Síða 2 af 2

Sent: Fim 21. Sep 2006 22:41
af kristjanm
Mér fannst Íslandsklukkan líka skemmtileg. Reyndi einu sinni að lesa Sjálfstætt Fólk en gafst upp eftir fáeinar blaðsíður.

En ef þið viljið lesa virkilega leiðinlega bók þá mæli ég með Egils Sögu :)

Sent: Fim 21. Sep 2006 23:17
af Vilezhout
Mér þótti Gerpla vera ágætis skemmtun og Sjálfstætt fólk var óborganleg, Salka Valka var í meðallagi.

Þið getið bara haldið áfram að lesa Harry Potter með gumol fyrst að þið ætlið að tala svona illa um karlgreyið.

Sent: Fim 21. Sep 2006 23:42
af kristjanm
Vilezhout skrifaði:Mér þótti Gerpla vera ágætis skemmtun og Sjálfstætt fólk var óborganleg, Salka Valka var í meðallagi.

Þið getið bara haldið áfram að lesa Harry Potter með gumol fyrst að þið ætlið að tala svona illa um karlgreyið.
Harry Potter eru bestu bækur sem hafa verið skrifaðar, eða allavega þær bestu sem ég hef lesið, og ég get svona nokkurn veginn ábyrgst að ef þú prófar að lesa eina muntu lesa allar hinar og hafa mjög gaman af því.

Sent: Fös 22. Sep 2006 12:30
af Vilezhout
Ég hef nú lesið Harry Potter bækurnar og ég verð að segja að ég gæti auðveldlega talið upp 10 aðrar bækur sem að mér finnst vera mun áhugaverðari og jafnvel líka skemmtilegri.

Sent: Fös 22. Sep 2006 12:32
af ÓmarSmith
HeHE..

Hversu offtopic er þetta orðið :8)

Sent: Þri 26. Des 2006 03:40
af vjoz
Laxness hafði náttúrulega fín rök fyrir sínum breytingum. - fyndið að heyra fólk sem nauðgar íslenskunni taka upp málstað gamalla púrista, og bera Laxness fyrir.

Þetta er ótrúlega algengur misskilningur þeirra sem hafa rétt svo áttað sig á því að Halldór Laxness skrifaði íslensku með sérstökum hætti.

Merkilegt samt að trölla sinn eiginn þráð, - markmiðið hjá höfundi er varla að fá svör um hita í tölvukössum, ekki úr þessu allavega