Síða 10 af 12

Re: Lokun Beta - Endalaust ókeypis utanlandsniðurhal

Sent: Fös 17. Maí 2013 00:59
af CurlyWurly
hannesstef skrifaði:
mikkidan97 skrifaði:Er þetta niðri fyrir fleiri en mig?
Mér sýnist þetta liggja niðri hjá mér líka.
Held að VPN tengingin sé ekki búin að vera að virka hjá mér síðan c.a. 23:15 í kvöld.
En hey, þetta er beta! Best að nýta downloadið en ekki þeirra meðan maður hefur ástæðu.

Re: Lokun Beta - Endalaust ókeypis utanlandsniðurhal

Sent: Fös 17. Maí 2013 02:40
af mikkidan97
CurlyWurly skrifaði:
hannesstef skrifaði:
mikkidan97 skrifaði:Er þetta niðri fyrir fleiri en mig?
Mér sýnist þetta liggja niðri hjá mér líka.
Held að VPN tengingin sé ekki búin að vera að virka hjá mér síðan c.a. 23:15 í kvöld.
En hey, þetta er beta! Best að nýta downloadið en ekki þeirra meðan maður hefur ástæðu.
Geri mér alveg fulla grein fyrir því að þetta er beta, vildi bara staðfesta að ég gæti ekki tengst vegna vandamáls í þeirra kerfi en ekki hjá mér, svo ég væri ekki að eyða tíma í að reyna að finna gallann mín megin ;)

Re: Lokun Beta - Endalaust ókeypis utanlandsniðurhal

Sent: Fös 17. Maí 2013 10:14
af benediktkr
Reyndu þið að tengjast aftur? Virka það núna fyrir ykkur? Sendið þá á lokun@lokun.is helst.

Re: Lokun Beta - Endalaust ókeypis utanlandsniðurhal

Sent: Fös 17. Maí 2013 12:59
af CurlyWurly
Er komið aftur í gang hjá mér :) Skal reyna að muna að senda mail næst þegar þetta kemur upp.

Re: Lokun Beta - Endalaust ókeypis utanlandsniðurhal

Sent: Mið 22. Maí 2013 19:50
af Fumbler
DJOli skrifaði:Er það eðlilegt að adapterinn komi upp sem 10Mbps?.
Já það er eðlilegt. þetta er bogus tala sem adapterin reportar samkv openvpn fourum

https://forums.openvpn.net/topic9438.html" onclick="window.open(this.href);return false;
https://forums.openvpn.net/topic9850.html" onclick="window.open(this.href);return false;
http://superuser.com/questions/472962/i ... -bandwidth" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Lokun Beta - Endalaust ókeypis utanlandsniðurhal

Sent: Fim 23. Maí 2013 11:10
af benediktkr
Takk Fumbler! Missti af þessari spurningu

Re: Lokun Beta - Endalaust ókeypis utanlandsniðurhal

Sent: Fim 23. Maí 2013 11:37
af gillirabbi
Er ekki ennþá hægt að fá invite ? Hvernig er það ?

Re: Lokun Beta - Endalaust ókeypis utanlandsniðurhal

Sent: Fim 23. Maí 2013 13:00
af Hallipalli
Væri til í að fá invite

Re: Lokun Beta - Endalaust ókeypis utanlandsniðurhal

Sent: Fös 24. Maí 2013 14:44
af Lezer
Sælir drengir

Glæsilegt framtak! Er hægt að fá boðslykil ennþá? [-o<

Re: Lokun Beta - Endalaust ókeypis utanlandsniðurhal

Sent: Fös 24. Maí 2013 14:51
af benediktkr
Ég er hræddur um að við gefum ekki út fleiri boðslykla, en það styttist í release!

Re: Lokun Beta - Endalaust ókeypis utanlandsniðurhal

Sent: Fös 24. Maí 2013 14:58
af AntiTrust
Verður USA IP/proxy function í public version?

Re: Lokun Beta - Endalaust ókeypis utanlandsniðurhal

Sent: Fös 24. Maí 2013 17:19
af benediktkr
Ekki strax. Releasið núna verður með sömu virkni og betan hefur haft, nema að þegar fólk byrjar að borga okkur peninga verður auðveldara fyrir okkur að stækka nóg (þá er ég að hugsa um hraðan sem notendur fá). Við erum að prófa síðustu hlutina í betuni sem þarf fyrir release.

Hinsvegar virðist vera mikill áhugi fyrir því sem sem þú nefnir. Það er búið að lofa okkur tæknini sem þarf til þess að útfæra það.

Re: Lokun Beta - Endalaust ókeypis utanlandsniðurhal

Sent: Þri 28. Maí 2013 23:59
af BugsyB
djöfull er ég sáttur við ykkur í augnablikinu - er með vdsl frá símanum og 100mb fiber frá hringdu - núna er hringdu að skíta á sig með 250gb og ég með vdsl með 10gb að rokka og engar ahyggjur af erlenda niðurhalinu - frábært

Re: Lokun Beta - Endalaust ókeypis utanlandsniðurhal

Sent: Fim 30. Maí 2013 09:45
af Kristján Gerhard
Er betan ekki ennþá virk? Fæ eftirfarandi:

Kóði: Velja allt

openvpn[60891]: AUTH: Received AUTH_FAILED control message

Re: Lokun Beta - Endalaust ókeypis utanlandsniðurhal

Sent: Fim 30. Maí 2013 11:00
af benediktkr
Kristján Gerhard skrifaði:Er betan ekki ennþá virk? Fæ eftirfarandi:

Kóði: Velja allt

openvpn[60891]: AUTH: Received AUTH_FAILED control message
Jú, en hún er ennþá beta :) Var að vinna í authentication kerfinu, þú hefur lent óvart á þeim server. Þú hefur specific vandamál og færð PM frá mér.

Re: Lokun Beta - Endalaust ókeypis utanlandsniðurhal

Sent: Þri 04. Jún 2013 02:17
af CurlyWurly
Er heimasíðan hjá Lokun niðri hjá einhverjum fleirum en mér?

Re: Lokun Beta - Endalaust ókeypis utanlandsniðurhal

Sent: Þri 04. Jún 2013 10:06
af playman
CurlyWurly skrifaði:Er heimasíðan hjá Lokun niðri hjá einhverjum fleirum en mér?
virkar hjá mér.

Re: Lokun Beta - Endalaust ókeypis utanlandsniðurhal

Sent: Þri 04. Jún 2013 13:47
af Klemmi
CurlyWurly skrifaði:Er heimasíðan hjá Lokun niðri hjá einhverjum fleirum en mér?
http://www.downforeveryoneorjustme.com/lokun.net" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Lokun Beta - Endalaust ókeypis utanlandsniðurhal

Sent: Þri 04. Jún 2013 14:58
af GuðjónR
Það er lokun.is en ekki lokun.net

Re: Lokun Beta - Endalaust ókeypis utanlandsniðurhal

Sent: Þri 04. Jún 2013 14:58
af benediktkr
Rétt, lokun.net er domain squatting síða sýnist mér. Við eigum hinsvegar lokunin.net en notum það ekkert.

Re: Lokun Beta - Endalaust ókeypis utanlandsniðurhal

Sent: Þri 04. Jún 2013 16:05
af Swanmark
Smá spurning .. þegar ég er farinn að borga þennan tvöþúsundkall .. það stendur á síðunni að allar tölvu heimilisins megi vera með þetta samtímis.

En hvernig er það, má ég setja þetta upp á mínum aðgangi á fleiri heimilum, þar sem að ég mun ekki nota þetta terabyte á mánuði? :)

Re: Lokun Beta - Endalaust ókeypis utanlandsniðurhal

Sent: Þri 04. Jún 2013 16:55
af playman
Swanmark skrifaði:Smá spurning .. þegar ég er farinn að borga þennan tvöþúsundkall .. það stendur á síðunni að allar tölvu heimilisins megi vera með þetta samtímis.

En hvernig er það, má ég setja þetta upp á mínum aðgangi á fleiri heimilum, þar sem að ég mun ekki nota þetta terabyte á mánuði? :)
Kaemkai skrifaði:
Klemmi skrifaði:Miðast 2000kr.- bara við eina tölvu?

Ef ekki, kemur eitthvað annað en heiðarleiki í veg fyrir að einstaklingar kaupi áskrift og leyfi vinum og vandamönnum að nota?
Eins margar tölvur og þú vilt, við verðum bara að treysta þér. Mundu að lykillinn þinn er innbyggður í forritið og hver sem hefur það getur afritað hann og notað gagnamagnið þitt. Ef þetta er vandamál fyrir okkur í framtíðinni höfum velt fyrir okkur þeim möguleika að takmarka fjölda IP talna sem geta tengst á sama tíma undir sama aðgangi. Þannig geta ótakmarkað margar tölvur á sama heimili tengst okkur en ekki ótakmarkað mörg heimili. Eingar ákvarðanir hafa verið teknar um þann möguleika en við viljum komast hjá því.

Re: Lokun Beta - Endalaust ókeypis utanlandsniðurhal

Sent: Þri 04. Jún 2013 18:04
af Swanmark
playman skrifaði:*svar*
Takk fyrir svarið :)

Re: Lokun Beta - Endalaust ókeypis utanlandsniðurhal

Sent: Þri 04. Jún 2013 19:05
af rango
Kaemkai skrifaði: Eins margar tölvur og þú vilt, við verðum bara að treysta þér. Mundu að lykillinn þinn er innbyggður í forritið og hver sem hefur það getur afritað hann og notað gagnamagnið þitt. Ef þetta er vandamál fyrir okkur í framtíðinni höfum velt fyrir okkur þeim möguleika að takmarka fjölda IP talna sem geta tengst á sama tíma undir sama aðgangi. Þannig geta ótakmarkað margar tölvur á sama heimili tengst okkur en ekki ótakmarkað mörg heimili. Eingar ákvarðanir hafa verið teknar um þann möguleika en við viljum komast hjá því.
Ég er með 2 ip tölur á einu heimili og það er pain að nota t.d. unotelly sem festir sig við eina ip tölu.

Re: Lokun Beta - Endalaust ókeypis utanlandsniðurhal

Sent: Fim 06. Jún 2013 11:27
af benediktkr
Eins og þið eflaust tóku eftir datt nánast öll Lokun út í nokkra klukkutíma í gær og var ekki komið fyllilega í gang fyrr en seint um kvöldið. Það var útaf bilun hjá GreenQloud en við biðjumst afsökunar á þessu.

Hinsvegar þá erum við að vinna í breytingum á okkar kerfum til þess að geta betur þolað svona uppákomur án þess að allt dótið okkar detti út.

En persónulega þá er ég afskaplega feginn að þessi vandamál séu að koma í ljós í Beta en ekki í raun kerfinu.