Síða 2 af 2

Sent: Þri 13. Feb 2007 22:29
af ÓmarSmith
Maya - 3dstudio max - Acid - Steinberg QBase - Rebirth

Og sirka öll góð forrit notuð til hljóðblöndunar og myndvinnslu. Fannst meira að segja mun á Windows Movie Maker ;)

Hættið þessu þrasi Intel menn. Þeir sugu bara konunglegann þarna í smá tíma ;)

Komu svo glæsilega til baka og það sem meira er , þeir kolvörpuðu markaðnum með verðlagningu þannig að Go Intel !!

;)

Sent: Þri 13. Feb 2007 23:08
af gnarr
Ekki gleyma því að það voru AMD sem voru fyrstir til að vera með fáránlega ódýra örgjörfa miðað við samkeppnisaðilan.

Sent: Þri 13. Feb 2007 23:36
af GuðjónR
gnarr skrifaði:Ekki gleyma því að það voru AMD sem voru fyrstir til að vera með fáránlega ódýra örgjörfa miðað við samkeppnisaðilan.

You get what you pay for...

Sent: Þri 13. Feb 2007 23:41
af ICM
Ertu nokkuð með mikið Bang og Olufsen :lol:

Sent: Mið 14. Feb 2007 00:15
af zedro
GuðjónR skrifaði:
gnarr skrifaði:Ekki gleyma því að það voru AMD sem voru fyrstir til að vera með fáránlega ódýra örgjörfa miðað við samkeppnisaðilan.

You get what you pay for...

Þú villt ss. að intel einoki markaðinn og hækki verðu uppúr öllu valdi?
Með samkeppni er meiri pressa á að gefa út vandaða vöru á hagstæðu verði.

ÓmarSmith skrifaði:Til að mynda fékk ég mér Prescott 3.0GHZ og hef aldrei á ævinni átt annað eins drasl.

Did he get what he payed for? Greinilega ekki :? Ekki koma með svona skot nema þú hafir góðar heimlildir að AMD er alltaf verri en intel :wink:

Sent: Mið 14. Feb 2007 00:49
af GuðjónR
Zedro skrifaði: Ekki koma með svona skot...

Nohhh...ætlar þú að fara að segja mér hvað ég má segja og hvað ég má ekki segja....
Held ekki...

Sent: Mið 14. Feb 2007 21:19
af zedro
Það sem ég sagði:
Zedro skrifaði:
ÓmarSmith skrifaði:Til að mynda fékk ég mér Prescott 3.0GHZ og hef aldrei á ævinni átt annað eins drasl.

Did he get what he payed for? Greinilega ekki :? Ekki koma með svona skot nema þú hafir góðar heimlildir að AMD er alltaf verri en intel :wink:

......og það sem GuðjónR stytti það í:
GuðjónR skrifaði:
Zedro skrifaði: Ekki koma með svona skot...

Nohhh...ætlar þú að fara að segja mér hvað ég má segja og hvað ég má ekki segja....
Held ekki...

Okey hvernig færðu það út :shock:
Hefði kannski átt að segja "vinsamlegast ekki staðhæfa um hluti sem eru ekki sannir".

Það er enginn einn framleiðandi betri þetta eru alltaf sveiflur :roll:
GuðjónR er algör rúsína : )

Sent: Fim 15. Feb 2007 00:32
af corflame
GuðjónR skrifaði:
corflame skrifaði:Auðvitað er ávinningur þegar 64bita örgjörvi á sama klukkuhraða og 32bit örgjörvi keyrir sömu forritin, en bara töluvert hraðar :)

Og hver er ávinningurinn?

Hraðari vinnsla

Sent: Fim 15. Feb 2007 00:33
af corflame
kristjanm skrifaði:
corflame skrifaði:Auðvitað er ávinningur þegar 64bita örgjörvi á sama klukkuhraða og 32bit örgjörvi keyrir sömu forritin, en bara töluvert hraðar :)

Nefndu eitt forrit sem þú hefur notað og er hraðvirkara í 64 bita útgáfu.

Held þú sért að misskilja mig, er ekki að tala um 64bit forrit, heldur að 64bit cpu er að afkasta meiru m.v. sama klukkuhraða og 32bit cpu.

Sent: Fim 15. Feb 2007 06:13
af kristjanm
corflame skrifaði:

Já 64 bita örgjörvarnir eru sannarlega að afkasta meiru en 32bita örgjörvarnir, en það er bara af því að allir nýlegu örgjörvarnir eru 64 bita. Sannleikurinn er sá að það breytir engu/mjög litlu að keyra 64 bita forrit. Það var allavega þannig síðast þegar ég vissi, kannski er eitthvað búið að breytast.

Sent: Fim 15. Feb 2007 11:09
af ICM
kristján minn er eitthvað við 64bit sem þú ekki skilur? Ef þú ert með forrit sem nota mikið minni eða t.d. bara pökkunarforrit þá er gífurlegur munur, þó aðalega útaf því hversu illa Windows XP 32bit fer með viinsluminni.

Sent: Fim 15. Feb 2007 15:29
af kristjanm
Ég veit ekki til þess að það sé eitt einasta tilvik þar sem 64bit gagnast hinum almenna notanda, allavega ekki enn sem komið er. Ég þekki engan sem er með 4GB vinnsluminni eða meira.

Auðvitað er 64 bit það sem koma skal og það myndi vera frekar ómögulegt ef að við myndum aldrei komast hærra en 4GB RAM, en það sem ég er að meina er að 64bit gerir ekkert gagn fyrir okkur í dag þó svo að AMD hafi lagt mikla áherslu á þennan 64 bita eiginleika í markaðssetningu sinni.

Sent: Fös 16. Feb 2007 00:15
af dadik
corflame skrifaði:
kristjanm skrifaði:
corflame skrifaði:Auðvitað er ávinningur þegar 64bita örgjörvi á sama klukkuhraða og 32bit örgjörvi keyrir sömu forritin, en bara töluvert hraðar :)

Nefndu eitt forrit sem þú hefur notað og er hraðvirkara í 64 bita útgáfu.

Held þú sért að misskilja mig, er ekki að tala um 64bit forrit, heldur að 64bit cpu er að afkasta meiru m.v. sama klukkuhraða og 32bit cpu.

Tjahh .. það fer alveg eftir því hvað þú ert að gera. Ef ég man þetta rétt þá var aðalbreytingin á 64-bita extentionunum tvíþætt:

- heiltöluregisterin voru stækkuð úr 32 bitum í 64 bita (floating point voru óbreytt)
- allir bendar á minni voru stækkaðir úr 32 bitum í 64 bita þar sem að örgjörvarnir þurftu að geta addresserað 64 bita minni í stað 32 bita.

Það sem þú græðir á þessu er náttúrulega að minnið sem þú getur addresserað er nánast óendanlegt. Á móti kemur að í hvert skipti sem þú þarf að vinna með minnisaddressu þarftu að senda 64 bita í stað 32 áður. Smávægilegt overhead, en samt.

Stærsta breytingin var náttúrulega sú að heiltöluregistrin gátu unnið beint með 64 bita tölur. Í flestum tilfellum skipti þetta engu máli en það voru nokkur forrit sem græddu ansi mikið á þessu ef man rétt. Dulkóðun og þjöppun voru hluti af þessu minnir mig.

Almennt voru þessir 64 bita kubbar ekki skila neinni stórkostlegri afkastaukningu - pípurnar voru jafnlangar og áður, fjöldi registra var sá sami þannig að það breyttist í raun lítið - nema fyrir þá sem þurftu á 64 bita umhverfi að halda. Venjulegur notandi verður lítið var við þetta.

Þetta minnir mig á þegar 16 ventla vélarnar komu á markað. Þær voru reitaðar mun hærra í hestaflatölu en gömlu 8 ventla vélarnar. Vandamálið var bara að þessi hestöfl skiluð sér ekki fyrr en við 5500+ snúninga þannig að almenningur fann ósköp lítið fyrir þessu. 64 bita kubbarnir eru svipaðir - þetta breytir litlu fyrir venjulega notendur en fyrir aðra getur þetta skipt miklu máli.

Sent: Lau 03. Mar 2007 15:37
af Quashimoto
@Arinn@ skrifaði:Flott kaldhæðni...... Það sem ég á við eru AMD ekki að leyna einhverju ?

Grunar að það sé eitthvað í sambandi með Vista, 64bit og Quad örgjörvan!

Sent: Lau 03. Mar 2007 15:39
af Quashimoto
kristjanm skrifaði:Það eru mörg mörg ár þangað til það kemur örgjörvi með 80 kjörnum, þetta er bara einhver tilraunastarfsemi hjá Intel.

Er ekki PS3 með nífaldan örgjörva (9 kjarnar)? Frá hvaða fyrirtæki er hann?

Sent: Lau 03. Mar 2007 15:47
af Quashimoto
Ég held að 64bit örgjörvarnir fyrir Vista 64bit eigi eftir að rúla feitt í sambandi við framtíðarleikina fyrir Vista!

Sent: Lau 03. Mar 2007 15:50
af ICM
Svona dumbed down SPE eins og í CELL kallast seint kjarnar.

Quashimoto nota edit takkan...

Sent: Lau 03. Mar 2007 15:53
af Quashimoto
Fyrirgefðu í sambandi við fjöldan á svörum :-# en hvað átti við með SPE og CELL?

Sent: Fös 06. Apr 2007 20:37
af RaKKy
Er ekki PS3 með nífaldan örgjörva (9 kjarnar)? Frá hvaða fyrirtæki er hann?

Hmm.. tæknilega séð 2kjarna - 7 þráða.

Cell er mest yfirhype sem litið hefur dags ljós ^^ So is PS3

Sent: Fös 06. Apr 2007 20:57
af ManiO
RaKKy skrifaði:
Er ekki PS3 með nífaldan örgjörva (9 kjarnar)? Frá hvaða fyrirtæki er hann?

Hmm.. tæknilega séð 2kjarna - 7 þráða.

Cell er mest yfirhype sem litið hefur dags ljós ^^ So is PS3

Cell örgjörvar valta yfir venjulegu örgjörvana í floating point reikningum sem eru mikilvægir í flest öllum vísindum. Gott dæmi um hvar það hefur sýnt sig er folding @ home verkefnið hjá Stanford.

Sent: Fös 06. Apr 2007 21:49
af ICM
Leikir teljast ekki undir flest vísindi :roll: enda floating points eitt það gagnslausasta til að meta kraft vélar í tölvuleikja spilun enda leikir ekki streaming og "fyrirsjáanlegir" útreikningar

Sent: Fös 06. Apr 2007 21:57
af RaKKy
4x0n skrifaði:
RaKKy skrifaði:
Er ekki PS3 með nífaldan örgjörva (9 kjarnar)? Frá hvaða fyrirtæki er hann?

Hmm.. tæknilega séð 2kjarna - 7 þráða.

Cell er mest yfirhype sem litið hefur dags ljós ^^ So is PS3

Cell örgjörvar valta yfir venjulegu örgjörvana í floating point reikningum sem eru mikilvægir í flest öllum vísindum. Gott dæmi um hvar það hefur sýnt sig er folding @ home verkefnið hjá Stanford.

Vissulega eru þeir kröftugir... En þeir eru mjög takmarkaðir og næstum ónothæfir til forritunar sérstaklega í leikja bransanum enda vildi ég meina að Cell örgjafinn í PS3 sé overhype.