Sent: Mán 02. Apr 2007 17:27
Það skilur enginn hvernig 'sósíalískt hagkerfi er byggt upp' enda virkar það engan vegin 

Tölvu og tækniáhuga samfélagið.
https://gamma.vaktin.is/
Ef fjármagnstekjuskattur hækkar fara flest hátekjufyrirtæki úr landi, það eru mörg dæmi um það.gnarr skrifaði:hvernig færðu það út?
Já, ég passa alltaf að spurja mömmu áður en ég segi álit mitt á hlutunum.GuðjónR skrifaði:Hehehe gaman að sjá ykkur litlu pungana hafa svona sterkar skoðanir.
Margir ykkar hafa aldrei kosið og hafa ekki aldur til að kjósa núna í apríl.
Samt virðist þið vita upp á hár hvernig kaupin gerast á eyrinni....
Auðvelt að lesa út úr póstunum ykkar hvað um er rætt við matarborðið hjá ykkur.
Þegar þú talar um öll evrópuríki, ertu þá að meina Sovíetríkin?gnarr skrifaði:ok.. þú semsagt segir að hagkerfi allra evrópulanda virki ekki?
Fynnst þér kapítalískt hagkerfi bandaríkjamanna virka betur?
Svona svona...ekki taka þetta svona til þín kallinn minn...gumol skrifaði:Já, ég passa alltaf að spurja mömmu áður en ég segi álit mitt á hlutunum.GuðjónR skrifaði:Hehehe gaman að sjá ykkur litlu pungana hafa svona sterkar skoðanir.
Margir ykkar hafa aldrei kosið og hafa ekki aldur til að kjósa núna í apríl.
Samt virðist þið vita upp á hár hvernig kaupin gerast á eyrinni....
Auðvelt að lesa út úr póstunum ykkar hvað um er rætt við matarborðið hjá ykkur.
Nei, enda eru "sovíet ríkin" ekki til enn þann dag í dag..gumol skrifaði:Þegar þú talar um öll evrópuríki, ertu þá að meina Sovíetríkin?
Sosíalismi kæfir niður allt einstaklings frumkvæði og heftir alla framför og hagkvæmni. Það eru ekki öll ríki evrópu með 'Social' stjórn og socialismi í dag er almennt ekkert annað en hallærisleg meðalmennska sem getur ekki tekið afstöðu í neinu. (lesist samfylkingin.. sem hefur td. engan annann tilgang en koma sjálfstæðisflokkum frá völdum). Er eitthvað ríki í evrópu sem getur kallast efnahagslegt stórveldi?gnarr skrifaði:ok.. þú semsagt segir að hagkerfi allra evrópulanda virki ekki?
Fynnst þér kapítalískt hagkerfi bandaríkjamanna virka betur?
Ekkert illa meintGuðjónR skrifaði:Svona svona...ekki taka þetta svona til þín kallinn minn...
Svíðþjóð er eitt socialískasta ríki evrópu og líka eitt ríkasta og best gangandi. Ég myndi alveg ganga það langt að kalla þá efnahagslegt stórveldi.Stutturdreki skrifaði:Er eitthvað ríki í evrópu sem getur kallast efnahagslegt stórveldi?
Mér finnst kapitalismi virka miklu betur, bara ekki endilega bandarískur.
Public skólar í Bandaríkjunum eru nú ekkert nýtt af nálinni. Hefur verið til í mörg mörg ár. Margir af stórum háskólunum eru til dæmis State skólar.gnarr skrifaði:Svíðþjóð er eitt socialískasta ríki evrópu og líka eitt ríkasta og best gangandi. Ég myndi alveg ganga það langt að kalla þá efnahagslegt stórveldi.Stutturdreki skrifaði:Er eitthvað ríki í evrópu sem getur kallast efnahagslegt stórveldi?
Mér finnst kapitalismi virka miklu betur, bara ekki endilega bandarískur.
Bandaríski kapítalisminn er orðinn mjög social smitaður. Tildæmis eru þeir með "public" skóla, sjúkrahús fyrir "fátæku aumingjana" og eru með nokkra miðstýringu og ríkisfjárveitingar í vegakerfi, lögreglu, sjúkralið og fleiri hluti.
Skrítið hvernig fólk vill alltaf fá alla þessa fríu hluti án þess að þurfa að gefa neitt í þá sjálft.
Hvernig er það gnarr....má maður bara ekki tjá sig á þessum vef um sínar skoðanir (nota bene, engar rökræður, engin véfenging, bara persónuleg skoðun) án þess að menn bregðist ókvæða við og vilji fara í eitthvað rifrildi. Ég get ekki lesið annað út úr þessu svari þínu en þú haldir að ég hafi verið að hrekja eitthvað sem þú sagðir á bak aftur...og greinilega án þess að koma með neinar sannanir.gnarr skrifaði: Ef þú ert svona þreyttur á þessum "öfga kommentum", komdu þá með leiðréttingar á þeim. Mér þykir það frekar slapt að véfengja rök með því að segjast vera þreyttur á þeim.
Ok. ég skil núna hvað þú varst að fara. Misskildi þig áðan, byðst afsökunar á þessu.djjason skrifaði:Hvernig er það gnarr....má maður bara ekki tjá sig á þessum vef um sínar skoðanir (nota bene, engar rökræður, engin véfenging, bara persónuleg skoðun) án þess að menn bregðist ókvæða við og vilji fara í eitthvað rifrildi. Ég get ekki lesið annað út úr þessu svari þínu en þú haldir að ég hafi verið að hrekja eitthvað sem þú sagðir á bak aftur...og greinilega án þess að koma með neinar sannanir.gnarr skrifaði: Ef þú ert svona þreyttur á þessum "öfga kommentum", komdu þá með leiðréttingar á þeim. Mér þykir það frekar slapt að véfengja rök með því að segjast vera þreyttur á þeim.
Hverslags vitleysisgangur er þetta? Finnst þér það slappt? Þá bara finnst þér það. Ég veit ekki til þess að ég hafi lagt í einhverja mikla baráttu til þess að véfengja það sem þú sagðir. Mér þætti þá allavega gott ef þú gætir bent á þau skrif mín, ég get allavega ekki komið auga á þau.
Hvað sagði ég? Ég er orðinn þreyttur á öfgafullum kommentum. Pólitísk umræða hefur breyst á undanförunum 2 - 3 árum úr því að vera málefnaleg umræða í það að vera munnlegt skítkast með hreint út sagt fáranlegum orðaforða. Það var það eina sem ég kommentaði á.
Áður en einhver byrjar að segja "en hægri menn segja alveg svoleiðis líka...." þá vil ég taka fram áður en menn lesa ekki póstinn minn áður en þeir svara að ég tengdi öfgafull komment ekkert við neina sérstaka pólistíska hreyfingu.
Þetta er bara mín skoðun. Ég held að menn geti alveg rætt hlutina á þess að nota svona orðalag...það er allt og sumt. Ef að mín skoðun að ég sé orðinn þreyttur á öfgafullum kommentum er "véfenging" á þínum "rökum" (hversu mikil sem þau voru eða vel studd) þá þarf ég greinilega að fara að endurskoða það hvernig ég tjái mig.
Ps. Ég eyddi heldur engu púðri í að leiðrétta þig varðandi public skóla. Ég einfaldlega benti á að þeir væru ekkert nýtt af nálinni til að vekja athygli að í annars flóknu og víða löskuðu Bandarísku hagkerfi væri að finna margt "sósíalískt".
Pss. Ef texti er illskiljanlegur eða ekki í samhengi þá biðst ég fyrirfram afsökunnar. Búferlaflutningar til kapítalistanna hafa greinilega haft slæm árif á íslenskuna
Breytt: Reyndi að laga stafsetningarvillur.
Veit svo sem ekki hvar þú býrð en hvernig þætti þér að hafa álver á lækjatorgi? Hafnarfjarðarbær á eftir að byggja þarna allt í kring og það er eiginlega bara bjánalegt að hafa svona verksmiðju við hliðina á byggð.kjarnorkudori skrifaði:Afhverju ekki að stækka álverið?
Álverið í straumsvík er að nýta sirka 50% af sínum mengunarkvóta.
Þeir munu setja nýjan tækjabúnað og leggja rafmagnslínur í jörð.
Ef stækkunin færi í gang myndu skapast fleiri störf og tekjur álversins myndu margfaldast, fyrir mér er það næg ástæða og eflaust hægt að finna margar fleiri.
Nákvæmlega. Það er akkurat þannig sem þetta verður alltaf. Sumir borga mikið en aðrir næstum ekki neitt, allir fá sömu þjónustu. Þannig sósíalismi gengur út á að sumir fái alla þessa fríu hlutii án þess að gefa mikið í þá sjálfgnarr skrifaði:Skrítið hvernig fólk vill alltaf fá alla þessa fríu hluti án þess að þurfa að gefa neitt í þá sjálft.
Ég hef nú aldrei heyrt talað um svæðið kringum straumsvík sem miðbæ eða hjarta Hafnarfjarðar eins og ég held að lækjartorg sé í Reykjavík. Endilega bentu á eitthverja aðra útflutningsgrein sem álverin koma í veg fyrir að sé hægt að stunda. Það er betra að hafa 2 stórar útflutningsgreinar en ekki bara fiskinn.Stutturdreki skrifaði:Veit svo sem ekki hvar þú býrð en hvernig þætti þér að hafa álver á lækjatorgi? Hafnarfjarðarbær á eftir að byggja þarna allt í kring og það er eiginlega bara bjánalegt að hafa svona verksmiðju við hliðina á byggð.
Persónulega finnst mér vera komið nóg af álverum, kominn tími á fjölbreyttari iðnað. Hvað gerist ef álverð hrynur og öllum álverunum á íslandi verður lokað? Opps.. enginn iðnaður eftir á íslandi.. hvað ætli margir fái málshætti um egg og körfur um páskana.
Það eru nú yfirleitt þeir hæst launuðustu sem að leggja hvað mest á sig að svíkjast undan skatti.gumol skrifaði:Nákvæmlega. Það er akkurat þannig sem þetta verður alltaf. Sumir borga mikið en aðrir næstum ekki neitt, allir fá sömu þjónustu. Þannig sósíalismi gengur út á að sumir fái alla þessa fríu hlutii án þess að gefa mikið í þá sjálfgnarr skrifaði:Skrítið hvernig fólk vill alltaf fá alla þessa fríu hluti án þess að þurfa að gefa neitt í þá sjálft.
Það er lítið hægt að skipta þessu á meðan maður hefur ekki núverandi skiptingu, þá til að miða við.elv skrifaði:Mjög gaman að fylgjast með þessari umræðu, tala nú ekki um þegar menn vilja meina að það sé hægt að reka ríkissjóð svo mikið betur og dæla peningum í hitt og þetta.
Þannig að , mig langar að sjá ykkur gera æfingu sem ASÍ lætur fólk gera á námskeiðum.
Ríkissjóður er með sirka 300millarða(að vísu rétt yfir 270 milljarðar í þeim gögnum sem ég er með, þau eru frá 2004, en þetta er svipað í dag) innkomu og hérna fyrir neðan eru útgjalda liðinir, skiptið þessu svo
Almenn opinber þjónusta
Löggæsla og öryggismál
Fræðslumál
Heilbrigðismál
Almannatryggingar og velferðarmál
Húsnæðis-, skipulags- og hreinsunarmál
Menningar- og kirkjumál
Eldsneytis- og orkumál
Landbúnaðar- og sjávarútvegsmál
Iðnaðarmál
Samgöngumál
Önnur útgjöld vegna atvinnuvega
Önnur útgjöld ríkissjóðs
Var mjög gaman hjá okkur að sjá hvar fólk vildi spara og láta meira í staðinn
ps og ekki svindla á þessu