Síða 5 af 19

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Sun 28. Feb 2021 22:42
af appel
Það virðist vera það eina sem hrynji af völdu jarðskjálfta á Íslandi sé vefur Veðurstofunnar.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Sun 28. Feb 2021 22:46
af jonsig
Guð vill sjá atvinnuleysis tölurnar lækka á Reykjanesi og auðvitað hærri greiðslur í þjóðkirkjuna svona til að árétta það sem skiptir máli.. peningar !

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 01. Mar 2021 00:26
af Black
Afhverju ætli ég finni ekki fyrir neinum skjálftum og verð ekki var við neitt hérna í Úlfarsfelli ?

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 01. Mar 2021 00:32
af jonfr1900
Black skrifaði:Afhverju ætli ég finni ekki fyrir neinum skjálftum og verð ekki var við neitt hérna í Úlfarsfelli ?
Jarðlög sem húsið situr á. Leir, mýrar, sandur og slíkt magnað upp jarðskjálftabylgjur en klettar sem ná djúpt hleypa jarðskjálftabylgjum hratt í gegnum sig. Einnig staðsetning jarðskjálfta gagnvart þér þegar það kemur að dýpi jarðskjálfta og fjarlægðar. Þetta er frekar flókið reiknidæmi.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 01. Mar 2021 01:32
af appel
vá, þessi var stór núna á þessari mín....

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 01. Mar 2021 01:34
af mjolkurdreytill
gott fyrir veðurstofuvefinn að þetta sé að gerast svona seint

4,9 lokatölur

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 01. Mar 2021 01:45
af Black
Hefði verið fjör að verða var við hann..

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 01. Mar 2021 02:03
af kjartanbj
Ég er á Selfossi, eini skjálftinn sem ég hef fundið er sá fyrsti á miðvikudag

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 01. Mar 2021 09:29
af GuðjónR
appel skrifaði:vá, þessi var stór núna á þessari mín....
Missti af honum, nýsofnaður.
En vaknaði rúmlega fimm í morgun og náði ekki að sofna aftur, stanslausar drunur og hristingur. :mad

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 01. Mar 2021 12:05
af mjolkurdreytill
GuðjónR skrifaði:
appel skrifaði:vá, þessi var stór núna á þessari mín....
Missti af honum, nýsofnaður.
En vaknaði rúmlega fimm í morgun og náði ekki að sofna aftur, stanslausar drunur og hristingur. :mad
Ertu ekki bara kominn með skjálftariðu. Það voru tveir skjálftar að stærð 3 í morgun. Klukkan hálf sex og sex. Annars tíðindalítið.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 01. Mar 2021 15:51
af jonfr1900
Ég met það sem svo að þangað til að eldgos hefst. Þá munu stærðir jarðskjálfta eingöngu aukast. Það er alltaf smá möguleiki að ekkert meira gerist og þessi jarðskjálftavirkni minnki en mér sýnist að þeir möguleikar séu orðnir frekar litlir á þessari stundu.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 01. Mar 2021 15:54
af thrkll
mjolkurdreytill skrifaði:
Ertu ekki bara kominn með skjálftariðu. Það voru tveir skjálftar að stærð 3 í morgun. Klukkan hálf sex og sex. Annars tíðindalítið.
Það voru 10 skjálftar yfir 3 á milli 05:00 og 07:30 ](*,)

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 01. Mar 2021 16:42
af GuðjónR
thrkll skrifaði:
mjolkurdreytill skrifaði:
Ertu ekki bara kominn með skjálftariðu. Það voru tveir skjálftar að stærð 3 í morgun. Klukkan hálf sex og sex. Annars tíðindalítið.
Það voru 10 skjálftar yfir 3 á milli 05:00 og 07:30 ](*,)
Örugglega, venst þessu seint.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 01. Mar 2021 17:51
af jonfr1900
Þetta er loksins farið að sjást á yfirborðinu með kvikuna sem er að valda þessum jarðskjálftum.

Gos við Keili meðal möguleika sem þarf að kanna (Rúv.is)

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 01. Mar 2021 20:04
af GuðjónR
jonfr1900 skrifaði:Þetta er loksins farið að sjást á yfirborðinu með kvikuna sem er að valda þessum jarðskjálftum.

Gos við Keili meðal möguleika sem þarf að kanna (Rúv.is)
Næst á dagskrá, eldgos.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 01. Mar 2021 21:02
af Black
Er til einhvað RSS feed fyrir jarðskjálfta.Væri til í að discord myndi senda mér Notification yfir skjálftana.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 01. Mar 2021 22:14
af mikkimás
Eina sem mér finnst verulega óþægilegt er tilhugsunin um gasmengun.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 01. Mar 2021 22:55
af Semboy
Mer lidur eins og eg se a skip. thegar eg er uppi rumi ad reyna sofna. Husid haettir ekki ad....

Mynd



. Frekar mjog thaegilegt.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 02. Mar 2021 00:37
af jonfr1900
Það virðist sem að kvikan sé ennþá á 6 til 7 km dýpi. Þannig að það eiga fleiri jarðskjálftar eftir að gerast áður en það fer að gjósa. Sem mér sýnist að sé líklegasta niðurstaðan af þessu öllu saman.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 02. Mar 2021 03:20
af gutti
Komið 2 til 3 fyrir stuttu var setja app upp samband jarðskjálftar mælingar svínvirkar fínt app.. kom 1 áðan og forrit lét vita samtímis..

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 02. Mar 2021 08:43
af zetor
gutti skrifaði:Komið 2 til 3 fyrir stuttu var setja app upp samband jarðskjálftar mælingar svínvirkar fínt app.. kom 1 áðan og forrit lét vita samtímis..
hvaða app ertu að tala um?

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 02. Mar 2021 08:46
af Dropi
Ég tek minnst eftir þeim meðan ég sef, bara ef það glamrar mikið í gleri og þess háttar sem ég vakna (nálægt Skipholti á 3. hæð). En þegar ég er að spila leiki á kvöldin er þetta ógeðslega truflandi - eða á meðan ég er að borða. Orðið frekar þreytt að halda alltaf "já núna kemur þessi stóri", er hættur að nenna að stressa mig og læt þetta yfir mig ganga án þess að hugsa um þetta lengur.

Eina lífsstíls breytingin er að tölvan, sem sat alveg á endanum á borðinu, er núna komin niður á gólf.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 02. Mar 2021 10:53
af gutti
EARTHQUAKE NETWORK app

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 02. Mar 2021 11:56
af Mossi__
appel skrifaði:Það virðist vera það eina sem hrynji af völdu jarðskjálfta á Íslandi sé vefur Veðurstofunnar.
Og hlutabréfin í Icelandair.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 02. Mar 2021 12:07
af Jón Ragnar
Mossi__ skrifaði:
appel skrifaði:Það virðist vera það eina sem hrynji af völdu jarðskjálfta á Íslandi sé vefur Veðurstofunnar.
Og hlutabréfin í Icelandair.

Staðan er ansi slæm :(



:edit: en bréfin eru á útsölu bara :)