Síða 7 af 7

Re: Er maðurinn alveg búinn að tapa sér?

Sent: Mið 13. Feb 2013 13:00
af Jimmy
-edit-
Sry team, sá bara umræðu um erfðabreyttan mat og kannabis og hélt að ég væri kominn í twilight zoneið.

Re: Er maðurinn alveg búinn að tapa sér?

Sent: Mið 13. Feb 2013 13:08
af beggi90
Jimmy skrifaði:Svona þar sem það virðast allir hérna vera hámenntaðir í þessu blessaða heilbrigðiskerfi okkar þá fannst mér alveg eins gott að varpa þessari spurningu hingað.

Eru menn almennt sáttir við heilbrigðiskerfið eins og það er í dag?
Ég er að lenda í því í fyrsta skipti á ævinni að þurfa að takast á við frekar alvarlegan sjúkdóm, og ég er að fá svo lítið frá sjúkratryggingunum í hinu og þessu að það tekur sig varla að sækja það.
Warning: Potential thread derial.

Gerðu frekar nýan þráð um ótengt málefni.

Re: Er maðurinn alveg búinn að tapa sér?

Sent: Mið 13. Feb 2013 13:10
af Jimmy
Biðst innilegrar velvirðingar elsku kallinn minn, tímasóunin hefur verið fjarlægð.

Re: Er maðurinn alveg búin að tapa sér?

Sent: Mið 13. Feb 2013 13:12
af appel
svanur08 skrifaði:Rosalega getiði malað endalaust um þetta, þetta er eins og never ending story :D
Rökræddi þetta við vinnufélaga minn, lentum bara næstum í slagsmálum :sleezyjoe

Ég ranghvolfi alltaf augunum þegar reykingarmaðurinn segir það mannréttindi sín að fá að reykja. Hver eru mannréttindi mín þá? Engin? Mannréttindi eru aldrei þannig að einhver annar þurfi að vera fórnarlamb til að tryggja þau. Að reykja er ekki alltaf fórnarlambslaust athæfi.

Sjáið Smáralinda. Ég tek hana sem dæmi því ég fer þangað oft, og verð alltaf fyrir því að þurfa ganga í gegnum reykjarkóf áður en ég get komist inn (eða út). Haldið þið að aðstandendur Smáralindarinnar hafi ekki reynt að vísa þessu fólki lengra í burtu? Jú. En klukkustund seinna, daginn seinna, er kominn nýr hópur fólks sem gerir nákvæmlega það sama, stendur 2 metra í burtu frá inngangi og heldur að það sé nóg. Smáralindin er í engri aðstöðu til að sekta þetta fólk, hringja í lögregluna eða hvaðeina, enda er ekki verið að fremja neinn glæp. Bara "a-holes" sem kæra sig ekki um aðra.

Að reykja eru ekki mannréttindi, rétt einsog það eru ekki mannréttindi að geta drukkið kók alla daga. Margar vörur eru bannaðar hérlendis því þær valda heilsuskaða. Enginn kvartar yfir mannréttindabrotum þar.

En það er samt þín ákvörðun hvort þú viljir sniffa asbest eða draga sígarettureyk ofan í lungun á þér. Það að aðrir vilji gera hið sama er þeirra ákvörðun, þú getur ekkert tekið hana fyrir aðra. Ef þú ferð að dreifa asbest yfir fólk fyrir utan innganginn í Smáralind þá yrði nú eitthvað gert við þig.

Skemmtilegt umræðuefni, þar sem það snertir svo marga fleti.

Re: Er maðurinn alveg búinn að tapa sér?

Sent: Mið 13. Feb 2013 13:13
af GuðjónR
svanur08 skrifaði:Rosalega getiði malað endalaust um þetta, þetta er eins og never ending story :D
Við erum rétt að byrja!!

Re: Er maðurinn alveg búinn að tapa sér?

Sent: Mið 13. Feb 2013 13:27
af dandri
Sumir reykingamenn auðvitað taka ekkert tillit til annars fólks, mér finnst samt verst að sjá fólk reykja ofan í börnunum sínum.

Re: Er maðurinn alveg búin að tapa sér?

Sent: Mið 13. Feb 2013 13:33
af ManiO
appel skrifaði: Skemmtilegt umræðuefni, þar sem það snertir svo marga fleti.

Spurning um að finna lausn sem að tekur tillit til beggja hópa? Setja upp sér reykingasvæði, eins og t.d. á flugvellinum.

Re: Er maðurinn alveg búin að tapa sér?

Sent: Mið 13. Feb 2013 13:58
af playman
ManiO skrifaði:
appel skrifaði: Skemmtilegt umræðuefni, þar sem það snertir svo marga fleti.

Spurning um að finna lausn sem að tekur tillit til beggja hópa? Setja upp sér reykingasvæði, eins og t.d. á flugvellinum.
Það er nú bara einmitt það sem ég hef verið að seygja, eins og hjá þessum stórverslunum, t.d. kringlan og smáralindin, hafa merkt svæði
sem sést vel hvar eigi að reykja, og það þíðir ekkert að hafa það hinum meigin í húsinu því margir mindu ekki nenna að labba "langa" vegalengd
til þess að kveikja sér í. Svo hafa vel merkt í kringum inganga að reykingar séu bannaðar á því svæði.

Svo mætti hafa einn inngang sem er bannað að reykja fyrir utan, sem væri fyrir tuðara sem fynna tóbaks lykt þegar að þeir sjá
reykingarmann, og eru hræddir um líf sitt vegna óbeinna reykinga sem stóð yfir í 5 sec í verulega útþynntu magni, sem er BTW mun heilsusamlegra en
þunga úrgangs loftið sem bifreiðar skylja eftir sig í bílahúsum/kjöllurum.

Re: Er maðurinn alveg búinn að tapa sér?

Sent: Mið 13. Feb 2013 16:59
af rapport
Kringlan/Smáralind eru ekki að velja að bjóða upp á þessa aðstöðu.

Þetta er frekjan og yfirgangurinn, ef það er ekki stubbahús þá er þessu bara hent á jörðina.

Þetta er ógeðslega sóðalegt með stubbahúsum en yrði hreinn viðbjóður án þeirra...

Re: Er maðurinn alveg búinn að tapa sér?

Sent: Mið 13. Feb 2013 20:28
af ManiO
rapport skrifaði:Kringlan/Smáralind eru ekki að velja að bjóða upp á þessa aðstöðu.

Þetta er frekjan og yfirgangurinn, ef það er ekki stubbahús þá er þessu bara hent á jörðina.

Þetta er ógeðslega sóðalegt með stubbahúsum en yrði hreinn viðbjóður án þeirra...
Já, það er fullkomnlega satt. Væri gaman að sjá einhverja koma með tildrög að lausn í þeim málum.

Re: Er maðurinn alveg búinn að tapa sér?

Sent: Mið 13. Feb 2013 20:47

Einfaldasta lausnin er að banna reykingar, amk. í einhverjum radíus í kringum þessa kjarna.

Re: Er maðurinn alveg búinn að tapa sér?

Sent: Mið 13. Feb 2013 20:48
af rango
GuðjónR skrifaði:
ManiO skrifaði:
rapport skrifaði:Kringlan/Smáralind eru ekki að velja að bjóða upp á þessa aðstöðu.

Þetta er frekjan og yfirgangurinn, ef það er ekki stubbahús þá er þessu bara hent á jörðina.

Þetta er ógeðslega sóðalegt með stubbahúsum en yrði hreinn viðbjóður án þeirra...
Já, það er fullkomnlega satt. Væri gaman að sjá einhverja koma með tildrög að lausn í þeim málum.
Einfaldasta lausnin er að banna reykingar, amk. í einhverjum radíus í kringum þessa kjarna.
Hvað með að banna sígarettur enn leyfa neftóbak og munntóbak, Myndi halda að neftóbak skaði minna út frá sér?

Re: Er maðurinn alveg búinn að tapa sér?

Sent: Mið 13. Feb 2013 21:23
af Moldvarpan
http://www.mbl.is/frettir/erlent/2013/0 ... annafaeri/

Nú getiði bara flutt til Rússlands og verið þar í reyklausu lofti :)

Re: Er maðurinn alveg búinn að tapa sér?

Sent: Mið 27. Feb 2013 22:35
af lukkuláki
Sjálfsagt til lítils að pósta þessu hérna þar sem fólk sem er að reyna að réttlæta kannabisreykingar hlustar ekki á neitt nema sjálft sig og aðra sem aðhyllast þessum efnum
og jú svo hlusta sumir á Bob Marley ;)
http://visir.is/stadreynd-ad-neysla-kan ... 3130229045

Re: Er maðurinn alveg búinn að tapa sér?

Sent: Mið 27. Feb 2013 23:10
af urban
lukkuláki skrifaði:Sjálfsagt til lítils að pósta þessu hérna þar sem fólk sem er að reyna að réttlæta kannabisreykingar hlustar ekki á neitt nema sjálft sig og aðra sem aðhyllast þessum efnum
og jú svo hlusta sumir á Bob Marley ;)
http://visir.is/stadreynd-ad-neysla-kan ... 3130229045

það er nú fyrst og fremst búið að vera að tala um bann á reykingum, ótengt kannabisreykingum í þessum þræði.
jú vissulega var verið að tala um kannabisreykingar, en aftur á móti þá tengist þessi linkur sem að þú póstar í rauninni umræðunni í þræðinum ekki neitt.

Re: Er maðurinn alveg búinn að tapa sér?

Sent: Mið 27. Feb 2013 23:14
af dandri
Ég er nokkuð viss um að fólk geti hlustað á bob marley án þess að vera freðið, er það ekki annars?

Re: Er maðurinn alveg búinn að tapa sér?

Sent: Fim 28. Feb 2013 08:36
af starionturbo
Þetta er algjör viðbjóður, ég væri reyndar alveg til í að reyktóbak yrði bannað á íslandi, það helst vel í hendur við allt annað sem er bannað.

Svo hata ég líka bara hóstann í þessu liði, hann er freakin ógeðslegur.

Re: Er maðurinn alveg búinn að tapa sér?

Sent: Fim 28. Feb 2013 10:42
af lukkuláki
urban skrifaði:
lukkuláki skrifaði:Sjálfsagt til lítils að pósta þessu hérna þar sem fólk sem er að reyna að réttlæta kannabisreykingar hlustar ekki á neitt nema sjálft sig og aðra sem aðhyllast þessum efnum
og jú svo hlusta sumir á Bob Marley ;)
http://visir.is/stadreynd-ad-neysla-kan ... 3130229045

það er nú fyrst og fremst búið að vera að tala um bann á reykingum, ótengt kannabisreykingum í þessum þræði.
jú vissulega var verið að tala um kannabisreykingar, en aftur á móti þá tengist þessi linkur sem að þú póstar í rauninni umræðunni í þræðinum ekki neitt.

Já sorry ég sé það núna það má alveg færa þetta hingað:
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f ... t=Kannabis