Síða 8 af 8
Re: Official Skotvopna- og Skotveiðiþráðurinn
Sent: Mán 15. Okt 2012 07:25
af chaplin
pattzi skrifaði:
Eftirlit við þetta,ekki bílprófið....
Þegar ég tók bílprófið.
- 10 mann í stofunni, lokað á milli nemanda, eftirlit hjá kennara.
Þegar ég tók skotvopnaleyfið.
- 50 manns í stofunni, 8 cm milli nemanda, eftirlit hjá kennara sem gat lítið gert til að stöðva nemendur sem voru að svindla.
Re: Official Skotvopna- og Skotveiðiþráðurinn
Sent: Fim 23. Maí 2013 00:12
af Steini B
Fékk mér þennann í gær, einn af uppáhalds rifflunum mínum

Lee Enfield: SMLE (No1) MKIII*
Hef mikið notað hann í gömlum WW1-2 leikjum og nokkuð viss um að það séu margir hérna sem hafa gert það sama...
Hann er btw tæplega 100 ára og virkar ennþá

Re: Official Skotvopna- og Skotveiðiþráðurinn
Sent: Fös 24. Maí 2013 10:56
af tlord
hann er flottur þessi!
hverju er hann að skjóta?
hleðuru sjálfur?
Re: Official Skotvopna- og Skotveiðiþráðurinn
Sent: Fös 24. Maí 2013 14:49
af Klaufi
Aetli ad D-leyfid coveri thetta?

Re: Official Skotvopna- og Skotveiðiþráðurinn
Sent: Fim 19. Des 2013 19:41
af cure
Nú styttast í B leyfið mitt og ætla ég annaðhvort að fá mér Benelli Vinci
http://hlad.is/index.php/netverslun/hag ... lli-vinci/" onclick="window.open(this.href);return false;
eða Berettu A400
http://www.veidimadurinn.is/Default.asp ... 42&vID=745" onclick="window.open(this.href);return false; hvaða skoðun hafið þið á þessum 2
myndi helst vilja skoðanir frá þeim sem hafa skotið úr báðum byssum en eiga hvoruga hehe
en væri samt gaman að heyra frá þeim sem eiga aðra hvora.. ég held að ég eigi eftir að enda með að kaupa Berettuna.. er samt ekki 100% viss
Re: Official Skotvopna- og Skotveiðiþráðurinn
Sent: Fim 19. Des 2013 19:59
af SergioMyth
http://henryrepeating.com/rifle-lever-action.cfm" onclick="window.open(this.href);return false; ég hef alltaf verið hrifinn af Lever Action og er að pæla í að flytja eitt stykki inn þegar ég fer til Bandaríkjana!

En já hálfsjálvirkar og alsjálfvirkar skammbyssur eru ólöglegar, það var verið að breyta lögunum nýlega

Re: Official Skotvopna- og Skotveiðiþráðurinn
Sent: Fim 19. Des 2013 20:06
af SergioMyth
chaplin skrifaði:pattzi skrifaði:
Eftirlit við þetta,ekki bílprófið....
Þegar ég tók bílprófið.
- 10 mann í stofunni, lokað á milli nemanda, eftirlit hjá kennara.
Þegar ég tók skotvopnaleyfið.
- 50 manns í stofunni, 8 cm milli nemanda, eftirlit hjá kennara sem gat lítið gert til að stöðva nemendur sem voru að svindla.
Ég tók skotvopnaleyfið fyrir 2 mánuðum, þar sem ég bý út á landi þá þurftum við að taka það í fjarnámi í gegnum vefmyndavél, þannig að það var enginn að fylgjast með okkur og það hefði ekki verið neitt mál að svindla!

Í bílprófinu stóð prófdómarinn ofan á bílprófinu

Re: Official Skotvopna- og Skotveiðiþráðurinn
Sent: Mið 25. Des 2013 23:15
af chaplin
SergioMyth skrifaði:
Ég tók skotvopnaleyfið fyrir 2 mánuðum, þar sem ég bý út á landi þá þurftum við að taka það í fjarnámi í gegnum vefmyndavél, þannig að það var enginn að fylgjast með okkur og það hefði ekki verið neitt mál að svindla!

Í bílprófinu stóð prófdómarinn ofan á bílprófinu

Ef menn geta ekki náð skotvopnaleyfi án svindla, eiga þeir ekki að eiga skotvopn. (ekki að ásaka þig þó um neitt

)
Re: Official Skotvopna- og Skotveiðiþráðurinn
Sent: Mið 25. Des 2013 23:49
af GuðjónR
chaplin skrifaði:SergioMyth skrifaði:
Ég tók skotvopnaleyfið fyrir 2 mánuðum, þar sem ég bý út á landi þá þurftum við að taka það í fjarnámi í gegnum vefmyndavél, þannig að það var enginn að fylgjast með okkur og það hefði ekki verið neitt mál að svindla!

Í bílprófinu stóð prófdómarinn ofan á bílprófinu

Ef menn geta ekki náð skotvopnaleyfi án svindla, eiga þeir ekki að eiga skotvopn. (ekki að ásaka þig þó um neitt

)
Sammála, tók þetta uppá 10 á sínum tíma. Ekkert flókið við þetta próf nema síður sé, bara kommon sense.
Re: Official Skotvopna- og Skotveiðiþráðurinn
Sent: Fim 30. Apr 2015 16:20
af razrosk
Þið sem eruð með skotvopnaleyfi, any tips varðandi prófið?
Hvað þarf maður helst að vita? Er einhvað mikið verið að spurja um handfallbyssur frá 13 öld og þannig dótarí?
Re: Official Skotvopna- og Skotveiðiþráðurinn
Sent: Fim 30. Apr 2015 16:23
af depill
razrosk skrifaði:Þið sem eruð með skotvopnaleyfi, any tips varðandi prófið?
Hvað þarf maður helst að vita? Er einhvað mikið verið að spurja um handfallbyssur frá 13 öld og þannig dótarí?
Nei, lestu bókina og vertu með hausinn rétt skrúfaðan á og þá nærðu þessu.
Re: Official Skotvopna- og Skotveiðiþráðurinn
Sent: Fim 30. Apr 2015 17:22
af Sucre
razrosk skrifaði:Þið sem eruð með skotvopnaleyfi, any tips varðandi prófið?
Hvað þarf maður helst að vita? Er einhvað mikið verið að spurja um handfallbyssur frá 13 öld og þannig dótarí?
lesa bókina vel eins og Depill segjir og muna veiðitímabilinn og caliber stærðir og svona basic bara frekar auðvelt próf
Re: Official Skotvopna- og Skotveiðiþráðurinn
Sent: Fim 30. Apr 2015 20:07
af nidur
NAuuhh vissi ekki einusinni að við væru með svona þráð hérna

Re: Official Skotvopna- og Skotveiðiþráðurinn
Sent: Lau 16. Jan 2016 04:27
af Klaufi
Reisum gamlan þráð frá gröfinni..
Er einhver hérna með loftriffil samhliða hinu?
Re: Official Skotvopna- og Skotveiðiþráðurinn
Sent: Lau 16. Jan 2016 15:55
af bixer
Ég er búinn að vera að skoða loftriffla undanfarið. Lítið úrval hérna. Er að hugsa um að kaupa mér riffil með 2 hlaupum, 17. Og .22
Þekkir einhver hérna innflutning á byssum, hvort er auðveldara að kaupa erlendis og koma með eða að panta og fá sent?
Loftrifflarnir kosta ekkert i usa þannig það marg borgar sig að kaupa þá þar
Re: Official Skotvopna- og Skotveiðiþráðurinn
Sent: Sun 17. Jan 2016 00:58
af HalistaX
Get menn eins og ég, greindir með geðklofa eða aðrar geðraskanir, fengið byssuleyfi?
Væri alveg til í að eiga byssu, held að það sé alveg fínt hobby að skjóta flöskur og dósir og eyða pening í skot í staðinn fyrir tölvuleiki.
Svo þegar maður er orðinn nógu góður getur maður kannski farið á veiðar*.
*Mannaveiðar**
**Djók
Re: Official Skotvopna- og Skotveiðiþráðurinn
Sent: Sun 17. Jan 2016 03:21
af Klaufi
HalistaX skrifaði:Get menn eins og ég, greindir með geðklofa eða aðrar geðraskanir, fengið byssuleyfi?
Ég er ekki viss, það fer alveg eftir því hvernig læknir metur þig.
Þú þarft að fara í mat til heimilislæknis þegar þú sækir um skotvopnaleyfi.
Mér þykir það ólíklegt, en ólíklegustu menn eru með skotvopnaleyfi.
Hins vegar, eftir að hafa fylgst með sögunni þinni, þá myndi ég gefa þessu smá tíma og sjá hversu vel gengur núna, og mögulega gætirðu fengið leyfi.
Re: Official Skotvopna- og Skotveiðiþráðurinn
Sent: Sun 17. Jan 2016 17:30
af HalistaX
Klaufi skrifaði:HalistaX skrifaði:Get menn eins og ég, greindir með geðklofa eða aðrar geðraskanir, fengið byssuleyfi?
Ég er ekki viss, það fer alveg eftir því hvernig læknir metur þig.
Þú þarft að fara í mat til heimilislæknis þegar þú sækir um skotvopnaleyfi.
Mér þykir það ólíklegt, en ólíklegustu menn eru með skotvopnaleyfi.
Hins vegar, eftir að hafa fylgst með sögunni þinni, þá myndi ég gefa þessu smá tíma og sjá hversu vel gengur núna, og mögulega gætirðu fengið leyfi.
Jájá, ég er svo sem ekkert að pæla í þessu fyrir alvöru.
Væri bara neat-o að vera með byssuleyfi þar sem maður er bóndasonur og hefur þurft að nota byssur við að aflífa dýr og svona.
Ætli ég hafi ekki verið 12 eða 13 ára þegar pabbi dróg mig úr Playstation, lét mig fá .22 skammbyssuna sína og sagði mér að skjóta eitt stk aumingja(Aumingjar eru s.s. lömb sem fæðast fötluð, standa ekki í lappirnar osf. og er það bara ljótt af bændum að aflífa það ekki því aldrei yrði það að heilbrigðri skepnu, myndi verða bara að einhverri klessu sem stæði ekki í lappirnar og gæti ekki nært sig sjálft og myndi það líklegast bara drepast úr hungri á endanum). Hann sagði mér að stíga laust á hálsinn á því, bara til þess að halda því kjuru, ekki það fast að ég væri að kæfa það samt, við viljum ekki að dýrin þjáist, og skjóta það svo í hausinn.
Ég geri það náttúrulega og þrátt fyrir að hafa dáið samstundis þá spriklaði það eins og nýfætt á meðan það blæddi út.
Rosalega kemur mikið af blóði úr svona lítilli skepnu. Annars hefur þetta atvik, þó það hafi verið ógéðslegt að horfa uppá litla sæta lambið deyja, ekki hrjáð mig neitt til langtíma. Ég var náttúrulega þögull á eftir en ég var alveg búinn að gleyma því þangað til að ég spurði um byssuleyfið þarna í gær. Pabbi hefði líklega ekki átt að láta mig gera þetta svona ungann en þetta var og er svo sem bara partur af sveitalífinu. Kannski fínt að kynnast þessu svona ungur, maður kann þá á þetta í dag.
Hef ég síðan orðið vitni að mörgu ljótu, ljótu hliðinni af sveitalífinu þ.e.a.s. Ég er ekki að segja að við séum bara að drepa dýr uppá funnið, heldur er það vegna þess að stundum er bara ekkert annað í stöðuni. Ég vona að þið skiljið það.