Síða 5 af 7
Sent: Sun 22. Jan 2006 01:32
af andrig
mitt er með á brendum stöfum, bara a laptop
Sent: Mán 23. Jan 2006 18:21
af corflame
wICE_man skrifaði:Ég held að ég geti fullyrt að það séu ekki til nein natural lyklaborð með ábrendum íslenskum stöfum. Ef svo er þætti mér gaman að heyra af því svo að ég geti boðið upp á þau.
Það virðast ekki vera til nein ný, því miður. Ég hef verið að eigandi að 2 slíkum (er á seinna borðinu núna) og hef verið ánægður með þau. Þetta væri svosem ekkert mál ef ekki kæmi til að ég er með börn sem vilja/þurfa að læra á þetta og þá er betra að hafa ábrennda stafi, en ekki límmiða sem eru fljótir að mást og jafnvel detta af (mín reynsla).
Mætti kannski fá t.d. Tölvudreifingu til að panta 1000stk eða hver svo sem lágmarkspöntunin er. Annars er ég alveg tilbúinn til að greiða 1000kr meira fyrir gott lyklaborð með ábrenndum stöfum en án.
Sent: Mán 23. Jan 2006 22:58
af Pandemic
Hver þarf stafi á lyklaborðið sitt ég tók mína af með logsuðu tæki O_o
Sent: Þri 24. Jan 2006 16:50
af DoRi-
ég myni borga allt AÐ 9k, alls ekki hærra, ekki fyrir lyklaborð
Sent: Þri 24. Jan 2006 17:01
af hilmar_jonsson
EJS er að selja lyklaborð með ábrenndum íslenskum stöfum og stórum vendihnapp(return,enter).
Sent: Mið 25. Jan 2006 10:38
af wICE_man
Það er ekki á heimasíðunni þeirra

Sent: Mið 25. Jan 2006 14:45
af Andriante
Hvernig gengur að fá þetta inn wIce_man?
Sent: Fim 26. Jan 2006 12:08
af wICE_man
Illa, það selst upp hraðar en auga á festir hjá öllum þeim aðilum sem ég er í sambandi við. Ég verð hreinlega að fara að múta einhverjum til að fá þetta
Þetta verður í fyrsta lagi komið í byrjun febrúar ég ætla að reyna að sitja um það hjá öllum og taka bara það þar sem það dettur inn fyrst.
Sent: Fim 26. Jan 2006 14:10
af zedro
Skil ekki allt umsátrið í kringum þetta lyklaborð
So it glowes in the dark, so does a steak big deal

Sent: Fim 26. Jan 2006 20:15
af Vilezhout
Sá kassa af þeim á lager þarsem ég er að vinna með skóla
Þau voru víst ekki ætluð í almenna sölu heldur send beint í myndver ef mér skjátlast ekki

Sent: Fim 26. Jan 2006 20:33
af ICM
Vilezhout skrifaði:Sá kassa af þeim á lager þarsem ég er að vinna með skóla
Þau voru víst ekki ætluð í almenna sölu heldur send beint í myndver ef mér skjátlast ekki

wtf? Myndver hvar og hvar ertu að vinna?
Sent: Fim 26. Jan 2006 22:46
af DoRi-
IceCaveman skrifaði:Vilezhout skrifaði:Sá kassa af þeim á lager þarsem ég er að vinna með skóla
Þau voru víst ekki ætluð í almenna sölu heldur send beint í myndver ef mér skjátlast ekki

wtf? Myndver hvar og hvar ertu að vinna?
iCave að skypuleggja heist?
Sent: Fim 26. Jan 2006 23:33
af Vilezhout
<Dagur Group
Sent: Sun 29. Jan 2006 21:53
af Fernando
Samkvæmt
þessu
er G15 lyklaborðið til hjá Ljóshraða.
Sent: Sun 29. Jan 2006 23:23
af zedro
Já til hjá Ljóshraða á Kr.10.900
Hvaða maður með réttu viti eyðir 11k í lyklaborð

Sent: Mán 30. Jan 2006 09:47
af gadget
Zedro skrifaði:Já til hjá Ljóshraða á Kr.10.900
Hvaða maður með réttu viti eyðir 11k í lyklaborð

Ég ætla ekki að halda því fram að ég eyði ekki, enda með Microsoft Bluetooth sem ég keypti í Expert á um 15 þús á sínum tíma - reyndar með mús.
En t.d. tveir félagar mínir eyddu 30 þús í logitech bluetooth lyklaborð sem heita nuveu eða eitthvað svoleiðis í tölvulistanum þannig að fólk eyðir í það sem heillar.
11K er ekki dýrt í lyklaborðum - farið að vera dýrt þegar það er komið yfir 20K að mínu mati - svo líka alltaf eins og WiceMan segir, spurning um framboð og eftirspurn.
Sent: Mán 30. Jan 2006 12:36
af Pandemic
I have a abousive relationship with my keyboard
þannig að ég eyði voðalega takmörkuðum pening í lyklaborð.
Sent: Mán 30. Jan 2006 17:01
af Vilezhout
Jaðarbúnaður einsog t.d. skjáir,mýs,kassar og lyklaborð er eitthvað sem ég vill frekar eyða aurum í enn nýjasta skjákortið
Sent: Mán 30. Jan 2006 18:16
af gnarr
sama hér. Frekar vill ég geðveikann skjá, lyklaborð og mús heldur en geðveikt skjákort.
ég efast samt um að ég færi yfir 10.000kallinn í lyklaborðum. Væri samt vel til í að eyða hátt í 100k í skjá.
Sent: Þri 31. Jan 2006 01:31
af zaiLex
Þið í öðrum orðum takið features yfir performance, ég held að ég geti verið sammála.
Sent: Þri 31. Jan 2006 01:47
af gnarr
ég bara fæ ekkert "performance" úr geðveiku skjákorti.. as simple as that

Sent: Þri 31. Jan 2006 03:06
af Vilezhout
Ég spila nú fps leiki þónokkuð og mér finnst 6600gt, 3000+ og 1gb minni alveg nóg til að spila þá og í yfirklukk