Síða 2 af 3
Sent: Þri 04. Des 2007 13:57
af Demon
Ég segji reyndar fyrir mitt leyti að LOTR myndirnar séu ætlaðar til að horfa á eina í senn, er mikill aðdáandi þeirra og bókanna en að horfa á þær allar í röð er bara meiri tími en ég vill sitja fastur að horfa á sjónvarp/tjald.
That being said, uppáhaldsbækur:
Lord of the Rings bækurnar
Bourne Identity bækurnar
A Time to Kill
Brotherhood of the Rose
Tarzan bækurnar (as in ekki myndasögurnar)
Flest allt eftir Stephen King.
Sent: Þri 04. Des 2007 14:34
af Xyron
4x0n skrifaði:Ég mætti einmitt á maraþonið, en varðandi að þeir hafi ekki sleppt neinu mikilvægu úr LOTR, þá er það argasta kjaftæði. Endirinn á þriðju myndinni var skelfilegur miðað við bækurnar, vantaði algjörlega þegar Sam og félagar koma aftur í heimabæjinn og taka til.
Það vantaði já, en eins með tom bombadil, þá eru það ekki atburðir sem koma aðalsöguni neitt gífurlega við..
Hefði viljað sjá endurkomuna til shire í extented útgáfuni..
faraldur skrifaði:Ég fór var SNILLD!!! var að deyja eftir fyrstu myndina í ofurþröngum sætum en svo dó fóturinn svo ég þurfti ekki að hafa meiri áhyggjur í mynd 2 og 3 Smile
Ég var nú með 2 sæti fyrir mig á þessari sýningu, gat lagt mið og alles, var mjög kosy
Sent: Þri 04. Des 2007 14:56
af CraZy
Fór einmitt á maraþonið þegar það var hérna á AK, það var algjör snilld, pizzur, koddar og nóg pláss

geðveikt kósí
Sent: Þri 04. Des 2007 14:59
af Birkir
Djöfull hefði verið geggjað að mæta til að sofa, ekkert betra en að sofa í bíó..

Sent: Þri 04. Des 2007 15:21
af gumol
Skil ekki að enginn hafi nefnt Harry Potter bækurnar, klárlega bestu bækurnar.
Sent: Þri 04. Des 2007 15:29
af ManiO
gumol skrifaði:Skil ekki að enginn hafi nefnt Harry Potter bækurnar, klárlega bestu bækurnar.
Nei.
En víst var Shire hlutinn mjög mikilvægur, sýndi þróun Sam og hinna hobbitana, persónulega fannst mér þetta einn mikilvægasti hlutinn í þriðju bókinni.
Sent: Þri 04. Des 2007 15:51
af CraZy
4x0n skrifaði:gumol skrifaði:Skil ekki að enginn hafi nefnt Harry Potter bækurnar, klárlega bestu bækurnar.
Nei.
Ekkert að þeim, þær eru ofarlega á mínum lista. Sé reyndar eftir því að hafa lesið þær allar á íslensku nema seinustu þær eru klárlega mun betri á ensku.
Sent: Þri 04. Des 2007 15:56
af Halli25
CraZy skrifaði:4x0n skrifaði:gumol skrifaði:Skil ekki að enginn hafi nefnt Harry Potter bækurnar, klárlega bestu bækurnar.
Nei.
Ekkert að þeim, þær eru ofarlega á mínum lista. Sé reyndar eftir því að hafa lesið þær allar á íslensku nema seinustu þær eru klárlega mun betri á ensku.
Á þær allar á ensku... las bók 2 á íslensku og vá hvað það saug

Sent: Þri 04. Des 2007 16:10
af gumol
Ég held ég hafi verið einn eða tvo sólarhinga með síðustu bókina. Hinsvegar eru myndirnar algerlega misheppnaðar.
Sent: Þri 04. Des 2007 16:48
af Halli25
gumol skrifaði:Ég held ég hafi verið einn eða tvo sólarhinga með síðustu bókina. Hinsvegar eru myndirnar algerlega misheppnaðar.
kannski ekki alveg misheppnaðar en miðað við bækunar eru þær crap... hlakka til að sjá hvort þeim hollywood mönnum hefur tekist betur upp með the golden compass... sú bók var rosalega góð, las samt bara fyrstu

Sent: Þri 04. Des 2007 17:38
af gumol
Misheppnaðar þannig að það eru td. svotil engin tengsl milli mynda. Staðsetning á hlutum er orðin allt allt önnur milli mynda. Dumbledor breyttist úr rólegum virðulegum skólastjóra í groovy mann sem var mjög æstur og frekar laus við að vera virðulegur, hann var ekkert eins og í bókunum.
Sent: Þri 04. Des 2007 18:13
af Xyron
Harry Potter bækurnar eru góðar líka, á bara eftir að lesa þá seinustu
Alveg sammála með að þær verði að vera á ensku
Sent: Þri 04. Des 2007 19:30
af urban
hmm
uppáhalds bók...
úff ég veit svo sem ekki alveg hvað ég á að nefna..
John Grisham hef ég alltaf fílað sem höfund
og reyndar dýrka ég útkallsbækurnar
en ég á soldið erfitt með að nefna einhverja eina sem eitthvða uppá hald
Sent: Þri 04. Des 2007 20:08
af CendenZ
Besta bók sem ég hef lesið er auðvitað Biblían.
þvílíka og aðra eins skáldsögu hef ég aldrei lesið, lýsingarnar eru svo geðveikar og atburðirnir hreinlega magnaðir.
Sent: Þri 04. Des 2007 21:03
af djjason
daremo skrifaði:Ég les nú ekki mikið af hefðbundnum bókum, en ég las einhvern tímann
Dune, sem var mjög góð.
Af þeim bókum sem ég les venjulega er Practical Unix í miklu uppáhaldi hjá mér

Nákvæmlega...síðasta bók sem ég las var "Málsvörn stærðfræðings"...annars les ég ekki hefbundnar bækur. Finnst það mjög leiðinlegt.
Sent: Mið 05. Des 2007 18:42
af kristjanm
Harry Potter bækurnar, og af þeim finnst mér númer 6 (Half-blood Prince) vera sú besta.
Bíómyndirnar gera lítið úr bókunum.
Sent: Mið 05. Des 2007 18:54
af biggi1
Haynes Renault megane & scenic 1996 to 1998, eina bókin sem ég hef lesið með fullann áhuga allann tímann!

Sent: Mið 05. Des 2007 22:24
af Sallarólegur
Stærðfræði 3000 og Dansk er mange ting

Sent: Mið 05. Des 2007 23:28
af gumol
Drei Männer im Schnee er líka algjört meistarverk. Klassa bókmenntir.
Sent: Mið 05. Des 2007 23:43
af Pandemic
Er í lestri á CompTIA A+ complete study guide something something...
Síðan eru Artemis Fowl í miklu uppáhaldi þrátt fyrir að vera hálfgerðar barnabækur, bara ótrúlega skemmtileg lesning sem léttir andann.
Las "The story of Pi" í fyrra helvíti fín bók sem skilur eftir
Annars les ég voða lítið bækur nema þær fjalli um Photoshop eða hönnun.
Sent: Fim 06. Des 2007 21:20
af natti
Veit ekki með uppáhalds, en eins og einhver benti á þá er American Gods eftir Neil Gaiman mjög góð.
Stardust er fín líka, betri en myndin amk. (eins og allar bækur svosem...)
Annars er ég fastur í Discworld bókunum eftir Terry Pratchett.
Er búinn að lesa fyrstu 9 bækurnar (ákvað að taka þetta í "réttri" röð) og er að lesa Moving Pictures núna.
Sent: Fim 06. Des 2007 21:25
af GuðjónR
natti skrifaði:Stardust er fín líka, betri en myndin amk.
Var að horfa á Stardust um helgina, góð ævintýramynd. Doldið fyrirsjáanleg en góð.
Hef ekki lesið bókina.
Sent: Fim 06. Des 2007 22:48
af natti
GuðjónR skrifaði:
Var að horfa á Stardust um helgina, góð ævintýramynd. Doldið fyrirsjáanleg en góð.
Hef ekki lesið bókina.
Mæli með að þú kíkir á bókina.
Hún er ekkert svakalega löng heldur.
Sent: Fös 07. Des 2007 00:08
af Harvest
Það er komin ný útgáfa af moldvörpunni... hún er stærri og með svona sprettugluggum eð ahvað þetta heitir.
Sent: Fös 07. Des 2007 00:55
af Landon
Ég mundi segja að Lúllabækurnar væru í uppáhaldi hjá mér. Þær eru mjög stuttar og vel læsanlegar, góðar fyrir krakka á aldrinum 7-10 ára sem eru að ná tökum á lestrinum. "Lúlli og Einhver" er besta lúllabókin að mínu mati.