Síða 2 af 5

Sent: Mán 19. Nóv 2007 18:49
af DaRKSTaR
farið á eftir 26 þúsund manns?

held það.. verðum öll yfirheirð á næstu 50 árum..

Sent: Mán 19. Nóv 2007 18:57
af cue
Því miður er það ekki svo flókið.

samkvæmt gagnagrunn Torrent.is varst þú deilandi á síðunni og gerðir þetta og hitt. Þér er boðið að ljúka málinu með greiðslu uppá 500.000kr.
Maður frá Smáís kemur innan stundar að innheimta.

Með þökkum.
Hagsmunaaðilar og aurapúkar.

Ef 26.000 manns hættu að nota eða kaupa þjónustu af þeim sem stóðu fyrir þessu væri kannski hægt að sýna þeim að þetta selur líka.
En því miður eru Íslendingar frekar slæmir í samstöðu.

Sent: Mán 19. Nóv 2007 19:01
af ManiO
Djöfull er ég sammála Crazy, isTorrent var hryllilega leiðinleg síða, good riddance :wink:

Sent: Mán 19. Nóv 2007 20:08
af arnason
EHFunin var stiginn til helvítis. Hver voru rökin fyrir því að stofnað yrði einkahlutafélag? Vildi Svavar bara fá titillinn „framkvæmdastjóri“? Who knows...

Það var e-h fjallað um þetta hjá Netfrelsi en síðan hef ég ekki séð neitt extreme um þetta.

BTW, tölvurnar voru ekki teknar af EHFinu...

Sent: Mán 19. Nóv 2007 20:44
af Olli
Hvaða torrent síður notið þið svo erlendar fyrir bíómyndir, þætti, tölvuleiki, tónlist, eða allt þetta í einni? (sem virkar núna)

Sent: Mán 19. Nóv 2007 21:17
af DoRi-
Olli skrifaði:Hvaða torrent síður notið þið svo erlendar fyrir bíómyndir, þætti, tölvuleiki, tónlist, eða allt þetta í einni? (sem virkar núna)


Torrentleech

Sent: Mán 19. Nóv 2007 21:40
af appel
Nú er bara að bíða og sjá hver þessi efnisleg rök eru fyrir lokuninni. Vonandi er Svavar búinn að vinna heimavinnuna sína og hrekji þessi rök. Ef þessi efnisleg rök verða tekin gild þá er orðið tímabært að slökkva á internetinu og bjóða velkomið fasistalögregluríkið Ísland.

Sent: Mán 19. Nóv 2007 21:49
af elgringo
Næst verður Google ritskoðað hér heima rétt eins og í N-Kóreu

Sent: Mán 19. Nóv 2007 21:58
af arnason

Sent: Mán 19. Nóv 2007 22:00
af ManiO
Sjálfur er ég með aðgang að Filelist og Torrentleech en er búinn að vera að nota Mininova undanfarið þar sem ég er með svo skitna tengingu. Einhver sem veit af hverju MN er ekki uppi?

Sent: Mán 19. Nóv 2007 22:09
af urban
cue skrifaði:Spurningin er, verður farið á eftir notendum eða öðrum stjórnendum?

Ætti maður að eyða öllum .torrent skrám sem benda eða tilkynna sig á istorrent... :)

Og hvernig var með logga ef þeir ákveða að rekja þetta?
Er til afrit af torrent gagnagrunninum, ef mann langaði nú að opna aðra síðu :)

Ég held að tölvurnar sem voru teknar af Deili í "gamla daga" hafi verið skilað einhverju ári eða árum síðar, veit það einhver?


það er svo sem hægt að rekja allan andskotann í gegnum gagnagrunnana, en málið er að tölvurnar voru ekki gerðar upptækar hjá honum Svavari

þannig að ef að hann er með eitthvað vit í kollinum ætti hann að taka afrit á einn HDD sem að hann ætti síðan að fela vel og vandlega og síðan að formata restina

en já með DC málið gamla, fólkið þar fékk aldrei tölvurnar sínar aftur, EN aftur á móti var eitthvað að gerast í því máli í dag

ákærur voru birtar.

http://www.netfrelsi.is/gamalt/2007/11/ ... _a_ver.php

Sent: Mán 19. Nóv 2007 22:23
af GuðjónR
Ég efast um að þeir hafi mannska, orku eða vilja í að fara í gegnum það sem 25þús manns eru búnir að vera dunda sér við síðustu árin.
Enda er það í sjálfu sér ekki tilgangurinn.

Tilgangurinn er að stoppa þetta og refsa þeim sem stóðu fyrir þessu öðrum víti til varnaðar.

Sent: Mán 19. Nóv 2007 22:34
af Blackened
Strákar.. tölvuglæpir eru stóralvarlegur hlutur ;)

http://youtube.com/watch?v=uj-3sBL_B_s

SadSadSad

Sent: Mán 19. Nóv 2007 23:02
af BugsyB
þetta er allt í lag að Istorrent sé farinn, ég náði orðið svo lítið í efni þangað, ég nota mest http://eztv.it/frontpage.php sem er besta sjónvarpsþátta síða fyrir utan BMT.org og það þarf ekki invite á hana eins og BMT

Sent: Þri 20. Nóv 2007 00:50
af GuðjónR
Kappinn er ekkert á þeim buxunum að gefast upp :)

Sent: Þri 20. Nóv 2007 00:54
af Sallarólegur
Það sem mun/þarf að gerast núna:

Opna Torrent síðu í Svíþjóð sem, eins og Torrent.is gerði heimilar bara íslenskar IP tölur.
Problem solved? Eina vandamálið er að þið þurfið að downloada einhverjum pínkulitlum .torrent frá erlendri síðu.

Sent: Þri 20. Nóv 2007 01:23
af Dári
arnason skrifaði:http://suprbay.org/showthread.php?t=7304&page=3 <- Umræða á SuprBay


Vitiði eitthvað meira um þetta mál með hann Ásgeir sem er nefndur á neðstu færslunni?

Sent: Þri 20. Nóv 2007 01:27
af Birkir
Dári skrifaði:
arnason skrifaði:http://suprbay.org/showthread.php?t=7304&page=3 <- Umræða á SuprBay


Vitiði eitthvað meira um þetta mál með hann Ásgeir sem er nefndur á neðstu færslunni?


Það var svaka umræða um þetta, var hann ekki eitthvað að reyna að fría sig af þessu?

Sent: Þri 20. Nóv 2007 01:30
af Dári
Birkir skrifaði:
Dári skrifaði:
arnason skrifaði:http://suprbay.org/showthread.php?t=7304&page=3 <- Umræða á SuprBay


Vitiði eitthvað meira um þetta mál með hann Ásgeir sem er nefndur á neðstu færslunni?


Það var svaka umræða um þetta, var hann ekki eitthvað að reyna að fría sig af þessu?


Hvar var sú umræða?

Sent: Þri 20. Nóv 2007 01:41
af Birkir
Hvort það hafi ekki verið m.a. hérna, þráður sem reyndar var eytt út, þar sem persónulegt skítkast og hringavitleysa var farið að einkenna hann.

Einhvers staðar sá ég amk mikla umræðu um þetta.

Sent: Þri 20. Nóv 2007 09:52
af arnason
Minnir að það hafi verið hér... Eða á Netfrelsi.

Sent: Þri 20. Nóv 2007 10:47
af cue
Er til einhver lýsing á því hvernig staðið var að DC handtökunum hérna um árið, eða öllu heldur hvernig gagna öflun var háttað fyrir þær handtökur?

Sent: Þri 20. Nóv 2007 10:57
af appel
Ég verð að viðurkenna að mér finnst súrt þegar fólk er að sækja ÓKEYPIS efni sem mér finnst að það ætti að borga fyrir.

Sem dæmi um það má nefna tölvuleikinn Crysis! Þeir eru búnir að vera smíða þennan leik í 4 ár, og leggja rosalega vinnu við hann og tæknina á bakvið. Svo fer ekkert á milli mála að um er að ræða afbragðsafþreyingu, og fólk er búið að fá ókeypis demo. Svo er fólk svo gróft að sækja fulla útgáfu leiksins án þess að borga. Það er virkilega erfitt fyrir tölvuleikjaframleiðendur að skila hagnaði í dag, samkeppnin er svo mikil. Í raun eru mjög fáir leikir sem skila hagnaði í dag.

Auðvelt er að kaupa sér eintak af Crysis, er ekki hægt að downloada honum á netinu og kaupa sér serial kóða? Þannig að afsökunin um að dreifingin sé svo léleg gildir ekki. (kostar 3þús kr í gegnum EA store, það eru einsog tvær bíóferðir + popp og kók en dugar mun lengur)



En þetta er bara ein af þessum siðferðislegum hliðum (ólöglegs) niðurhals. Það eru margar siðferðislegar hliðar, og jafnvel siðferðisleg hlið sem réttlætir (ólöglegt) niðurhal, t.d. í þeim tilvikum þar sem ómögulegt er að nálgast efnið hér á Íslandi nema í gegnum t.d. torrent-dreifingu.


Það eru einsog notendurnir/viðskiptavinirnir séu í einhverskonar stríði við framleiðendurna. Það er uppreisn, bylting, í gangi gagnvart þeim, og það eina sem þeir geta gert er að fara á eftir fólki, einstaklingum, með fyrirsögnum og hræðsluáróðri í fjölmiðlum.

Sent: Þri 20. Nóv 2007 11:50
af gumol
Þetta gæti verið rétt hjá þér með tölvuleiki og hugbúnað í sumum tilfellum.

En ef það á að fara að vega og meta réttlætið í því sem höfundarréttarsamtök gera annarsvegar og niðurhalarar hinsvegar þá er ekki spurningin að niðurhalarar hafa vinninginn. Aðgengið að "löglegri" tónlist sambærilega við það sem niðurhalarar eru að ná í er hræðilegt. Ég held það sé líka mun meira um að tónlist og kvikmyndum sé stolið en hugbúnaði.

Sent: Þri 20. Nóv 2007 11:58
af TechHead
Well, ég er einn af þeim sem niðurhalaði Crysis fyrir forvitnissakir og
óþolinmæði :oops:
Verslaði mér svo eintak um leið og hann var fáanlegur.
Að sjálfsögðu á að styrkja þá sem eru að gera eitthvað af viti :megasmile