Síða 2 af 3
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Mán 21. Apr 2008 19:35
af GuðjónR
gumol skrifaði:Ég held það sé nú meira um að Íslendingar fremji glæpi á útlendingum en útlendingar á Íslendingum
Heldurðu að það verði alltaf þannig?
Hvað þegar mafían verður gráðugri og fer að heimta verndartolla af íslendingum eins og þeir gera innbyrðis?
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Mán 21. Apr 2008 19:42
af Gúrú
4x0n skrifaði:Gúrú skrifaði:gumol skrifaði:Og hvað ætlaru að gera þegar búið er að koma upp vegabréfaskoðuninni aftur? Hvernig á landamæravörðurinn að þekkja "glæpamennina" frá hinum?
Með gagnabanka.
Og telur þú það raunhæft miðað við aðstæður í sumum af þessum löndum þaðan sem þessir glæpamenn koma?
T.d. þegar það er komin handtökuskipun á einhvern í Póllandi, þá finnst mér raunhæft að við eigum að geta fengið að vita af því áður en hann er kominn inní landið.
Og já, mér finnst það raunhæft.
Er ekkert að tala um að ef enginn er grunaður í máli og við eigum að vera með svona glæpaþefjara á landamærunum, sem finnur upp þjófa sem náðust ekki í heimalandinu.
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Mán 21. Apr 2008 23:00
af e-r
Ég hélt að það væri svoleiðis kerfi, allavega er löggan með einhverja gæja í vinnu við að vera í svoleiðis samskiptum við Interpol.
og svo auðvitað að ég og Gúrú séum ennþá með 1.aðvörun stimpilinn á okkur
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Mán 21. Apr 2008 23:47
af Birkir
Það á að vera löngu búið að breyta lögum um fjárhættuspil, þau þurfa að vera skýrari.
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Mán 21. Apr 2008 23:55
af gumol
Gúrú skrifaði:Með gagnabanka.
Og hverng ætlaru að finna hvort aðilinn sem stendur fyrir framan þig sé hugsanlega einhver sem hét einhvertíman nafni sem er í gagnabankanum?
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Þri 22. Apr 2008 00:26
af ÓmarSmith
þegið þið bara í guðana bænum strax.
Þessi þráður var ekki stofnaður til að ræða bara útlendingamál. Þið eruð ekki sammála, farið á þing eða grenjið ykkur í svefn or god know what.
Við hötum útlendinga og elskum þá, punktur.!!
Mér finnst að Ísbúðin í Vesturbænum ætti að opna útibú í öllum hornum höfuðborgarsvæðisins því mér leiðist að eyða 45 mín í 1 fekking ís !! But it truly is the best.
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Þri 22. Apr 2008 00:34
af Sallarólegur
ÓmarSmith skrifaði:Mér finnst að Ísbúðin í Vesturbænum ætti að opna útibú í öllum hornum höfuðborgarsvæðisins því mér leiðist að eyða 45 mín í 1 fekking ís !! But it truly is the best.
Það var verið að selja hana, ég heyrði uppá 300milljónir og núna á að opna hana í Faxafeni.
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Þri 22. Apr 2008 00:53
af djjason
ÓmarSmith skrifaði:þegið þið bara í guðana bænum strax.
Farð þú bara að leggja þig.
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Þri 22. Apr 2008 01:02
af DoofuZ
Sallarólegur skrifaði:Það var verið að selja hana, ég heyrði uppá 300milljónir og núna á að opna hana í Faxafeni.
Hvað meinaru með "Það var verið að selja hana" og "núna á að opna hana í Faxafeni"? Ég veit ekki betur en að ísbúðin sé löööngu flutt þangað, fór þangað síðast fyrir nokkrum mánuðum síðan.
Ég er annars alveg sammála öllum sem hafa fram að þessu lagt orð í belg.
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Þri 22. Apr 2008 01:11
af hallihg
Þeir eru að tala um ísbúðina vestur í bæ, ekki álfheimum.
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Þri 22. Apr 2008 09:16
af TechHead
..Og svo er ísbúðin í vesturbæ að fara að opna aðra búllu á grensásvegi í Maí
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Þri 22. Apr 2008 10:36
af ManiO
Eruði að meina ísbúðina í Hagamel? Því þær eru nokkrar þarna í vesturbænum
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Þri 22. Apr 2008 13:36
af natti
djjason skrifaði:(því þetta er jú auðvitað eina viðurkenda skilríkið sem gefið er út af ríkinu)
Nei. Ökuskírteini er líka viðurkennt skilríki. Nafnkort líka.
Ef þú ert að ferðast innan schengen, þá er eina sem þú "þarft" er ökuskírteini.
Hinsvegar er flugvallarstarfsfólk mis-meðvitað um þetta, og dæmi eru um að fólk hefur lent í basli með að fara til danmerkur á ökuskírteininu sínu. En gekk þó fyrir rest.
4x0n skrifaði:Eruði að meina ísbúðina í Hagamel? Því þær eru nokkrar þarna í vesturbænum
Það er samt bara ein ísbúð með greini. Það vita allir um hvað er átt þegar talað er um "ísbúðina í vesturbænum".
Enda er þetta ofmetnasti ís landsins næst á eftir BrynjuÍs.
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Þri 22. Apr 2008 14:04
af ManiO
natti skrifaði:Það er samt bara ein ísbúð með greini. Það vita allir um hvað er átt þegar talað er um "ísbúðina í vesturbænum".
Enda er þetta ofmetnasti ís landsins næst á eftir BrynjuÍs.
Nei, ekki allir.
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Þri 22. Apr 2008 14:14
af djjason
natti skrifaði:djjason skrifaði:(því þetta er jú auðvitað eina viðurkenda skilríkið sem gefið er út af ríkinu)
Nei. Ökuskírteini er líka viðurkennt skilríki. Nafnkort líka.
Ef þú ert að ferðast innan schengen, þá er eina sem þú "þarft" er ökuskírteini.
Hinsvegar er flugvallarstarfsfólk mis-meðvitað um þetta, og dæmi eru um að fólk hefur lent í basli með að fara til danmerkur á ökuskírteininu sínu. En gekk þó fyrir rest.
Get ekki séð að það sé rétt hjá þér.
Þótt þeir sem ferðast innan Schengen svæðisins verði ekki krafðir um vegabréf á landamærum er engu að síður mælt með því að fólk hafi ávallt vegabréf sitt með í för. Sú skylda er lögð á alla sem ferðast innan svæðisins að geta framvísað fullgildum persónuskilríkjum sem eru viðurkennd af öðrum Schengen ríkjum. Sem stendur er íslenska vegabréfið í raun eina skilríkið sem vissa er fyrir að önnur ríki viðurkenni sem gild persónuskilríki. Einnig kunna flugfélög á Schengen svæðinu að óska eftir því að sjá vegabréf farþega sinna.
Tekið af vef Utanríkisráðuneytisins þar sem fjallað er um Schengen samstarfið.
http://www.utanrikisraduneyti.is/samningar/schengen/nr/9BREYTT: Bara til að forðast allan misskilning. Að þá lýt ég ekki á skilríki í þessu samhengi sem "viðurkennt" nema að öll önnur lönd viðurkenni það. Þannig að þó gefin séu út nafnkort hér á landi sem ríkið segir að "séu allt í lagi" að þá eru þau ekki viðurkennd.
Hinsvegar undirstrikar þessi heimasíða hjá Utanríkisráðuneytinu kjánaskapinn varðandi Schengen. Markmiðið er vegabréfslaus ferðalög "en veriði samt alltaf með vegabréfin með".
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Þri 22. Apr 2008 14:44
af Gúrú
gumol skrifaði:Gúrú skrifaði:Með gagnabanka.
Og hverng ætlaru að finna hvort aðilinn sem stendur fyrir framan þig sé hugsanlega einhver sem hét einhvertíman nafni sem er í gagnabankanum?
Mér finnst fáránlegt ef það er ekki til gagnabanki yfir fyrrverandi nöfn fólks..
"ahh má ekki fara til usa, breyti bara nafninu mínu í Tómas og fer aftur"
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Þri 22. Apr 2008 15:44
af urban
natti skrifaði:djjason skrifaði:(því þetta er jú auðvitað eina viðurkenda skilríkið sem gefið er út af ríkinu)
Nei. Ökuskírteini er líka viðurkennt skilríki. Nafnkort líka.
Ef þú ert að ferðast innan schengen, þá er eina sem þú "þarft" er ökuskírteini.
Hinsvegar er flugvallarstarfsfólk mis-meðvitað um þetta,
og dæmi eru um að fólk hefur lent í basli með að fara til danmerkur á ökuskírteininu sínu. En gekk þó fyrir rest.
ég held að ég sé búin að gera það ca 8 - 9 sinnum, og aldrei verið vandamál hingað til (á það til að skreppa þangað í helgarferð án þess að vera með vegabréf, og ég skýst ekkert heim að ná í það þegar að ég er í rvk.)
en aftur á móti þá ætlaði félagi minn að koma með næstu vél á eftir mér einmitt, og líka bara með ökuskírteinið en hann fékk ekki að fara með.
og Nafnkort eru ekki viðurkennd alþjóða skilríki, þau eru viðurkennd hér á landi, en þú gætir ekki notað þau hvar sem er (og rendar er orðið algengt að þú lendir í stórvandræðum með það að nota ökuskírteini til þess einnig)
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Mið 07. Maí 2008 23:45
af Sallarólegur
HVAR ERU VENJULEGIR RAFMAGNSBÍLAR. Mig langar í electric Imprezu
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Fim 08. Maí 2008 00:28
af skipio
Ég er nú ekki lengur vanur því að koma með athugasemdir hérna en here goes ...
Frikkasoft skrifaði:að það sé ekki löngu búið að breyta skattakerfinu þannig að við þurfum ekki að bíða í 1 ár eftir að fá borgað til baka ofborgaðan skatt frá ríkissjóði (og það án vaxta)
Ég geri ráð fyrir því að þú sért námsmaður því þetta snertir svo til eingöngu námsmenn sem hafa litlar sem engar tekjur síðustu 3-4 mánuði ársins.
Allavega, ef þú ert námsmaður þá geturðu auðveldlega sótt um endurgreiðslu á ofgreiddum skatti, sjá:
http://www.rsk.is/birta_sidu.asp?vefslo ... sp&val=4.0Vonandi að þetta hjálpi eitthvað.
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Lau 10. Maí 2008 12:55
af GuðjónR
Það ætti fyrir löngu að vera búið að breyta ÓmarSmith í konu.
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Mán 23. Jún 2008 23:54
af Arnarr
Revenant skrifaði:Hlutir sem pirra mig:
* Andstæða á móti frjálsum innflutningi á landbúnaðarvörum: Afhverju á að refsa allri þjóðinni fyrir sérhagsmuni bænda sem eru annað hvort á styrk frá ríkinu?
Skil ekki fólk sem vill afnema íslendskan landbúnað. Að vera bóndi er alveg nóu dýrt fyrir og það að leyfa frjálsann landbúnað mun bara drepa íslenskan lanbúnað að fullu, þess vegna vill fólk ekki frjálsan innflutning á landbúnaðarvörum.
Ég tel þar að auki að við ættum að fara að dæmi dana og banna/takmarka milljóna mærungunum á 25 milljóna Land Rover-unum að kaupa og kaupa jarðir á fáránlegum verðum og gera það ENN dýrara fyrir unga bændur að kaupa sér jörð... og það er ein ástæðann fyrir því hversu dýrt kjötið er...
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Þri 24. Jún 2008 01:38
af EmmDjei
--> Leyfa sölu áfengis í venjulegum verslunum t.d hagkaup, samkaup, nóatún, bónus ofl.
--> Lögleyða Marijuana
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Þri 24. Jún 2008 09:24
af Sallarólegur
vikkispike skrifaði:--> Lögleyða Marijuana
Já, gerum ísland að svona landi þar sem dópistar úr öllum heimshornum til að vera saman, svo það aukist sala á öðrum efnum! Hvernig er hægt að detta þetta í hug?
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Þri 24. Jún 2008 10:03
af EmmDjei
ok... að lögleyða marijuana er kanski aðeins of mikið.... en það þarf að vera hægt að kaupa áfengi í venjulegum verslunum!
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Þri 24. Jún 2008 10:18
af Klemmi
vikkispike skrifaði:ok... að lögleyða marijuana er kanski aðeins of mikið.... en það þarf að vera hægt að kaupa áfengi í venjulegum verslunum!
Hví ?