Síða 6 af 13
Re: Windows 10 Megathread
Sent: Fim 30. Júl 2015 19:50
af Njall_L
Ég sakna Sleep Mode, hafið þið orðið varir við það?
Re: Windows 10 Megathread
Sent: Fim 30. Júl 2015 19:55
af brain
Er í system - sleep mode.
Re: Windows 10 Megathread
Sent: Fim 30. Júl 2015 20:10
af Hannesinn
GuðjónR skrifaði:Er farinn að halda að Microsoft hafi óvart sett Win10BETA í umferð.
Hélt að menn væru fyrir lifandislöngu búnir að átta sig á að því að fyrsta batch notenda að nýju Windows eru beta testerar. Hefur verið svoleiðis frá tja... allavega Windows XP árið 2001. Minningin segir að Windows 2000 hafi verið nokkuð solid við útgáfu, but then again, þá er ég gamall og drykkfelldur.
Ég er samt pínuspenntur fyrir tíunni núna. Prufa hana örugglega í næstu viku bara.
Re: Windows 10 Megathread
Sent: Fim 30. Júl 2015 20:33
af kfc
tanketom skrifaði:
RLY?
Þetta kemur líka alltaf hjá mér

Re: Windows 10 Megathread
Sent: Fim 30. Júl 2015 20:55
af Swooper
Ég póstaði lausn á þessu aðeins fyrr í þræðinum, nenni ekki að grafa það upp aftur. Þarft að breyta regional settings.
Re: Windows 10 Megathread
Sent: Fim 30. Júl 2015 21:01
af Revenant
Hannesinn skrifaði:GuðjónR skrifaði:Er farinn að halda að Microsoft hafi óvart sett Win10BETA í umferð.
Hélt að menn væru fyrir lifandislöngu búnir að átta sig á að því að fyrsta batch notenda að nýju Windows eru beta testerar. Hefur verið svoleiðis frá tja... allavega Windows XP árið 2001. Minningin segir að Windows 2000 hafi verið nokkuð soldid við útgáfu, but then again, þá er ég gamall og drykkfelldur.
Ég er samt pínuspenntur fyrir tíunni núna. Prufa hana örugglega í næstu viku bara.
Ég held að málið sé miklu meira það að árið 2000 var miklu minna um það að fólk væri að sækja sér uppfærslur í gegnum netið - þú varðst að deliver-a stýrikerfi sem var í lagi.
Með þessari útgáfu og sífelldum uppfærslum þá kemst Microsoft upp með að senda út ófullkomið og buggað stýrikerfi - amk til að byrja með - og láta almúgan betatesta það.
Takið eftir að Windows 10 "RTM" build-ið er aðeins tveggja vikna gamalt áður en almenningur fékk það í hendur en sambærilegur tími var 2 mánuðir á Win 8.1 og 3 mánuðir fyrir Win 8.
Re: Windows 10 Megathread
Sent: Fim 30. Júl 2015 22:14
af Hannesinn
Revenant skrifaði:Ég held að málið sé miklu meira það að árið 2000 var miklu minna um það að fólk væri að sækja sér uppfærslur í gegnum netið - þú varðst að deliver-a stýrikerfi sem var í lagi.
Með þessari útgáfu og sífelldum uppfærslum þá kemst Microsoft upp með að senda út ófullkomið og buggað stýrikerfi - amk til að byrja með - og láta almúgan betatesta það.
Takið eftir að Windows 10 "RTM" build-ið er aðeins tveggja vikna gamalt áður en almenningur fékk það í hendur en sambærilegur tími var 2 mánuðir á Win 8.1 og 3 mánuðir fyrir Win 8.
Held það sé alveg rökrétt ályktun, eins lélegt og það er. Og ekkert einskorðað við Microsoft, þó svo þeir séu líklega verstir í stýrikerfisbransanum. Ég sé ekki Linux útgáfur svona slæmar þó þær séu mismunandi, og ég stórefast um að MacOS sé ónothæft við útgáfu... já eða svona... eitthvað meira ónothæft en aðra daga. *híhíhí*
Svo einskorðast þetta ekkert við MS, leikjaiðnaðurinn má muna sinn fífil fegurri, og vonandi að Batman Arkham Knight klúðrið rétti hann eitthvað af.
Sorrí fyrir offtopic.

Re: Windows 10 Megathread
Sent: Fim 30. Júl 2015 22:28
af Sallarólegur
Uppfærði úr Windows 7(pirate activated) og það virkaði allt nema Windows sjalft, gat opnað öll forrit en ekki Edge, Start Menu, Settings osfrv.
Svo let ég þetta malla í 24 klst. og vesenið var liklega activation kerfið hja þeim for á hliðina.
En þetta er komið í gang, elska þetta so far, nyji browserinn er splendid.
En wtf, afhverju koma ekki alltaf islenskir stafir?

Re: Windows 10 Megathread
Sent: Fös 31. Júl 2015 00:34
af appel
Windows 10 Uses Your Bandwidth to Distribute Updates, Disable It Here
http://lifehacker.com/windows-10-uses-y ... 1721091469
Þeir nota P2P, myndi tjékka á þessu ef þér er umhugað um bandvíddina þína.
Re: Windows 10 Megathread
Sent: Fös 31. Júl 2015 00:42
af GuðjónR
Takk fyrir ábendinguna!
Helvítis melirnir eru með þetta default stillt þannig að tölvan hjá manni er oðrin að Windows Update server fyrir aðra notendur.
Fávitar!
Re: Windows 10 Megathread
Sent: Fös 31. Júl 2015 00:47
af appel
Mér finnst þetta vera svolítið risky hjá Microsoft að gera þetta. Það er ekki einsog Windows hafi verið öruggasta stýrikerfið hingað til, og ég get alveg ímyndað mér að það sé hægt að nota þetta til að hakka tölvur eða gera árásir eða hvaðeina. Þar fyrir utan þá vill fólk ekki óþarfa traffík á networkinu sínu, sem það þarf kannski að borga fúlgur fyrir! Ímyndið ykkur einhvern sem er á sattelite tengingu á lúsarhraða og allt í einu fer eitthvað P2P sharing í gang sem hann veit ekkert af.
Re: Windows 10 Megathread
Sent: Fös 31. Júl 2015 00:51
af GuðjónR
appel skrifaði:Mér finnst þetta vera svolítið risky hjá Microsoft að gera þetta. Það er ekki einsog Windows hafi verið öruggasta stýrikerfið hingað til, og ég get alveg ímyndað mér að það sé hægt að nota þetta til að hakka tölvur eða gera árásir eða hvaðeina. Þar fyrir utan þá vill fólk ekki óþarfa traffík á networkinu sínu, sem það þarf kannski að borga fúlgur fyrir! Ímyndið ykkur einhvern sem er á sattelite tengingu á lúsarhraða og allt í einu fer eitthvað P2P sharing í gang sem hann veit ekkert af.
Eimitt, og fæstir vita af þessu. Amk. venjulegir notendur hafa ekki hugmynd um þetta.
Algjörlega út úr kú að hafa þetta sem "default" stillingu. Þeir eiga pottþétt etir að fá hrúgu af kærum á sig.
Re: Windows 10 Megathread
Sent: Fös 31. Júl 2015 08:11
af Heliowin
Voðalegt nöldur er þetta í windows með scheduled restart vegna windows update. Maður er að nota tölvuna og það er ætlast til þess að maður tímastilli restart vegna windows update. En hvað ef maður er að nota tölvuna á sama tíma?
Re: Windows 10 Megathread
Sent: Fös 31. Júl 2015 10:54
af gissur1
Heliowin skrifaði:Voðalegt nöldur er þetta í windows með scheduled restart vegna windows update. Maður er að nota tölvuna og það er ætlast til þess að maður tímastilli restart vegna windows update. En hvað ef maður er að nota tölvuna á sama tíma?
Alveg sammála, það vantar “remind me tonight/tomorrow“ möguleikann úr osx.
Annars er ég fíla windows 10 meira og meira og er sífellt að finna nýja fítusa sem lítið er talað um.
Re: Windows 10 Megathread
Sent: Fös 31. Júl 2015 11:26
af C2H5OH
Setti win 10 upp á flestum tölvum á heimilinu þar með talið spjaldtölvu sem var með win 8.1 og allt virðist virka bara í toppstandi.
Ég er reyndar ekki mikið í að spila leiki.
Ég er með skrítna spurningu, ég gleymdi að gera clean install á spjaldtölvunni og þá myndast mappa sem heitir Windows.old á c drifinu ásamt Nýju Windows möppunni og hún tekur óhemju pláss og diskurinn í spjaldtölvunni er aðeins 32 gb. má eyða windows.old ?
Re: Windows 10 Megathread
Sent: Fös 31. Júl 2015 12:24
af slapi
Windows old má eyðast ef þú hefur ekkert inná henni sem skiptir máli frá gamla stýrikerfinu.
En henni er nánast alltaf eytt ef þú ferð í gegnum disk cleanup þá geturðu valið gamla stýrikerfið og eytt því út.
Re: Windows 10 Megathread
Sent: Fös 31. Júl 2015 13:01
af C2H5OH
slapi skrifaði:Windows old má eyðast ef þú hefur ekkert inná henni sem skiptir máli frá gamla stýrikerfinu.
En henni er nánast alltaf eytt ef þú ferð í gegnum disk cleanup þá geturðu valið gamla stýrikerfið og eytt því út.
Þakka þér kærlega fyrir þessa ábendingu, gerði disk cleanup og fékk heil 17,5 gb til baka af lausu plássi.

Re: Windows 10 Megathread
Sent: Fös 31. Júl 2015 14:05
af lifeformes
heilir og sælir, eru einhverjir hérna sem eru með asus hljóðkort sem virka ekki, er með Asus D2X, þarf maður að bíða þangað til Asus græjar drivera fyrir þessi kort.
er búinn að gera Windows uppdate en það skilaði eingu.
Re: Windows 10 Megathread
Sent: Fös 31. Júl 2015 14:19
af Molfo
Daginn.
Smá spurning hérna.
Ég uppfærði í Win 10 á heimavélinni minni og það gekk allt mjög vel.
En núna er ég að fara að kaupa nýtt hardware, móðurborð, örgjörva og minni.
Mun ég lenda í vandræðum með leyfislykilinn?
Kv.
Molfo
Re: Windows 10 Megathread
Sent: Fös 31. Júl 2015 14:40
af emmi
Lykillinn er bundinn við móðurborðið. Ef þú ert með Retail útgáfu af Windows 8 leyfinu þá áttu að geta transferað leyfið á milli, ekki ef þú ert með OEM.
Re: Windows 10 Megathread
Sent: Fös 31. Júl 2015 15:51
af hallzli
Eitt vesen hjá mér skjákortið kemur ekki inn......Reddaðist!
Re: Windows 10 Megathread
Sent: Fös 31. Júl 2015 17:02
af FreyrGauti
Uppfærði HTPC í W10 í gær, líkar þetta alveg ágætlega, virðist samt vera að þegar að ég skoða spjall.vaktin.is í Edge þá byrjar hann að nauðga intel skjákortinu, HD4600, CPU temp hækkar um alveg 10°.
emmi skrifaði:Lykillinn er bundinn við móðurborðið. Ef þú ert með Retail útgáfu af Windows 8 leyfinu þá áttu að geta transferað leyfið á milli, ekki ef þú ert með OEM.
Veistu hvernig menn færa retail leyfin á milli?
Re: Windows 10 Megathread
Sent: Fös 31. Júl 2015 19:39
af emmi
Ef þú nærð ekki að activeita þá ferðu í hitt ferlið sem Windows býður uppá ef sjálfvirkt activation gengur ekki. Hringir í eitthvað símanúmer og fylgir leiðbeiningunum. Segir að leyfið sé ekki í notkun á annarri tölvu ef þú ert spurður.
Re: Windows 10 Megathread
Sent: Fös 31. Júl 2015 19:45
af chaplin
Síminn er 510-6925 minnir mig.
Annars var að koma benchmark frá
Guru3D.
Re: Windows 10 Megathread
Sent: Fös 31. Júl 2015 19:49
af HalistaX
Náði loksins að logga mig inná Microsoft accountinn minn. Þá ætti ég að getað notað þetta vandræðalaust.