Síða 6 af 19
Re: Jarðskjálftar...
Sent: Þri 02. Mar 2021 14:05
af jonfr1900
Þessi jarðskjálftavirkni er öll í eldstöðinni Krýsuvík og þar hófst þessi atburðarrás í raun seint árið 2008 og snemma 2009 með breytingum á þenslu og jarðhitakerfum.
Það er smá hlé núna á jarðskjálftum en þetta er ekki búið tel ég.
Re: Jarðskjálftar...
Sent: Þri 02. Mar 2021 15:49
af thorhs
https://youtu.be/949ukhcHpYc
Nýtt video sem sýnir skjálftana frá upphafi. Það vantar að vísu gögn í miðjuna þar sem ég gleymdi að scrape-a og ég hef ekki haft tíma til að lesa inn gögn frá öðrum source.
Lítur út fyrir að það hafi verið hreyfing á jarðskorpuni í upphafi þar sem skjálftarnir eru nokkuð austur/vestur, eða frá Fagradalsfjalli og til Krísuvíkur. Eftir það gæti verið að kvikan hafi farið af stað þar undir og sé að ryðja sér leið upp á milli Fagradalsfálls og Keilis. Þessir skjálftar eru enn tiltölulega djúpir, eða um 5km dýpi.
Re: Jarðskjálftar...
Sent: Þri 02. Mar 2021 19:07
af appel
Einhver annar en ég kominn með skjálftariðu? Vinnufélagi minn er líka orðinn þannig. Finnst einsog það sé alltaf eitthvað smá í gangi. Kannski bara ímyndunarveiki eða maður bara orðinn næmari á allan víbring í umhverfinu.
Re: Jarðskjálftar...
Sent: Þri 02. Mar 2021 19:44
af mikkimás
mikkimás skrifaði:Eina sem mér finnst verulega óþægilegt er tilhugsunin um gasmengun.
Þau virðast ekki hafa sérstakar áhyggjur af gasmengun, þ.a. það mun ég ekki heldur.
Re: Jarðskjálftar...
Sent: Þri 02. Mar 2021 19:45
af mikkimás
appel skrifaði:Einhver annar en ég kominn með skjálftariðu? Vinnufélagi minn er líka orðinn þannig. Finnst einsog það sé alltaf eitthvað smá í gangi. Kannski bara ímyndunarveiki eða maður bara orðinn næmari á allan víbring í umhverfinu.
Ég er líka orðinn svona, en veit ekki hvor ástæðan er.
Re: Jarðskjálftar...
Sent: Þri 02. Mar 2021 21:24
af MrIce
appel skrifaði:Einhver annar en ég kominn með skjálftariðu? Vinnufélagi minn er líka orðinn þannig. Finnst einsog það sé alltaf eitthvað smá í gangi. Kannski bara ímyndunarveiki eða maður bara orðinn næmari á allan víbring í umhverfinu.
Minna kaffi
En nei, þetta er allveg "normal" eftir svona skjálftahrynur að verða smá ímyndunarveikur á þetta (finnast allt skjálfa og such)
Re: Jarðskjálftar...
Sent: Þri 02. Mar 2021 23:47
af jonfr1900
Hérna er hægt að sjá GPS færsluna síðustu daga. Krýsuvík er búinn að færast 80cm síðan 24-Febrúar.
Re: Jarðskjálftar...
Sent: Mið 03. Mar 2021 10:41
af appel
jonfr1900 skrifaði:Hérna er hægt að sjá GPS færsluna síðustu daga. Krýsuvík er búinn að færast 80cm síðan 24-Febrúar.
ekki 80 cm, heldur 80 mm, læra lesa Y kvarðann
semsagt krísuvík búin að færast um 8 cm til suð-austurs. Eða er reykjavík búin að færast 8 cm til norð-vesturs? Veit ekki alveg við hvaða origin er miðað.
Re: Jarðskjálftar...
Sent: Mið 03. Mar 2021 10:52
af Mossi__
Hef einmitt haft það á tilfinninguna að ég sé lengur í vinnuna.
Re: Jarðskjálftar...
Sent: Mið 03. Mar 2021 14:15
af thrkll
Veit einhver hverjir 8 síðustu liðirnir í þessum töflum þarna eru?
Ég hef tekið eftir því að þetta er að uppfærast nánast samstundis eftir jarðskjálftana og svo leiðrétt eitthvað á næstu mínútum.
En hins vegar er þetta yfirleitt aðeins öðruvísi en tölurnar sem birtast svo á vedur.is.
Re: Jarðskjálftar...
Sent: Mið 03. Mar 2021 14:17
af Rafurmegni
Hvar fannstu þessa slóð? Er búinn að vera að leita á Veðurstofuvefnum að almennilegri vefþjónustu til að ná í þessi gögn og niðurstaða þeirra leitar hefur engin verið til þessa.
Það er hálf skringilegt að ef maður vill finna veðurupplýsingar þá er betra að fara á heimasíðu Vegagerðarinnar og nota þeirra gagnaveitur en þetta óreiðukennda samansafn sem heimasíða Veðurstofunnar er.
Þessi gögn ættu að vera aðgengileg sem vefþjónusta með almennilegum lýsigögnum og helst sem vefpartar sem aðrir miðlar geta sett inn á sínar vefsíður. Þá hrynur ekki þessi síða í hvert skipti sem eitthvað markvert gerist.
Megni
Re: Jarðskjálftar...
Sent: Mið 03. Mar 2021 14:56
af thorhs
Ég væri nú einnig til í að geta bara hookað mig inn á eitthvað PubSub topic, hvort sem er í kafka eða mqtt, eða eitthvað annað. Fá bara allar breytingarnar, hvort þetta sé nýr sjálfti, breyttur/yfirfarinn eða draugur sem er hent. Þá gæti maður sé þetta betur.
Væri einnig til í að komast vélvænt feed af GPS gögnunum sem og 'frum' skjálftagögnin, þeas waveformin, en það gæti svo sem verið erfiðara. Það gæti verið gaman að tíðnibreyta skjálftunum yfir á tíðnir sem mannseyrað nemur, og hlusta þannig á þá
Væri einnig til í að komast í það sama frá HÍ og öðrum sem eru með mælingar á Íslandi, hef svo sem ekki leitað mikið.
Þau 'feed' sem ég veit um í dag frá VÍ eru:
Re: Jarðskjálftar...
Sent: Mið 03. Mar 2021 15:05
af kjartanbj
Jæja, núna er eitthvað að gerast, merki um eldgos byrjuð ap sjást
Re: Jarðskjálftar...
Sent: Mið 03. Mar 2021 15:08
af thorhs
kjartanbj skrifaði:Jæja, núna er eitthvað að gerast, merki um eldgos byrjuð ap sjást
Hvar ertu að sjá ummerki um eldgos?
Re: Jarðskjálftar...
Sent: Mið 03. Mar 2021 15:09
af kjartanbj
Kíktu á frétta miðlanna, gos órói byrjaður að mælast
Re: Jarðskjálftar...
Sent: Mið 03. Mar 2021 15:22
af ChopTheDoggie
thorhs skrifaði:kjartanbj skrifaði:Jæja, núna er eitthvað að gerast, merki um eldgos byrjuð ap sjást
Hvar ertu að sjá ummerki um eldgos?
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2021 ... kkustunda/
"Hann segir að enn sé ekkert staðfest um gos, en allt virðist benda til þess að í það stefni."
Re: Jarðskjálftar...
Sent: Mið 03. Mar 2021 15:23
af zetor
Rafurmegni skrifaði:
Hvar fannstu þessa slóð? Er búinn að vera að leita á Veðurstofuvefnum að almennilegri vefþjónustu til að ná í þessi gögn og niðurstaða þeirra leitar hefur engin verið til þessa.
Það er hálf skringilegt að ef maður vill finna veðurupplýsingar þá er betra að fara á heimasíðu Vegagerðarinnar og nota þeirra gagnaveitur en þetta óreiðukennda samansafn sem heimasíða Veðurstofunnar er.
Þessi gögn ættu að vera aðgengileg sem vefþjónusta með almennilegum lýsigögnum og helst sem vefpartar sem aðrir miðlar geta sett inn á sínar vefsíður. Þá hrynur ekki þessi síða í hvert skipti sem eitthvað markvert gerist.
Megni
Ég fann þetta bara í grúski, endalaust af gömlum og nýjum vefsíðum þarna inn á veður.is. Það vantar betur output frá þeim af tölum og niðurstöðum t.d. þetta alert mag, þarf maður að skipta eftir dögum, gott væri að fá þetta á einni síðu í stanslausu outputi.
Re: Jarðskjálftar...
Sent: Mið 03. Mar 2021 15:30
af Mossi__
Re: Jarðskjálftar...
Sent: Mið 03. Mar 2021 15:39
af Rafurmegni
zetor skrifaði:Rafurmegni skrifaði:
Hvar fannstu þessa slóð? Er búinn að vera að leita á Veðurstofuvefnum að almennilegri vefþjónustu til að ná í þessi gögn og niðurstaða þeirra leitar hefur engin verið til þessa.
Það er hálf skringilegt að ef maður vill finna veðurupplýsingar þá er betra að fara á heimasíðu Vegagerðarinnar og nota þeirra gagnaveitur en þetta óreiðukennda samansafn sem heimasíða Veðurstofunnar er.
Þessi gögn ættu að vera aðgengileg sem vefþjónusta með almennilegum lýsigögnum og helst sem vefpartar sem aðrir miðlar geta sett inn á sínar vefsíður. Þá hrynur ekki þessi síða í hvert skipti sem eitthvað markvert gerist.
Megni
Ég fann þetta bara í grúski, endalaust af gömlum og nýjum vefsíðum þarna inn á veður.is. Það vantar betur output frá þeim af tölum og niðurstöðum t.d. þetta alert mag, þarf maður að skipta eftir dögum, gott væri að fá þetta á einni síðu í stanslausu outputi.
Vel gert! Þessi vefur er algjör horror og það virðist vanta alla stefnumótun um það hvernig gögnum er komið á framfæri. Auðvitað ætti þetta að vera aðgengilegt sem þjónusta, til dæmis að setja mánaðarnafn í slóðina í stað mánaðarnúmers er mjög amatöralegt. Sennilega er þetta eitthvað sem sumarstarfsmaður hefur skilið eftir og heldur áfram að malla (og virka). Þeir sem reka vefinn munu ábyggilega slökkva á þessu þegar það uppgötvast að þetta getur mögulega verið gagnlegt!
Megni
Re: Jarðskjálftar...
Sent: Mið 03. Mar 2021 15:49
af GuðjónR
Þetta er alveg að bresta á, minni ykkur á beina útsendingu á RUV kl 15:55
Re: Jarðskjálftar...
Sent: Mið 03. Mar 2021 15:52
af falcon1
Vefur rúv liggur niðri...
Re: Jarðskjálftar...
Sent: Mið 03. Mar 2021 15:54
af thrkll
Rafurmegni skrifaði: Þeir sem reka vefinn munu ábyggilega slökkva á þessu þegar það uppgötvast að þetta getur mögulega verið gagnlegt!
Megni
Einmitt það sem ég var að hugsa
Re: Jarðskjálftar...
Sent: Mið 03. Mar 2021 16:01
af GuðjónR
falcon1 skrifaði:Vefur rúv liggur niðri...
Re: Jarðskjálftar...
Sent: Mið 03. Mar 2021 16:05
af Rafurmegni
GuðjónR skrifaði:falcon1 skrifaði:Vefur rúv liggur niðri...
Kannski að 14 tonna ofurtölva hjá Veðurstofu Íslands gæti mögulega keyrt vefsíðu sem ekki hrynur?
https://www.visir.is/g/2016160419485
Megni
Re: Jarðskjálftar...
Sent: Mið 03. Mar 2021 16:31
af jonfr1900
appel skrifaði:jonfr1900 skrifaði:Hérna er hægt að sjá GPS færsluna síðustu daga. Krýsuvík er búinn að færast 80cm síðan 24-Febrúar.
ekki 80 cm, heldur 80 mm, læra lesa Y kvarðann
semsagt krísuvík búin að færast um 8 cm til suð-austurs. Eða er reykjavík búin að færast 8 cm til norð-vesturs? Veit ekki alveg við hvaða origin er miðað.
Takk fyrir. Færslan er samt mikil en ég les þetta oft vitlaust þar sem núllið þvælist fyrir mér.