Áhrif Costco á tölvuvörur
Áhrif Costco á tölvuvörur
Var að skoða tölvur sem Costco er að bjóða í sínum búðum erlendis. Að meðaltali eru tölvurnar ca 30%-40% ódýrari og einstök dæmi um allt að helming af verði sem við búum við hér heima núna. Ef tekið er tillit til þess okurs sem er í gangi hér á landi - hversu mikil áhrif haldið þið að verslun Costco muni hafa?
-
- Kóngur
- Póstar: 4139
- Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
- Staðsetning: við talvuna
- Staða: Ótengdur
Re: Áhrif Costco á tölvuvörur
Tel að það mun hafa lítil sem engin áhrif. Samkeppni á milli tölvuverslana hér er mjög sterk.
massabon.is
Re: Áhrif Costco á tölvuvörur
Held að opnun CostCo geti haft áhrif á fartölvur og tilbúnar, branded borðtölvur.
Held hins vegar að það muni hafa lítil áhrif á íhluti og samsettar vélar.
Held hins vegar að það muni hafa lítil áhrif á íhluti og samsettar vélar.
www.laptop.is
www.ferdaleit.is
www.ferdaleit.is
Re: Áhrif Costco á tölvuvörur
Er að sjá öflugar tölvur frá þeim á hlægilegu verði miðað við sambærilega íhluti hér heima. Vélar með 1080 gtx kort og 32gb vinnsluminni á undir 200 þúsund.
Dæmi https://www.costco.com/CyberpowerPC-SLC ... 33319.html
Ekki margir sem eru að bjóða eitthvað svipað á undir 300.000 i dag hér á landi
Dæmi https://www.costco.com/CyberpowerPC-SLC ... 33319.html
Ekki margir sem eru að bjóða eitthvað svipað á undir 300.000 i dag hér á landi
Re: Áhrif Costco á tölvuvörur
khf skrifaði:Er að sjá öflugar tölvur frá þeim á hlægilegu verði miðað við sambærilega íhluti hér heima. Vélar með 1080 gtx kort og 32gb vinnsluminni á undir 200 þúsund.
Dæmi https://www.costco.com/CyberpowerPC-SLC ... 33319.html
Ekki margir sem eru að bjóða eitthvað svipað á undir 300.000 i dag hér á landi
Ekki raunhæft að gera samanburð við Costco USA. Þær vörur sem koma í Costco hér eru frá UK. Allt annað verð þar
-
- Stjórnandi
- Póstar: 3525
- Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
- Staðsetning: Undir hægra megin
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Áhrif Costco á tölvuvörur
Þessi vél með 0 krónur í flutning er á 240 þús hér á landi (1700usd+vsk í rauninni)khf skrifaði:Er að sjá öflugar tölvur frá þeim á hlægilegu verði miðað við sambærilega íhluti hér heima. Vélar með 1080 gtx kort og 32gb vinnsluminni á undir 200 þúsund.
Dæmi https://www.costco.com/CyberpowerPC-SLC ... 33319.html
Ekki margir sem eru að bjóða eitthvað svipað á undir 300.000 i dag hér á landi
Hvað þætti þér eðlilegt verið fyrir búð að selja á hér á landi.
Svona miðað við t.d. stærð markaðar hérna og í USA t.d.
Ef að ég get pantað svona vél á 240 - 270 þús (ég hef ekki hugmynd um hvað flutningur myndi kosta) þá finnst mér ekkert óeðlilegt að borga 300 þús fyrir hana hér á landi.
Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !
Re: Áhrif Costco á tölvuvörur
Tjah, það væri vel hægt að púsla eða láta púsla fyrir sig sambærilegri tölvu saman á ~250-270þús kall sýnist mér í fljótu bragði.khf skrifaði:Er að sjá öflugar tölvur frá þeim á hlægilegu verði miðað við sambærilega íhluti hér heima. Vélar með 1080 gtx kort og 32gb vinnsluminni á undir 200 þúsund.
Dæmi https://www.costco.com/CyberpowerPC-SLC ... 33319.html
Ekki margir sem eru að bjóða eitthvað svipað á undir 300.000 i dag hér á landi
Líkt og bent hefur verið á, þá er þessi vél (sem er by the way á $200 tilboði) án flutningskostnaðar, einungis með 24% virðisaukaskatt, á rúman 235þús kall. Þarna færðu ekkert að vita hvaða vinnsluminni þú ert að fá, hvaða aflgjafa, hvaða kassa. Ef þú skoðar reviewin sem eru komin á þessa vél, þá eru 5 af 25 reviewers sem gefa henni 1 stjörnu (nota bene, það er ekki hægt að gefa lægra en 1 stjörnu).
Ég leyfi mér því að verðleggja flutningaskostnað, gæða- og þjónustumuninn á þessari tölvu í USA upp á allavega 15-35þús sem mér sýnist verðmunurinn vera. Vert er að athuga að allir íhlutir eru í minnst 2 ára ábyrgð hér heima, oft lengur, en sú er ekki raunin í USA

En auðvitað á maður að vera á varðbergi og fylgjast með þessu! Veit bara að tölvubúðirnar hér á landi eru að gera mjög góða hluti í samsettum borðtölvum fyrir mjög lága álagningu, finnst því ólíklegt að CostCo nái að lækka verð til neytanda, nema þá að það hafi áhrif á þjónustuna og gæðin

www.laptop.is
www.ferdaleit.is
www.ferdaleit.is
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1722
- Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
- Staða: Ótengdur
Re: Áhrif Costco á tölvuvörur
Ég tel að þetta muni hafa töluverð áhrif. Elko er t.d. búið að bakka strax með verðverndina sýna, sem gefur tilkynna að Costco sé líklega að fara bjóða betri verð.vesley skrifaði:Tel að það mun hafa lítil sem engin áhrif. Samkeppni á milli tölvuverslana hér er mjög sterk.
Þá held ég að margir "almennir" notendur myndu versla þar sem það er hagstæðast.
Eftir standa nördarnir.
Þá mætti draga þá ályktun að reksturinn myndi þyngjast hjá einhverjum verslunum.
Re: Áhrif Costco á tölvuvörur
Svo má ekki gleyma því hversu stór risi Costco er í innkaupum. Því stærri pantanir í einu, því hagstæðari eru innkaupin, og Costco með sínar reglur um hámark á álagningu, mun þýða góð kaup fyrir okkur. Semsé, verð MUN lækka. MIKIÐ
AsRock TRX40 Taichi AMD Threadripper 3960X Asus GTX 980OC Strix 4GB G.Skill (4x8GB) Trident Neo 3600MHz DDR4 Western Digital RED 4TB stýrikerfi: 2x Corsair MP600 1TB raid0 50" Panasonic Plasma TV WD RED 4TB
Re: Áhrif Costco á tölvuvörur
Sem þýðir að það verður ekkert svo ódýrt hér, því innkaupin verða svo lítil í samanburði við heiminn, því við erum svo fá.kizi86 skrifaði:Svo má ekki gleyma því hversu stór risi Costco er í innkaupum.
Intel Core i5 4690K @ ? GHz ♠ Custom water cooling ♠ Build log: http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=1&t=53292
Re: Áhrif Costco á tölvuvörur
Það breytir innkaupaverði Costco ekkert. Það segir enginn "ætlarðu að selja þetta á Íslandi? Heyrðu, þá hækkum við verðið til ykkar." Costco kaupir bara ógeðslega mikið og sendir part hingað.
AMD Ryzen 9 5950X | Noctua NH-D15 | Nvidia Geforce RTX 3080Ti HOF | MSI MAG X570 Tomahawk | 32GB Corsair Vengeance RGB 3600MHz DDR4 | Corsair RM1000i | Samsung 950 Pro 512GB| Fractal Define R5 | LG CX 48" OLED
-
- Vaktari
- Póstar: 2671
- Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
- Staðsetning: ::1
- Staða: Ótengdur
Re: Áhrif Costco á tölvuvörur
Það hafa flestir sem hafa verið að lækka verðið hjá sér nýverið að tala um að þau hafi LOKSINS náð að semja betur við erlenda birgja:
http://www.ruv.is/frett/erlendir-birgja ... -samkeppni
Frekar hentug tímasetning.
http://www.ruv.is/frett/erlendir-birgja ... -samkeppni
Frekar hentug tímasetning.
Just do IT
√
√