Síða 7 af 14

Re: Ljósnet Símans

Sent: Mið 06. Júl 2011 21:17
af tdog
Ertu nokkuð á Gagnanetinu eða á Vettvangs, Guðmundur?

Re: Ljósnet Símans

Sent: Mið 06. Júl 2011 21:19
af siminn
@tdog

Hvorugt af þessu.

Re: Ljósnet Símans

Sent: Mið 06. Júl 2011 21:20
af biturk
siminn skrifaði:@B.Ingimarsson og @biturk
Þessi fyrsti fasi Ljósnetsvæðingarinnar tekur bara fyrir höfuðborgarsvæðið. Engar ákvarðanir hafa verið teknar enn um hvert framhaldið verður. Því miður, vil frekar segja sannleikann frekar en að koma með eitthvað loðið pólitískt svar.

Kæmi mér samt ekkert á óvart að stærri þéttbýliskjarnar eins og Akureyri myndu svo detta inn en það hefur hreinlega bara ekki verið rætt ennþá og engar ákvarðanir liggja fyrir í þeim efnum.

kveðja,
Guðmundur hjá Símanum



það fynnst mér persónulega alveg ótrúlega lélegt, maður hefur það stundum á tilfinningunni að byggðarfélög utan höfuðborgarsvæðis séu ekki til :thumbsd

en það þýðir ekkert að skammast í þér, þú ert jú væntanlega bara starfsmaður, en ég þakka þér kærlega fyrir að taka tíma í að svara okkur hjérna

ein spurning samt.

ertu að þessu í starfi hjá símanum eða ertu bara að vinna þar? veit síminn af þessu hjá þér?

Re: Ljósnet Símans

Sent: Mið 06. Júl 2011 21:29
af siminn
@biturk

Fyrsti fasi Ljósnetsvæðingarinnar tekur bara fyrir Breiðbandssvæði. Það er gert vegna þess að gamla Breiðbandið notar ljósleiðara sem við getum svo endurnýtt þegar við leggjum svo Breiðbandinu og setjum upp Ljósnetið.

Á Akureyri er lítið ef eitthvað Breiðband. Það þýðir því að þegar Akureyri yrði tekið fyrir þyrfti að fræsa upp allar götur og grafa fyrir brunnum og götuskápum. Það hefur hreinlega ekki verið ákveðið hvert framhaldið er og í hvaða röð eitthvað verður gert. Myndi skilja betur að þú kallir það lélegt þegar að Síminn myndi ákveða að sleppa Akureyri alveg en enn sem komið er liggur bara ekkert fyrir í þeim efnum. Við erum ekki búnir að standa lengi í þessari Ljósnetsvæðingu og við þurfum fyrst að fá að klára það sem við erum byrjaðir á áður en við getum skipulagt framhaldið. Þetta er nógu flókið fyrir :)

Ég svara hér inni fyrir hönd Símans sem starfsmaður Símans. Síminn svarar fyrirspurnum á Facebook og Twitter (@siminn) ásamt því að fylgjast með völdum spjallborðum eins og þessu þar sem mögulega má leysa málin hratt, svara spurningum og leiðrétta misskilning ef hann kemur upp. Síminn lítur á netið og samfélagsmiðla til jafns við símtal í þjónustuverið eða töluvpóst til okkar. Bara enn ein leiðin til að veita viðskiptavinum okkar þjónustu og svara fyrirspurnum sem geta komið upp.

kveðja,
Guðmundur hjá Símanum

Re: Ljósnet Símans

Sent: Mið 06. Júl 2011 21:31
af alfons
@Guðmundur hjá Símanum
Veistu hvenær Gamli Vesturbærinn (101 Reykjavík) er á dagskrá? Átti að vera 1. apríl skv þessari frétt http://www.siminn.is/um-simann/frettase ... tem134094/ en er þó ekki komið inn og þeir hjá þjónustuverinu gátu ekki svarað því.

Re: Ljósnet Símans

Sent: Mið 06. Júl 2011 21:33
af siminn
@alfons

Áttu heimilifang eða götunafn fyrir mig svo ég geti skoðað þetta. Er Breiðband í húsinu í dag ?

kveðja,
Guðmundur hjá Símanum

Re: Ljósnet Símans

Sent: Mið 06. Júl 2011 21:35
af B.Ingimarsson
en hvernig fær maður ljósleiðarann inní húsið (þetta kemur ekki í gegnum símasnúruna lengur ?), þarf maður að vera með sérstakan router eða eitthvað þannig?

Re: Ljósnet Símans

Sent: Mið 06. Júl 2011 21:38
af siminn
@B.Ingimarsson

Ljósnetið er samnefnari yfir tvær tegundir burðarlags. Annarsvegar VDSL2 og G.PON. G.PON er ljósleiðari inn í hús en VDSL2 er ljósleiðari að götuskáp og kopar inn í hús. EIns og kerfið okkar er uppbyggt er koparinn þó bara í mesta lagi 2% af lagnaleiðinni til notanda, stundum minna en aldrei meira. Misjafnt eftir því hvar þetta er.

Í báðum tilvikum þarf notandi að fá nýjann router já enda virka ADSL routerar ekki á þessar tengingar.

Re: Ljósnet Símans

Sent: Mið 06. Júl 2011 22:06
af alfons
siminn skrifaði:@alfons

Áttu heimilifang eða götunafn fyrir mig svo ég geti skoðað þetta. Er Breiðband í húsinu í dag ?

kveðja,
Guðmundur hjá Símanum


Blómvallagata. Með breiðbandið veit ég ekki, er með ADSL frá ykkur í dag.

Re: Ljósnet Símans

Sent: Mið 06. Júl 2011 22:11
af ecoblaster
Veistu hvenær það á að klára Nesveginn, 107 reykjavík?

Re: Ljósnet Símans

Sent: Mið 06. Júl 2011 22:30
af siminn
@alfons

Það er ekkert Breiðband í Blómavallagötu. Þannig að Ljósnetið er ekki að koma á þessu ári að minnsta kosti. Eins og áður hefur komið fram er fyrsti áfangi verkefnisins af mörgum bara að Ljósnetsvæða Breiðbandssvæði. Þannig að það er einhver bið í þetta hjá þér.

@ecoblaster
Hvar ertu á Nesveginum ? Það var bara lítill hluti götunnar með breiðband en ef það var ekki hjá þér má athuga hvort að við getum ekki tengt þig í annan skáp í götunni sem er með Ljósnet. Ef þú vilt ekki setja húsnúmerið þitt í opið spjall er þér velkomið að senda mér skilaboð hér.

Re: Ljósnet Símans

Sent: Mið 06. Júl 2011 23:53
af tdog
Mér finnst samt magnað að Síminn hafi spáð í FTTC strax árið 1996. (http://timarit.is/view_page_init.jsp?is ... =is&q=FTTC)

Re: Ljósnet Símans

Sent: Fim 07. Júl 2011 00:50
af Black
ég er að nota ljósnet símans, (50mb) bara snilld er að ná 6.6mb hraða á Torrent og þetta er aðeins ódýrara en adsl :happy

Re: Ljósnet Símans

Sent: Mið 13. Júl 2011 11:11
af audiophile
Það kemur maður og setur upp hjá mér í dag eða á morgun. Get ekki beðið :)

En veit einhver hvort sjónvarpið gegnum ljósnet er sent í betri gæðum en er í gegnum ADSL?

Re: Ljósnet Símans

Sent: Mið 13. Júl 2011 11:43
af appel
tdog skrifaði:Mér finnst samt magnað að Síminn hafi spáð í FTTC strax árið 1996. (http://timarit.is/view_page_init.jsp?is ... =is&q=FTTC)


Þór Jes er núna framkvæmdastjóri tæknisviðs Símans. Það sem hann talaði um fyrir 15 árum er núna veruleiki!

En svona til að setja þetta í samhengi þá var þetta á þeim tíma þegar internetið var rétt að verða vinsælt, flestir á 14.4kbps/28.8kbps innhringimódemum, fæstir áttu GSM síma, og P&S var helst að vinna við útborð á pósti og svo sjá um heimilissíma. 1996 var líka það ár sem ég fékk alvöru tölvu og internet tengingu :) En ég man þá að það tók mig svona 2 klukkustundir að downloada movie trailer frá bandaríkjunum.

Re: Ljósnet Símans

Sent: Mið 13. Júl 2011 12:32
af audiophile
Árið 1996 fór ég á bókasafn til að komast á netið og tók með mér diskettu til að vista skjöl á til að taka með heim.

Nú er ég með síma í vasanum sem slær við 10 ára gömlum tölvum. Kræst hvað þetta þróast hratt. :-k

Re: Ljósnet Símans

Sent: Fim 28. Júl 2011 21:45
af yumyum
Þetta net er alveg fínt svo lengi sem þú spilar ekki neina tölvuleiki á erlendum serverum, pings sem eg fæ t.d. i quake live.. UK = 77-82, NL = 67-72(skársta, samt frekar hræðilegt), DEU = 82-85, FRA = 82-85, SWE = 80-82... síðan er ég að sjá fólk með ljósleiðara hjá vodafone með 45-50 i ping á uk, shit hvað eg er að fara að losa mig við þetta drasl þeir fara nú að klára að setja ljósleiðarann upp her fljótlega.

Re: Ljósnet Símans

Sent: Fim 28. Júl 2011 23:15
af wicket
yumyum skrifaði:Þetta net er alveg fínt svo lengi sem þú spilar ekki neina tölvuleiki á erlendum serverum, pings sem eg fæ t.d. i quake live.. UK = 77-82, NL = 67-72(skársta, samt frekar hræðilegt), DEU = 82-85, FRA = 82-85, SWE = 80-82... síðan er ég að sjá fólk með ljósleiðara hjá vodafone með 45-50 i ping á uk, shit hvað eg er að fara að losa mig við þetta drasl þeir fara nú að klára að setja ljósleiðarann upp her fljótlega.


Ég gæti ekki verið meira ósammála. Finnst þetta mesta snilld.

Er að spila BF2 á glæsilegu pingi á serverum í DK og UK. Xbox Live gjörsamlega dansar á þessu og torrentið flýgur.

Þú ættir kannski að prófa að skipta um router eða láta Símann skoða þetta eitthvað.

Re: Ljósnet Símans

Sent: Fös 29. Júl 2011 14:48
af yumyum
wicket skrifaði:
yumyum skrifaði:Þetta net er alveg fínt svo lengi sem þú spilar ekki neina tölvuleiki á erlendum serverum, pings sem eg fæ t.d. i quake live.. UK = 77-82, NL = 67-72(skársta, samt frekar hræðilegt), DEU = 82-85, FRA = 82-85, SWE = 80-82... síðan er ég að sjá fólk með ljósleiðara hjá vodafone með 45-50 i ping á uk, shit hvað eg er að fara að losa mig við þetta drasl þeir fara nú að klára að setja ljósleiðarann upp her fljótlega.


Ég gæti ekki verið meira ósammála. Finnst þetta mesta snilld.

Er að spila BF2 á glæsilegu pingi á serverum í DK og UK. Xbox Live gjörsamlega dansar á þessu og torrentið flýgur.

Þú ættir kannski að prófa að skipta um router eða láta Símann skoða þetta eitthvað.



Hvað kallar þú glæsilegt ping, já eg geri mer grein fyrir að torrent virkar mjög vel og netið er alveg ásættanlega hratt. En Quake Live er óspilanlegur útaf lelegu pingi, hækkaði um ca. 10-20 ping til flestra nágrannalandana eftir að eg skipti frá vodafone adsl yfir í ljósnetið hjá símanum... En þetta skiptir svosem ekki öllu máli, er búinn að segja þessu upp og fekk litlar sem engar upplýsingar frá simanum af hverju pingið mitt er svona hátt. Ljósið á að fara að koma á næstu 1-2 mánuðum, vonandi skánar eitthvað með því.

Pingið mitt á íslenska Quake Live servera er líka frekar amalegt, 18-28 í ping á nútímatengingu í hjarta reykjavíkur er alls ekki ásættanlegt.

Re: Ljósnet Símans

Sent: Fös 29. Júl 2011 17:17
af audiophile
Ég er alveg að elska Ljósnetið. Ég er með sjónvarpið í gengum þetta og fæ alveg 6.5 mb/s í download og svona 3-4 mb/s í upload. Sjónvarpið alveg hikstalaust þó download/upload sé botnað á torrent.

Ping á UK servera í Bad Company 2 er svona 40-60 en oftast um 50ms og hitreg alveg mjög gott.

Re: Ljósnet Símans

Sent: Lau 30. Júl 2011 15:32
af ponzer
Vodafone/Tal peera á einnhverjum good shit stað í UK, er að pinga 45-55 á adsli á UK cs serverum, fer meirisegja undir 40 á ljósi. Hinnsvegar pingar maður mikið til DK hjá Voda/Tali en pingar flott þar í gegnum Símann..

Ef fólk ætlar að spila á nordic serverum er Síminn málið en ef þú ætlar að spila í UK/NL/FR er Voda/Tal málið.

Re: Ljósnet Símans

Sent: Lau 30. Júl 2011 21:56
af gardar
ponzer skrifaði:Vodafone/Tal peera á einnhverjum good shit stað í UK, er að pinga 45-55 á adsli á UK cs serverum, fer meirisegja undir 40 á ljósi. Hinnsvegar pingar maður mikið til DK hjá Voda/Tali en pingar flott þar í gegnum Símann..

Ef fólk ætlar að spila á nordic serverum er Síminn málið en ef þú ætlar að spila í UK/NL/FR er Voda/Tal málið.



Uhm, síminn er með beint route í LINX...

Re: Ljósnet Símans

Sent: Sun 31. Júl 2011 09:50
af audiophile
ponzer skrifaði:Vodafone/Tal peera á einnhverjum good shit stað í UK, er að pinga 45-55 á adsli á UK cs serverum, fer meirisegja undir 40 á ljósi. Hinnsvegar pingar maður mikið til DK hjá Voda/Tali en pingar flott þar í gegnum Símann..

Ef fólk ætlar að spila á nordic serverum er Síminn málið en ef þú ætlar að spila í UK/NL/FR er Voda/Tal málið.


Reynslan mín er akkurat öfug. Var með Vodafone ADSL og átti erfitt með að finna UK servera undir 60ms og flestir voru 70-80+ og leiðinda hitreg. Svo fékk ég bráðabirgða ADSL frá Símanum meðan ég beið eftir Ljósneti og það var fokk mikill munur, milljón UK serverar með 40-55ms og geðveikt hitreg. Núna er ég kominn með Ljósnetið og það er nokkuð sama og ADSL'ið frá Símanum.

Sennilega bara spurning um hvar maður er staðsettur á landinu eða hvaða hverfi í Rvk.

Re: Ljósnet Símans

Sent: Fim 04. Ágú 2011 23:01
af everdark
Edit - Kominn með ljósnet!

Re: Ljósnet Símans

Sent: Sun 14. Ágú 2011 18:10
af gutti
til síman hvað er frétta samband við hátúni 10 bara forvitni :?: