Síða 2 af 2

Sent: Mið 12. Mar 2008 13:56
af Zorglúbb
Þarna finnst mér nú heldur illa vegið að samstarfsmanni mínum sem gerði ekkert annað en að svara því hvort hann væri hálfviti .... það sér hver heilvita maður að einhver sem svarar svona hnitmiðað og fallega fyrir sig getur ekki með góðu móti verið hálfviti.

Annars heiti ég Pétur, vinn hjá Tölvuvirkni og er hálfviti

Sent: Mið 12. Mar 2008 14:05
af ÓmarSmith
Jæja,

Miðað við þetta mjög svo þroskaða svar frá Da Beast, þar sem allt í einu hann,

Var með ótrúlega aumt og óþarfa leiðindarkomment beint að notanda hérna og stjórnanda og gerði lítið úr öðrum starfsmönnum annara eða frá annari tölvuverslun.

Hann ætti kannski að fara yfir pósta hérna á Vaktinni og þá kannski sér hann í leiðinni að oftar en ekki myndast leiðindaþræðir tengdir verslun er hann vinnur í.

Ég man ekki eftir því að hafa séð einhverjar leiðindarsögur frá t.d

Kísildal
Tölvutækni

Sem virðast vera í miklu uppáhaldi flestra notenda hérna.


TechHead virðist samt vera sá eini þarna sem getur tekið ofan hattinn sinn og rætt málin á eðlilegum nótum og svarað eðlilega fyrir sig og sína verslun.
Þið hinir ættuð kannski að láta hann bara sjá um þetta fyrir ykkur meðan þið hafið ekki alveg þroskann í að tjá ykkur á eðlilegum nótum.



PS, sæll Pétur og gott hjá þér að setja það þarna faglega inn hvar þú vinnur og hver þú ert.

Ég treysti því að þú sjáir þér það fært að vera málefnalegri en kollegi þinn og verðir á sama kalíberi og Stebbi. Ekki væri verra ef þú værir jafn góður málefnalega hérna og þú ert sem ljósmyndari :wink:

Sent: Mið 12. Mar 2008 14:20
af beatmaster
eða sem bassaleikari... ;)

Sent: Mið 12. Mar 2008 14:22
af Zorglúbb
Ómar, þú ert hreinlega ekki svaraverður.

Þessi vandamál sem þú virðist hafa með að höndla gagnrýni eiga miklu frekar heima hjá fagfólki s.s á Geðdeild Landspítalans en á opinberu spjall borði.

Það eitt að þú svo gróflega misnotar aðstöðu þina sem stjórnandi á þessu spjallborði segir sína sögu, ef rýnt er í svörin á þessum þræði þá hikar þú ekki við að kalla fólk hálfvita og bannar þá svo fyrir að kalla þig hund, sem þú ert.

Þú hefur sýnt í orði og æði að þú hreinlega ræður ekki við þau völd sem þér er treyst fyrir og spjall borð vaktarinnar líður fyrir það.

Hafið það gott í dag og ég vona að líf þitt hafi breyst til batnaðar Ómar við að ýta á bann takkan..... það er gott að hugsa til þess að það þurfi ekki meir til að gleðja lítinn mann.

Sent: Mið 12. Mar 2008 14:24
af Dazy crazy
Vá, fáið ykkur herbergi. :-$ =; :?

Sent: Mið 12. Mar 2008 14:31
af ÓmarSmith
Vá,

Ef þú last þetta aðeins betur þá sástu að ég setti ? merki fyrir aftan þar sem ég spurði bara hvort maðurinn væri hálfviti ;)

Því þetta ömurlega barnalega svar frá félaga þinum var fáránlegt. Og verðskuldaði alveg þessa spurningu.


Og já, miðað við hvernig hann ætlar að haga sér þá þótt mér ástæða til að setja hann í bann.

Og for the record þá er hann sá eini sem ég hef sett í bann, þannig að ég held að þú ættir að kynna þér aðeins betur það sem þú ert að bulla um áður en þú ferð að væla um misnotkun á völdum.


Og miðað við svör þín hérna þá mætti halda að þið væruð e-ð voðalega viðkvæmir sjálfir og þolið enga gagnrýni heldur hlaupið beint í vörn.

Sent: Mið 12. Mar 2008 14:34
af Dazy crazy
Zorglúbb=da beast?

Sent: Mið 12. Mar 2008 14:35
af Gúrú
Legg til þess að þessi umræða fari í skilaboðuskjóðurnar ykkar.

Annars finnst mér þessi framkoma hjá 'Da Beast' fáránleg til að byrja með...

Og að kalla einhvern 'hundinn þeirra í tölvutækni' er fáránlegt...

Og Zorglúbb. Finnst fáránlegt að segja að hann ráði ekki við þessi völd, og að spjallborðið líði fyrir það?

Finnst frekar fáránlegt að koma hingað og kalla fólk hund og segja að það sé með sleikjuskap.

Heill sé Bbúlgroz.

Sent: Mið 12. Mar 2008 14:39
af ÓmarSmith
Ég held að bæði Pétur og Nonni hjá Tölvuvirkni haldi ég mér sé e-ð illa við þá eða verslunina þeirra.

Það er bara hin mesti misskilningur, ég hef alltaf fengið topp þjónustu þar og oftar en ekki mælt með þeim við vini sérstaklega þegar þeir voru með besta úrvalið af Shuttle og besta verðið.

Ég bennti bara á aðrar umræður, og bennti einnig á það að enginn nema TechHead svaraði fyrir það , og gerði það bara mjög vel.

Asnalegt þegar menn hlaupa til í vörn og láta eins og Steingrímur J.


Jæja, njótið dagsins

Sent: Mið 12. Mar 2008 14:44
af Windowsman
Bíðið nú aðeins, Það verðskuldar bann að kalla stjórnanda hund.

Að reyn að gerA Lítið úr annari tölvuverslun vegna einhverrar minnimáttarkenndar.

Klemmi hefur að sjálfsögðu á réttu að standa og hann vil kanna alla möguleika áður en að skjákortið er sett í viðgerð.

Vildu starfsmenn Tölvuvirkni fá þennan einstakling til að setja kortið inn til dæmis hjá þeim til að geta látið borga fyrir ekki neitt ef þetta væri hugbúnaðarvesen.

Og þetta svar frá De Beast er eins og að lesa frá 3 ára barni.

Grow Up!

Sent: Mið 12. Mar 2008 14:48
af Blasti
Windowsman skrifaði:Grove Up!


Grow up er það nú held ég

en já ég legg bara til að þessu þræði verði læst, ef umræðan heldur áfram á þessum nótum skaðar það alla þá sem taka þátt í henni

Sent: Mið 12. Mar 2008 14:53
af ÓmarSmith
já, þetta er að leysast upp í vitleysu.


Þetta eru allt góðir strákar, hef ekki trú á öðru.

Ef e-r hefur gríðarlegar athugasemdir þá má viðkomandi senda mér bara PM, en þessum þræði verður læst hérmeð.

Sent: Mið 12. Mar 2008 15:09
af zedro
Kósí að vera stjórnandi hægt að svara læstum þráðum :D

En já vel gert hjá omari þetta svar "da beast" var ekkert nema skítkast og óþarfi.
Hefði ómar ekki gert það þá hefði ég bannað kauða :twisted:
Höfum ekkert við svona pakk að gera á vaktinni (athugið þetta er ekki beint að starfsmönnum Tölvuvirkni heldur einungis notendanum "da beast").

Peace Out O:)
Z