SATA 2??
-
Höfundur - ÜberAdmin
- Póstar: 1311
- Skráði sig: Mið 01. Sep 2004 09:43
- Staðsetning: 201
- Staða: Ótengdur
SATA 2??
Nú þegar sata2 controlerarnir eru komnir út. þarf þá að kaupa nyja diska sem styðja þennan tvöfalda hraða eða eru gömlu sata diskarnir með getuna fyrir það? Annað, er einhver að nota raptor diska sem styðja þennan hraða og raida þá 0??
Nei, gömlu diskarnir styðja líklega ekki SATA II, en ég held að það skipti engu máli þar sem að harðir diskar eru ekki að fullnýta SATA I getuna, og bætir því SATA II ekki miklu uppá hraða.
Hinsvegar gæti NCQ bætt hraða eitthvað, en til þess að nýta NCQ þarftu bæði HD og controller(right?) sem að styður NCQ, þá annaðhvort SATA II eða SATA I+NCQ
Hinsvegar gæti NCQ bætt hraða eitthvað, en til þess að nýta NCQ þarftu bæði HD og controller(right?) sem að styður NCQ, þá annaðhvort SATA II eða SATA I+NCQ
Mættir hugsa þetta svona;zaiLex skrifaði:Getiði útskýrt svona once for all hvernig SATA er ekki hraðara þó þeir eru með meiri bandvídd því ég hef aldrei skilið þetta.
5 bílar ferðast á veg þar sem að 8 akreinar eru í áttina sem að þeir eru að fara. Ef að þú myndir auka fjöldan af akreinum úr 8 í 15 væru bílarnir ekkert sneggri að komast þar sem að þeir eru bara 5 og taka því alltaf bara 5 akreinar. (vitaskuld gróf myndlíking)
Alveg eins þá vinna harðir diskar ekkert hraðar þótt að bandvíddinn á kaplinum sé aukin úr 133MB/s yfir í 150MB/s, ef að diskurinn sjálfur(snúningurinn á mótornum, segulhausinn sem les gögnin...) gefur bara frá sér t.d. 60MB/s
Vonandi að ég hafi gert mig nógu skiljanlegan