Síða 9 af 9
Re: Blikur á lofti í vaxtamálum
Sent: Mið 17. Nóv 2021 15:59
af falcon1
Ég er allavega sáttur með að hafa drifið í að festa vextina hjá mér um daginn. Ég býst við þessu hækkunarferli sé ekki lokið.
Vildi samt að við gætum notið lágvaxtarumhverfis til langs tíma en það virðist ekki vera hægt.
Re: Blikur á lofti í vaxtamálum
Sent: Mið 17. Nóv 2021 16:30
af GuðjónR
falcon1 skrifaði:Ég er allavega sáttur með að hafa drifið í að festa vextina hjá mér um daginn. Ég býst við þessu hækkunarferli sé ekki lokið.
Vildi samt að við gætum notið lágvaxtarumhverfis til langs tíma en það virðist ekki vera hægt.
Sömuleiðis, góð tilfinning að vera með 4.05% fasta vexti næstu þrjú árin.
Stýrivextir eiga eftir að fara yfir 5% á því tímabili og bankavextir sjálfsagt í 7-8% eða hærra, fer eftir verðbólgu.
Svo verður annað hrun, þetta minnir mig á tímabili frá 2005 og að bankahruni, þegar allir fóru í gengislán svo hrundi gengið og öll lán hækkuðu um 30% á einni nóttu. Þessa fasteignaverðshækkanir sem hafa átt sér stað eru engan vegin sjálfbærar.
Re: Blikur á lofti í vaxtamálum
Sent: Mið 17. Nóv 2021 16:46
af falcon1
Æ ég ætla nú rétt að vona að það verði nú ekki svo slæmt að það verði álíka hrun og 2008.
Finnst samt gott að geta verið öruggur um að vita alltaf nákvæmlega hvaða upphæð ég þarf að borga í lánið næstu 5 árin sama hvað gerist með vexti og verðbólguna. Hef litla trú á að verðbólgan hjaðni mikið þar sem verðbólga erlendis er á töluverðri siglingu líka.
Re: Blikur á lofti í vaxtamálum
Sent: Mið 17. Nóv 2021 16:50
af worghal
falcon1 skrifaði:Ég er allavega sáttur með að hafa drifið í að festa vextina hjá mér um daginn. Ég býst við þessu hækkunarferli sé ekki lokið.
Vildi samt að við gætum notið lágvaxtarumhverfis til langs tíma en það virðist ekki vera hægt.
sama hér, get sofið rótt eftir að hafa farið í endurfjármögnun og fest vexti um daginn
Re: Blikur á lofti í vaxtamálum
Sent: Mið 17. Nóv 2021 16:53
af Hjaltiatla
Fasteignamarkaðurinn gæti orðið fórnarlamb verðbólgu
https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/20 ... b_verdbol/
Enn kemur verðbólgan í bakið á Seðlabankanum
https://www.ruv.is/frett/2021/11/17/enn ... labankanum
Maður er eitthvað að reyna að lesa í stöðuna. Mann grunar að verkalýðsforustan eigi eftir að láta í sér heyra þar sem Seðlabankastjóri er að vara við launahækkunum.
Hver veit svosem hvernig Covid ástandið á eftir að þróast , en talað er um að kostnaður á erlendum vörum hækki (vegna hærri flutningskostnaðar). Öfunda ekki fólk sem er að koma sér inná fasteignarmarkaðinn þar sem það er minna framboð á íbúðum en eftirspurnin (hjálpar ekki til ef verð á byggingarvörum og launakostnaður verður hærri á næstunni við að reisa ný hús).Gæti alveg trúað að fasteignaverð hækki enn frekar.
Re: Blikur á lofti í vaxtamálum
Sent: Mið 24. Nóv 2021 18:39
af GuðjónR
https://www.visir.is/g/20212187484d/lan ... kkar-vexti
Í kjölfar breytinganna verða breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum hjá Landsbankanum 4,20%. Lægstu fastir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum verða 4,65%.
Re: Blikur á lofti í vaxtamálum
Sent: Mið 24. Nóv 2021 18:52
af hagur
Vúhú, ég er sáttur við mína 3.9% föstu vexti næstu c.a 2.5 árin. Að festa vextina síðasta vor var greinilega rétt ákvörðun.
Re: Blikur á lofti í vaxtamálum
Sent: Mið 24. Nóv 2021 19:21
af vesley
Vextirnir komnir í 3,6% hjá mér eins og við var að búast. Spurning hver staðan verður um næsta sumar hvort það sé rétt hjá mér að festa ekki vexti
Re: Blikur á lofti í vaxtamálum
Sent: Mið 24. Nóv 2021 19:34
af Klemmi
Held að þetta sé í fyrsta skipti frá því að ég tók fyrst lán í byrjun 2015, sem það hefur borgað sig að vera með fasta óverðtryggða vexti.
Gleður mig að ég er loksins með hagstæðustu lánatýpuna, en á sama tíma hef ég borgað helvíti mikið aukalega hingað til, og auðvitað súrt að fagna verðbólgunni og hækkandi vaxtastigi.
Re: Blikur á lofti í vaxtamálum
Sent: Mið 24. Nóv 2021 19:37
af GuðjónR
vesley skrifaði:Vextirnir komnir í 3,6% hjá mér eins og við var að búast. Spurning hver staðan verður um næsta sumar hvort það sé rétt hjá mér að festa ekki vexti
Kristalskúlan mín spáir 4.5% hjá þér um mitt næsta ár…
hagur skrifaði:Vúhú, ég er sáttur við mína 3.9% föstu vexti næstu c.a 2.5 árin. Að festa vextina síðasta vor var greinilega rétt ákvörðun.
Góður!
Ég beið aðeins of lengi, samt sáttur með 4.05%
Re: Blikur á lofti í vaxtamálum
Sent: Mið 24. Nóv 2021 20:19
af vesley
GuðjónR skrifaði:vesley skrifaði:Vextirnir komnir í 3,6% hjá mér eins og við var að búast. Spurning hver staðan verður um næsta sumar hvort það sé rétt hjá mér að festa ekki vexti
Kristalskúlan mín spáir 4.5% hjá þér um mitt næsta ár…
Kæmi mér ekki á óvart en spurning hvort það muni vara lengi.
Er líka núna að borga aukalega á lánin meðan vextirnir eru enn lágir. Aðeins að rífa það niður um nokkra þúsundkalla
Re: Blikur á lofti í vaxtamálum
Sent: Mið 24. Nóv 2021 20:36
af hagur
vesley skrifaði:GuðjónR skrifaði:vesley skrifaði:Vextirnir komnir í 3,6% hjá mér eins og við var að búast. Spurning hver staðan verður um næsta sumar hvort það sé rétt hjá mér að festa ekki vexti
Kristalskúlan mín spáir 4.5% hjá þér um mitt næsta ár…
Kæmi mér ekki á óvart en spurning hvort það muni vara lengi.
Er líka núna að borga aukalega á lánin meðan vextirnir eru enn lágir. Aðeins að rífa það niður um nokkra þúsundkalla
Já það er óvitlaust. Reyna að lækka höfuðstólinn eins mikið og hægt er áður en maður dettur í 7% vextina 2024 (eða neyðist yfir í verðtryggt aftur).
Re: Blikur á lofti í vaxtamálum
Sent: Fim 25. Nóv 2021 20:22
af bjoggi
Það er áhugavert að skoða þetta skjal sem Landsbankinn birti í dag:
https://www.landsbankinn.is/uploads/doc ... a-2008.pdf
Þetta er mín spá m.v. það sem Landsbankinn gaf út um daginn. Ég festi mína vexti í 3 ár í 4,35%, sé ekki eftir því.
Mér sýnist þetta stefna í a.m.k. 4,5-4,7% næsta sumar, þ.e.a.s. breytilegir vextir.
- PNG image.png (196.6 KiB) Skoðað 670 sinnum
Re: Blikur á lofti í vaxtamálum
Sent: Fim 25. Nóv 2021 22:49
af jonfr1900