Síða 9 af 16
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Þri 28. Jan 2014 23:51
af urban
e332 skrifaði:
90% af notendum veit ekkert um þetta og er alveg sama.
1) Hugsanlega fækkar kúnnum eitthvað, en þeir hljóta að veðja á að auknar tekjur vegi það upp.
2) Það er alveg möguleiki að aðrir ISP taki þessa hegðun upp
1. Miðað við fréttir sem að maður hefur heyrt ásamt viðtölum við vini og vinnufélaga þá virðast nú nokkuð margir hafa tekið eftir töluverðri aukningu á gagnamagni undanfarna mánuði hjá Vodafone.
2. Finnst þér líklegt að önnur fyrirtæki skjóti sig í fótinn, og fari að breyta þessu hjá sér, eftir að svona umræða kemur upp og fréttir birtast í fjölmiðlum ?
1) Það kæmi mér verulega á óvart ef meira en 100-200 myndu hætta hjá voda út af þessu
2) Hvað með þessi fyrirtæki sem eru á svörtum lista hjá ASI,
http://eyjan.pressan.is/frettir/2014/01 ... listi-asi/
Þau hafa fengið slæma umfjöllun en draga ekki sínar hækkanir til baka. Ég held að það þurfi töluvert meira en eina litla grein á DV til að hafa einhver áhrif á vodafone. En vonandi tekst notendum að mótmæla nógu kröftuglega til að vodafone endurskoði sýna ákvörðun.
Eimskip/Herjólfur eru búnir að draga hækkanir til baka
Veit t.d. með lýsi, þar sem að ég þekki til afurðarverðs, að hækkanir þar voru miklar og það er ekki hægt að ætlast til þess að fyrirtæki haldi sömu verðum ef að innkaup hafa hækkað um tugi prósenta
önnur fyrirtæki get ég bara ekkert tjáð mig um þar sem að ég þekki það ekki.
Þetta með að bara 100 - 200 manns hætti hjá Vodafone útaf þessu.
Ég vona þín vegna að þú rekir ekki fyrirtæki með þessa hugsun, þar sem að þú færir með það rakleiðis á hausinn.
Mikilvægasta salan í sölufyrirtækjum er þriðja salan, ekki sú fyrsta og ekki sú önnur.
alveg á sama hátt skiptir þetta óhemju máli, sérstaklega hjá fyrirtæki sem að er búið að drulla uppá bak í öðrum málum fyrir.
þessir 100 - 200 aðilar sem að segja (kannski, við vitum engar tölur enþá) upp sínum áskriftum koma ekki til með að mæla með Vodafone.
aðrir notendur hérna á spjallborðinu koma alveg örugglega ekki til með að mæla með vodafone.
aðilar sem að lesa þessar fréttir koma líklegast ekki til með að mæla með vodafone.
Þannig að Vodafone eru ekkert bara að missa þessa 100 - 200 kúnna (svona úr því að við erum búnir að útbúa þá tölu), þeir eru búnir að missa helling að mögulegum kúnnum líka.
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 29. Jan 2014 00:34
af rubey
Hvað ætli þeir séu búnir að stela miklu af fólki á þessum tíma? Algjört skíta fyrirtæki! Ég mun allaveganna hætta hjá þeim, það er alveg klárt mál!
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 29. Jan 2014 01:09
af kjartanbj
ég mun koma til með að fara annað útaf þessu, skoða valmöguleikana vel og segja þessum svikurum upp , gaman væri að vita hvaða fleiri netsíður eru hýstar á þessu ipneti sem þeir eru að rukka erlent gagnamagn fyrir og gaman væri að vita nákvæmlega hvaða ip tölur þeir rukka erlent fyrir, hvort það sé allt ipnetið eða hluti af því
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 29. Jan 2014 01:32
af Ic4ruz
Ég hélt að ég væri sá eini sem væri að lenda í þessu!
Í minu húsi eru margar tölvur sem eru allar nettengdar, í nánast heilt ár vorum við með um 170gb pakkan hjá þeim. Oftast fórum við ekki yfir það þak, en stundum gerðist það alveg í lok mánaðar. Svo núna í Haust stækkuðum við í 250 gb þar sem að af eitthverjum ástæðum vorum við alltaf að fljúga yfir þetta þak löngu fyrr en venjulega. Það alskrýtnasta er að núna erum við 3 mánuði í röð farnir að fara yfir 250gb þakið, þótt að netvenjur okkar allra hafa ekkert breyst!(I minu tilviki er ég meri segja að ná í minna erlent en áður þar sem að ég fékk aðgang á Deildu). Ég var farinn að halda að eitthver tölva væri með eitthverskonar virus sem olli þessu.
Vodafone hefur náð örugglega helling af peningum úr fólki með þessary breytingu(sérstaklega þar sem þeir breyttu því þannig að þegar maður fer yfir þakið þá bætast sjálfkrafa 10gb við á okurverði. Rugl fyrirtæki er Vodafone að verða
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 29. Jan 2014 02:04
af tveirmetrar
Mæli eindregið með því að skipta um þjónustuaðila, það er alveg rosaleiga einfalt þegar kemur að netþjónustu.
Fór sjálfur yfir í Tal, skráði mig á netinu, símtal daginn eftir og eru að koma á morgun með búnað og setja allt upp fyrir þig. Þetta er núll vinna fyrir kúnnann.
Fór í Tal þar sem Default router hjá þeim er Cisco Lynksis E900 á móti kínversku DRASLI frá Vodafone.
Einnig eru þeir með sinn búnað tengdann í gegnum Símann sem er mun betra en að fara í gegnum Vodafone.
Vinn hjá Öryggisfyrirtæki og við erum með sérstakt orð yfir tengingarleysi í kerfi sem eru tengd í gegnum netið, það er Vodafone veikin....
Þessir routerar sem þeir gefa út eru handónýtir og þeir rukka 1.800.- fyrir Cisco router hjá sér.
Vodafone hleypa þér heldur ekki inn á mínar síður nema þú sért með gsm síma hjá þeim... Sem er enn eitt markaðstrixið ef þú spyrð mig, segja þetta tímabundið en ég er viss um að nokkrir óþolinmóðir skipta bara um símaþjónustu til að geta fullnýtt netþjónustuna.
Mæli sjálfur með Tal, hef ekki prófað þá en heyrt góðar sögur og þeir eru með mjög góðan router (Cisco) og þjónustuverið fljótt að svara þegar mér vantaði upplýsingar. Svo vitna ég í nokkra hérna á vaktinni og mína eigin reynslu hjá öryggisfyrirtæki með 20.000 kerfi tengd og mörg þeirra tengd í gegnum ljósleiðara, góður router með gott viðmót skiptir hellings máli.
Verðskráin hjá Vodafone er hreinlega lygi þar sem enginn heilvita maður getur notað þennan default router hjá þeim, getur bætt 1800 krónum á verðið. Og svo 3x 1700 krónum þegar þú kárar gagnamagnið á mbl.is
Ég meina sumar fréttirnar koma erlendis frá...
Tal panta ljósleiðara
Hringiðan panta ljósleiðara
Hringdu panta ljósleiðara
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 29. Jan 2014 02:22
af Nariur
tveirmetrar skrifaði:
... og þeir rukka 1.800.- fyrir Cisco router hjá sér.
Í allri sanngirni, þá er það alvöru Cisco router sem er margfalt dýrari (í innkaupum) og margfalt betri en routerar sem aðrir bjóða uppá. Cisco keypti Lynksys fyrir nokkrum árum og settu merkið sitt á vörurnar þeirra. Tal er bara með Linksys routera.
Edit: lagaði stafsetningu.
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 29. Jan 2014 02:27
af tveirmetrar
Nariur skrifaði:tveirmetrar skrifaði:
... og þeir rukka 1.800.- fyrir Cisco router hjá sér.
Í allri sanngirni, þá er það alvöru Cisco router sem er margfalt dýrari (í innkaupum) og margfalt betri en routerar sem aðrir bjóða uppá. Cisco keypti Lynksys fyrir nokkrum árum og settu merkið sitt á vörurnar þeirra. Tal er bara með Lynksys routera.
Jæja... þekki það nú ekki og hef ekki prófað þennan E900. En grunar nú samt að þetta séu betri routerar en kínverska knock off dótið sem Vodafone lætur frá sér.
Þekki nokkra sem hafa gefist upp á routernum hjá þeim og eru að leigja EA4500 fyrir 1800 á mánuði... Hann er reyndar mjög fínn.
EA4500 Borgar sig upp á einu ári.
Edit: Linksys E900 er reyndar að fá fína dóma:
Amazon nýr - -
Refurbished og hann kemur á venjulegu "router leiguverði" hjá Tal.
Og vill taka það fram að ég er engan veginn tengdur Tal og veit þannig séð lítið um þá, er aðallega að hvetja fólk til að skipta um þjónustuaðila, leyfa Vodafone að finna aðeins fyrir því að við sættum okkur ekki við svona vitleysu.
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 29. Jan 2014 08:33
af AntiTrust
Ég er með EA4500 frá Voda, finnst í raun ekkert athugavert við að greiða hærra leigugjald fyrir dýrari búnað, en þessi router er ekki 1800kr virði. Finnst í raun alveg út í hött að ekkert fjarskiptafyrirtæki (sem ég þekki til) bjóði upp á router sem er með eins basic hlutum og 1Gbit LAN tengjum og 5Ghz WiFi.
Endalaust verið að henda peningum og nýjar og fancy lausnir í flestum fyrirtækjum og basic hlutir látnir sitja á hakanum.
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 29. Jan 2014 08:40
af hallihg
Af því einhver nefndi Mínar Síður hjá vodafone, þá er það eitt verst hannaða vefkerfi sem ég hef þurft að nota.
Málið er bara að ef Vodafone vill covera einhvern kostnað sinn við þessa speglun á t.d. Youtube efni, þá mega þeir alveg gera það. Rukkið fyrir það og útskýrið af hverju, hækkiði þessa háu verðskrá ykkar.
En ekki gera þetta með því að endurskilgreina hvað er erlent niðurhal og hvað ekki með útúrsnúningum sem standast ekki, og skekkja mælingar á niðurhali hjá notendum. Án þess að láta þá vita.
Bandwith caps eins og þau sem ríkja hér með takmörkunum á erlendu niðurhali er eitt og sér mjög umdeilt fyrirbæri! Við eigum einfaldlega til að átta okkur ekki á því / gleyma því af því að þetta hefur verið svo lengi við lýði hérlendis.
Að taka síðan fyrirbæri eins og niðurhals takmarkanir / kvóta og fara að skekkja mælingar er athæfi sem yrði fyrirtækinu að falli í Evrópu, þar sem "net neutrality" og landamæralaust internet er í forgangi.
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 29. Jan 2014 09:24
af Haxdal
Vodafone skrifaði:
[..]
Almennt getum við hins vegar sagt að við höfum farið ítarlega yfir allar okkar gagnamagnsmælingar og gengið úr skugga um að okkar mælingar eru réttar. Við erum ekki að mæla innlenda gagnanotkun sem erlenda og það er ekki skekkja í mælingunum.
[..]
Erlent gagnamagn er sú netumferð sem kemur frá erlendum aðilum. Það á t.d. við um erlendar efnisveitur á borð við Google (þ.á.m. YouTube) og Akamai.
kthordarson skrifaði:í gær prófaði ég að downloada öllum pdf skrám sem ég fann á
http://www.n1.is" onclick="window.open(this.href);return false; (hýst hjá vodafone á 193.4.115.0/24 netinu), með wget, nokkrum sinnum (ok, kannski oft). Viti menn, það telur sem erlent niðurhal.
Kóði: Velja allt
while true; do wget --domains=n1.is -r -k -A"*.pdf" -R"http://www.n1.is/starfsemi/stodvar" http://www.n1.is -q ; rm -fr "www.n1.is"; done
Var ekki búið að sýna frammá það að þetta er ekki bara umferð frá GGC sem er talin heldur fleira sem er hýst á þessu server neti hjá Vodafone?. Ekki er N1 hýst á GGC hjá Google.
Hvað meðmæli varðar þá er ég allavega ánægður með Símann (vdsl) og Hringdu (gagnaveitunni).
og hvað router dótið varðar þá er E900 _ekki_ það dýr að það warranty 1800 kall á mánuði aukalega.
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 29. Jan 2014 09:26
af AntiTrust
Haxdal skrifaði:..
og hvað router dótið varðar þá er E900 _ekki_ það dýr að það warranty 1800 kall á mánuði aukalega.
Nei það er fyrir EA4500 hjá Voda, ég held að Tal rukki ekki aukalega fyrir E900.
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 29. Jan 2014 09:28
af Haxdal
AntiTrust skrifaði:Haxdal skrifaði:..
og hvað router dótið varðar þá er E900 _ekki_ það dýr að það warranty 1800 kall á mánuði aukalega.
Nei það er fyrir EA4500 hjá Voda, ég held að Tal rukki ekki aukalega fyrir E900.
ah, þá meikar þessi 1800 kall meira sens. EA4500 er aðeins dýrari í innkaupum en E900
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 29. Jan 2014 09:53
af hallihg
Haxdal skrifaði:Vodafone skrifaði:
[..]
Almennt getum við hins vegar sagt að við höfum farið ítarlega yfir allar okkar gagnamagnsmælingar og gengið úr skugga um að okkar mælingar eru réttar. Við erum ekki að mæla innlenda gagnanotkun sem erlenda og það er ekki skekkja í mælingunum.
[..]
Erlent gagnamagn er sú netumferð sem kemur frá erlendum aðilum. Það á t.d. við um erlendar efnisveitur á borð við Google (þ.á.m. YouTube) og Akamai.
kthordarson skrifaði:í gær prófaði ég að downloada öllum pdf skrám sem ég fann á
http://www.n1.is" onclick="window.open(this.href);return false; (hýst hjá vodafone á 193.4.115.0/24 netinu), með wget, nokkrum sinnum (ok, kannski oft). Viti menn, það telur sem erlent niðurhal.
Kóði: Velja allt
while true; do wget --domains=n1.is -r -k -A"*.pdf" -R"http://www.n1.is/starfsemi/stodvar" http://www.n1.is -q ; rm -fr "www.n1.is"; done
Var ekki búið að sýna frammá það að þetta er ekki bara umferð frá GGC sem er talin heldur fleira sem er hýst á þessu server neti hjá Vodafone?. Ekki er N1 hýst á GGC hjá Google.
Hvað meðmæli varðar þá er ég allavega ánægður með Símann (vdsl) og Hringdu (gagnaveitunni).
og hvað router dótið varðar þá er E900 _ekki_ það dýr að það warranty 1800 kall á mánuði aukalega.
Ef satt þá er þetta náttúrulega útúr korti.
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 29. Jan 2014 12:22
af asgeireg
Ég verð að játa að ég er ekki búinn að lesa allann þráðinn og veit því ekki hvort þetta hefur komið áður fram.
Á Hacker Halted ráðstefnunnni sem var í Hörpunni á seinasta ári var fyrirlestur frá Vodafone. Gaurinn sem var að tala þar var eitthvað að tala um að á næstunni þyrftu þeir að fara að rukka meira fyrir gagnamagn þar sem að útaf samkeppni væri neikvæð framleiðni á gagnamagninu sem er verið að setja í alla þessa pakka og í raun verið að borga með henni. Það er spurning hvort þeir séu að dumpa þessu út á markaðinn núna í staðin fyrir að fá á sig enn meiri álitshnekk og missa fleiri viðskiptavini með því að kynna þetta almennilega fyrir sínum viðskiptavinum. Það er aðeins lítill hluti af viðskiptavinum þeirra sem að tekur eftir þessu, eða allavega telur þetta vera óeðlilegt.
Vildi allavega henda þessu fram, ég hef ekkert meira fyrir mér í þessu en það litla sem ég man eftir að hafa setið þenna hörmulega lélega fyrirlestur frá Vodafone gaur sem vissi ekkert hvað hann var að tala um fyrir framan fullan sal af fagfólki
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 29. Jan 2014 12:43
af Tbot
Vodafone - British multinational telecommunications company
Einföld skýring á hverju allt kostar hjá þeim í dl. Kemur allt utan frá.
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 29. Jan 2014 14:52
af intenz
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 29. Jan 2014 14:59
af dori
Auðvelt ef þeir telja sama magn sem helmingi meira.
Too little too late að mínu mati samt. Ég er farinn og mun aldrei fara aftur í viðskipti við þá.
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 29. Jan 2014 15:02
af AntiTrust
Ég skal veðja útlim að þessi hækkun er partur af því ferli sem flestir ISPar stefna í, það verður allt mælt, innlent/erlent og upphal/niðurhal undir einu gagnamagnsþaki.
En þangað til fá þér smá props.
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 29. Jan 2014 15:05
af kthordarson
damage control.....
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 29. Jan 2014 15:07
af Vaktari
Þessi hækkun er veruleg.
En það í raun kemur ekkert fram hvort þetta sé bara hækkun á erlendu gagnamagni eða hvernig það er.
Verður forvitnilegt að sjá, held að allir ættu að bomba spurningum á vodafone núna.
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 29. Jan 2014 15:08
af AntiTrust
kthordarson skrifaði:damage control.....
Þetta er alltof stór og róttæk breyting til að hafa orðið til á einum sólahring. Þetta er e-ð sem hefur verið í bígerð hjá þeim í lengri tíma og var hugsanlega rushað til þess að slá tvær flugur í einu höggi.
En ef þetta neyðir aðra ISPa til að elta, flott, frábært.
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 29. Jan 2014 15:15
af linenoise
Ég sagði þeim upp áðan og það gengur ekkert til baka. Sms leki, lekinn til löggunnar, ítrekað uppvísir að lygum og almennu rugli. Þeir geta vodafokkað sér með sitt gagnamagn.
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 29. Jan 2014 15:17
af GuðjónR
Það eitt og sér að bjóða meira gagnamagn segir ekki allt, "ef" og ég segi ef stór partur að innanlands traffíkinni er taldur með sem erlent.
Þá myndi ég frekar vilja óbreytt og erlent sé erlent og innlent sé innlent.
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 29. Jan 2014 15:17
af dori
AntiTrust skrifaði:kthordarson skrifaði:damage control.....
Þetta er alltof stór og róttæk breyting til að hafa orðið til á einum sólahring. Þetta er e-ð sem hefur verið í bígerð hjá þeim í lengri tíma og var hugsanlega rushað til þess að slá tvær flugur í einu höggi.
En ef þetta neyðir aðra ISPa til að elta, flott, frábært.
Hvernig getur þetta ekki hafa orðið til á sólarhring? Ég er nokkuð viss um að þeir geti lofað hverju sem er með stuttum fyrirvara og það er ekkert flókið að hækka svona gildi í einhverjum kerfum.
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 29. Jan 2014 15:18
af kthordarson
AntiTrust skrifaði:kthordarson skrifaði:damage control.....
Þetta er alltof stór og róttæk breyting til að hafa orðið til á einum sólahring. Þetta er e-ð sem hefur verið í bígerð hjá þeim í lengri tíma og var hugsanlega rushað til þess að slá tvær flugur í einu höggi.
En ef þetta neyðir aðra ISPa til að elta, flott, frábært.
Ef svo, mjög einkennileg tímasetning. Ótrúleg tilviljun?
Hvað voru notendur Vodafone rukkaðir mikið fyrir "umfram erlent niðurhal" síðan þessi var breytt í fyrra ?
Hve margir stækkuðu gagnamagnspakkann eftir breytinguna hjá þeim?
Hvað eiga þessi viðskiptavinir inni hjá Vodafone eftir að svindlið komst upp?