Síða 6 af 14
Sent: Mán 29. Nóv 2004 00:06
af ParaNoiD
geri það
Sent: Mán 29. Nóv 2004 11:29
af Icarus
maður bíður mjög spenntur eftir áliti frá paranoid og öllum þessum hinum sem ætluðu að panta sér...
Sent: Mán 29. Nóv 2004 11:45
af natti
Alveg magnað hvað fólk er fljótt að gleyma.
Fletch skrifaði:=Við sjáum enga þörf fyrir að bæta þjónustuna okkar nema margir fari að segja henni upp
Síminn hefur einmitt ekkert verið að bæta þjónustuna er það? Hækka hraðan án endurgjalds? Ekki magnmæla windows uppfærslur og helstu leikjauppfærslur & spilun.
Og eru nú að gera tilraunir með að bjóða upp á TVoADSL.
Er þetta ekki að bæta þjónustuna?
Ekki misskilja mig, mér finnst þetta mjög gott dæmi hjá Hive. Og til lengri tíma litið á þetta vonandi eftir að hafa áhrif á gjaldskrá hinna fyrirtækjanna.
En það er samt alveg rétt, að fyrir langstærstan meirihluta adsl notenda, þá er enginn gróði fyrir þá að færa sig. Þó að mörgum eigi eftir að finnast erfitt að trúa því, þá eru ekki allir sem liggja í því að downloada bíómyndum, leikjum & lögum.
Það þurfa ekki allir að fá sér mesta hraðann sem er í boði ef þeir sjá ekki fram á neina notkun á honum. Sem er einmitt ástæðan fyrir því að fólk var ennþá að panta sér 256 & 512 tengingar þegar þær voru í boði.
Sent: Mán 29. Nóv 2004 11:47
af Pandemic
Síðan hvenær hafa uppfærslur frá microsoft ekki verið fríjar spyr ég nú bara?
Sent: Mán 29. Nóv 2004 12:11
af gnarr
kostar fyrir alla sem að eru of vitlausir tilað kunna ða setja tölvuan sína upp sem íslenska..
annars er þetta mjög sniðugt fyrir vini sem búa í blokk.
tildæmis 4 hæða blokk með 8 íbúðum.. ein 8mb tenging og þráðlaus router, og allir í blokkinni eru tengdir fyrir kanski 750kr á mánuði (ef allar íbúðir eru með) og þar að auki með ótakmarkað download.
það þýðir að það er minnst 1Mbps á hverja íbúð ef allir eru tegdirí einu, sem að er frekar ólíklegt. mjög líkelgat að það væru kanski mest 3 tengdir á sama tíma. þannig að það eru alveg 2.5Mbps. og 8Mbps þegar þaðer bara einn í einu.
Sent: Mán 29. Nóv 2004 14:26
af skipio
Sáuð þið fulltrúann frá Hive í fréttunum á Stöð 2 í gær?
Stórskemmtileg rök fyrir því afhverju þeir geta boðið upp á ókeypis niðurhal frá útlöndum:
Hann sagði að Ísland hefði næga bandbreidd við útlönd þar sem Farice strengurinn væri 4 terrabit/s og því væri um næga bandbridd um að ræða.
Við skulum nú horfa framhjá augljósu staðreyndavillunni sem hann fór með, að Farice væri 4 terrabit/s, því í raun er hámarksflutningsgeta hans 720 Gbit/s.
Annars er það aukaatriði hvort strengurinn er 720 Gbit/s eða 4 terrabit/s.
Það sem raunverulega skiptir máli er sú staðreynd að núna eru aðeins 10 Gbit/s af flutningsgetu strengsins raunverulega virk og að það kostar umtalsverðar fúlgur að auka flutningsgetuna.
Ennfremur er aðgangur að þessum 10 Gbit/s alls ekki ókeypis eins og ég held ég hafi tíundað í allavega milljón bréfum hér á undan.
Annars styð ég alla aðra í að skipta yfir til Hive ef það fær símafyrirtækin til að lækka verðin hjá sér. Það ætti örugglega að gerast um áramótin [þegar verðskránni hjá Farice verður breytt].
En ég er feginn að þurfa ekki að versla við þá sjálfur.
Sent: Mán 29. Nóv 2004 14:44
af natti
Pandemic skrifaði:Síðan hvenær hafa uppfærslur frá microsoft ekki verið fríjar spyr ég nú bara?
Frítt as in: telur ekki upp í gagnamagn frá útlöndum, sem þú nota bene borgar fyrir hjá öllum nema einum þjónustuaðila. Það hefur ekki alltaf verið þannig.
Gnarr, jáms, væri sniðugt ef nokkrar íbúðir taka sig saman. Kemur í veg fyrir rifrildi einsog "þú downloadaðir meira en ég og því á ég ekki að borga svona mikið."
Og oft lítið mál að leggja eina ethernetsnúru í hverja íbúð frá router.
Sent: Mán 29. Nóv 2004 15:21
af gnarr
windowsupdate fer í gegnum spegla. svo að allir sem að eru með tölvurnar sínar settur upp sem íslenskar fara gegnum speglana, og fá update-in þar af leiðandi frýtt.
Sent: Mán 29. Nóv 2004 15:31
af gumol
skipio skrifaði:Við skulum nú horfa framhjá augljósu staðreyndavillunni sem hann fór með, að Farice væri 4 terrabit/s, því í raun er hámarksflutningsgeta hans 720 Gbit/s.
Hann sagði reyndar 4 tera..bæta...uuu...bita gagnaflæði. (hvað sem það á að þýða
)
Þessi maður sem þeir töluðu við vissi greinilega ekki nóg um tæknilegu hliðina til að vera að tala um hana í sjónvarpinu. Þetta Arnþór Halldórsson er framkvæmdastjóri IP fjarskipta fyrrverandi framkvæmdastjóri Iceland Express. Ef Hive verður það sama fyrir netmarkaðinn og Iceland Express var fyrir flugmarkaðinn þá er þetta bara gott.
Þið getuð séð fréttina hérna:
http://media.gagna.net/uskefnistod2/cli ... ett122.wmv
Sent: Mán 29. Nóv 2004 16:08
af Pandemic
uppfærslur frá microsoft heftur alltaf verið frítt síminn er bara að rugla í viðskiptavinum með að segja að það hafi allt í einu orðið frítt
Sent: Mán 29. Nóv 2004 17:44
af Lazylue
Er frekar svektur, gerði bindisamning við símann til 12 mánaða til að geta fengið router hjá þeim. Nú þarf ég að býða í 10 mánuði í viðbót til að geta skipt um netþjónustu
Sent: Mán 29. Nóv 2004 17:47
af MezzUp
Lazylue skrifaði:Er frekar svektur, gerði bindisamning við símann til 12 mánaða til að geta fengið router hjá þeim. Nú þarf ég að býða í 10 mánuði í viðbót til að geta skipt um netþjónustu
Getur alveg skipt, þarft bara að borga Símanum út binditímann
Sent: Mán 29. Nóv 2004 17:51
af ParaNoiD
ég fæ þetta víst ekki í dag
held svei mér þá að ég hafi ekki verið netlaus í einhver ár
finn skjálftann koma ... ræð ekki við þetta ... verð .. að ... berjast ... AARRRGGHHHH!!!!
Sent: Mán 29. Nóv 2004 18:31
af GuðjónR
Ég var að horfa á þessa frétt. Skrítin samlíking hjá honum með internetið og lögregluna.
Ef ég kaupi tengingu af þeim hvernin getur mín notkun truflað aðra notendur hjá þeim?
Ef hún gerir það eru þeir þá ekki búnir að setja of marga notendur á of litla bandvídd? og er það þá notendum að kenna?
Sent: Mán 29. Nóv 2004 18:56
af skipio
Já, mér fannst þetta líka frekar skrítin samlíking hjá honum.
En æi, ætli maður verði ekki að gefa honum smá séns. Er hann ekki líka nýbyrjaður að vinna þarna? Hinsvegar ætti hann að leita upplýsinga frá tæknifólkinu sínu áður en hann fer í svona viðtöl.
Ég óska þeim svosem alls hins besta þótt ég hafi miklar efasemdir um gæðin á þjónustunni þeirra.
Sent: Mán 29. Nóv 2004 19:39
af Emizter
Var hann ekki bara að láta þetta "líta" best út fyrir hinn almenna landsmann?
Ég heyrði reyndar ekki viðtalið sjálfur svo ég veit ekkert hvernig það var.
Sent: Mán 29. Nóv 2004 20:20
af sikki
Vitiði eitthvað hvort hive setji þetta útá land eða ?
Sent: Mán 29. Nóv 2004 21:37
af hahallur
Mér finnt alltílagi að stoppa einhverja rugludalla sem eru að dl það mikið að það skemmi fyrir öðrum.
Sent: Mán 29. Nóv 2004 21:40
af Birkir
hahallur skrifaði:Mér finnt alltílagi að stoppa einhverja rugludalla sem eru að dl það mikið að það skemmi fyrir öðrum.
Mér finnst það alls ekki í lagi vegna þess að þeir eru búnir að borga fyrir áskrift og þess vegna eiga þeir skilið að fá að nýta hana til fullnustu.
Sent: Mán 29. Nóv 2004 22:51
af MezzUp
sikki skrifaði:Vitiði eitthvað hvort hive setji þetta útá land eða ?
Nei, einsog áður hefur verið sagt þá eru þeir að nota ljósleiðaranet OR.
En mér fannst þessi kall koma hryllilega út. Hann var að skíta á sig með þessu stami og öllu þessu ,,uuuu......uuu.... já sko..... uuu hérna.....uuu"
Svo var þetta hrikalega léleg samlíking hjá honum. Það er leyfilegt að keyra á 90km/klst (hámarki) og ef að menn fara yfir þann hraða á lögreglan að sekta. Ef að maður kaupir 8Mbps hjá þeim á maður að geta sótt á þeim hraða 24/7. Ég myndi vilja fá skýrari svör áður en ég færi yfir til þeirra. Finnst líklegt að þeir ákvarði hvenær notandi er með ,,óeðlilegt álag" eftir því hversu mikið álag er á kerfinu þeirra.
Og hvað svo þegar maður er nýbúinn að setja upp FTP server svo að vinur manns geti sótt nokkrar skrár, þarf maður að bíða í korter í símanum eftir að einhver kall svari til þess eins að segja honum 2 tölur?
Sent: Þri 30. Nóv 2004 00:51
af gnarr
þetta er mjög kjánalega samlíking hjá honum..
eins og hann útskýrir þetta, þá eru þeir að selja "bíla" (nettengingar) sem að komast á "200kmh"(20Mbps) en þeir sem að eru að fara uppí hraðann sem þeir selja manni verða cappaðir...
hann sagði þetta eins og maður mætti ekki nota allann hraðann.
ef hann er á annað borð að reyna að líkja þessu við bíla, þá er hann að selja hraðvirka bíla með ótakmörkuðu bensíni(gagnamagni). þannig að hann ætti frekar að segja að maður fái bara fullann tank á hverjum degi og megi ekki fylla tvisvar á..
núna er ég kominn í ruglið sko
Sent: Þri 30. Nóv 2004 00:59
af KinD^
aahhhhhh gnarr shut it
, annars látum við bara fyrirtækið fara á hausinn ef þeir fara að kappa tenginguna eða ogsfv
Sent: Þri 30. Nóv 2004 01:08
af hahallur
Eru 20mb/sec ekki óþarfur hraði.
:disastreus
Sent: Þri 30. Nóv 2004 01:10
af gnarr
ég heyrði einusinni "er 128Kbps ekki miklu meira en nóg".
ég held allaveganna að það sé skemmtilegra að ná í 5GB DVD image með 20Mbps heldur en 28Kbps
Sent: Þri 30. Nóv 2004 01:12
af hahallur
Ég er nú ekki að tala um það.
Ég er að tala um munin á 2mb/sec og 20mb/sec.
2mb/sec sem ég er með er mjög hratt
Ég er ekkert að fá 100% meiri hraða þó ég ætti að fá 1000%