Síða 8 af 19

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fös 05. Mar 2021 19:04
af GuðjónR
jonfr1900 skrifaði:Samkvæmt nýjustu mælingum og módelum þá er kvikan komin þar sem minnsta dýpi er aðeins 2 km en annars á um 5 til 6 km dýpi.

Ný gögn stað­festi grun­semdir um að kvikan sé komin ansi ná­lægt yfir­borði (Vísir.is)
Þetta er alveg að bresta á...

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fös 05. Mar 2021 20:01
af razrosk
er þetta ekki komið gott :eh það mun ekkert gerast :lol:

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fös 05. Mar 2021 20:03
af appel
Mynd

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fös 05. Mar 2021 21:49
af mjolkurdreytill
Vedur.is er annaðhvort hætt að uppfæra skjálftagrafið í bili eða þá að það er búið að vera alger þögn eftir hádegi í dag.

Mynd

Geri ráð fyrir því að þetta tengist vinnu við vefsíðuna.

Hinsvegar er síðasti skráði skjálftinn 20:16 í kvöld og síðasti skjálftinn stærri en 3 er kl. 12:11.

Lognið á undan storminum ... :fly

-------
Tengist líklegast vinnu við vefþjón, gögnin virðast vera komin inn núna.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fös 05. Mar 2021 23:34
af jonfr1900
Þetta var einhver bilun hjá Veðurstofunni eða uppfærsla.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Lau 06. Mar 2021 00:46
af jonfr1900
Veðurstofan gaf út þetta kort í kvöld ásamt fleiri kortum.
Fagradalsfjall volcano 2021 - 05-03-2021.jpg
Fagradalsfjall volcano 2021 - 05-03-2021.jpg (351.62 KiB) Skoðað 2486 sinnum

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 10. Mar 2021 03:36
af jonfr1900
Þá var nýjasti jarðskjálftinn með stærðina Mw5,1 til Mw5,5.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Sun 14. Mar 2021 14:46
af kjartanbj
Jæja, skjálftavaktin hætt?

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Sun 14. Mar 2021 16:19
af himminn
kjartanbj skrifaði:Jæja, skjálftavaktin hætt?
Ekki vekja jonfr, hann svaf ekkert frá 24. feb til 10. mars.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Sun 14. Mar 2021 19:52
af mjolkurdreytill
Við erum farin að sjá mun stærri skjálfta eiga sér stað á mun minna dýpi.

Kjalarnesið er í hættu.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Sun 14. Mar 2021 21:16
af GuðjónR
mjolkurdreytill skrifaði:Við erum farin að sjá mun stærri skjálfta eiga sér stað á mun minna dýpi.

Kjalarnesið er í hættu.
:wtf

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 15. Mar 2021 00:50
af falcon1
mjolkurdreytill skrifaði: Kjalarnesið er í hættu.
Hvað meinarðu? :D

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 15. Mar 2021 02:25
af jonfr1900
Ég nennti ekki að setja neitt hingað inn enda flestir orðnir ónæmir fyrir jarðskjálftunum sem eru búnir að eiga sér stað síðustu 21 daga. Það er reyndar von á mun stærri jarðskjálftum en jarðskjálftanum sem var með stærðina Mw5,4 í gær (14-Mars). Það er ekkert rosalega langt í eldgos sýnist mér en það mun hugsanlega koma af stað frekari jarðskjálftum á þessu svæði þegar landsig fer af stað í kjölfarið á eldgosinu á einhverju svæði þarna í kring. Það mun koma af stað jarðskjálftum sem munu ná stærðinni Mw6,0 til Mw6,5 mögulega.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 15. Mar 2021 08:22
af Jón Ragnar
6.5 skjálfi verður ruuuuuglað.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 15. Mar 2021 11:18
af falcon1
Jón Ragnar skrifaði:6.5 skjálfi verður ruuuuuglað.
Megum samt þakka fyrir að allt yfir það er ekki í spilunum á Íslandi. :) En 6,5 verður rússibani. :D

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 15. Mar 2021 17:25
af jardel
Jón er ekki alveg séns á einum 7 til 8 sem myndi þá losa spennuna?

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 15. Mar 2021 19:13
af jonfr1900
falcon1 skrifaði:
Jón Ragnar skrifaði:6.5 skjálfi verður ruuuuuglað.
Megum samt þakka fyrir að allt yfir það er ekki í spilunum á Íslandi. :) En 6,5 verður rússibani. :D
Stærstu jarðskjálftar á Íslandi geta náð stærðinni Mw7,1. Það eru tveir staðir á Íslandi sem geta náð slíkum stærðum. Suðurlandsbrotabeltið næst Heklu. Hinn staðurinn er vestari hluta Tjörnesbrotabeltisins við Hraun á Skaga. Þar varð síðast jarðskjálfti með stærðina Mw7,1 árið 1963. Sá jarðskjálfti fannst vel í Reykjavík samkvæmt fréttum þess tíma og olli tjóni á Sauðárkróki, Siglufirði og fleiri bæjarfélögum næst. Samt var sá jarðskjálfti hátt í 100 km frá þessum bæjum þar sem fjarlægðin er lengst. Eftirskjálftar eftir jarðskjálfta sem nær stærðinni Mw7,1 eru nokkrir jarðskjálftar sem ná stærðinni Mw6,0 til Mw6,8.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 15. Mar 2021 19:19
af mikkimás
jonfr1900 skrifaði:Ég nennti ekki að setja neitt hingað inn enda flestir orðnir ónæmir fyrir jarðskjálftunum sem eru búnir að eiga sér stað síðustu 21 daga. Það er reyndar von á mun stærri jarðskjálftum en jarðskjálftanum sem var með stærðina Mw5,4 í gær (14-Mars). Það er ekkert rosalega langt í eldgos sýnist mér en það mun hugsanlega koma af stað frekari jarðskjálftum á þessu svæði þegar landsig fer af stað í kjölfarið á eldgosinu á einhverju svæði þarna í kring. Það mun koma af stað jarðskjálftum sem munu ná stærðinni Mw6,0 til Mw6,5 mögulega.
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2021 ... _med_gosi/

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 16. Mar 2021 04:15
af jonfr1900
Það virðist sem að kvikan sé aftur farin að streyma að Keili miðað við GPS gögnin og jarðskjálftavirkinna síðustu klukkutímana. Þetta getur þýtt að hugsanlega mun gjósa á allri 20 km langri sprungunni þegar eldgos hefst. Hvenær það verður er ekki hægt að segja til um en kvikan heldur áfram að safnast þarna og það virðist ekkert vera draga úr innstreymi kviku inná þennan kvikugang sem er þarna búinn að myndast.

GPS gögn vefsíða 1
GPS gögn vefsíða 2

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 16. Mar 2021 07:06
af slapi
Ég verð að segja að bestu upplýsingar um þetta allt saman má finna í þessum þræði.
10 stig á jonfr

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 16. Mar 2021 08:13
af Jón Ragnar
Já geðveikt gaman að lesa frá svona köppum :)

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 16. Mar 2021 17:02
af jonfr1900
Ég er farinn að reikna með miklum jarðskjálftum eftir daginn í dag og kannski daginn á morgun. Þar sem ég get ekki sagt til um það hvenær spennan í jarðskorpunni er aftur orðin næg til þess koma af stað stórum jarðskjálftum á ný. Stærsta færslan sem ég sé í GPS gögnum er kominn í rúmlega 160mm (vestur) á GPS stöðinni LISK sem er vestan við Keili. Aðrar GPS stöðvar sýna svipaða hreyfingu og talsvert stökk í GPS færslum miðað við í gær.

Það er smá möguleiki að jarðskorpan gefi frekar eftir heldur en að það komi stærri jarðskjálftar og það fari að gjósa. Hvað gerist verður bara að kom í ljós.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 16. Mar 2021 17:32
af zetor
þetta er áætis síða, gps hnit uppfærast þarna á 8 tíma fresti

https://strokkur.raunvis.hi.is/gps/8h.html

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 17. Mar 2021 05:41
af jonfr1900
jardel skrifaði:Jón er ekki alveg séns á einum 7 til 8 sem myndi þá losa spennuna?
Ef þú vilt finna slíkan jarðskjálfta í Evrópu. Þá þarftu að flytja til Portúgals þar sem fyrir utan strönds Portúgals er nýtt sigbelti (þar sem sjávarjarðskorpan fer undir meginlandsfleka) en þar geta orðið jarðskjálftar með stærðina Mw9,0 og síðasti stóri jarðskjálfti þar var með stærðina Mw7,8 árið 1969.

1755 Lisbon earthquake - Stærð talin vera Mw9,0 mest.
1761 Lisbon earthquake - Stærð talin vera Mw8,5 mest.
1969 Portugal earthquake - Stærð mæld Mw7,8.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 17. Mar 2021 11:15
af gnarr
Jón, ertu menntaður jarðfræðingur? :) Það er geggjað að fá allar þessar upplýsingar frá þér :happy =D>