Síða 2 af 2

Re: Jarðskjálfti

Sent: Fim 29. Maí 2008 22:18
af urban
er í eyjum, fann mjög greinilega fyrir honum hér og hann var það sterkur hérna að 6 tonna bobcat skotbómulyftari fór að hoppa til við hliðina á okkur

ekki alveg viss um að ég hefði verið til í að vera þarna á selfossi eða hveragerði

Re: Jarðskjálfti

Sent: Lau 31. Maí 2008 14:45
af Siggeh
eg var bara heima á eyrarbakka þegar þetta gerðist... pollrólegur að spila MarioKart Wi þegar sjónvarpið... kommóðan undir sjónvarpinu skullu i gólfið allt úr hillunum fór úr þeim... allt í rústi inní allri íbúðinni bara... bílskúrinn hja mer ónýtur:S feitustu sprungur á honum... og i staðin fyrir að hann sé svona beinn.. þá er hann komin í u-lag :)

ofn inní stofu losnaði smá frá veggnum en hélst nu samt

Re: Jarðskjálfti

Sent: Lau 31. Maí 2008 21:42
af DoofuZ
Ég er í 109, var bara að sörfa eitthvað á youtúbunni og var í miðju myndbandi þegar skrifborðið byrjaði að titra. Var ekki lengi að átta mig á því hvað væri í gangi en var eitthvað tómur í hausnum, hafði ekki hugmynd um hvað ég ætti að gera svo ég lét mig bara leka niður af stólnum og undir skrifborðið :popeyed Brá nú svoldið þegar þetta byrjaði en var með ágætis adrenalínflæði í mér eftirá =P~

Re: Jarðskjálfti

Sent: Lau 31. Maí 2008 22:50
af urban
DoofuZ skrifaði:Ég er í 109, var bara að sörfa eitthvað á youtúbunni og var í miðju myndbandi þegar skrifborðið byrjaði að titra. Var ekki lengi að átta mig á því hvað væri í gangi en var eitthvað tómur í hausnum, hafði ekki hugmynd um hvað ég ætti að gera svo ég lét mig bara leka niður af stólnum og undir skrifborðið :popeyed Brá nú svoldið þegar þetta byrjaði en var með ágætis adrenalínflæði í mér eftirá =P~

reyndar ekkert vitlaus viðbrögð þannig séð

Re: Jarðskjálfti

Sent: Sun 01. Jún 2008 01:15
af Turtleblob
Var sofandi uppí rúmi þegar þetta byrjaði, hélt ég hefði legið eitthvað skringilega og væri að fá flog eða eitthvað :roll:
Fór svo bara aftur að sofa, var einhvern veginn ekkert að pæla í því að þetta hefði verið jarðskjálfti fyrr en ég vaknaði almennilega seinna