Síða 6 af 15

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Mið 04. Jún 2014 02:27
af suxxass
Hringdu, Hringiðan og 365 miðlar hafa öll sent frá sér tilkynningar, misformlegar, um að þetta sé ekki á planinu hjá þeim.

Hringdu
"Við viljum vekja athygli á því að Síminn hyggst rukka fyrir allt gagnamagn, bæði innlent og erlent hvort sem það er upphal eða niðurhal frá september 2014. Viðskiptavinir Hringdu þurfa ekki að hafa áhyggjur af slíkum breytingum. Hjá okkur verður áfram einungis erlent niðurhal talið."
Hringiðan
Af gefnu tilefni viljum við hjá Hringiðunni benda á að engin plön eru til hjá okkur um að byrja að innheimta fyrir innlent niðurhal eða upphal.

365 miðlar
Innlent niðurhal er innifalið í internetþjónustu 365 og segir Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, enga breytingu verða þar á. „Slíkar breytingar eru ekki fyrirhugaðar hjá 365 miðlum og verður innlent niðurhal áfram innifalið í þjónustu okkar," segir Ari.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Mið 04. Jún 2014 02:46
af Xberg
quote-> suxxass:

1.
Hversu lengi munu þeir standa við þetta ?

2. Örugglega 95% af netviðskiptavinum Símanns munu eflaust segja upp netáskriftinni sinni eða jafnvél hætta öllum viðskiptum við þá.
Hvernskonar viðskiptafræðingar eru þá að vinna hjá Simanum. Seriospakka lærðir,

Ég myndi hætti öllum viðskiptum við þá ef ég væri í viðskiptum við þá.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Mið 04. Jún 2014 03:55
af Gúrú
Xberg skrifaði:2. Örugglega 95% af netviðskiptavinum Símanns munu eflaust segja upp netáskriftinni sinni eða jafnvél hætta öllum viðskiptum við þá.
Hvernskonar viðskiptafræðingar eru þá að vinna hjá Simanum. Seriospakka lærðir,
Þegar að innan við 15% af viðskiptavinum Símans segja upp netáskriftinni sinni við þetta ætlarðu að borða hattinn þinn?

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Mið 04. Jún 2014 05:30
af Xberg
Gúrú skrifaði:
Xberg skrifaði:2. Örugglega 95% af netviðskiptavinum Símanns munu eflaust segja upp netáskriftinni sinni eða jafnvél hætta öllum viðskiptum við þá.
Hvernskonar viðskiptafræðingar eru þá að vinna hjá Simanum. Seriospakka lærðir,
Þegar að innan við 15% af viðskiptavinum Símans segja upp netáskriftinni sinni við þetta ætlarðu að borða hattinn þinn?
Þetta var nú bara svona skot útí loftið á fjölda uppsagna, ekki eins og ég hafi gert skoðunnakönnun til að afla mér heimilda.
Vona bara þeirra vegna að þeir dragi þetta til baka ef önnur netfélög segjast ekki ætla fara þessa leið. En það er bara mín skoðun.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Mið 04. Jún 2014 07:44
af jericho
Sorglegt að segja það, en ég held að 98% almennings sé alveg sama um þessi mál. Myndi skjóta á að 90% kúnna Símans/Vodafone séu að nota undir 10GB á mánuði.
Þetta er bara mín tilfinning og mér gæti skjátlast hrikalega.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Mið 04. Jún 2014 08:49
af KermitTheFrog
Xberg skrifaði:
Gúrú skrifaði:
Xberg skrifaði:2. Örugglega 95% af netviðskiptavinum Símanns munu eflaust segja upp netáskriftinni sinni eða jafnvél hætta öllum viðskiptum við þá.
Hvernskonar viðskiptafræðingar eru þá að vinna hjá Simanum. Seriospakka lærðir,
Þegar að innan við 15% af viðskiptavinum Símans segja upp netáskriftinni sinni við þetta ætlarðu að borða hattinn þinn?
Þetta var nú bara svona skot útí loftið á fjölda uppsagna, ekki eins og ég hafi gert skoðunnakönnun til að afla mér heimilda.
Vona bara þeirra vegna að þeir dragi þetta til baka ef önnur netfélög segjast ekki ætla fara þessa leið. En það er bara mín skoðun.
Nú er þetta líka bara skot út í loftið en ég held að lang stærsti hluti vv Símans séu almenn heimili sem kannski eru ekki að sækja fleiri hundruði GB á mánuði erlendis frá, eða bara yfir höfuð. Með þessari breytingu þá losnar Síminn allavega við þá sem gera það en það er aldrei 95%.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Mið 04. Jún 2014 08:56
af Tbot
Almenn heimili eru á hraðri uppleið með notkun á gagnamagni. Allar spjaldtölvur og símar sem nota sér wifi.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Mið 04. Jún 2014 09:05
af audiophile
Þetta er ömurleg þróun finnst mér. Ég er hjá Vodafone og vona að þeir geri ekki sama annars segi ég upp og fer til Hringiðunnar.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Mið 04. Jún 2014 09:07
af Predator
Mæli með að menn lesi þetta: http://www.siminn.is/siminn/i-fjolmidlu ... 1/item5457" onclick="window.open(this.href);return false;

Samkvæmt þessari frétt eru ekki nema 2% notenda sem koma verr út úr þessu og eru þessi 2% að nota 25% af allri bandvídd notenda.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Mið 04. Jún 2014 09:11
af depill
Predator skrifaði:Mæli með að menn lesi þetta: http://www.siminn.is/siminn/i-fjolmidlu ... 1/item5457" onclick="window.open(this.href);return false;

Samkvæmt þessari frétt eru ekki nema 2% notenda sem koma verr út úr þessu og eru þessi 2% að nota 25% af allri bandvídd notenda.
Er samt ekki soldið að vera reyna ná trendinu áður en það springur? Kannski 2% sem koma verr út úr þessu akkurat í dag. En bandbreiddar notkun okkar er að breytast með OTT og Cloud lausnum.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Mið 04. Jún 2014 09:22
af Predator
depill skrifaði:
Predator skrifaði:Mæli með að menn lesi þetta: http://www.siminn.is/siminn/i-fjolmidlu ... 1/item5457" onclick="window.open(this.href);return false;

Samkvæmt þessari frétt eru ekki nema 2% notenda sem koma verr út úr þessu og eru þessi 2% að nota 25% af allri bandvídd notenda.
Er samt ekki soldið að vera reyna ná trendinu áður en það springur? Kannski 2% sem koma verr út úr þessu akkurat í dag. En bandbreiddar notkun okkar er að breytast með OTT og Cloud lausnum.
Er það samt, hversu mikið er fólk að nota cloud þjónustur fyrir annað en tónlist, ljósmyndir og einstaka skjöl, ég allavega nota þetta aðalega í það sjálfur. Efast um að hinn venjulegi notandi sé að fara margfalda notkun sína á næstu árum eitthvað umfram þetta.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Mið 04. Jún 2014 09:36
af Sallarólegur
Er þá ekki eðlilegt að næsta skref sé að byrja að telja og rukka fyrir móttekin símtöl?

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Mið 04. Jún 2014 09:42
af GuðjónR
Sallarólegur skrifaði:Er þá ekki eðlilegt að næsta skref sé að byrja að telja og rukka fyrir móttekin símtöl?
Jú það er rökrétt skref, rukka þann sem hringir og þann sem svarar. Spurning hvort það sé hægt að setja orðatalningakerfi sem rukkar þig eftir orðanotkun, hef heyrt að backbón græjurnar á landlínunni kosti alveg helling.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Mið 04. Jún 2014 10:16
af Squinchy
Síminn virðist vera fyrsta fyritæki landsinns sem hefur hugsað lengra fram í tíman heldur en 12 mánuði. Til hamingju með það Síminn.

En þar sem tækni notkun er ekki að fara minkandi og tæki sem koma út á markaðinn eru mikið að færast inn á Wi-Fi og eru nettengd er netnotkun ekki að fara minkandi, áður en meðal notandinn er kominn inn á þennan lífstíl vilja þeir eflaust setja fordæmi til að geta rukkað fyrir bæði upp og niður, þar sem þetta hefur ekki áhrif á meðalnotanda núna!

Þetta getur haft slæm áhrif á næstu árum þegar meðalnotandi fer að auka tækninotkun sína og nota meiri bandvíd, hvað þarf þá að fara í neyslu heimilisinns, ef auka 2 - 5000kr bætist við internet kostnað, segir fólk þá ekki upp skjáeinum, stöð2, Dagblaða áskrift, Bíó ferðir minka, fólk hættir að fara út að borða einu sinni í mánuði eða hver önnur neysla.

Því einhverstaðar verður þessi 2 - 5000kr að koma frá heildar neyslu.

Síminn fær mín viðskipti út Júní mánuð.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Mið 04. Jún 2014 10:20
af snjokaggl
Predator skrifaði:Er það samt, hversu mikið er fólk að nota cloud þjónustur fyrir annað en tónlist, ljósmyndir og einstaka skjöl, ég allavega nota þetta aðalega í það sjálfur. Efast um að hinn venjulegi notandi sé að fara margfalda notkun sína á næstu árum eitthvað umfram þetta.
Tölvuleikir eru að verða stærri og stærri og í meira magni seldir sem digital download, 4K fer að riðja sér leið flótlega á markaðinn.
FLAC í stað MP3 og fullt af svona smáatriðum sem að skipta máli og munu fara með bandvíddina mjög hratt.

Ég held að bandvídd hins almenna notanda sé ekkert að fara lækka eða standa í stað í framtíðini.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Mið 04. Jún 2014 10:30
af gardar
Skellti þessu innleggi í umræðu annarstaðar, en það á vel við hérna líka

Að íslenskir ISP-ar taki upp "network neutrality" er gott mál, en að stærsti pakkinn sem í boði sé skuli vera 600gb er hlægilegt.
Við erum að tala um 1.8% af nýtingu 100mbit tengingar í niðurhali, og ef við horfum á þetta út frá niður og upphali sem mér sýnist þessi 600gb eiga að ná yfir þá er stærsti pakkinn sem í boði er ekki nema 0.9% af flutningsgetu 100mbit tengingar.

Ef ég er svo með þennan stærsta pakka sem í boði er og ætla að fullnýta theoríska flutningsgetu tengingarinnar þá þarf ég að kaupa 100gb pakka á 2000kr í 664 skipti. Það mun kosta mig ekki nema litlar 1.328.000 krónur aukalega á mánuði.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Mið 04. Jún 2014 10:38
af snjokaggl
Net Neutrality er örugglega það síðasta sem þeir eru að hugsa um hvað þetta varðar.

Annars held ég að margir myndu sætta sig við hærra verð gegn ótakmarkaðri umferð, sem ég hélt að yrði næsta þróun, en ég er greinilega að gleyma hvar ég á heima.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Mið 04. Jún 2014 12:15
af Butcer
Predator skrifaði:Mæli með að menn lesi þetta: http://www.siminn.is/siminn/i-fjolmidlu ... 1/item5457" onclick="window.open(this.href);return false;

Samkvæmt þessari frétt eru ekki nema 2% notenda sem koma verr út úr þessu og eru þessi 2% að nota 25% af allri bandvídd notenda.
Hvernig veistu að þetta er satt og ekki bara bull dregið upp úr rassinum hjá símanum , þetta gæti þess vegna verið tölur frá 2005 þegar nettokun var mun minni

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Mið 04. Jún 2014 12:20
af Butcer
snjokaggl skrifaði:Net Neutrality er örugglega það síðasta sem þeir eru að hugsa um hvað þetta varðar.

Annars held ég að margir myndu sætta sig við hærra verð gegn ótakmarkaðri umferð, sem ég hélt að yrði næsta þróun, en ég er greinilega að gleyma hvar ég á heima.
bandarísk lög koma íslandi ekkert við, þetta er eins og að segja að reglur fcc í bandaríkjunum um að það meigi ekki blóta í opnu sjónvarpi ætti að gilda á íslandi eða að internet ritskoðunalög í Erítreu(með þeim verstu í heiminum) ættu að gilda á íslandi

Þar að auki net neturality hefur ekkert að gera með data caps og að rukka fyrir niðurhal og upphal

Nýji wolfenstein er tidæmis 40 gigabæt, margir leikir nú til dags eru um 50 gigabæt(assasinn creed 4) og þeir munu aðeins stækka í framtíðini, þessar tölur eru nátturlega kjaftæði um 2% notenda

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Mið 04. Jún 2014 12:25
af razek19
Squinchy skrifaði:Síminn virðist vera fyrsta fyritæki landsinns sem hefur hugsað lengra fram í tíman heldur en 12 mánuði. Til hamingju með það Síminn.
Og samt eru þeir eini ISP-inn sem býður ekki upp á ljósleiðara.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Mið 04. Jún 2014 12:59
af DaRKSTaR
ef vodafone fer ekki sömu leið færi ég mig þángað í sumar....

vera með net og hafa hindrun á niðurhali er eitthvað sem á ekki að þekkjast árið 2014.

fara örugglega að rukka sér fyrir hvert orð talað í síma fljótlega.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Mið 04. Jún 2014 13:29
af GuðjónR
razek19 skrifaði:
Squinchy skrifaði:Síminn virðist vera fyrsta fyritæki landsinns sem hefur hugsað lengra fram í tíman heldur en 12 mánuði. Til hamingju með það Síminn.
Og samt eru þeir eini ISP-inn sem býður ekki upp á ljósleiðara.
Síminn hugsar langt og veðjar á ljósnetið!!

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Mið 04. Jún 2014 13:33
af Pandemic
Svo fara þeir að rukka 500kr aukalega fyrir óendanlegt niðurhal frá netflix og 500kr aukalega fyrir Youtube/Vimeo, ef þú vilt nota Dropbox og cloud þjónustur þá færðu þá þjónustu með hinum þjónustunum á 1000kr aukalega.

Þetta er hlægilegt og er áttinn að minna frelsi á netinu. 600GB er hlægilegt magn þegar maður er að sækja HD efni frá öllum heimshornum.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Mið 04. Jún 2014 16:04
af Sallarólegur
Tilkynning frá Vodafone:
Vegna umræðu um mæliaðferðir á gagnaniðurhali viljum við taka skýrt fram, að engar breytingar eru fyrirhugaðar á mæliaðferðum Vodafone og engar slíkar verða gerðar sem ekki eru í þágu viðskiptavina. Vodafone RED er dæmi um vöru sem hönnuð er með þarfir viðskiptavina að leiðarljósi og Vodafone mun byggja vöru- og þjónustuframboð sitt til framtíðar á þeim þörfum.
https://www.facebook.com/vodafone.islan ... 8263524847" onclick="window.open(this.href);return false;

Klapp fyrir því.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Mið 04. Jún 2014 16:23
af codec
Það má ekki gleyma að oft eru nettengingar notaðar töluvert í traffic sem fólk geri sér enga grein fyrir. T.d. með forritum sem nota p2p til að dreifa efni (skype, spotify og netflix mögulega). Nú fer tölvupósturinn að telja og vinnu tengingar t.d. remote desktop, OZ appið og App Símans eflaust töluverð traffic. Já, það er ýmislegt sem getur talist til.