Síða 5 af 6

Re: Vaktin.is lan

Sent: Fös 08. Okt 2010 16:21
af gissur1
Æji hvaða rugl er þetta í ykkur!
Þótt að það séu undir 18 gaurar þarna þýðir það ekki að þeir verði að vera komnir heim fyrir 12.
Please hættiði að tala svona :beer

Re: Vaktin.is lan

Sent: Fös 08. Okt 2010 16:28
af Gúrú
gissur1 skrifaði:Æji hvaða rugl er þetta í ykkur!

Landslög.
gissur1 skrifaði:Þótt að það séu undir 18 gaurar þarna þýðir það ekki að þeir verði að vera komnir heim fyrir 12.

Nei það þýðir það ekki, en það þýðir að það verði óþarfa vesen sem að yrði ekki ef að þetta væri 18+.

Re: Vaktin.is lan

Sent: Fös 08. Okt 2010 16:28
af dori
gissur1 skrifaði:Æji hvaða rugl er þetta í ykkur!
Þótt að það séu undir 18 gaurar þarna þýðir það ekki að þeir verði að vera komnir heim fyrir 12.
Please hættiði að tala svona :beer

Ef þú skipuleggur einhvern svona atburð þá verðurðu að vera með lagalegu hliðina í lagi því að þú tekur ábyrgð á þig. Ef að lög/reglur eru brotnar geturðu verið sektaður/kærður. Ég held að það sé enginn sem vill ekki hafa alla sem hafa áhuga á vélbúnaði og tölvuleikjum og vilja koma á staðnum.
Þetta er bara spurning um að gera hlutina rétt. Enginn sem hefur skipulagt svona hluti sem veit hvernig þessum málum er háttað?

EDIT: Gúrú er spot on. Það er hins vegar hægt að gera hlutina þannig að allir sem vilja geta komið. Enginn sem veit hvernig?

Re: Vaktin.is lan

Sent: Fös 08. Okt 2010 17:46
af cocacola123
Not once hef ég verið að vesenast í þessum reglum. Ég meina þetta er ekki eitthvað sem FM957 er að halda eða þetta er ekkert að verða ALLTOF opinbert þannig mér finnst eins og þetta eigi ekki að vera alltof mikið vesen :)

Re: Vaktin.is lan

Sent: Fös 08. Okt 2010 17:55
af gissur1
Hafa bara leyfisbréf sem tekur það fram að það gæti verið áfengisneysla á staðnum og að þetta sé yfir nótt.
:shooting :shooting :shooting

EDIT

Svo er spurning um að hafa bara dyravörð sem passar að fólk undir aldri fái ekki að fara út eftir 12 :evillaugh

Re: Vaktin.is lan

Sent: Fös 08. Okt 2010 18:35
af vesley
dori skrifaði:
Gúrú skrifaði:
dori skrifaði:IANAL en ef við leyfum undir 18 að mæta. Þarf þá ekki að vera leyfisblöð og lokað hús eftir einhvern tíma?

Held það þurfi ekki að vera "lokað hús" en það " :arrow: má bara ekki leyfa 18 ára að fara út nema að forráðamaður sæki þá eða í fylgd með fullorðnum".

Sem þýðir að þá þyrfti annaðhvort að vera virk gæsla eða húsið alveg lokað. En ég veit ekkert hvort það sé eitthvað tékkað hvort maður fari eftir öllum reglum sem á að fylgja.

Einfaldlega 16+ og þá þarf ekki að hafa þessa blessuðu gæslu.

Re: Vaktin.is lan

Sent: Fös 08. Okt 2010 18:36
af Glazier
gissur1 skrifaði:Svo er spurning um að hafa bara dyravörð sem passar að fólk undir aldri fái ekki að fara út eftir 12 :evillaugh

14 ára krakki labbar út, dyravörðurinn segir "heyrðu, hvað ert þú gamall?" hann svarar "16 ára" nú okei, skemmtu þér" :roll:

Re: Vaktin.is lan

Sent: Fös 08. Okt 2010 18:48
af gissur1
Glazier skrifaði:
gissur1 skrifaði:Svo er spurning um að hafa bara dyravörð sem passar að fólk undir aldri fái ekki að fara út eftir 12 :evillaugh

14 ára krakki labbar út, dyravörðurinn segir "heyrðu, hvað ert þú gamall?" hann svarar "16 ára" nú okei, skemmtu þér" :roll:

Eða:

Innkoma
(
16+:
Já svo þú ert að koma á lan, sýndu skilríki, ok þú ert 16ára *stimpl*.

-16:
Já svo þú ert að koma á lan, sýndu skilríki, ok þú ert 15ára, hvar er leyfisbréf.
)

Út eftir 12
(
16+:
Ok þú ætlar út, ertu með stimpil?, ok alltílagi.

-16:
Ok þú ætlar út, ertu með stimpil?, nei því miður get ég ekki hleypt þér út nema að forráðamaður sæki þig.
)

HAHA

Re: Vaktin.is lan

Sent: Þri 13. Sep 2011 00:42
af g0tlife
kominn tími til að gera þetta að veruleika ?

Re: Vaktin.is lan

Sent: Þri 13. Sep 2011 13:15
af Klaufi
g0tlife skrifaði:kominn tími til að gera þetta að veruleika ?

Þessi þráður hefur farið alveg framhjá mér þegar hann var stofnaður..

Ég er game!

Er með húsnæði í huga m.e.a.s. ef menn eru ennþá spenntir..

Re: Vaktin.is lan

Sent: Þri 13. Sep 2011 13:53
af vesley
þá bara drífa í þessu. :)

Re: Vaktin.is lan

Sent: Þri 13. Sep 2011 14:39
af HelgzeN
getið örruglega fengið gamla bókasafnið í Hafnarfirði.
margir sem ég þekki hafa verið að lana þar.
Held ég ljósleiðari og alles þar líka.

Re: Vaktin.is lan

Sent: Þri 13. Sep 2011 17:31
af Klaufi
Var búið að gera ráð fyrir einhverju?

Checklist:
- Tímasetning
- Húsnæði (Ath. með rafmagn og nettenginu.)
- Borð (Geri ráð fyrir því að flestir gætu tekið sína eigin stóla.)
- Netbúnaður.
- Fjöltengi og kaplar, allir ættu að geta mætt með sín eigin fjöltengi og cat5 kapla, það þarf að koma rafmagni að þeim samt. Ég get mætt með rúllu af cat5 og enda ef það vantar langa cat5 kapla.
- Tilboð hjá pizzastað.
- Bjórdíll?

Er ég að gleyma einhverju?

Þurfum eiginlega að vita hversu margir myndu mæta til að geta áætlað stærð á húsnæði og hvað vantar af hinu.

Ef einhver hefur sambönd við pizzastað eða eitthvað svoleiðis þá væri fínt að vita það, eins ef menn geta lánað netbúnað, vita um húsnæði eða hvað sem er..

Re: Vaktin.is lan

Sent: Þri 13. Sep 2011 17:47
af vesley
Klaufi skrifaði:Var búið að gera ráð fyrir einhverju?

Checklist:
- Tímasetning
- Húsnæði (Ath. með rafmagn og nettenginu.)
- Borð (Geri ráð fyrir því að flestir gætu tekið sína eigin stóla.)
- Netbúnaður.
- Fjöltengi og kaplar, allir ættu að geta mætt með sín eigin fjöltengi og cat5 kapla, það þarf að koma rafmagni að þeim samt. Ég get mætt með rúllu af cat5 og enda ef það vantar langa cat5 kapla.
- Tilboð hjá pizzastað.
- Bjórdíll?

Er ég að gleyma einhverju?

Þurfum eiginlega að vita hversu margir myndu mæta til að geta áætlað stærð á húsnæði og hvað vantar af hinu.

Ef einhver hefur sambönd við pizzastað eða eitthvað svoleiðis þá væri fínt að vita það, eins ef menn geta lánað netbúnað, vita um húsnæði eða hvað sem er..
Akkúrat, þyrfti einhver að taka það að sér að taka á móti tölvupóstum frá þeim sem eru garanteraðir í að mæta á LAN, ákveða staðsetningu eftir fjölda ( þá auðvitað með neti og rafmagni) Redda borðum og díla við pizzastað. Ætti að vera lítið sem ekkert mál að redda borðum og samning við pizzastað. Þarf bara að gera þennan þráð nógu áberandi til að vekja áhuga Vaktarmeðlima.

Ef þetta myndi vera á næstunnni (sept-Okt) Hvaða dagsetning hentar ykkur best ? Hjá mér hentar lok Sept vel eins og er s.s. 30-2 og svo líklegast önnur hver helgi eftir það.

Re: Vaktin.is lan

Sent: Þri 13. Sep 2011 18:09
af Klaufi
vesley skrifaði:

Ég skal halda utan um þetta ef þið viljið.

Ég er til í að negla 30.-2. og sjá svo bara til hvort þetta sé ekki nægur tími til að undirbúa þetta..

Kostnaður verður alveg pottþétt 1-5000 á mann, eftir fjölda og eftir því hvað við getum fengið lánað og hvað þarf að leigja.

Allir þeir sem hafa áhuga á að mæta sendið mér mail á lan@muminalfarnir.org með eftirfarandi:

- Nick á vaktinni.
- Nafn
- Hvort þið getið tekið eitthvað að ykkur eða hvaða búnað þið getið lánað.
- Gott væri að hafa síma ef þið getið lánað eitthvað.

*Bætt við: Erum við ekki örugglega að tala um 18 ára aldurstakmark?*

Re: Vaktin.is lan

Sent: Þri 13. Sep 2011 18:50
af beggi90
DO WANT!

En flyt ekki aftur til íslands fyrr en í des.

Re: Vaktin.is lan

Sent: Þri 13. Sep 2011 18:51
af vesley
Skall skella þessu í titil.

Ef stjórnendur eru einhvað á móti þessu þá tek ég þetta út.

Re: Vaktin.is lan

Sent: Þri 13. Sep 2011 19:40
af Klaufi
vesley skrifaði:Skall skella þessu í titil.

Ef stjórnendur eru einhvað á móti þessu þá tek ég þetta út.
Tók því sem það væri búið að græja það.. ;)

Ef það eru einhverjir til í þetta, þá væri allt í lagi að gera þetta, en það þarf að áætla fjölda svo það sé hægt að byrja að spá..

Sjá hvað gerist í vikunni hvort tíminn sé nægur eða ekki..

Re: Vaktin.is lan skráning á lan@muminalfarnir.org

Sent: Þri 13. Sep 2011 23:12
af Halldór
er 16 eða 18 ára aldurstakmark?

Re: Vaktin.is lan

Sent: Þri 13. Sep 2011 23:43
af zimsen90
Gamla bókasafnið er svo langt því frá að vera með Ljósleiðara, í fyrsta lægi er ekki búið að koma fyrir ljósneti yfirhöfuð í hafnarfirði og í öðru lægi er netið oftast mjöög tregt og búið að loka á svo margar síður og sumir leikir virka ekki að lana í og svona vesen, hafnafjarðarbær lokaði á allt of mikið með þessum sonicwall sem þeir eru komnir með...
HelgzeN skrifaði:getið örruglega fengið gamla bókasafnið í Hafnarfirði.
margir sem ég þekki hafa verið að lana þar.
Held ég ljósleiðari og alles þar líka.

Re: Vaktin.is lan skráning á lan@muminalfarnir.org

Sent: Mið 14. Sep 2011 01:19
af Steini B
Ég er til í að mæta og búinn að senda mail ;)
Maður verður nú að prufa að lana í Rvk....

Of það er eins gott að það verði leyft áfengi :beer

Re: Vaktin.is lan skráning á lan@muminalfarnir.org

Sent: Mið 14. Sep 2011 22:44
af Klaufi
Bump,

Á ég að trúa því að það sé ekki meiri áhugi en þetta?

Er það dagsetningin eða áhugaleysi?

Re: Vaktin.is lan skráning á lan@muminalfarnir.org

Sent: Mið 14. Sep 2011 22:52
af hauksinick
Hvenær yrði þetta?

Re: Vaktin.is lan skráning á lan@muminalfarnir.org

Sent: Mið 14. Sep 2011 23:03
af Klaufi
hauksinick skrifaði:Hvenær yrði þetta?
30. sept - 2. okt er á milli tannana á mönnum.

Ef það eru fáir sem sýna þessu áhuga þá mæli ég með frestun um mánuð fyrir betra prepp.

En það þarf alltaf að vita ca fjöldan til að geta undirbúið eitthvað.

Re: Vaktin.is lan skráning á lan@muminalfarnir.org

Sent: Mið 14. Sep 2011 23:12
af vesley
Líma þetta bara á forsíðuna :) það ætti að vekja áhugann :8)