Sent: Mið 27. Jún 2007 22:09
Þeir hafa lítinn áhuga á því að refsa sjálfum sér.wICE_man skrifaði:Sem er snilld sem Sjálfstæðisflokkurinn á örugglega aldrei eftir að taka uppSteewen skrifaði:Þjóðverjar eru líka með tekjutengdar sektir.
Þeir hafa lítinn áhuga á því að refsa sjálfum sér.wICE_man skrifaði:Sem er snilld sem Sjálfstæðisflokkurinn á örugglega aldrei eftir að taka uppSteewen skrifaði:Þjóðverjar eru líka með tekjutengdar sektir.
Jebb. Þetta er týpískt dæmi fyrir Íslendinga. Maður þarf orðið að svína einhvern til að fá að skipta um akrein.appel skrifaði:Eitt sem er voðalega pirrandi á Íslandi, það er þegar maður er að skipta um akrein. Ef það eru bílar á hinni akreininni, þá annaðhvort gefur maður í til að komast í autt pláss, eða hægir á sér. En þegar maður gefur í þá gefur hinn aðilinn líka í! einsog þetta sé einhver kappakstur eða hann vill bara einfaldlega ekki hleypa mér! Hey, mér er nokkuð sama hvort ég er á undan eða á eftir, ég vil bara skipta um akrein.
Íslendingar eru nú líka sér á báti með ansi mikið. Staðreyndin er að íslensk umferðarmenning er ömurleg, hraðakstursbraut breytir engu þegar kemur að þessu. Þetta týpíska atriði með tvo félaga (sama hver aldurinn er) sem hittast á ljósum og fara í spyrnu á ekkert eftir að breytast þó einhver hraðakstursbraut verði til út í rassgati. Sérðu fyrir þér tvo félaga hittast á ljósum og segja "Hey, frekar en að fara í spyrnu hérna klukkan 2 á laugardagsnóttu, eigum við að keyra út á hraðakstursbraut og fara í spyrnu þar?" Ekki séns að þetta gerist. Ég þekki nógu mikið af karlmönnum til að vita hvernig þeir hugsa í umferðinni. Þessi hraðakstur er sýndarmennska og ekkert annað. Þetta er bara eitt dæmi sem ég er að taka. Svo eru það spólararnir og þeir sem þurfa að "impreza" stelpurnar og fjölmörg önnur dæmi.Taxi skrifaði:@Stebet
Ísland yrði þá eina landið þar sem að hraðakstur og slys á götum minnkaði ekki með tilkomu akstursbrauta.
Ég tók þá líka bara bara sem dæmi því það er staðreynd að ungir karlkynsökumenn eru í stórum meirihluta í þessum brotum.Taxi skrifaði:Því miður eru fleiri en 18ára vitleysingar á Imprezu sem keyra alltof hratt,mjög oft er um að ræða fullorðið fólk á mjög dýrum bílum.
Helduru að fólk kunni ekki að keyra lengur þó það missi ökuleyfið? Ef fólk ætlar að keyra fullt þá er því skítsama hvort það sé með bílpróf eða ekki.Taxi skrifaði:Einnig er mikið hærra hlutfall af drukknum bílstjórum komið vel á aldur og refsingar við ölvunarakstri eru vægast sagt hlægilegar.
Ævilöng ökuleyfissvipting án möguleika á náðunm við fyrsta brot er eina refsingin sem kemur í veg fyrir ölvunaraksturstilraunir,sektir eru bara grín í svona alvarlegum málum.
Að gera ráð fyrir að allir sem þurfa að skipta um akrein keyri hægar en maður sjálfur séu að því bara til þess að tefja mann er vægast sagt ömurlegur hugsunarháttur. Pæla menn ekki í að þeir séu sjálfir að tefja annað fólk með þessum hugsunarhætti? Ef maður gefur bíl ekki séns inn á beygjuakrein eru menn augljóslega að tefja alla akreinina sem hann er á eins og var í mínu tilfelli. En nei nei, guð forði því að maður missi af ljósunum. Endilega flýtum okkur svo að ná þeim að við setjum bíla og aðra ökumenn í hættu. Það er ekki eins og ljósin séu 5 mínútna löng.Taxi skrifaði:Ég keyrði leigubíl í 6 ár og ég gef oft séns í umferðinni,það eru bara þessir bílstjórar sem er hleypt inná akreinina og keyra síðan svo hægt að sá sem gefur sénsinn missir af ljósunum,sem valda því að fólk hættir bara að gefa sénsinn til að forðast tafir.
Ég tala nú ekki um þá sem keyra um með stefnuljósið og eru ekkert að fara að skipta um akrein.
Tími er mjög dýrmætur,því að tíma er ekki hægt að kaupa eða fá tilbaka.
Semsagt það eru "hægu" bílstjórarnir sem valda þessari almennu geðveiki á götunum,með því að tefja fyrir öðrum.
Hvar sagðist ég sjálfur keyra yfir löglegum hraða? Ég reyni nú bara að halda mig á umferðahraða hverju sinni (sem er oftast kringum 100 á þjóðvegunum). Ég talaði um að ég hefði fengið Land Cruiser með tjaldvagn framúr mér á 120 og þá var ég að tala um að Landcruiserinn væri á 120 en ekki ég. Ég viðurkenni líka alveg að ég hef farið hraðar en það en ég geri það ekki kringum aðra bíla, svigandi milli akreina og takandi framúr.Taxi skrifaði:þú talar um löglegann hraða,þó að þú keyrir sjálfur yfir löglegum þá ert þú að skammast útí þá sem keyra hraðar en þú.
Er semsagt umferðarhraði sama og löghraðiStebet skrifaði:Hvar sagðist ég sjálfur keyra yfir löglegum hraða? Ég reyni nú bara að halda mig á umferðahraða hverju sinni (sem er oftast kringum 100 á þjóðvegunum). Ég talaði um að ég hefði fengið Land Cruiser með tjaldvagn framúr mér á 120 og þá var ég að tala um að Landcruiserinn væri á 120 en ekki ég.
Nei ekki alltaf, en yfirleitt er hann innan "eðlilegra" marka. Það er samt almenn skynsemi að fylgja umferðhraða á meðan hann er innan eðlilegra marka. Ég sé ekkert athugavert við að keyra á 100 á þjóðvegi í góðum aðstæðum á fólksbíl sem er jú það sem langflestir gera. En þegar þú ert farinn að taka framúr á 120 og sérstaklega þegar um er að ræða jeppa með kerru/tjaldvagn (hámarkshraði 80) eru menn farnir að leggja sjálfa sig og aðra í töluverða hættu.4x0n skrifaði:Er semsagt umferðarhraði sama og löghraðiStebet skrifaði:Hvar sagðist ég sjálfur keyra yfir löglegum hraða? Ég reyni nú bara að halda mig á umferðahraða hverju sinni (sem er oftast kringum 100 á þjóðvegunum). Ég talaði um að ég hefði fengið Land Cruiser með tjaldvagn framúr mér á 120 og þá var ég að tala um að Landcruiserinn væri á 120 en ekki ég.
Sagði aldrei að mér þætti eitthvað athugavert við að keyra á 100 á þjóðveginum við góð skilyrði, en það er samt yfir löghraða.Stebet skrifaði:Nei ekki alltaf, en yfirleitt er hann innan "eðlilegra" marka. Það er samt almenn skynsemi að fylgja umferðhraða á meðan hann er innan eðlilegra marka. Ég sé ekkert athugavert við að keyra á 100 á þjóðvegi í góðum aðstæðum á fólksbíl sem er jú það sem langflestir gera.
Aðreinir eiga ekki alltaf réttin. Mismunandi eftir staðsetningu því sumstaðar eru ljós sem skamta bíla á aðreinina eftir álagi og oft þar sem umferð er mikil þá eru biðskyldur og stöðvunarmerki. Hinsvegar þá bara "recogniza" menn sjálkrafa þörfina fyrir að hleypa fólki inná. Þess vegna halda menn sig helst frá akreininni lengst hægra megin (þeir sem eru allavega að keyra lengra) svo fólk geti notað þá akgrein til að komast inná og fara út af. Fólk bara sínir tillitsemi.Taxi skrifaði:
@djjason
Er ég að ruglast eitthvað með umferðarlögin í USA.?
Á ekki aðreinin réttinn inná stofnbrautir og má ekki beygja til hægri á rauðu ljósi,sem kemur í veg fyrir raðir og bið.
Ef slíkt væri í lögum hér,þá myndi slysum fækka held ég.
Óvarinn vegfarandi? hvenar eru þeir varðir?Bessi skrifaði:Hægribeygja á rauðu ljósi er með því hættulegasta sem þú getur gert óvörðum vegfarendum. Það er því engan veginn réttlætanlegt nema þú viljir fjölga slysum á óvörðum vegfarendum gríðarlega og þar af leiðandi gera reykjavík að enn meiri bílaborg en hún er og auka þannig enn frekar á umferð.
Held að þú hafir verið að rústa umræðunni um hægri beygju á rauðu ljósiBessi skrifaði:Óvarinn vegfarandi = einstaklingur í umferðinni sem hefur ekki skel um sig. Ósköp einfalt hugtak.
Gallarnir sem þú "sérð ekki" er að þar sem þetta hefur verið reynt þá fjölgaði slysum á gangandi vegfarendum um 43% til 107% og um 72% til 123% á hjólandi vegfarendum. (Heimild: Preusser, D.F., Leaf, W.A., Debartolo, K.B. and Blomberg, R.D. The Effects of Right-Turn-On-Red on Pedestrian and Bicyclist Accidents, Report No. DOT. HS 806 182, Dunlap & Associates, Inc., Darien, Conneticut, 1981)