Síða 2 af 4
Sent: Fim 22. Feb 2007 15:11
af Frimann91
Ertu ekki að meina hvernig við setjum það saman? (ég er sko með honum í þessu). Við ætlum að líma þau með sikaflexi
Sent: Fim 22. Feb 2007 16:40
af @Arinn@
Frimann91 skrifaði:Ertu ekki að meina hvernig við setjum það saman? (ég er sko með honum í þessu). Við ætlum að líma þau með sikaflexi
Mikið rétt það verður ekkert epoxy lím sull smellum bara sikaflex á allt
Förum ekki útí að sjóða þetta soldið vesen sikaflexið heldur þessu líka alveg 99% Oft notað inná bað hjá fólki t.d í sturtuklefa svo vatn komist ekki á milli.
Sent: Fim 22. Feb 2007 16:50
af @Arinn@
Þá er þetta komið aðeins lengra og er ég búinn að koma fyrir nipplum. Nipplanir voru of nálægt hvor öðrum þannig að ég þurfti að taka utan af þeim báðum svo þeir myndu ekki rekast saman fór í smergel upp í skóla og lagaði nipplana til. Þá er bara eftir að líma nipplana fasta með sikaflex og plöturnar fer örugglega í það um helgina.
Sent: Fim 22. Feb 2007 16:58
af SolidFeather
Flott að hafa bakgrunninn í fókus.
Sent: Fim 22. Feb 2007 17:01
af @Arinn@
já takk
eða hitt og hehe en þetta sést nú alveg áttaði mig alveg á þessu náði þessu ekki betur.
Sent: Fim 22. Feb 2007 17:58
af zedro
Hvar er reglustrikan
Sent: Fim 22. Feb 2007 19:01
af Blackened
@Arinn@ skrifaði:já takk
eða hitt og hehe en þetta sést nú alveg áttaði mig alveg á þessu náði þessu ekki betur.
Finndu MACRO stillinguna á myndavélinni
Sent: Fim 22. Feb 2007 19:28
af @Arinn@
Zedro skrifaði:Hvar er reglustrikan
Hehh ég gleymdi henni en þetta er nú samt 6cm á lengd.
Sent: Fim 22. Feb 2007 19:39
af Sallarólegur
Zedro skrifaði:Hvar er reglustrikan
Reglu
stikan.
Sent: Fim 22. Feb 2007 21:51
af elv
Hlunka slöngunipplar eru þetta
Sent: Fim 22. Feb 2007 22:27
af Sallarólegur
elv skrifaði:Hlunka slöngunipplar eru þetta
Sammála..þarf þetta er vera svona stórt ? :l
Sent: Fim 22. Feb 2007 22:51
af @Arinn@
minnsta sem þú færð miðað við gatið sem ég er með... ég er búinn að laga þetta til þetta er ekki það stórt bara svo þétt hjá mér semsagt leiðin sem vatnið fer á koparnum þannig að götin eru svo nálægt hvor öðru.
Sent: Fim 22. Feb 2007 23:05
af elv
Ertu með slöngunippla í einhverju , einhverkonar nippilmúffu ?
Finnst þetta voða furðulega útlítandi.
Sent: Fim 22. Feb 2007 23:28
af @Arinn@
Nei þetta er alveg venjulegt.... Ég þurfti að taka utan af nipplonum semsagt þurfti að slípa í burtu svo þeir pössuðu í þetta er alveg eðlilegt það var á þeim svona fyrir lykil til þess að geta hert þá en ég mjókkaði þá að neðan. virkar bara stærra úr myndavélinni
Málmurinn er bara svona á litin fyrir innan þetta skaðar ekkert. Stykkin sem nipplarnir eru á eru náttúrulega bara 6cm á lengd.. nippillinn eins og hann er núna er 1.5cm á breidd og 4cm á hæð.
Sent: Lau 24. Feb 2007 00:38
af @Arinn@
Jæja þá er ég að koma hérna með aðeins betri myndir og hægt að gera sér betur grein fyrir því hversu lítið þetta er miðað við nipplana. Nipplana setti ég í límingu, límdi þá með sikaflex. Nipplarnir ættu að vera öruggir í þessu núna en svona rétt að geta þess þá boraði ég snittið í burtu sem ég var búinn að snitta (kall í Barka sagði að þetta myndi alveg ganga ogan í en gerði ekki) og nipplarnir smellpössuðu í það og ákvað ég að líma þá svona í sem er ekkert verra enda er þetta sérstakt þéttilím.... Hér koma myndir.
Sent: Lau 24. Feb 2007 01:23
af Mazi!
Helvíti flott bara!
verður gaman að sjá hvernig þessi blokk á eftir að virka!
Sent: Lau 24. Feb 2007 19:55
af @Arinn@
Þá er blokkin farin í límingu hana límdi ég einnig með sikaflexi. Ég setti ágætlega þykkt lag af líminu og þvingaði svo niður ATH! Ef þið ætlið að búa ykkur svona til og ætlið að líma það svona þá skuluð þið ekki herða of fast þá þjappast allt ofan í holurnar og ef það er ekki nógu mikið af lími á báðum hliðum þá límist það ekki nógu vel.. ég gerði prufu á 2 koparkubbum sem ég átti og þar pressaði ég þá alveg eins og ég gat, þegar það var búið að þorna í sólahring gat ég bara ríft kubbana í sundur svo var eiginlega ekkert lím á flötonum þannig að það þarf að vera smá lím og alls ekki pressa það alveg niður... Sjá myndir.
P.S Kommentiði svo á þetta hvernig ykkur finnst þetta !
Sent: Lau 24. Feb 2007 20:35
af Dabbz
Næs
Sent: Lau 24. Feb 2007 22:51
af gnarr
:S persónulega myndi ég aldrei treysta svona lími.. myndi bara nota það í þéttingu, en ekki til að halda öllu saman. Ég myndi setja allavega eina skrúfu í gegnum hvert horn og setja ró á endann.
Sent: Lau 24. Feb 2007 23:10
af @Arinn@
Það er reyndar ekkert mál að gera það.... Þetta er nú samt bara svona smá prufa... getur verið að ég hafi komist í samband við mann sem getur látið mig hafa massívann kopar t.d 5cm á lengd og breidd og 1cm á þykkt og ég myndi fræsa úr því og sjóða það svo saman... Ég ætla að klára þetta og sjá hvernig þetta kemur út.... Enda varla neinn peningur búinn að fara í þetta. Þetta er heldur ekki að fara í mína vél... þetta er bara prufa en eins og elv sagði hann notaði silicon eða eitthvað álíka til þess að líma svona saman og það klikkaði ekki held ég. En svoleiðis blokk gæti litið svona út og hún gæti verið helvíti öflug.
Sent: Sun 25. Feb 2007 20:01
af Stutturdreki
Ætla rétt að vona hansvegna að hann hafi ekki notað sílikon því það endist frekar illa, sérstaklega í hita. Með tíð og tíma harðnar sílikon og missir viðloðun.
Sikaflex 11FC, svokallað límkítti (sem ég vona að þú sért að nota.. ekki Sikaflex 15LM), er miklu hentugara í þetta verk, jafnvel efni sem heitir Sikaflex T2 (ef ég man rétt) sem er bara lím með littla tegju. Mjög hentugt á málma og annað.
Persónulega myndi ég bolta þetta saman og setja efni eins og Sikaflex 11FC á samskeytinn eða sjóða blokkirnar saman. Alltof mikil hætta á því að þétti efnið þrýstist inn í rásina ef þú setur þetta undir pressu.
Sent: Sun 25. Feb 2007 23:13
af @Arinn@
Ég notaði sikaflex 11FC ég setti það ekki alveg upppað rásunum heldur aðeins frá útaf því að það myndi pressast út svo setti í rosalega littla pressu á þettta það er alveg sovna millimetersþykkt lag af sikaflex á þessu EN..... ég er búinn að prufa þetta eins og þetta er núna og ekkert lekur ekki neitt þannig það er allt í gúddí eins og er en ég ætla að bora fyrir boltum og setja rær til að tryggja þetta þár er þetta orðin ágætis blokk held ég bara
Sent: Sun 25. Feb 2007 23:31
af Taxi
@Arinn@ skrifaði:Ég notaði sikaflex 11FC ég setti það ekki alveg upppað rásunum heldur aðeins frá útaf því að það myndi pressast út svo setti í rosalega littla pressu á þettta það er alveg sovna millimetersþykkt lag af sikaflex á þessu EN..... ég er búinn að prufa þetta eins og þetta er núna og ekkert lekur ekki neitt þannig það er allt í gúddí eins og er en ég ætla að bora fyrir boltum og setja rær til að tryggja þetta þár er þetta orðin ágætis blokk held ég bara
Góður.boltarnir tryggja að blokkin heldur örugglega undir vinnsluþrýsting til lengri tíma.
Sent: Sun 25. Feb 2007 23:45
af Pandemic
Hefðir náttúrulega getað millað rák bara hringinn og sett lím í rákina og síðan pressað hana saman með boltum.
Kannski er mig að dreyma.
Sent: Sun 25. Feb 2007 23:46
af @Arinn@
Já þetat er í rauninni ennþá öruggara en það ef ég set boltana í vegna þess að það er mikið meira af þétingunni eða líminu.