Síða 6 af 14
Re: Costco á Íslandi?.
Sent: Mán 22. Maí 2017 17:32
af GuðjónR
Klemmi skrifaði:Annars er það alveg rétt sem forstjóri Skeljungs segir... þeir neyðast ekkert til þess að fara niður í þessi verð. Við erum að tala um eina bensínstöð á einum stað... fæstir myndu sjá sér hag í því að gera sér sérferð þangað nema þá bara í mótmælaskyni.
Þessi forstjóri hljómaði hrokafullur í mín eyru, ef fólk er annaðborð á þvælingi á höfuðborgarsvæðinu þá er nú lítið mál að renna þarna við í leiðinni, ég keyri svona 2k km á mán og fylli tvisvar. Það ætti að vera prinsipp að versla við aðra en þá sem eru búnir að halda uppi siðlausu okri hérna í áratugi, fá á sig dóm vegna samráðs og halda því svo áfram.
Re: Costco á Íslandi?.
Sent: Mán 22. Maí 2017 18:13
af einarbjorn
ætlaði ekki orkan að vera alltaf með lægsta verðið, spr hvort þeir lækka, en ég á ekki von á því.
Re: Costco á Íslandi?.
Sent: Mán 22. Maí 2017 18:17
af GuðjónR
einarbjorn skrifaði:ætlaði ekki orkan að vera alltaf með lægsta verðið, spr hvort þeir lækka, en ég á ekki von á því.
Ætlaði Atlantsolía ekki að trompa alla hina og vera með besta verðið? Ef þeir myndu hætta þessum stanzlausu auglýsingum, tilboðum og allskonar afsláttum sem eru háðir hinu og þessu þá gætu þeir eflaust boðið upp á eðlilegt verð. En nei.
Re: Costco á Íslandi?.
Sent: Mán 22. Maí 2017 18:41
af frappsi
hallizh skrifaði:
Ég get ekki séð að þetta sé tilboð, héldu þeir kannski bara afmælistilboðinu?
https://elko.is/philips-55-uhd-smart-sjonvarp-55pus6501
En auðvitað gæti þetta verið betra sjónvarp í costco, er ekki endilega að bera þetta saman, meira að segja að það sé ekki hægt án frekari upplýsinga.
Já þeir virðast hafa gert tilboðsverðið að föstu verði á þessum vörum. Tilboðin áttu að renna út í gær og upphaflegt verð var komið aftur inn í nótt/morgun en virðist hafa breyst aftur. Líst vel á þetta skyndilega svigrúm til töluverðra verðlækkana
Elko er með 55PUS6501 en Costco er með 55PUS6551 en get ekki séð annað útfrá specs en að þetta séu nákvæmlega sömu tækin.
Re: Costco á Íslandi?.
Sent: Mán 22. Maí 2017 18:56
af Hjaltiatla
Costco mun opna dyrnar klukkan 09:00 í fyrramálið og mun Vísir verða með beina útsendingu frá herlegheitunum
Myrkur skall á í Costco
Re: Costco á Íslandi?.
Sent: Mán 22. Maí 2017 19:09
af C2H5OH
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2017/ ... _i_costco/
KitchenAid hrærivél á 51.999 krónur..... við konan ætluðum um daginn að fá okkur svona, ódýrust í elko sem segist reyna að vera með lægsta verðið og þar er hún á 87.995 !!
Til hamingju ísland
Re: Costco á Íslandi?.
Sent: Mán 22. Maí 2017 19:50
af kizi86
Klemmi skrifaði:
Annars er það alveg rétt sem forstjóri Skeljungs segir... þeir neyðast ekkert til þess að fara niður í þessi verð. Við erum að tala um eina bensínstöð á einum stað... fæstir myndu sjá sér hag í því að gera sér sérferð þangað nema þá bara í mótmælaskyni.
gerði smá útreikning, miðað við algengt verð hjá n1, 197,9kr per líter, fyrir 5000kr færðu 25,265 lítra af bensíni, hjá costco færðu líterinn á 169,9kr
sem gerir 29,429 lítra fyrir 5000kr sem gerir 4,16 lítra mun! það munar verulega um það! kemst verulega lengra á fimmaranum hjá costco en n1..
Re: Costco á Íslandi?.
Sent: Mán 22. Maí 2017 20:01
af fedora1
kizi86 skrifaði:Klemmi skrifaði:
Annars er það alveg rétt sem forstjóri Skeljungs segir... þeir neyðast ekkert til þess að fara niður í þessi verð. Við erum að tala um eina bensínstöð á einum stað... fæstir myndu sjá sér hag í því að gera sér sérferð þangað nema þá bara í mótmælaskyni.
gerði smá útreikning, miðað við algengt verð hjá n1, 197,9kr per líter, fyrir 5000kr færðu 25,265 lítra af bensíni, hjá costco færðu líterinn á 169,9kr
sem gerir 29,429 lítra fyrir 5000kr sem gerir 4,16 lítra mun! það munar verulega um það! kemst verulega lengra á fimmaranum hjá costco en n1..
Ég kaupi um 2500 lítra af bensíni á ári, 20 króna munur er 50.000 á ári. Eftir ummæli forstjóra Skeljungs í dag reikna ég fastlega með að skipta yfir til Costco.
Re: Costco á Íslandi?.
Sent: Mán 22. Maí 2017 20:06
af Tiger
Re: Costco á Íslandi?.
Sent: Mán 22. Maí 2017 20:17
af GuðjónR
En er ekki samt hagstæðara að panta frá UK?
Re: Costco á Íslandi?.
Sent: Mán 22. Maí 2017 20:32
af zetor
Þessi kitchenAid vél í Costco er Classic týpan. Elko selur Aristan týpuna. Classic vélin er aflminni og fæst bara í hvítu, Aristan í öllum regboganslitum. Kannski selur Costco Aristan líka
Re: Costco á Íslandi?.
Sent: Mán 22. Maí 2017 21:19
af depill
GuðjónR skrifaði:
En er ekki samt hagstæðara að panta frá UK?
Sýnist þetta svipað verð eins og UK
Enn auðvita er ég að bera saman sömu dekk. Getur pottþétt fengið ódýrari dekk. Enda er það ekki costco. Verður ekki endilega ódýrast en á að vera með því ódýrara /ódýrast miðað við gæði .
Kíkti aðan og grænmetið og ávextirnir looka plús verðið á mjög mörgu mjög fínt
Re: Costco á Íslandi?.
Sent: Mán 22. Maí 2017 21:25
af worghal
og pældu í því, þessi sama hrærivel er á 206$ í usa, eða um 20þús á núverandi gengi.
Re: Costco á Íslandi?.
Sent: Mán 22. Maí 2017 21:31
af HalistaX
God damn it. Keypti einhver ömurleg dekk hjá Gúmmívinnustofuni á +50k með umfelgun. Hefði ég beðið smá, fengið nokkrar sektir uppá 5 þúsund kall(Var bara á einu nagladekki
) þá hefði ég getað fengið mun betri dekk fyrir álíka pening.
Re: Costco á Íslandi?.
Sent: Mán 22. Maí 2017 22:26
af Gislinn
worghal skrifaði:
og pældu í því, þessi sama hrærivel er á 206$ í usa, eða um 20þús á núverandi gengi.
Ofan á þessi 20 þús kemur svo vsk sem er 24%. Í USA eru lágmarkslaun ekki jafn há og hér heima og markaðurinn hér heima er töluvert minni en í USA. Mér finnst alltaf frekar galið þegar fólk að taka bara USD og reikna út ISK og segja að munurinn sé eitthvað gífurlegur, þetta er ekki bara svo einfalt.
Ég er ekki að segja að 100% munur sé eitthvað lítið, ég er bara að benda á að hluti af muninum á íslenska verðinu og því bandaríska er eitthvað sem Costco ræður ekki yfir (t.d. launatengd mál).
Re: Costco á Íslandi?.
Sent: Mán 22. Maí 2017 23:11
af wicket
Fólk sem að reiknar bara USD beint í ISK og skilur ekki VSK, markaðsaðstæður og hvernig viðskipti í retail virka eiga bara að slaka aðeins á, og halda áfram að versla í Hagkaup og brosa.
KitcenAid er líka eflaust að stýra verðinu eins og Apple t.d. gera eftir löndum og landssvæðum, heildsöluverð á milli landa er mjög mismunandi þó það sé verið að kaupa nákvæmlega sömu vöruna. Heimurinn er bara ekki svartur og hvítur
Re: Costco á Íslandi?.
Sent: Mán 22. Maí 2017 23:19
af Hjaltiatla
501 Mens Levis buxunar á 6399 kr. Það er eflaust góður verðmunur á þessu verði hjá Costco og Levis búðinni hér á landi.
Ekki að ég sé að fara kaupa þessar buxur sjálfur , en fínt að fá samkeppnina
Re: Costco á Íslandi?.
Sent: Þri 23. Maí 2017 00:06
af GuðjónR
Hvað kosta 5l. af þessari á Olís?
Re: Costco á Íslandi?.
Sent: Þri 23. Maí 2017 00:10
af Tiger
Er að fílaðetta....
Re: Costco á Íslandi?.
Sent: Þri 23. Maí 2017 00:11
af Gummzzi
GuðjónR skrifaði:Hvað kosta 5l. af þessari á Olís?
Fann þetta allavega á N1 á 2.719 Kr 1L
x5 = 13.595 Kr
https://www.n1.is/vorur/smuroliur/folks ... 0%20438551
Re: Costco á Íslandi?.
Sent: Þri 23. Maí 2017 00:15
af Sallarólegur
Re: Costco á Íslandi?.
Sent: Þri 23. Maí 2017 00:30
af GuðjónR
Ætlaði eitt sinn að kaupa Mobile one 5W30 fyrir Skoda disel, brúsinn var á um 15k.
Hætti við og keypti ELF hjá Kema á 7600kr og fannst ég sleppa vel...
Say no more...
Re: Costco á Íslandi?.
Sent: Þri 23. Maí 2017 08:03
af depill
Class 1 - kirsuber á 1.299 kr
- 18642109_10155244414868116_471069489_o.jpg (186.85 KiB) Skoðað 1224 sinnum
Espresso baunir á 1699 kr ( svipað verð en meira magn á Starbucks houseblend sem kostaði einhverstaðar í kringum 3500 hér heima )
- 18676352_10155244415783116_291998977_o.jpg (205.77 KiB) Skoðað 1224 sinnum
Ég hef verið að kaupa þennan bedda í Kosti á 13.000 kr eins gott að ég er búinn að vera halda í mér að endurnýja fyrir hundinn
- 18676552_10155244414958116_26993562_o.jpg (144.21 KiB) Skoðað 1224 sinnum
Re: Costco á Íslandi?.
Sent: Þri 23. Maí 2017 08:32
af blitz
^^ Gaman af þessu - sýnist Rekstrarvörur vera að selja "Starbucks Signature kaffibaunir" 907gr á 4.984.
Ekki ólíklegt að um sömu vöru sé um að ræða.
Re: Costco á Íslandi?.
Sent: Þri 23. Maí 2017 08:45
af GuðjónR
Er ekki búinn að mæta þarna ennþá, en miða við það sem ég sé og heyri þá virðast verðin hjá Costco vera framar björtustu vonum.
Ég átti svo innilega ekki von á þessu. Maður er vanur að kaupa 400 gr. kaffipakka frá Te og Kaffi á hátt í 1000 kr. sem gerir kílóverði í kringum 2500. Er alveg til í stóran Starbucks á 1700 kr.
Aðildarkortið borgar sig upp á fyrstu ferðinni, það er nokkuð ljóst.