Síða 5 af 6
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Fim 01. Mar 2012 00:01
af littli-Jake
vesley skrifaði:Ég tek
Mánudagar: Kassi
Þriðjudagar: Bak
Miðvikudagar: Lappir
Fimmtudagar : Axlir
Föstudagar: Hendur Bís/Trís
Laugardagur/Sunnudagur: Brennsla og magi ef ég nenni eða hef tíma.
Og alltaf eitthver brennsla á hverjum degi.
Annars þá prufaði ég að kaupa Maxx Essentials Whey Maxx próteinið (Súkkulaði) sem Bónus og Fitnes sport selur og djöfull er ég ekki að fýla það. Koma kekkir þegar ég hristi það (já er með filter í brúsanum) og bragðið festist á tungunni
http://protin.is/products/4540-gold-sta ... otein-900g" onclick="window.open(this.href);return false;
Ég skal sko alveg koma og losa þig við þetta maxx drasl
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Mið 14. Mar 2012 11:07
af BjarkiB
Vantar smá hjálp.
Byrjaði í ræktinni fyrir stuttu(Þetta er þriðja vikan). En með nánast öllum magaæfingum sem ég tek, þá sértstaklega með þyngd þá fæ ég verk í mjóbakið eftir sirka 3-4 reps. Er búinn að prufa flest öll magaæfinga tækin. Eina æfingin þar sem ég fæ ekki verk í mjóbakið er ef ég nota dýfingartækið og fer með fæturnar í 90° upp og niður. Afhverju gæti þessi verkur komið?
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Mið 14. Mar 2012 12:21
af Bjosep
BjarkiB skrifaði:Vantar smá hjálp.
Byrjaði í ræktinni fyrir stuttu(Þetta er þriðja vikan). En með nánast öllum magaæfingum sem ég tek, þá sértstaklega með þyngd þá fæ ég verk í mjóbakið eftir sirka 3-4 reps. Er búinn að prufa flest öll magaæfinga tækin. Eina æfingin þar sem ég fæ ekki verk í mjóbakið er ef ég nota dýfingartækið og fer með fæturnar í 90° upp og niður. Afhverju gæti þessi verkur komið?
Nú veit ég ekkert hvað er að hrjá þig en ertu bara að taka magaæfingarnar í tækjum? Kemur þetta líka ef þú gerir hefðbundnar ("frjálsar") magaæfingar?
Fyrsta hugsun er reyndar að ef þú varst að byrja að þá sértu mögulega að ofgera þér (of mikil þyngd) og sársaukinn stafi af því.
Mér finnst allavega eitthvað asnalegt við að taka magaæfingar í þessum græjum.
Það er til haugur af sniðugum frjálsum magaæfingum, mæli með að þú haldir þig við þær ef að þær eru ekki að valda þér sársauka.
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Mið 14. Mar 2012 12:35
af BjarkiB
Bjosep skrifaði:BjarkiB skrifaði:Vantar smá hjálp.

Fæ í mjóbakið líka við sumar frjálsar magaæfingar, er búinn að prufa allt mögulegt, lágar þyngdir, mörg tæki, en aðeins þessi eina æfing sem ég lýsti virkar fyrir mig.
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Mið 14. Mar 2012 12:41
af Bjosep
BjarkiB skrifaði:Bjosep skrifaði:BjarkiB skrifaði:Vantar smá hjálp.

Þá myndi ég benda þér á að ræða við sjúkraþjálfara eða lækni ef þú vilt fá góð svör. Gætir mögulega rætt þetta við einhvern leiðbeinanandann/einkaþjálfarann í þeirri rækt sem þú ert í en ég veit ekki hversu góð svör það verða.
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Mið 14. Mar 2012 12:48
af SolidFeather
Slepptu magaæfingum.
http://startingstrength.com/articles/abs_rippetoe.pdf" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Mið 14. Mar 2012 14:20
af Gerbill
BjarkiB skrifaði:Bjosep skrifaði:BjarkiB skrifaði:Vantar smá hjálp.
Byrjaði í ræktinni fyrir stuttu(Þetta er þriðja vikan). En með nánast öllum magaæfingum sem ég tek, þá sértstaklega með þyngd þá fæ ég verk í mjóbakið eftir sirka 3-4 reps. Er búinn að prufa flest öll magaæfinga tækin. Eina æfingin þar sem ég fæ ekki verk í mjóbakið er ef ég nota dýfingartækið og fer með fæturnar í 90° upp og niður. Afhverju gæti þessi verkur komið?
Nú veit ég ekkert hvað er að hrjá þig en ertu bara að taka magaæfingarnar í tækjum? Kemur þetta líka ef þú gerir hefðbundnar ("frjálsar") magaæfingar?
Fyrsta hugsun er reyndar að ef þú varst að byrja að þá sértu mögulega að ofgera þér (of mikil þyngd) og sársaukinn stafi af því.
Mér finnst allavega eitthvað asnalegt við að taka magaæfingar í þessum græjum.
Það er til haugur af sniðugum frjálsum magaæfingum, mæli með að þú haldir þig við þær ef að þær eru ekki að valda þér sársauka.
Fæ í mjóbakið líka við sumar frjálsar magaæfingar, er búinn að prufa allt mögulegt, lágar þyngdir, mörg tæki, en aðeins þessi eina æfing sem ég lýsti virkar fyrir mig.
Bestu magaæfingarnar eru beygjur, dedd og ólympískar (imo).
Annars myndi ég alfarið sleppa því að taka magaæfingar eins og 'crunches', myndi byrja á að taka planka, þegar þú getur haldið honum í 30+ sek án þess að missa form (rass niður, spennu í maga eða háls niður) þá geturðu farið í t.d. Pallof pressu (
http://www.youtube.com/watch?v=JmcH0UsXRVw" onclick="window.open(this.href);return false;) og svo seinna gætirðu tekið bóndagöngu með handlóð/ketilbjöllu og líka tekið bara öðrum megin í einu (haldið á lóði í einni hendi og passa að missa líkamann ekki til hliðar)
Hlutverk magavöðvanna er að stöðva hreyfingu, hálfgerðir demparar, svo þú vilt æfa þá í því.
Annars fyrir bakvöðvana gæti verið að þér vanti úthald í þá, prófaðu að taka ketilböllu swings í 20 repsunum. (Auðvitað með góðu formi, hreyfingin á að koma frá mjöðminni aðallega)
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Mið 14. Mar 2012 14:27
af Gúrú
BjarkiB skrifaði:Fæ í mjóbakið líka við sumar frjálsar magaæfingar, er búinn að prufa allt mögulegt, lágar þyngdir, mörg tæki, en aðeins þessi eina æfing sem ég lýsti virkar fyrir mig.
Finndu þennan "stól", hafðu lappirnar eins og á myndinni og bakið þráðbeint.
Stuðningur við mjóbakið og þú færð að lyfta öllum efri líkamanum með maganum einum.
Þetta er eina leiðin fyrir mig að gera 100+ magaæfingar án þess að verkja í mjóbakið eftirá og þetta eru líka sjúklega skemmtilegar magaæfingar.
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Mið 14. Mar 2012 14:33
af Gerbill
Gúrú skrifaði:BjarkiB skrifaði:Fæ í mjóbakið líka við sumar frjálsar magaæfingar, er búinn að prufa allt mögulegt, lágar þyngdir, mörg tæki, en aðeins þessi eina æfing sem ég lýsti virkar fyrir mig.

100+ reps? Til hvers?
Stutt video frá Stuart McGill (einn af helstu mænusérfræðingum í dag), þar útskýrir hann af hverju 'crunches' eru ekki góð hugmynd (sérstaklega ekki með svona margar endurtekningar):
http://www.youtube.com/watch?v=kukmaW9C ... plpp_video" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Mið 14. Mar 2012 15:22
af Philosoraptor
cock pushups alla daga þegar ég vakna með morgunviðinn
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Mið 14. Mar 2012 16:20
af BjarkiB
Gúrú skrifaði:BjarkiB skrifaði:Fæ í mjóbakið líka við sumar frjálsar magaæfingar, er búinn að prufa allt mögulegt, lágar þyngdir, mörg tæki, en aðeins þessi eina æfing sem ég lýsti virkar fyrir mig.
Finndu þennan "stól", hafðu lappirnar eins og á myndinni og bakið þráðbeint.
Stuðningur við mjóbakið og þú færð að lyfta öllum efri líkamanum með maganum einum.
Þetta er eina leiðin fyrir mig að gera 100+ magaæfingar án þess að verkja í mjóbakið eftirá og þetta eru líka sjúklega skemmtilegar magaæfingar.
Ferðu alla leið upp? Og hvað ferðu langt niður aftur?
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Mið 14. Mar 2012 16:24
af Gunnar
BjarkiB skrifaði:Gúrú skrifaði:BjarkiB skrifaði:Fæ í mjóbakið líka við sumar frjálsar magaæfingar, er búinn að prufa allt mögulegt, lágar þyngdir, mörg tæki, en aðeins þessi eina æfing sem ég lýsti virkar fyrir mig.
Finndu þennan "stól", hafðu lappirnar eins og á myndinni og bakið þráðbeint.
Stuðningur við mjóbakið og þú færð að lyfta öllum efri líkamanum með maganum einum.
Þetta er eina leiðin fyrir mig að gera 100+ magaæfingar án þess að verkja í mjóbakið eftirá og þetta eru líka sjúklega skemmtilegar magaæfingar.
Ferðu alla leið upp? Og hvað ferðu langt niður aftur?
ég fer alla leið upp og svo eru svona 5 cm milli min og bekksins þegar ég fer niður.
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Fim 15. Mar 2012 12:31
af dori
Gerbill skrifaði:Stutt video frá Stuart McGill (einn af helstu mænusérfræðingum í dag), þar útskýrir hann af hverju 'crunches' eru ekki góð hugmynd (sérstaklega ekki með svona margar endurtekningar):
http://www.youtube.com/watch?v=kukmaW9C ... plpp_video" onclick="window.open(this.href);return false;
http://www.youtube.com/watch?v=kukmaW9CmSU#t=122s" onclick="window.open(this.href);return false;
Næs
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Fim 15. Mar 2012 12:49
af Leviathan
Hvað með pre-workout blöndur? Er búinn að prófa allskonar efni og finnst þetta eiginlega alveg crucial ef ég ætla að taka almennilega æfingu. Finnst bara svo blóðugt að borga fleirri þúsund krónur fyrir nokkra skammta, er ekki hægt að mixa eitthvað svona sjálfur? Hef séð á netinu að úti eru menn að blanda þetta sjálfir, en þar er líka hægt að kaupa koffín og allan andskotan útí búð. Er þetta nokkuð hægt hér?
Sá líka um daginn "green tea extract" í apótekinu, ætla að prófa það þegar ég get.
Annað, eru andoxunarefni það sama og maður er að fá úr þessum NO blöndum?
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Fim 15. Mar 2012 12:54
af Bidman
ég er með svakalega magaæfingu - maður tekur tvær 16" pizzur og borðar þær báðar á tuttugu mínútum - ætti að rífa ansi vel í kviðinn
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Fim 15. Mar 2012 13:01
af vesi
sælir..
er að fara byrja og vantar skó. er að velta fyrir mér hvað sé best þá með dempun og mýkt
hef þessa í huga. bara svona alhliða skó.
http://www.intersport.is/vorur/skor/hla ... 1-exerta-4" onclick="window.open(this.href);return false;
Endilega skjótið á mig hugmyndum.
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Fim 15. Mar 2012 13:16
af Gerbill
Leviathan skrifaði:Hvað með pre-workout blöndur? Er búinn að prófa allskonar efni og finnst þetta eiginlega alveg crucial ef ég ætla að taka almennilega æfingu. Finnst bara svo blóðugt að borga fleirri þúsund krónur fyrir nokkra skammta, er ekki hægt að mixa eitthvað svona sjálfur? Hef séð á netinu að úti eru menn að blanda þetta sjálfir, en þar er líka hægt að kaupa koffín og allan andskotan útí búð. Er þetta nokkuð hægt hér?
Sá líka um daginn "green tea extract" í apótekinu, ætla að prófa það þegar ég get.
Annað, eru andoxunarefni það sama og maður er að fá úr þessum NO blöndum?
Kaffi og B-vítamín (ég á líka caffeine í töfluformi), jafnvel skammt af BCAA af og til.
Ef þig langar í andoxunarefni þá er kaffi málið, gæðablanda af kaffi er full af andoxunarefnum.
Þetta NO dót er dáldið mikið scam, skammturinn af L-arginine í þessu er allt, alltof lítill til að auka Nitric Oxide magn í líkamanum.
Tjékkaðu á:
http://www.brinkzone.com/supplement-sci ... pplements/" onclick="window.open(this.href);return false;
Hinsvegar væri ég til að prófa Jack3d uppá gamanið, en það er bara útaf 1,3-Dimethylamylamine, sem að reyndar er hægt að kaupa sér.
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Fim 15. Mar 2012 13:17
af Gerbill
vesi skrifaði:sælir..
er að fara byrja og vantar skó. er að velta fyrir mér hvað sé best þá með dempun og mýkt
hef þessa í huga. bara svona alhliða skó.
http://www.intersport.is/vorur/skor/hla ... 1-exerta-4" onclick="window.open(this.href);return false;
Endilega skjótið á mig hugmyndum.
Ég myndi persónulega fá mér Asics ef ég væri að fara að hlaupa, flestir hlauparar sem ég hef rætt við segjast nota Asics sjálfir. (Ath. ég er ekki hlaupari svo bara það sem ég hef heyrt frá öðrum)
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Fim 15. Mar 2012 13:21
af vesi
er ekki að fara hlaupa þó þetta séu "hlaupaskór". .bara svona það sem mér datt í hug með dempun og stuðning og kostar ekki auga og handlegg.
Gerbill skrifaði:vesi skrifaði:sælir..
er að fara byrja og vantar skó. er að velta fyrir mér hvað sé best þá með dempun og mýkt
hef þessa í huga. bara svona alhliða skó.
http://www.intersport.is/vorur/skor/hla ... 1-exerta-4" onclick="window.open(this.href);return false;
Endilega skjótið á mig hugmyndum.
Ég myndi persónulega fá mér Asics ef ég væri að fara að hlaupa, flestir hlauparar sem ég hef rætt við segjast nota Asics sjálfir. (Ath. ég er ekki hlaupari svo bara það sem ég hef heyrt frá öðrum)
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Fim 15. Mar 2012 13:24
af Gerbill
[quote="vesi"]er ekki að fara hlaupa þó þetta séu "hlaupaskór". .bara svona það sem mér datt í hug með dempun og stuðning og kostar ekki auga og handlegg.
Hvað ertu að fara að gera þá? Nota þá bara dagsdaglega?
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Fim 15. Mar 2012 13:26
af vesi
nei.. svona alhliða æfingar í sal og létt skokk,
Gerbill skrifaði:vesi skrifaði:er ekki að fara hlaupa þó þetta séu "hlaupaskór". .bara svona það sem mér datt í hug með dempun og stuðning og kostar ekki auga og handlegg.
Hvað ertu að fara að gera þá? Nota þá bara dagsdaglega?
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Fim 15. Mar 2012 13:31
af Gerbill
vesi skrifaði:nei.. svona alhliða æfingar í sal og létt skokk,
Gerbill skrifaði:vesi skrifaði:er ekki að fara hlaupa þó þetta séu "hlaupaskór". .bara svona það sem mér datt í hug með dempun og stuðning og kostar ekki auga og handlegg.
Hvað ertu að fara að gera þá? Nota þá bara dagsdaglega?
Ah okey, persónulega þá er ég vanalega bara á sokkunum þegar ég er að lyfta, en ef ég fer í beygjur eða ólympískar þá skelli ég mér í lyftingarskó (með þykkum hörðum hæl)
Vilt helst ekki lyfta í skóm með mikilli dempun.
En fyrir skokk og spretti og svona þá jú fínt að nota hlaupaskó.
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Fim 15. Mar 2012 15:26
af Bjosep
vesi skrifaði:nei.. svona alhliða æfingar í sal og létt skokk,
Gerbill skrifaði:vesi skrifaði:er ekki að fara hlaupa þó þetta séu "hlaupaskór". .bara svona það sem mér datt í hug með dempun og stuðning og kostar ekki auga og handlegg.
Hvað ertu að fara að gera þá? Nota þá bara dagsdaglega?
Ég held að gáfulegustu alhliða skórnir séu bara "innanhússkór" eins og þessir t.d.
http://www.utilif.is/vorur/skor/innanhusskor/nr/995" onclick="window.open(this.href);return false;
eða þessir, sem eru reyndar líklegast í dýrari kantinum.
http://www.intersport.is/vorur/skor/inn ... ll-spezial" onclick="window.open(this.href);return false; (reyndar mjög dýrir)
Ég er í einhverjum adidas innanhússkóm sem ég keypti árið 2005 á 5 þúsara. Engin dempun reyndar og því fínt að lyfta í þeim og vegna þess að þeir eru lágir er (að því að mér var tjáð) mun minni slysahætta en t.d. ef þú ert í hlaupaskóm held ég. Ég var búinn með innleggin í þeim og gat því ekki notað þá lengur í íþróttir en nota þá þegar ég er að lyfta og líkar mjög vel. Keypti mér einhverja handboltaskó þar sem það virðist vera sama verð á þeim og innanhússkóm, en mér dettur ekki til hugar að lyfta í þeim þar sem þeir eru svo dempaðir.
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Fim 15. Mar 2012 15:29
af AciD_RaiN
Keypti mér innanhússkó um daginn og fór í þá einu sinni og svo inn í skáp.. geggjaðir skór samt
Re: "Workout" Þráður Vaktarinnar.
Sent: Fim 15. Mar 2012 16:11
af Gúrú
BjarkiB skrifaði:Ferðu alla leið upp? Og hvað ferðu langt niður aftur?
Gunnar skrifaði:ég fer alla leið upp og svo eru svona 5 cm milli min og bekksins þegar ég fer niður.
Ég fer líka nánast alveg niður (líklega já 5cm þar sem það er mest) en get því miður ekki farið
alveg
upp vegna magans en já, nánast alveg upp.
Gerbill skrifaði:100+ reps? Til hvers?
Finn alveg gríðarlega mikinn mun á því hvernig ég ber mig og hvernig mér líður í hreyfingu
eftir því hvað ég get gert margar magaæfingar. Þegar að ég er í 100 magaæfinga formi þá finnst mér
allt auðveldara.
Það að ganga/hlaupa/grappla/fara upp stiga verður allt mun léttara og liðlegra.