoilers]

Sent: Lau 30. Ágú 2008 16:27
af coldcut
hún stóð engan veginn undir þeim væntingum sem ég hafði...er reyndar ekki mikill Batman fan en hún olli mér þó miklum vonbrigðum!

í fyrsta lagi var hún alltof löng og ég hélt á tímabili að það væri ekkert hlé og svo þegar það koma þá velti ég því mikið fyrir mér hvort ég ætti að fara aftur inn og eyða meiri tíma í að horfa á þessa mynd en ég ákvað að gefa henni séns og sé eiginlega eftir því. Bíóið var pakkað og einhverjir krakkar á gelgjunni öskrandi nokkrum sinnum bara uppúr þurru. Svo endaði með að ég sofnaði í annað sinn á ævinni í bíó (hitt var Tenacious D myndin) og vaknaði í lokaatriðinu.


veit þetta kemur seint en varð bara að tjá mína skoðun!