Síða 2 af 2

Sent: Fim 20. Nóv 2003 17:31
af Xnotandi
nös!

Sent: Fim 20. Nóv 2003 19:16
af Lakio
Ég var að læra eitt í dag um scsi diska!
Það er hægt að skrifa og lesa af þeim á sama tíma en ekki á IDE diskum!

Maxtor er þekktir fyrir gæði.....

Sent: Fim 20. Nóv 2003 21:24
af gnarr
ég er búinn að vita þetta um scsi í sona 15 ár ;)

Sent: Fös 19. Des 2003 21:01
af skipio
Daz skrifaði: Þarna er Raptorinn borinn saman við SCSI diska en ekki aðra SATA diska. Og þessi grein er síðan í maí, hlutir breytast nú hraðar í þessum bransa.
Ekki alveg rétt, vandamálið við harða diska er nefnilega það að þeir hafa sáralítið breyst síðustu áratugina. Diskarnir eru kannski stærri en hraðinn hefur lítið breyst, miðað við hraðann á örgjörvum til dæmis.

Svosem eðlilegt vegna þess að harðir diskar eru mekanískir og það er alltaf erfiðara að bæta hönnun á vélum en rafeindabúnaði.

Sent: Fös 19. Des 2003 21:06
af gumol
Það er nú að koma mikil breyting með S-ATA þegar það verður farið að nýta alla bandvíddina sem það hefur.

Sent: Lau 20. Des 2003 02:54
af Framed
gumol skrifaði:Það er nú að koma mikil breyting með S-ATA þegar það verður farið að nýta alla bandvíddina sem það hefur.
S-ATA er bara ekki nóg. Það er eingöngu gagnaflutningurinn frá disknum. Það á enn eftir að bæta afköstin á diskunum sjálfum (flestum) til þess að geta nýtt þessa auknu bandvídd alveg. :evil:
Núna er S-ATA aðeins 150 mb á sekúndu og diskarnir eru ekki að komast nálægt því að nýta þessa bandvídd. Venjulegir ata diskar eru ekki einu sinn að ná 133 mb og eins og ég sagði þá er mekaníski hluti diskana ennþá sá sami í S-ATA og ATA. :evil:
Það fyndna er að planið er að fara upp í 300 mb á næsta ári og síðan 600 tveimur árum eftir það, ef ég man rétt þ.e.a.s. Og nema að það komi drastískar breytingar á mekaníska hluta harða diska þá eigum við aldrei eftir að geta nýtt þess bandvídd. :twisted:

Sent: Lau 20. Des 2003 05:32
af Roggi
Það er alltaf hægt að finna reynslusögur um allar gerðir diska. Ekki að láta svona reynslusögur hræða sig.

Sent: Lau 20. Des 2003 13:54
af GuðjónR
Roggi skrifaði:Það er alltaf hægt að finna reynslusögur um allar gerðir diska. Ekki að láta svona reynslusögur hræða sig.
True...en það er óþarfi að allir þurfi að finna upp hjólið!
Því ekki að læra af mistökum annara? þurfum við alltaf að gera mistökin líka til að læra?

Sent: Þri 23. Des 2003 01:05
af Roggi
Sagði þetta bara svona að þó að sumir hafi lent í vandræðum með þetta brand þá þýðir það ekki að brandið sé ómögulegt. :P

Sent: Þri 23. Des 2003 01:12
af Arnar
Ég hef átt 3stk IBM, 2stk Seagate og 1stk Maxtor og ekkert af þessu hefur bilað hjá mér

Guess Im lucky

Sent: Þri 23. Des 2003 11:36
af skipio
Ég hef átt fullt af hörðum diskur í gegnum tíðina. Engir þeirra hafa bilað þar til nú um daginn að ég missti einn Maxtor og einn IBM (ferðatölvudisk) svo til samtímis.

Bömmer :!:

Sent: Þri 23. Des 2003 12:20
af Hlynzi
ég hef núna ákveðið að splæsa á eftir í einn af eftirfarandi framleiðendum, þar sem mér sýnist 120 gb diskarnir hagkvæmastir, þá er ég að pæla í þannig, Samsung (á einn 4 gb sem hefur aldrei klikkað þrátt fyrir nánast stanslausa 3 ára keyrslu, og mikla notkun annars fyrir það í 4 ár)

Seagate, Maxtor eða Samsung eru þeir sem koma til greina núna, er verulega að pæla í samsung disk. Versla mér disk núna eftir um það bil eina klukkustund.

Sent: Þri 23. Des 2003 13:53
af skipio
Hlynzi skrifaði:ég hef núna ákveðið að splæsa á eftir í einn af eftirfarandi framleiðendum, þar sem mér sýnist 120 gb diskarnir hagkvæmastir, þá er ég að pæla í þannig, Samsung (á einn 4 gb sem hefur aldrei klikkað þrátt fyrir nánast stanslausa 3 ára keyrslu, og mikla notkun annars fyrir það í 4 ár)

Seagate, Maxtor eða Samsung eru þeir sem koma til greina núna, er verulega að pæla í samsung disk. Versla mér disk núna eftir um það bil eina klukkustund.
Samsung, ekki spurning!

Sent: Þri 23. Des 2003 15:25
af gumol
Ég ætla líka að skreppa út í task.is og fá mér 160 GB samsung disk :)

Sent: Fös 26. Des 2003 16:26
af Buddy
Menn eiga það til að læra of mikið af reynslunni. Einu sinni voru IBM diskarnir það allra besta þangað til þeir keyrðu of hratt á þessa GXP75 og 60 diska. Eitt sinn voru Samsung það allra lélegasta. Núna held ég að allir séu að gera nokkuð góða hluti og munurinn sé ekki það mikill. Núna er þetta meira spurning um hvort menn vilja hljóðlátt og áreiðanleika (Samsung og Seagate) eða meiri hraða (IBM/Hitachi og WD) en því fylgir oft meiri hraði og meiri bilanatíðni.

Annars hef ég heyrt að Raptorinn sé í raun SCSI diskur og á að vera nokkuð vel heppnaður af þeim orsökum.

Farið á http://www.storagereview.com til að læra meira um HD'a.

Sent: Fös 26. Des 2003 17:24
af skipio
Buddy skrifaði:Menn eiga það til að læra of mikið af reynslunni. Einu sinni voru IBM diskarnir það allra besta þangað til þeir keyrðu of hratt á þessa GXP75 og 60 diska. Eitt sinn voru Samsung það allra lélegasta. Núna held ég að allir séu að gera nokkuð góða hluti og munurinn sé ekki það mikill. Núna er þetta meira spurning um hvort menn vilja hljóðlátt og áreiðanleika (Samsung og Seagate) eða meiri hraða (IBM/Hitachi og WD) en því fylgir oft meiri hraði og meiri bilanatíðni.

Annars hef ég heyrt að Raptorinn sé í raun SCSI diskur og á að vera nokkuð vel heppnaður af þeim orsökum.

Farið á http://www.storagereview.com til að læra meira um HD'a.
Þetta er ekkert flókið - diskarnir frá Samsung:
a) eru hljóðlátastir (ásamt Seagate Barracude IV).
b) eru með bestu ábyrgðina frá framleiðanda, 3 ár. Flestir eru aðeins með eitt ár núna.
c) eru alveg jafn hraðvirkir og aðrir diskar.
d) hitna miklu minna en diskar frá flestum öðrum framleiðendum. Slíkt minnkar líkum á því að diskur skemmist og gerir kælingu auðveldari.
e) Fólk hefur ekki lent í miklum vandræðum með þá hingað til.

Annars treysti ég alveg Hitachi diskunum í dag (Hitachi keypti diskaframleiðsluna frá IBM) - þetta var bara 75GXP línan sem sökkaði en svona gallar geta alltaf komið upp hjá öllum framleiðendum. Ég man hinsvegar ekki betur en að 60GXP hafi verið allt í lagi að mestu leyti.

WD Raptor er 10.000k diskur sem notar sama drive-unit og SCSI diskarnir en notar IDE interface í stað SCSI. Hann er því að mörgu leyti jafn góður og sömu drifin í SCSI útfærslunni frá WD en ekki að öllu leyti.

Sent: Fös 26. Des 2003 18:22
af gumol
Það er amk 2ja ár ábyrgð frá seljenudum á Íslandi.

Sent: Lau 27. Des 2003 00:23
af Pandemic
Minn samsung performar verr en WD :evil:

Sent: Lau 27. Des 2003 02:22
af Guffi
þessa grein er hægt að ræða og deila um leing leingi :lol: