Síða 6 af 6
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Fim 15. Mar 2012 16:13
af Eiiki
Crossfit!
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Fim 15. Mar 2012 19:03
af Domnix
Mjöllnir, bæði vikingaþrek og bjj
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Fim 15. Mar 2012 20:25
af GrimurD
Bara svona... nota tækifærið
http://www.lyftingar.is er hobbíproject sem ég og AntiTrust erum að setja á laggirnar sem er hugsað nákvæmlega fyrir svona umræðu

Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Fös 16. Mar 2012 01:22
af Nothing
GrimurD skrifaði:Bara svona... nota tækifærið
http://www.lyftingar.is er hobbíproject sem ég og AntiTrust erum að setja á laggirnar sem er hugsað nákvæmlega fyrir svona umræðu

Djöfull, lýst mér vel á þetta!
Hefur vantað svona spjall í nokkurn tíma núna

Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Fös 16. Mar 2012 01:49
af ViktorS
GrimurD skrifaði:Bara svona... nota tækifærið
http://www.lyftingar.is er hobbíproject sem ég og AntiTrust erum að setja á laggirnar sem er hugsað nákvæmlega fyrir svona umræðu

Verður gaman að fylgjast með þessu, flott project.

Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Fös 16. Mar 2012 08:38
af littli-Jake
GrimurD skrifaði:Bara svona... nota tækifærið
http://www.lyftingar.is er hobbíproject sem ég og AntiTrust erum að setja á laggirnar sem er hugsað nákvæmlega fyrir svona umræðu

Klárlega það sem ég hef verið að leita að. virkasta "spjllið" um líkamsrækt á íslandi í dag er /heilsa FFS
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Fös 16. Mar 2012 14:49
af BjarkiB
Er eitthver með góðan playlist fyrir lyftingar? Hef fundist metal best á meðan ég lyfta, vantar bara fleiri lög.
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Fös 16. Mar 2012 15:09
af Gerbill
BjarkiB skrifaði:Er eitthver með góðan playlist fyrir lyftingar? Hef fundist metal best á meðan ég lyfta, vantar bara fleiri lög.
Gojira, Opeth, Mastodon, Skálmöld, Behemoth, Devildriver, Machine Head, Bullet for mein Valentine, Behemoth, Changer, The Haunted, Arch Enemy, Lamb of God, Obscura, Death, Absu úff svo margt nenni ekki að telja allt upp.
Síðan finnst mér sumt Dubstep vera ágætt.
Nokkur af mínum uppáhalds:
http://www.youtube.com/watch?v=_tFGHOHkNG8" onclick="window.open(this.href);return false;
http://www.youtube.com/watch?v=3o4hKYNz7mY" onclick="window.open(this.href);return false; (Þegar lagið "byrjar", fucking good stuff)
http://www.youtube.com/watch?v=m60sgGaBBCg" onclick="window.open(this.href);return false;
http://www.youtube.com/watch?v=DoUHJ3o3 ... plpp_video" onclick="window.open(this.href);return false;
http://www.youtube.com/watch?v=Y693S_DI-PY" onclick="window.open(this.href);return false;
http://www.youtube.com/watch?v=8o7SamPkmeg" onclick="window.open(this.href);return false;
http://www.youtube.com/watch?v=mesr2sie ... plpp_video" onclick="window.open(this.href);return false;
http://www.youtube.com/watch?v=-IykHu47 ... plpp_video" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Mán 19. Mar 2012 12:17
af Leviathan
Lamb of God - The undertow
Annihilator - King of the Kill
Anthrax - Lone Justice
Behemoth - Antichristian Phenomenon
Down - Eyes of the South
Mastadon - All the Heavy Lifting
Megadeth - Public Enemy No. 1
Eitthvað fleirra í þessum dúr? Kann að meta gamalt thrash og svoleiðis en maður er orðinn svolítið þreyttur á þessu sem er alltaf í græjunum þegar maður mætir. Pantera, Metallica, Slayer o.s.frv.
Gerbill, góður, var búinn að gleyma nokkrum þarna.

Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Mán 19. Mar 2012 20:29
af Gúrú
Gerbill skrifaði:[100+ reps? Til hvers?
Stutt video frá Stuart McGill (einn af helstu mænusérfræðingum í dag), þar útskýrir hann af hverju 'crunches' eru ekki góð hugmynd (sérstaklega ekki með svona margar endurtekningar):
http://www.youtube.com/watch?v=kukmaW9C ... plpp_video" onclick="window.open(this.href);return false;
Nennti loksins að horfa á þetta:
100+ reps vegna þess að þú vilt þol.
Hann er að tala um 'crunches'. Þessi æfing sem að ég lýsti og geri er ekki sambærileg að nokkru leyti við crunches þegar að kemur að hreyfingu mænunnar.
Bakið á þér er gjörsamlega þráðbeint allan tímann í magaæfingunni í þessum stól sem ég teiknaði en í crunches ertu að beygja bakið á þér endurtekið og með afli.
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Mán 19. Mar 2012 20:43
af SolidFeather
Magaæfingar?

Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Þri 20. Mar 2012 20:09
af vargurinn
hvað mæliði með til að borða fyrir og eftir æfingar, veit kolvetni 2 tímum fyrir og eitthvað en hvað mælið þið mest með . nýkominn úr meiðslum og er að byrja aftur í gymminu og er að reyna að kjöta mig aðeins upp .nenni ekki að fara að kaupa eitthvað fæðubótarefni, er á 16 ári og low cash flow
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Þri 20. Mar 2012 20:17
af SolidFeather
vargurinn skrifaði:hvað mæliði með til að borða fyrir og eftir æfingar, veit kolvetni 2 tímum fyrir og eitthvað en hvað mælið þið mest með . nýkominn úr meiðslum og er að byrja aftur í gymminu og er að reyna að kjöta mig aðeins upp .nenni ekki að fara að kaupa eitthvað fæðubótarefni, er á 16 ári og low cash flow
Skiptir engu máli svosem, kaffi fyrir æfingu væri sweet.
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Þri 20. Mar 2012 20:56
af kallikukur
vargurinn skrifaði:hvað mæliði með til að borða fyrir og eftir æfingar, veit kolvetni 2 tímum fyrir og eitthvað en hvað mælið þið mest með . nýkominn úr meiðslum og er að byrja aftur í gymminu og er að reyna að kjöta mig aðeins upp .nenni ekki að fara að kaupa eitthvað fæðubótarefni, er á 16 ári og low cash flow
Ef þú ert á intense æfingum þá væri flott fyrir þig að fá þér banana eða eitthvað slíkt beint eftir æfingu , fara svo í sturtu , teygja og svona og fá þér svo eitthvað próteinríkt.
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Mið 13. Mar 2013 20:55
af Plushy
Hvernig er fólk að taka í Kreatín?
Var að byrja loada í gær og það er mismunandi hvað hver framleiðandi mælir með miklu magni. Sci-Tech dollan segir taktu líkamsþyngd þína, deildu með 3 og taktu það magn á dag fyrsti vikuna og svo 5g grömm á dag eftir það (einn skammt). Samkvæmt þessu væri ég að taka svona 33-34g á dag fyrstu vikuna.
Aðrar síður eru að mæla með 15-25g mest á dag fyrst vikuna.
Er líka að taka Glútamín fyrir og eftir æfingar og síðan hreint prótein.
Leiðinlegt bara hvað kreatín er bögg að leysast upp, eins og að drekka sykurleðju stundum, mælt með 400ml af vökva vs 5g af kreatíni.
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Mið 13. Mar 2013 21:03
af SolidFeather
Plushy skrifaði:
Leiðinlegt bara hvað kreatín er bögg að leysast upp, eins og að drekka sykurleðju stundum
Ert að því ef þú ert að nota cell-tech.
Ég set eina teskeið útí próteinsheikinn og læt það nægja.
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Mið 13. Mar 2013 21:31
af vesley
Plushy skrifaði:Hvernig er fólk að taka í Kreatín?
Var að byrja loada í gær og það er mismunandi hvað hver framleiðandi mælir með miklu magni. Celltech dollan segir taktu líkamsþyngd þína, deildu með 3 og taktu það magn á dag fyrsti vikuna og svo 5g grömm á dag eftir það (einn skammt). Samkvæmt þessu væri ég að taka svona 33-34g á dag fyrstu vikuna.
Aðrar síður eru að mæla með 15-25g mest á dag fyrst vikuna.
Er líka að taka Glútamín fyrir og eftir æfingar og síðan hreint prótein.
Leiðinlegt bara hvað kreatín er bögg að leysast upp, eins og að drekka sykurleðju stundum, mælt með 400ml af vökva vs 5g af kreatíni.
Ég er t.d. að byrja að loada aftur í dag og í fyrsta skammtinum skelli ég 1 þrúgusykurstöflu með til að auka nýtingu aðeins. Mjög algengt að fólk geri það.
Sykur hjálpar við inntöku kreatíns og þess vegna er einhverskonar safi fínn fyrir utan appelsínusafa.
Ég er að taka um 20-25g á dag fyrstu 5-6 dagana og svo minnka ég það niður í einn skammt.
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Mið 13. Mar 2013 23:15
af littli-Jake
GrimurD skrifaði:Bara svona... nota tækifærið
http://www.lyftingar.is er hobbíproject sem ég og AntiTrust erum að setja á laggirnar sem er hugsað nákvæmlega fyrir svona umræðu

Hvað er að frétta af þessari?
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Mið 13. Mar 2013 23:29
af AntiTrust
littli-Jake skrifaði:GrimurD skrifaði:Bara svona... nota tækifærið
http://www.lyftingar.is er hobbíproject sem ég og AntiTrust erum að setja á laggirnar sem er hugsað nákvæmlega fyrir svona umræðu

Hvað er að frétta af þessari?
On hold, ýmislegt sem okkur langar að hafa þarna inná sem hefur reynst tímafrekara og erfiðara en við bjuggumst við.
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Mið 13. Mar 2013 23:34
af vesley
AntiTrust skrifaði:littli-Jake skrifaði:GrimurD skrifaði:Bara svona... nota tækifærið
http://www.lyftingar.is er hobbíproject sem ég og AntiTrust erum að setja á laggirnar sem er hugsað nákvæmlega fyrir svona umræðu

Hvað er að frétta af þessari?
On hold, ýmislegt sem okkur langar að hafa þarna inná sem hefur reynst tímafrekara og erfiðara en við bjuggumst við.
Alltaf til í að hjálpa ef stefnan er að halda áfram með þetta í næstkomandi framtíð

Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Mið 13. Mar 2013 23:39
af Sveinn
Var að æfa Muay Thai í 3 ár, byrjaði síðan að lyfta aftur fyrir tæplega ári síðan og keppti í unglingafitness IFBB í nóvember, og stefni aftur á það sama (ef ég næ þyngd, annars vaxtarækt unglinga) í nóvember næstkomandi.
Mán: Bak og bís
Þri: Framanálæri (Quads)
Miðv: Axlir (þ.e. framná, aftaná, deltar og trappar)
Fimmtud: Kassi og trís
Föstud: Hamur
Laugardagur og Sunnudagur pása
vargurinn skrifaði:hvað mæliði með til að borða fyrir og eftir æfingar, veit kolvetni 2 tímum fyrir og eitthvað en hvað mælið þið mest með . nýkominn úr meiðslum og er að byrja aftur í gymminu og er að reyna að kjöta mig aðeins upp .nenni ekki að fara að kaupa eitthvað fæðubótarefni, er á 16 ári og low cash flow
Hafrar helst svona 1,5-1klst fyrir ræktina ef þú hefur tök á, annars fínt að fá sér bara banana rétt fyrir ef þú hefur ekki tíma í hitt

ég persónulega setti bara hafra og próteinduft ofan í vatn í brúsa og hristi það saman og tók það með mér á ferðina.
Eftir æfingu er mikið mikilvægara að fá einföld kolvetni (glúkosa/sykur) heldur en prótein, því þú ert að tæma vöðvafrumuna og þarft kolvetni til að fylla hana aftur, en próteinin eru "alltaf" til staðar í líkamanum. Ef þú ert að æfa e-ð að alvöru myndi ég segja bara próteinsjeik og kókómjólk þessvegna, sjálfur fæ ég mér hreinann glúkósa og prótein.
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Mið 13. Mar 2013 23:56
af AntiTrust
Sveinn skrifaði:
Eftir æfingu er mikið mikilvægara að fá einföld kolvetni (glúkosa/sykur) heldur en prótein, því þú ert að tæma vöðvafrumuna og þarft kolvetni til að fylla hana aftur, en próteinin eru "alltaf" til staðar í líkamanum.
Þetta á samt í raun einungis við ef manneskja er á low-carb kúr. Meðal maður getur geymt frá 500-800gr af glycogeni í vöðvum og lifur, og intense lyftingaræfing (1-1.5klst) notar um 100-200gr. Á 40/40/20 diet er afskaplega lítil hætta á glycogen skorti nema það sé æft 2-3x á dag.
Það er þó ekki þarmeð sagt að það sé slæmt að taka kolvetni inn eftir æfingar til að henda blóðsykurnum upp og hraða upptöku á næringarefnum, en þó eru nýlegar rannsóknir sem sýna fram á það að innbyrðing prótíns sé næg til að ná optimal hækkun á insúlíni og þar með nýtni á aminósýrum fyrir vöxt.