Síða 2 af 2

Sent: Fös 28. Apr 2006 12:36
af kristjanm
Það má vel vera að þeir eigi eftir að bæta minnisstýringuna eitthvað, en málið er að örgjörvinn þarf ekki á þessari bandvídd að halda svo að hún mun ekki gera mikið gagn.

Btw ég er alls ekki að dissa A64, á sjálfur A64 örgjörva. En staðreyndin er sú að Intel eiga eftir að valta yfir AMD með Conroe.

AMD munu gefa út 65nm AM2 örgjörva í Q1 2007, kannski að staðan jafnist þá eitthvað. En A64 á eftir að þurfa alveg hrikalegan klukkuhraða til að geta staðist samkeppni við Conroe.

Og já dual-core örgjörvar eru stálið, bara verst að það vantar fleiri forrit sem nýta þá.

Sent: Fim 18. Maí 2006 12:45
af wICE_man
Svo virðist sem að AMD séu á leiðinni með hönnun sem ætti að jafna leikinn:

http://www.techreport.com/onearticle.x/9987

Ef að þeim tekst vel til með þetta þá ættu þeir að geta gefið Intel góða samkeppni, ég er eiginlega hálf fúll út í Intel fyrir að hafa beðið svona lengi með að skipta um Örgjörvahönnun enda verður núna loksins hægt að sjá alvöru afkastaaukningu og alvöru samkeppn. Ég vona að bæði Intel og AMD takist að standa við áætlanir sínar, það ætti að hrista upp í örgjörvamarkaðnum fyrir alvöru.

Þessi hönnun á að koma snemma árið 2007 en eins og greinarhöfundur minnist á þá vitum við öll hvernig þessir hlutir eru, þanig að fyrri helmingur 2007 er sennilega nákvæmara. Annars er ég hissa á hversu snöggir þeir ætla að vera með þetta þar sem að það er rétt mánuður frá því að maður fór að heyra fyrir alvöru um K8L hönnunina.

Sent: Fim 18. Maí 2006 13:12
af gnarr
vá! ef þeim tekst að koma öllu þessu í einn kubb, þá munu þeir svoleiðis rústa core! Annars er ég að vona að sögurnar um að PCI-e verði innbyggt líka standist. þá erum við að tala um ekkert latency milli skjákorta og vinsluminnis.