Síða 8 af 12
Re: húsleit vegna "ólöglegs" niðurhals
Sent: Sun 05. Des 2010 01:31
af gardar
Sýnist vera hægt að stilla gagnahraða í filma.is flash spilaranum... Hvað gerist ef maður stillir á að maður sé með hæga tengingu, er það ekki "meiri buffer" stilling?
Re: húsleit vegna "ólöglegs" niðurhals
Sent: Sun 05. Des 2010 14:31
af Páll
hvernig væri að fara on topic
Re: húsleit vegna "ólöglegs" niðurhals
Sent: Sun 05. Des 2010 16:04
af Dazy crazy
Páll skrifaði:hvernig væri að fara on topic
Ég held nú að venjan sé að koma með eitthvað on topic þegar menn segja þetta
Annars held ég að það sé bara ekkert að frétta af þessu, allir lausir úr varðhaldi og lögrelgan með tölvurnar
Re: húsleit vegna "ólöglegs" niðurhals
Sent: Sun 05. Des 2010 16:15
af KermitTheFrog
Þetta er nú ekkert voðalega off topic. Ekki eins og verið sé að ræða eldflaugar hérna.
Re: húsleit vegna "ólöglegs" niðurhals
Sent: Sun 05. Des 2010 16:42
af Dazy crazy
KermitTheFrog skrifaði:Þetta er nú ekkert voðalega off topic. Ekki eins og verið sé að ræða eldflaugar hérna.
Re: húsleit vegna "ólöglegs" niðurhals
Sent: Sun 05. Des 2010 18:26
af erlingur_th
Það er hægt að pása í u.þ.b. 10-15 sek. og láta hana buffera smá fram í tímann en ekki mikið. Ástæðan fyrir því að það er ekki hægt að láta hana buffera alla myndina er aðallega tæknileg/fjárhagsleg en ég mun vonandi leysa það bráðlega. Eins og allt annað þá kostar það einfaldlega dágóðan pening því það þarf að fara í nokkuð stórar breytingar á kerfinu til að styðja svona buffering og hugbúnaðurinn sjálfur er alls ekki ódýr. Síðan spila samningarnir inn í líka því það þarf að taka kerfið sérstaklega út og passa uppá öryggið. Við getum t.d. alls ekki farið í progressive download því þá er efnið ekki protected á meðan það situr í buffernum. Við fengjum aldrei nokkurntímann samþykki frá stúdíóunum ef við værum með það þannig.
Fyrir utan það að lægsti straumur er u.þ.b. 500kbps (~65KB/s) sem flest allar tengingar ættu að styðja. Ég horfi alltaf á myndir á þráðlausu neti heima hjá mér og hef ekki lent í neinum vandræðum sem ekki hefur lagast með því að pása í 10 sek. Það þarf líka að passa að vera ekki að torrenta eða downloada á sama tíma því það hefur áhrif, þótt það sé einhver annar að gera það í annarri tölvu á sama neti, þráðlausu eða ekki. Ég hef meira að segja horft á mynd á 3G pung uppí bústað þannig að þetta virðist virka þokkalega vel.
En þess vegna erum við með fríu myndirnar, svo þú getur testað þetta áður en þú eyðir pening
Það eru ekkert allir sem geta notað síðuna, annaðhvort vegna mjög lélegs sambands (t.d. mikið pakkatap) eða þeir eru með of gamlar tölvur sem geta ekki spilað myndirnar. Við reynum eftir bestu getu að passa að allir geti notað síðuna en það er ekki alltaf hægt. Þetta lagast með tímanum, þegar fólk fær sér nýjar tölvur og betri nettengingar
Re: húsleit vegna "ólöglegs" niðurhals
Sent: Sun 05. Des 2010 18:34
af rapport
Uppá að vera on topic...
Hverskonar eldflaug munduð þið vilja skjóta að höfuðstöðvum SMÁÍS?
Re: húsleit vegna "ólöglegs" niðurhals
Sent: Sun 05. Des 2010 18:37
af KermitTheFrog
Nógu öfluga bara.
Re: húsleit vegna "ólöglegs" niðurhals
Sent: Sun 05. Des 2010 18:50
af zdndz
hvernig er staðan í þessu máli, er búið að leggja kærur fram á hendur þessum gaurum og er ekki búið að sleppa öllum?
Re: húsleit vegna "ólöglegs" niðurhals
Sent: Sun 05. Des 2010 18:56
af dori
rapport skrifaði:Uppá að vera on topic...
Hverskonar eldflaug munduð þið vilja skjóta að höfuðstöðvum SMÁÍS?
Væntanlega bara einhverju eins og þessu:
http://en.wikipedia.org/wiki/Anti-tank_guided_missile" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: húsleit vegna "ólöglegs" niðurhals
Sent: Sun 05. Des 2010 19:05
af rapport
KermitTheFrog skrifaði:Nógu öfluga bara.
Fann bara spúkí videó ...
http://www.youtube.com/watch?v=pgY9gYoCsgs&feature=related
Klikkað að fólk sé að búa til einhvern svona óþarfa sem verður aldrei notaður...
Re: húsleit vegna "ólöglegs" niðurhals
Sent: Mán 06. Des 2010 05:02
af egillth
biturk skrifaði:DabbiGj skrifaði:Það eru alveg jafn mikil mannréttindi þeirra sem að semja og skapa hugverk að verja þann höfundarrétt einsog að eignarrétturinn sé virtur hér á landi.
Ísland er það lítið land að menn ættu að geta virt það við þá sem að vinna við og skapa þetta efni að vera ekki að deila þessu samstundis, ef að fólk missir af þáttunum eru tugir endursýninga og hægt að leigja þetta á netveitum símans og vodafone t.d.
Svo er annað mál ða vera hugsanlega að deila þessu síðar meir þegar ða flestir hafa eignast þetta á dvd formi og það er flestum til hægðarauka að fá þetta á tölvutæku formi.
Og að ætla að fara að ráðast gegn smáís á einn eða annan hátt styrkir bara málstað þeirra.
já..........ef að það væri ekki okrað á þessu þannig að það sé ekki nokkur leið fyrir mann að réttlæta að kaupa þetta......ég hef engann áhuga á stöð tvö....en ef mig langar að sjáþessa andskotans þætti þá þarf ég að borga morðfjár fyrir það........að sjálfsögðu næ ég í þetta á netið, ég er nú að borga gjöld fyrir þetta í formi diska og annara hluta, ég á rétt áþví að ná í það sem mig langar þegar það er þegar búið að rukka mig fyrir það sem ég upphaflega ætlaði aldrei að gera.
það styrkir ekkert, ef þessi mannhelvíti sem stjórna þessu yrðu bara teknir úr umferð á einn eða annan hátt og nýir menn kæmu sem myndu skilja markaðinn þá yrði voða lítið um stuld
fyrir utan það að vaktirnar hefðu aldrei orðið vinsælar nemaútaf því að þeim var deilt...........aþ ðvar orðið og dreifingin á netinu sem orsakaði vinsældirnar
Hvaða sprell er þetta, þættirnir urðu vinsælir útaf því þeir voru skemmtilegir og það spurðist út hratt. Að halda því fram að torrent vefir hafi haft mikil áhrif á það er fásinna, eina sem það gerði var að fólk sem var ekki áskrifendur að stöð2 gátu horft á þá frítt.
Re: húsleit vegna "ólöglegs" niðurhals
Sent: Mán 06. Des 2010 17:42
af Leviathan
Það downloaduðu alltaf fleirri þúsund manns þessum þáttum, það hefur haft sitt að segja.
Re: húsleit vegna "ólöglegs" niðurhals
Sent: Mán 06. Des 2010 17:58
af dodzy
Leviathan skrifaði:Það downloaduðu alltaf fleirri þúsund manns þessum þáttum, það hefur haft sitt að segja.
það er bara liðið sem vill "eiga" þá á vélinni sinni
Re: húsleit vegna "ólöglegs" niðurhals
Sent: Mán 06. Des 2010 18:07
af biturk
dodzy skrifaði:Leviathan skrifaði:Það downloaduðu alltaf fleirri þúsund manns þessum þáttum, það hefur haft sitt að segja.
það er bara liðið sem vill "eiga" þá á vélinni sinni
nei.
það er liðið sem datt ekki í hug að taka áskrift hjá stöð2 (Ránfokkingdýrt by the way) bara til að tjekka á einum þætti
og það er þetta fólk sem að sagði fleirum frá og fleiri fóru að tjekka á þáttunum á torrent, horfa á, segja fleirum frá sem fengu sér stöð2 og kom skriðunni af stað.
þetta er bara mjög basic, ég þekki engann sem kynntist næturvaktinni í gegnum áskrift en ég þekki langt langt yfir 100 manns sem kynntust henni á torrent og tóku áskrift í kjölfarið!
Re: húsleit vegna "ólöglegs" niðurhals
Sent: Mán 06. Des 2010 18:31
af DabbiGj
Eftir þetta seinasta svar og það svar sem ða kom inn frá Biturk fyrr í dag ætla ég bara að taka þá afstöðu að hann sé að tala með rassgatinu og í framhaldi af þessu læt ég þetta prump frá honum og láta sem vind um eyru þjóta.
Re: húsleit vegna "ólöglegs" niðurhals
Sent: Mán 06. Des 2010 18:40
af biturk
DabbiGj skrifaði:Eftir þetta seinasta svar og það svar sem ða kom inn frá Biturk fyrr í dag ætla ég bara að taka þá afstöðu að hann sé að tala með rassgatinu og í framhaldi af þessu læt ég þetta prump frá honum og láta sem vind um eyru þjóta.
Re: húsleit vegna "ólöglegs" niðurhals
Sent: Mán 06. Des 2010 19:11
af CendenZ
Auðvitað á að taka hart á þessu!
Auk þess finnst mér að, það eigi að setja í lög sem banna það að bjóða einhverjum í heimsókn sem hefur ekki áskrift.
Fáránlegt að einhver skuli kíkja til vinar sinns til að horfa td. á Næturvaktina eða boltann, ef hann er ekki sjálfur með áskrift heima hjá sér, hugsið ykkur hvað þetta er mikið tap, tap uppá milljarða!
omgomg hvar er snæbjörn!
Re: húsleit vegna "ólöglegs" niðurhals
Sent: Mán 06. Des 2010 19:13
af BjarkiB
CendenZ skrifaði:Auðvitað á að taka hart á þessu!
Auk þess finnst mér að, það eigi að setja í lög sem banna það að bjóða einhverjum í heimsókn sem hefur ekki áskrift.
Fáránlegt að einhver skuli kíkja til vinar sinns til að horfa td. á Næturvaktina eða boltann, ef hann er ekki sjálfur með áskrift heima hjá sér, hugsið ykkur hvað þetta er mikið tap, tap uppá milljarða!
omgomg hvar er snæbjörn!
Vonandi er þetta kaldhæðni.
Re: húsleit vegna "ólöglegs" niðurhals
Sent: Mán 06. Des 2010 19:20
af rapport
Mér finnst að þegar fólk starti tölvu þá eigi það að skrifa inn lýsingu á því sem það ætlar að gera og ef það felur í sér STEF gjöld þá skuli greiða þau strax með VISA/EURO.
Ef fólki förlast og það skoða eitthvað sem er höfundarréttarvarið (sama þó það viti það eða ekki) þá skuli fólk greiða 10.000 kr. sekt og ef það kemur HAFNAÐ á kortið þá komi nál úr skjánum sem sjúgi úr þeim líter af blóði.
Sieg SMÁÍS
Re: húsleit vegna "ólöglegs" niðurhals
Sent: Fös 10. Des 2010 19:57
af GullMoli
Re: húsleit vegna "ólöglegs" niðurhals
Sent: Fös 10. Des 2010 20:01
af Gúrú
Mér finnst það svo sorglegt, eins og að við eigum fína lögreglumenn og stjórnendur, hvernig þessu súru epli
virðast staðfastlega ætla að láta borgara þessa lands missa alla virðingu fyrir embættinu.
Hvernig getum við grínlaust verið með svona mörg klúður,
maður sér fáránleg brot á annaðhvort alþjóðlegum sáttmálum, heimildum lögreglu eða
lögunum sjálfum í hverjum mánuði og við erum örlítið land á eyju.
Re: húsleit vegna "ólöglegs" niðurhals
Sent: Sun 12. Des 2010 03:25
af AntiTrust
Ætli lögin okkar séu eins vestræn og sjónvarpsefnið sem við horfum á. Allt sem tekið er án heimildar, eins og í þessu tilfelli verður ekki hægt að leggja fram sem sönnunargögn?
Hmm. Hvar er Alan Shore þegar maður þarf á honum að halda.
Re: húsleit vegna "ólöglegs" niðurhals
Sent: Sun 12. Des 2010 03:36
af rapport
AntiTrust skrifaði:Ætli lögin okkar séu eins vestræn og sjónvarpsefnið sem við horfum á. Allt sem tekið er án heimildar, eins og í þessu tilfelli verður ekki hægt að leggja fram sem sönnunargögn?
Hmm. Hvar er Alan Shore þegar maður þarf á honum að halda.
87 Edelhertweg, Faunabuurt, Nederland
skv. Google - Maps/Earth/StreetView
Re: húsleit vegna "ólöglegs" niðurhals
Sent: Sun 12. Des 2010 03:45
af icup
Ég mun nú bara hlægja ef þið ákærið lögreglumennina fyrir rán. Mundi checka hvort það væri hægt. Meina þeir koma inn á heimili, kefla barnið og ræna tölvuvörum. Ekkert annað en rán.