Síða 6 af 8
Re: Geforce event 2020
Sent: Fös 18. Sep 2020 15:51
af Klemmi
GuðjónR skrifaði:Eru þetta ekki fín verð?
Ég myndi segja það, bara mjög fín verð.
Zotac kortið kostar heim komið frá OverClockers núna um 145-150þús kall, svo það er ekki mikill sparnaður lengur, þó menn hafi náð þeim 10-15þús kalli ódýrara í gær
Á samt eftir að koma í ljós hvenær þau berast.
Re: Geforce event 2020
Sent: Fös 18. Sep 2020 16:24
af Nariur
GuðjónR skrifaði:Eru þetta ekki fín verð?
Nei. Nei, þetta er all svakalegt okur.
Re: Geforce event 2020
Sent: Fös 18. Sep 2020 16:59
af halipuz1
Þetta eru bara fínustu verð maður, þessar búðir verða nú að lifa eitthvað.
Ég persónulega kaupi allt hér heima því ég vil bara fá þetta í hendurnar strax, hafa ábyrgðina hér, o.s.frv, styrki í leiðinni íslenskt hagkerfi. Eru ekki allir sáttir með það.
Re: Geforce event 2020
Sent: Fös 18. Sep 2020 17:29
af Gummiv8
157.950kr er nú bara sanngjarnt verð hérna heima
Re: Geforce event 2020
Sent: Fös 18. Sep 2020 17:31
af Gummiv8
Vá hvað er en mikið álag á overclockers.co.uk, ekki búið að vera hægt að komast inná hana í meira en hálftíma
Re: Geforce event 2020
Sent: Fös 18. Sep 2020 17:34
af Frussi
Nariur skrifaði:GuðjónR skrifaði:Eru þetta ekki fín verð?
Nei. Nei, þetta er all svakalegt okur.
Hvernig þá?
Re: Geforce event 2020
Sent: Fös 18. Sep 2020 20:47
af jonsig
Hvenar koma svo þessi fjandans kort í búðir?
Re: Geforce event 2020
Sent: Fös 18. Sep 2020 20:49
af Penguin6
veit ekki með búðirnar en mitt er komið í tölvuna
Re: Geforce event 2020
Sent: Fös 18. Sep 2020 21:06
af Fletch
Penguin6 skrifaði:veit ekki með búðirnar en mitt er komið í tölvuna
Pics
Re: Geforce event 2020
Sent: Fös 18. Sep 2020 21:47
af jonsig
Penguin6 skrifaði:veit ekki með búðirnar en mitt er komið í tölvuna
Hvar keyptiru það montrass?
Re: Geforce event 2020
Sent: Fös 18. Sep 2020 21:59
af Penguin6
kísildal
Re: Geforce event 2020
Sent: Lau 19. Sep 2020 09:33
af Nariur
Frussi skrifaði:Nariur skrifaði:GuðjónR skrifaði:Eru þetta ekki fín verð?
Nei. Nei, þetta er all svakalegt okur.
Hvernig þá?
Bæta búllurnar hérna á Íslandi við 25.000 krónum af value? Nei. Alls ekki.
Re: Geforce event 2020
Sent: Lau 19. Sep 2020 09:42
af Frussi
Nariur skrifaði:Frussi skrifaði:Nariur skrifaði:GuðjónR skrifaði:Eru þetta ekki fín verð?
Nei. Nei, þetta er all svakalegt okur.
Hvernig þá?
Bæta búllurnar hérna á Íslandi við 25.000 krónum af value? Nei. Alls ekki.
Hmm, ca 18% álagning, tveggja ára ábyrgð sem er afgreidd hérna heima, laun starfsmanna og annar rekstrarkostnaður. Verð að vera ósammála
Re: Geforce event 2020
Sent: Lau 19. Sep 2020 10:15
af Nariur
Frussi skrifaði:Nariur skrifaði:Frussi skrifaði:Nariur skrifaði:GuðjónR skrifaði:Eru þetta ekki fín verð?
Nei. Nei, þetta er all svakalegt okur.
Hvernig þá?
Bæta búllurnar hérna á Íslandi við 25.000 krónum af value? Nei. Alls ekki.
Hmm, ca 18% álagning, tveggja ára ábyrgð sem er afgreidd hérna heima, laun starfsmanna og annar rekstrarkostnaður. Verð að vera ósammála
Framleiðendurnir eru oftast með tveggja ára+ ábyrgð... sem á skjákortum er sjaldnast þörf fyrir hvort eða er.
Ég er ekki tilbúinn til að borga neitt nálægt þessu fyrir "afgreiðslu á Íslandi". Það er svo gott sem ekkert viðbætt value.
Re: Geforce event 2020
Sent: Lau 19. Sep 2020 13:21
af Cozmic
Nariur skrifaði:Frussi skrifaði:Nariur skrifaði:Frussi skrifaði:Nariur skrifaði:GuðjónR skrifaði:Eru þetta ekki fín verð?
Nei. Nei, þetta er all svakalegt okur.
Hvernig þá?
Bæta búllurnar hérna á Íslandi við 25.000 krónum af value? Nei. Alls ekki.
Hmm, ca 18% álagning, tveggja ára ábyrgð sem er afgreidd hérna heima, laun starfsmanna og annar rekstrarkostnaður. Verð að vera ósammála
Framleiðendurnir eru oftast með tveggja ára+ ábyrgð... sem á skjákortum er sjaldnast þörf fyrir hvort eða er.
Ég er ekki tilbúinn til að borga neitt nálægt þessu fyrir "afgreiðslu á Íslandi". Það er svo gott sem ekkert viðbætt value.
Er fólk viriklega að væla yfir að Íslenskar smáverslanir séu dýrari en Amazon ?
Re: Geforce event 2020
Sent: Lau 19. Sep 2020 13:46
af kallikukur
Naríur - fyrir mér er það 25 þúsund króna virði að geta sótt ábyrgðina án auka kostnaðar og fengið sérfræðihjálp ef eitthvað kemur upp á. Þó framleiðandi bjóði ábyrgð þá er sendingarkostnaður yfirleitt ekki innifalinn og hann er snöggur að hlaupa á fimm þúsundköllunum.
Að kalla 25 þúsund krónu verðmun á svona dýrum hlut okur og þar með þá sem reka þessar verslanir okrara sýnir svo náttúrulega algert þekkingarleysi á rekstri.
Segjum að t.d. Kísildalur fái 10% afslátt frá framleiðanda af verðinu sem Overclockers eru að selja þessi kort á.
607,4 x 180 (pund til einföldunar og líklega gengið sem Kísildalur keypti á) = 109.348 kr.
10% afsláttur frá framleiðanda = 98.413 kr.
Segjum að sendingarkostnaður sé 5% (s.s. mjög góður) = 103.333 kr.
Það gerir kostnaðarverðið á kortinu með vsk 128.133 kr.
Ef að Kísildalur selur kortið á sama verði og það er á úti (um 135 þúsund þegar búið er að færa vsk í 24% úr 20%, miðað við gengi 180) þá hefur verslunin 5.538 kr upp úr krafsinu eða 5% framlegð.
Ef Kísildalur selur kortið á verðinu sem þeir eru raunverulega að selja það þá hafa þeir 33.360 kr. upp úr krafsinu eða 32% framlegð (sem er mjög eðlilegt fyrir sérverslun).
Sé verslunin að velta um 150 milljónum (geri ráð fyrir að velta sé þar í kring) á ári þá eru hér framlegðartölur miðað við framlegðarprósenturnar:
5% -> 7.500.000
Sem gerir framlegð á mánuði 625 þúsund krónur
32% -> 48.000.000
Sem gerir framlegð á mánuði 4 milljónir
Eins og þú sérð á þessu dæmi þá er Kísildalur og eigendur hans ekki að fara að kaupa upp Arnarnesið á næstunni enda þarf slík verslun að leigja húsnæði, borga starfsfólki með sérkunnáttu, markaðssetja sig, borga sendingarkostnað innanlands, reka vefsíðu o.s.frv.
Ég skil að þér er drull um rekstur viðkomandi fyrirtækja, þú vilt bara fá vöruna á sem lægstu verði, en með því að kalla þau okrara þá ertu að saka þau um græðgi og virðingarleysi gagnvart viðskiptavinum - Eitthvað sem flestir hér hljóta að vera ósammála þegar tölurnar eru skoðaðar.
Re: Geforce event 2020
Sent: Lau 19. Sep 2020 16:21
af SolidFeather
hehe lol, 20.000 manns/bots búnir að panta frá amazon.de
https://twitter.com/ZOTAC_DACH/status/1 ... 29376?s=19
Re: Geforce event 2020
Sent: Lau 19. Sep 2020 16:28
af Nariur
Þetta er vara sem ber ekki 30%+ framlegð. Neinsstaðar. (Nema á íslandi). Sumar vörur gera það. Vörurnar sem fyrirtækin græða á.
Linus sagði þetta mjög vel:
https://youtu.be/v0t617WK10I?t=1152
Ég myndi hreinlega kalla þetta að svíkja peninga út úr fólki sem veit ekki betur.
Re: Geforce event 2020
Sent: Lau 19. Sep 2020 17:50
af kallikukur
Linus er með góða punkta varðandi upplifun og pakkadíla, það er hinsvegar ekki hægt að heimfæra þessar prósentur yfir á Íslenskan markað - lof mér að útskýra:
Á stóru mörkuðunum eru merkin sjálf eða stórir dreifingaraðilar að selja kortin til búðanna - þessir dreifingaraðilar sjá um:
- Fjármögnun lagers - þeir kaupa sjó af kortum og svo panta búðirnar (forpanta þegar ný kort koma út), búðirnar geta svo skilað óseldum einingum til dreifingaraðila ásamt því að vera með greiðslufrest svo að þeirra áhætta vegna kaupanna er engin.
- Dreifingu í búðirnar - free shipping!
- Ábyrgðarmál - oft á tíðum sjá dreifingaraðilar um að framfylgja ábyrgð, skaffa varahluti eða útskiptikort
Þannig að þegar Linus talar um að retailers séu sumir með 5-8% framlegð þá ert þú að horfa fram hjá því að búðirnar hérna heima eru að sinna hlutverki sem að tveir aðilar úti sinna og hafa því tvær álagningar af. Fjármögnun lagers getur verið sérlega erfið fyrir litlar sérverslanir enda er mjög erfitt að meta hversu mörg stykki munu seljast á svona örmarkaði og ef það er keypt of mikið þá er ekkert hlaupið að því að skila.
Ofan á þetta þá geri ég nú ráð fyrir að t.d. amazon og overclockers fái talsvert betri díla en íslenskar sérverslanir - ef að Íslensk sérverslun gæti þá verið með 5% framlegð á verðum sem þeir bjóða, hvað ætli þeir séu þá með í framleg?
Til að leggja ofuráherslu á lagerfjármögnun - værir þú til í að eiga 10 stk. 2080ti á lager núna sem þú hefur verið að selja með 5%framlegð og gætir ekki skilað?
Ástæðan fyrir því að enginn nennir að svara svona þráðbeittum en veiklega rökstuddum kommentum eins og frá þér er að þetta er bara ekkert einfalt sbr. ritgerðirnar mínar tvær - raunveruleikinn er að markaðurinn er einstakur, cost of living er top 5 í heiminum - flutningsgjöld eru tvöföld miðað við evrópu og markaðurinn er agnarsmár sem þýðir að magnhagkvæmni á öllum stigum er minni en annarsstaðar.
Re: Geforce event 2020
Sent: Sun 20. Sep 2020 01:28
af Nariur
Þú ert með góða punkta, en aðra sem eiga ekki beint við.
- Verslanirnar hérna eru að borga minna fyrir kortin en aðilarnir úti eru að selja þau á.
- Við erum að bera saman shipping á stökum kortum þegar maður kaupir að utan og stærri sendingar, tollaðar saman o.s.frv., svo þessi kostnaðarliður er dass lægri fyrir verslanirnar hér.
- Framleiðendur virða ábyrgð jafn mikið hér og annarsstaðar. Það ætti akki að verða til teljandi kostnaður vegna hennar.
- Verslanir hér gætu keypt eins mikið og mögulegt er af 3080 kortum með fullri vissu um að geta selt þau í dag. Þetta breytist auðvitað þegar það líður á líf kortsins. Þær eru meira að segja sumar að standa fyrir forpöntunum svo lagerkostnaður skiptir ekki beint máli.
Verslanirnar hér mega græða á því að selja þessi kort, en þetta er samt ekki vara sem ber 30% álagningu og að leggja svoleiðis á þau er hreint okur.
Raunveruleikinn er sá að ef þeir væru með eðlileg verð (10-15.000 hærra en úti), þá myndu þeir fá viðskipti.
Re: Geforce event 2020
Sent: Sun 20. Sep 2020 09:55
af kallikukur
- Verslanirnar hérna eru að borga minna fyrir kortin en aðilarnir úti eru að selja þau á.
- Dreifingaraðilar úti fá mikinn afslátt og stærri stöku retailerarnir fá eflaust sömu verð og búðirnar hér heima
- Við erum að bera saman shipping á stökum kortum þegar maður kaupir að utan og stærri sendingar, tollaðar saman o.s.frv., svo þessi kostnaðarliður er dass lægri fyrir verslanirnar hér.
- Vissulega, skjákortin eru líka mjög dýr miðað við stærð en með flugi má samt gera ráð fyrir 2-5% kostnaði
- Framleiðendur virða ábyrgð jafn mikið hér og annarsstaðar. Það ætti akki að verða til teljandi kostnaður vegna hennar.
- Heldur betur, sendingarhlutinn lendir hinsvegar alltaf á íslensku fyrirtækjunum (allavegana hjá þeim merkjum sem ég hef skipt við) og hraðsendingar með stökum hlutum eru nokkrir þúsundkallar í hvert skipti
- Verslanir hér gætu keypt eins mikið og mögulegt er af 3080 kortum með fullri vissu um að geta selt þau í dag. Þetta breytist auðvitað þegar það líður á líf kortsins. Þær eru meira að segja sumar að standa fyrir forpöntunum svo lagerkostnaður skiptir ekki beint máli.
- Það er svo sannarlega staðan núna, þá er það svo líka spurning fyrir lítið fyrirtæki sem getur fjármagnað vörukaup fyrir 5-10 milljónir á mánuði, hversu mikið eiga þeir að leggja í kortin (sem gætu svo tafist vegna örðugleika hjá birgja, flutningsaðila eða hvaðeina). Eiga þau að taka lán með 7-10% vöxtum til að fjármagna umframlager sem svo er seldur með 10-20% framlegð?
Svo er það líka bara spurning, af hverju bera skjákort ekki framlegð sem hægt er að reka verslun á? Er bilanatíðnin mjög lág, er framboð og eftirspurn mjög stöðugt, er þjónusta sem þarf í kringum vöruna lítil?
Ef um alvöru okrara væri að ræða þá myndu þau nýta sér tækifærið, selja kortin á 199.995 enda er markaðurinn að öskra eftir þessum kortum og næstu sendingar koma ekki fyrr en í lok árs
Það er erfitt að tala um okur í bransa sem hefur verið að skila ebitda tölum eins og þessum: (Ebitda sem prósenta af veltu)
Tölvulistinn 2019: 0,8%
Elko 2019: 6,2%
Tölvutek 2019: -3,8%
Att 2017: 2,9%
Kísildalur 2018: 1,4%
Re: Geforce event 2020
Sent: Sun 20. Sep 2020 10:17
af Nariur
Þú virðist halda að ég meini að íslenskar tölvuverslanir okri almennt. Það er ekki rétt. Þær eru oftast fínar...ish. Það fer eftir verslun.
T.d. ef ég vil 3700X, þá get ég borgað 56.000 á Amazon eða 50-60.000 hér heima. Svo þær geta alveg haldið sig innan sama ramma og aðilar úti.
Re: Geforce event 2020
Sent: Sun 20. Sep 2020 12:24
af Klemmi
Nariur skrifaði:Þú virðist halda að ég meini að íslenskar tölvuverslanir okri almennt. Það er ekki rétt. Þær eru oftast fínar...ish. Það fer eftir verslun.
T.d. ef ég vil 3700X, þá get ég borgað 56.000 á Amazon eða 50-60.000 hér heima. Svo þær geta alveg haldið sig innan sama ramma og aðilar úti.
Örgjörvar eru fremstir á Vaktinni, sem er ein ástæðan fyrir því að verslanir hafa lægri álagningu á þeim heldur en öðrum vörum. Önnur ástæða er að þeir bila mjög sjaldan, svo það eru minni áhyggjur af kostnaði við ábyrgð. Einnig eru þeir litlir og léttir, og kostnaður við flutning því hlutfallslega minni heldur en á öðrum vörum.
Það hefur gerst a.m.k. tvisvar svo ég muni til að verslanir fóru í verðstríð fyrir grænu reitina á Vaktinni, og hófu að borga allt að 5000kr með hverjum örgjörva. Annað skiptið fór Bjöggi í Tölvuvirkni þá leið að lækka ekki verðið, heldur bauðst til að kaupa örgjörvana af fólki á 5000kr meira heldur en þeir kostuðu á ódýrustu stöðunum, hann fékk þá á sama verði og áður, en samkeppnin blæddi 5000kr fyrir hvern.
Tölvutek fóru eitt sinn þá leið að selja ekki örgjörva nema bundle-að með móðurborði, GuðjónR tók hins vegar fyrir það hér á Vaktinni.
Þannig að það þýðir lítið að reyna að nota góð verð á örgjörvum sem einhverja mælistiku á sveigjanleika tölvuverslana til verðlækkana
Re: Geforce event 2020
Sent: Sun 20. Sep 2020 12:51
af MrIce
Klemmi skrifaði:
Það hefur gerst a.m.k. tvisvar svo ég muni til að verslanir fóru í verðstríð fyrir grænu reitina á Vaktinni
Er þá ekki bara best að svissa á örgjörfasíðunni og skjákorta?
Re: Geforce event 2020
Sent: Sun 20. Sep 2020 13:03
af Atvagl
Menn eru duglegir að ræða verðlagningu hérna á vaktinni, bæði í þessum þræði og á þessum
https://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=21&t=83958
Ég held að menn ættu bara að kjósa með veskinu - þeim sem finnst þjónustan þess virði ættu að kaupa hér á klakanum og tölvubúðirnar missa bara viðskipti þeirra sem vilja frekar taka áhættuna að panta að utan.
Ég veit að ég er sáttur með 105.000 kallinn sem ég borgaði fyrir ASUS 3080 TUF frá Overclockers (Sendingarkostnaður innifalinn). Geri ráð fyrir að þetta hækki upp í 135.000 eftir tollinn.