*Hugmynd* Vaktin.is félagskort

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
astro
spjallið.is
Póstar: 477
Skráði sig: Lau 07. Jan 2006 02:16
Staðsetning: Grafarvogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

*Hugmynd* Vaktin.is félagskort

Póstur af astro »

Hvernig væri það ef GuðjónR og félagar í stjórninni færu að vinna í að gera félagskort fyrir árlega borgandi meðlimi?

Félagskort með afsláttum og fríðindum í tölvu og græjubúðum í landinu ? Ég væri meira en til í að borga 1.000-2.000Kr.- á ári í skiptum fyrir afsláttakort.

Þetta væri líka bara gaman uppá samfélagið, því peningarnir sem safnast árlega væri hægt að nota í t.d. að hafa t.d. mod keppni með flottum vinningum. :megasmile

Hvað fynst ykkur ?
Fractal Design Meshify C * MSI Z170A Tomahawk AC * Intel Core i7-6700 * 16GB Corsair Vengeance LPX 3200Mhz * Zotac GTX1080 AMP Extreme * 240GB Samsung Evo 850 SSD MASTER * 120GB Corsair SSD SLAVE * 3x2TB SG Barracuda HDD SLAVE* Noctua NH-C12P SE14
Skjámynd

Benzmann
Bara að hanga
Póstar: 1519
Skráði sig: Þri 11. Nóv 2008 14:58
Staðsetning: Á sporbaug sólar
Staða: Ótengdur

Re: *Hugmynd* Vaktin.is félagskort

Póstur af Benzmann »

væri gaman. væri líka flott ef verslanir myndu veita 10-15% afslátt út á þessi kort :)
CPU: Intel i9 9900K | MB: Asus ROG Maximus XI Hero (Z390) | GPU: Asus TUF RTX 3080 OC 10gb | Case: Corsair Carbide 400c | PSU: Corsair RM850x 850W | RAM: Corsair Vengeance RGB Pro DDR4 3200mhz 32gb |Storage: 1x Samsung 1tb 970 Evo Plus SSD, 3x Samsung 500gb 970 Evo Plus SSD RAID-0 | OS: Windows 10 Enterprise E5 64bit
Skjámynd

AciD_RaiN
Tölvuskreytingameistari
Póstar: 3942
Skráði sig: Lau 22. Nóv 2008 11:14
Staðsetning: Siglufjörður
Staða: Ótengdur

Re: *Hugmynd* Vaktin.is félagskort

Póstur af AciD_RaiN »

Er þetta ekki frekar langsótt eða er það bara ég??
Asus Sabertooth P67 | Intel Core i7 2700K 3.5Ghz @ 5.2GHz | Custom WC GREEN | Corsair Vengeance 16GB 1866MHz @ 2133MHz | Geforce GTX 680 2048MB | C: Samsung 830 256GB | Corsair AX850 | CM Storm Trooper (Autob0t Sk1ds) | Logitech G700 | Corsair Vengeance K60 |rigmods.com
Skjámynd

Benzmann
Bara að hanga
Póstar: 1519
Skráði sig: Þri 11. Nóv 2008 14:58
Staðsetning: Á sporbaug sólar
Staða: Ótengdur

Re: *Hugmynd* Vaktin.is félagskort

Póstur af Benzmann »

væri samt nettara ef maður fengi t.d 5% afslátt í tölvubúðum, ef maður væri með undir 1000post's á vaktinni, og 10% ef maður væri með yfir 1000post, og 15% ef maður væri með yfir 2000posts, hafa eitthvað þannig thing á þessu :D


en samt dáltið langsótt eins og fyrri ræðumaður segir
CPU: Intel i9 9900K | MB: Asus ROG Maximus XI Hero (Z390) | GPU: Asus TUF RTX 3080 OC 10gb | Case: Corsair Carbide 400c | PSU: Corsair RM850x 850W | RAM: Corsair Vengeance RGB Pro DDR4 3200mhz 32gb |Storage: 1x Samsung 1tb 970 Evo Plus SSD, 3x Samsung 500gb 970 Evo Plus SSD RAID-0 | OS: Windows 10 Enterprise E5 64bit
Skjámynd

Glazier
BMW
Póstar: 2511
Skráði sig: Fös 30. Jan 2009 22:20
Staðsetning: Mosó
Staða: Ótengdur

Re: *Hugmynd* Vaktin.is félagskort

Póstur af Glazier »

benzmann skrifaði:væri samt nettara ef maður fengi t.d 5% afslátt í tölvubúðum, ef maður væri með undir 1000post's á vaktinni, og 10% ef maður væri með yfir 1000post, og 15% ef maður væri með yfir 2000posts, hafa eitthvað þannig thing á þessu :D


en samt dáltið langsótt eins og fyrri ræðumaður segir
Uuuu, nei.
Tölvan mín er ekki lengur töff.
Skjámynd

Frost
Besserwisser
Póstar: 3105
Skráði sig: Sun 16. Ágú 2009 02:30
Staða: Ótengdur

Re: *Hugmynd* Vaktin.is félagskort

Póstur af Frost »

benzmann skrifaði:væri samt nettara ef maður fengi t.d 5% afslátt í tölvubúðum, ef maður væri með undir 1000post's á vaktinni, og 10% ef maður væri með yfir 1000post, og 15% ef maður væri með yfir 2000posts, hafa eitthvað þannig thing á þessu :D


en samt dáltið langsótt eins og fyrri ræðumaður segir
Spurning hvort fólk færi þá að pósthórast :-k
Tölva, 2 skjáir, Varmilo lyklaborð, þráðlaus mús og næs heyrnatól
Skjámynd

suprah3ro
Fiktari
Póstar: 97
Skráði sig: Þri 28. Apr 2009 18:18
Staða: Ótengdur

Re: *Hugmynd* Vaktin.is félagskort

Póstur af suprah3ro »

Ég mundi borga svona árgjald, ef það mundi veita manni meira en 10% afslátt :)
Skjámynd

lukkuláki
Besserwisser
Póstar: 3082
Skráði sig: Fös 30. Nóv 2007 19:06
Staða: Ótengdur

Re: *Hugmynd* Vaktin.is félagskort

Póstur af lukkuláki »

Félagskort eru ekkert svo vitlaus hugmynd en að tengja þá fjölda pósta er fráleit hugmynd.
En það mætti kannski miðast við 500 pósta þá færðu kortið en ekki bara strax við skráningu.

Gætum kannski kríað út einhvern afslátt á tölvuíhlutum og líka bara pizzum og fleira drasli :)
If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.
Skjámynd

BjarkiB
Of mikill frítími
Póstar: 1946
Skráði sig: Fim 26. Nóv 2009 19:02
Staðsetning: C:\Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: *Hugmynd* Vaktin.is félagskort

Póstur af BjarkiB »

benzmann skrifaði:væri samt nettara ef maður fengi t.d 5% afslátt í tölvubúðum, ef maður væri með undir 1000post's á vaktinni, og 10% ef maður væri með yfir 1000post, og 15% ef maður væri með yfir 2000posts, hafa eitthvað þannig thing á þessu :D


en samt dáltið langsótt eins og fyrri ræðumaður segir
Þá fara pósthórurnar strax á stað [-X
Skjámynd

AciD_RaiN
Tölvuskreytingameistari
Póstar: 3942
Skráði sig: Lau 22. Nóv 2008 11:14
Staðsetning: Siglufjörður
Staða: Ótengdur

Re: *Hugmynd* Vaktin.is félagskort

Póstur af AciD_RaiN »

benzmann skrifaði:væri samt nettara ef maður fengi t.d 5% afslátt í tölvubúðum, ef maður væri með undir 1000post's á vaktinni, og 10% ef maður væri með yfir 1000post, og 15% ef maður væri með yfir 2000posts, hafa eitthvað þannig thing á þessu :D


en samt dáltið langsótt eins og fyrri ræðumaður segir
Ég myndi fara á hvern einasta póst bara til að segja bö og redda meiri afslætti... Yrði væntanlega bannaður mjög fljótt reyndar en haldið þið að það væri eitthvað hægt að díla við verslanir um eitthvað svona? Nú bara þekki ég þetta ekki. En allt í lagi að borga árgjald og ekkert að því... Hvert get ég lagt inn :happy
Asus Sabertooth P67 | Intel Core i7 2700K 3.5Ghz @ 5.2GHz | Custom WC GREEN | Corsair Vengeance 16GB 1866MHz @ 2133MHz | Geforce GTX 680 2048MB | C: Samsung 830 256GB | Corsair AX850 | CM Storm Trooper (Autob0t Sk1ds) | Logitech G700 | Corsair Vengeance K60 |rigmods.com
Skjámynd

tdog
Vaktari
Póstar: 2010
Skráði sig: Mán 06. Des 2010 17:32
Staða: Ótengdur

Re: *Hugmynd* Vaktin.is félagskort

Póstur af tdog »

Sniðug hugmynd. Það væri t.d hægt að fá fyrirtækin sem auglýsa á síðunni í samstarf.
MacBook Pro, Late 2011. 2.2 Ghz i7, 8GB 1333Mhz
rafvirki/hljóðmaður/IP-gúrú
Skjámynd

Kristján
Of mikill frítími
Póstar: 1706
Skráði sig: Sun 02. Jan 2011 12:37
Staða: Ótengdur

Re: *Hugmynd* Vaktin.is félagskort

Póstur af Kristján »

skil ekki afhverju þetta er ekki löngu komið

eins og allir bílaklúbbarnir td þó þeir séu miklu stærri kannski en þá eru þeir með afslætti hægri vinnstri 10 15 20% sumstaðar og svo bensin afslátt.

sé ekkert að þvi að borka 2000 kall á ári og vera í svona klúbb og fá 10-15% af tölvuvörum


og ekki binda einhverja posta fjölda inni þetta, það er allavega ekki þannig í bílaklúbbunum þó svo ég sé ekki viss.
Skjámynd

Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 3981
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Staða: Ótengdur

Re: *Hugmynd* Vaktin.is félagskort

Póstur af Klemmi »

Ef ég á að vera leiðinlegi gaurinn að þá sé ég þetta ekki gerast, allavega hvað afsláttinn varðar nema þá kannski hjá Nýherja, Opnum Kerfum og þess háttar okurbúllum :oops:

Verðlagningin, hvort sem þið trúið því eða ekki, á tölvuvörum í dag býður bara ekki upp á þennan sveigjanleika, oft sem menn gera sér ekki grein fyrir því að ef tölvubúð með segjum 20% meðal álagningu (og já, þetta er mjög nálægt raunverulegri álagningu) gefur 5% afslátt, þá er hún að minnka hagnaðinn af sölu vörunnar um 30%.
Sem dæmi:

Tökum 1000kr.- vöru, seld á 1200kr.- út úr búð, 5% afsláttur kemur vörunni niður í 1140kr.-, hagnaður verlzunarinnar er því 140kr.- í stað 200kr.-
140/200 = 0.7 = 70% af upprunalega hagnaðnum.

Ég ætla ekkert að vera að væla hér of mikið um það hversu lág verðin séu, en maður lendir bara of oft í því að fólk sýnir því engan skilning þegar ekki er hægt að gefa afslátt :(
www.laptop.is
www.ferdaleit.is
Skjámynd

AciD_RaiN
Tölvuskreytingameistari
Póstar: 3942
Skráði sig: Lau 22. Nóv 2008 11:14
Staðsetning: Siglufjörður
Staða: Ótengdur

Re: *Hugmynd* Vaktin.is félagskort

Póstur af AciD_RaiN »

Klemmi skrifaði:Ef ég á að vera leiðinlegi gaurinn að þá sé ég þetta ekki gerast, allavega hvað afsláttinn varðar nema þá kannski hjá Nýherja, Opnum Kerfum og þess háttar okurbúllum :oops:

Verðlagningin, hvort sem þið trúið því eða ekki, á tölvuvörum í dag býður bara ekki upp á þennan sveigjanleika, oft sem menn gera sér ekki grein fyrir því að ef tölvubúð með segjum 20% meðal álagningu (og já, þetta er mjög nálægt raunverulegri álagningu) gefur 5% afslátt, þá er hún að minnka hagnaðinn af sölu vörunnar um 30%.
Sem dæmi:

Tökum 1000kr.- vöru, seld á 1200kr.- út úr búð, 5% afsláttur kemur vörunni niður í 1140kr.-, hagnaður verlzunarinnar er því 140kr.- í stað 200kr.-
140/200 = 0.7 = 70% af upprunalega hagnaðnum.

Ég ætla ekkert að vera að væla hér of mikið um það hversu lág verðin séu, en maður lendir bara of oft í því að fólk sýnir því engan skilning þegar ekki er hægt að gefa afslátt :(
Þetta var einmitt það sem mig grunaði en auðvitað væri 5% afsláttur allveg nóg finnst mér... bara skemmtilegra að þessu og ef félagar hér væru að borga árgjald þá gætu verslanar fengið fría auglýsingu hér á móti. Er þetta nokkuð jafn langsótt?
Asus Sabertooth P67 | Intel Core i7 2700K 3.5Ghz @ 5.2GHz | Custom WC GREEN | Corsair Vengeance 16GB 1866MHz @ 2133MHz | Geforce GTX 680 2048MB | C: Samsung 830 256GB | Corsair AX850 | CM Storm Trooper (Autob0t Sk1ds) | Logitech G700 | Corsair Vengeance K60 |rigmods.com

axyne
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1695
Skráði sig: Fim 12. Jún 2003 17:16
Staðsetning: DK
Staða: Ótengdur

Re: *Hugmynd* Vaktin.is félagskort

Póstur af axyne »

Ég væri alveg til í félagakort og jafnvel borga eitthvað smotterí fyrir, bara uppá sportið :8)

"ágóðan" mætti siðan setja í einhvernskonar félagastarf hérna á vaktinni t.d mod keppni eins og astro stingur uppá.
Electronic and Computer Engineer

Halldór
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 331
Skráði sig: Lau 30. Apr 2011 22:27
Staða: Ótengdur

Re: *Hugmynd* Vaktin.is félagskort

Póstur af Halldór »

tjah ég er sammála öllu þessu en með það hvenar maður á að geta fengið þetta þá er hægt að láta vera einhvern lágmarks tími frá því að fólk skráði sig hingað inn t.d. eitt ár?
i7 2600k | Corsair H80 með 2x Gentle Typhoon AP-15 1850RPM | Gigabyte Z68X-UD7-B3 | G.Skill sniper 2x4GB @ 1600 MHz | Sapphire Radeon 6950 Flex edition | Corsair 750D | SSD: OCZ Vertex 3 MAX IOPS 120 GB| 1TB Seagate Barracuda | Corsair AX1200 | W7 x64

DabbiGj
Gúrú
Póstar: 507
Skráði sig: Mið 10. Mar 2010 16:11
Staða: Ótengdur

Re: *Hugmynd* Vaktin.is félagskort

Póstur af DabbiGj »

Finnst ótrúlegt að menn séu að gera sér von um 15% afslátt, það er ekki nein tölvubúð af þeim sem að t.d. auglýsa hérna fyrir ofan sem ða hafa álagningu sem að stendur undir þessum afslætti. Tölvubúðir hérna á klakanum keyra á 5-20% álagningu á vörum og 15% afsláttur kemur útá að þær sleppa á sléttu eða í tapi á flestum vörum, margar vörur einsog t.d. vinsælir örgjörvar eru meiraðsegja seldar á kostnaðarverði og stundum eru menn að greiða með vörum.
Skjámynd

Marmarinn
has spoken...
Póstar: 181
Skráði sig: Mið 13. Feb 2008 16:57
Staða: Ótengdur

Re: *Hugmynd* Vaktin.is félagskort

Póstur af Marmarinn »

Það væri hægt að útfæra afsláttinn með einhverskonar stimpil/klippikorti. 10 eða 5ta hver kaup með afslætti.
Skjámynd

lukkuláki
Besserwisser
Póstar: 3082
Skráði sig: Fös 30. Nóv 2007 19:06
Staða: Ótengdur

Re: *Hugmynd* Vaktin.is félagskort

Póstur af lukkuláki »

Virkir notendur hérna skipta nú ekki neinum þúsundum þannig að það setur ekkert tölvukompaní á hausinn að gefa nokkrum aðilum 15% afslátt á íhlutum.

Ég persónulega myndi beina viðskiptum mínum þangað svo er oft sem maður kaupir meira af svona aðlilum og kaupir dýrari vörur.
If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.
Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 4081
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Staða: Ótengdur

Re: *Hugmynd* Vaktin.is félagskort

Póstur af appel »

Vá hvað þið eruð klikk :)

Vaktin er nú þegar búin að ýta niður verði um allavega 20% með virkri verðvöktun. Svo viljiði veifa útprentuðum skírteinum í búðunum? Held að sumir fái á kjaftinn :slapp :lol:

En það væri hægt að búa til svona mynd sem hægt er að prenta út.

----

vaktin
meðlimur 007
*-*
Skjámynd

mind
</Snillingur>
Póstar: 1073
Skráði sig: Fim 12. Des 2002 09:21
Staða: Ótengdur

Re: *Hugmynd* Vaktin.is félagskort

Póstur af mind »

appel skrifaði: Vaktin er nú þegar búin að ýta niður verði um allavega 20% með virkri verðvöktun.
Hvernig færðu þá tölu út ?
Skjámynd

vesley
Kóngur
Póstar: 4139
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: *Hugmynd* Vaktin.is félagskort

Póstur af vesley »

mind skrifaði:
appel skrifaði: Vaktin er nú þegar búin að ýta niður verði um allavega 20% með virkri verðvöktun.
Hvernig færðu þá tölu út ?

Hvar helduru að verðin væru núna ef Vaktin hefði aldrei verið til ? Ég myndi alveg skjóta á hátt í 20% hærra.

Ég tók mjög vel eftir þessu þegar ég var að vinna hjá Buy.is hvað sumar verslanir kepptust um lægsta verðið í hinum og þessum flokkum.
massabon.is
Skjámynd

Höfundur
astro
spjallið.is
Póstar: 477
Skráði sig: Lau 07. Jan 2006 02:16
Staðsetning: Grafarvogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: *Hugmynd* Vaktin.is félagskort

Póstur af astro »

appel skrifaði:Vá hvað þið eruð klikk :)

Vaktin er nú þegar búin að ýta niður verði um allavega 20% með virkri verðvöktun. Svo viljiði veifa útprentuðum skírteinum í búðunum? Held að sumir fái á kjaftinn :slapp :lol:

En það væri hægt að búa til svona mynd sem hægt er að prenta út.

----

vaktin
meðlimur 007

Alls ekki, það kunna allir að meta hvað vaktin hefur gert fyrir neytendur tölvuíhluta og fl. Þó það væri nú ekki nema 5% eða 10% af "völdum vörum" sem væri kanski breitilegt, og það væri bara auglýst.
Eða þegar maður notar "félagskortið" og kaupir yfir 50.000Kr.- fær maður 5% afslátt, yfir 100.000Kr.- 7% afslátt, 150.000Kr.- 10% afslátt. Oft hægt að semja við einhverjar búðir.

Og ég er ekki endilega að tala bara um tölvubúðir sem selja einungis tölvuvörur.
Margir sem eiga flottar tölvur eiga einhverjar aðrar flottar græjur, t.d. Blu-Ray spilara, 47" LED sjónvörp, heimabíókræjur uppá mörg-hundruð þúsund, afhverju ekki að fá Ormsson, Sjónvarpsmiðstöðina,
Hátækni, Heimilistæki og þessar búðir til að veita smá afslátt, það er vitað að þessar búðir leggja vel ofaná græjudótið sem þeir selja, ég bið alltaf um staðgreiðsluafslátt þegar ég kaupi mér eithvað dýrt tæki, og fæ stundum 5-10% afslátt.
Það er vegna þess að þeir geta gefið manni þann afslátt, því það er smurt ofaná þetta, en það þora ekki allir að spurja um afslátt, vegna þess að þetta er ekkert sjálfsagður hlutur að labba inní búð og spurja um afslátt af nýrri vöru,
sumir starfsmenn veita ALLDREI staðgreiðsluafslátt og aðrir ef maður er bara almennilegur og kurteis þá veit maður alldrei.

Ég t.d. keypti mér heimabíókerfi 2011 og spurði hvort ég gæti fengið staðgreiðsluafslátt og ég fékk bara móðgandi svip á móti mér og bara.. Nei? Afhverju?
Sagðist ætla að hugsa þetta aðeins, hugsaði þetta yfir kvöldið og ákvað að skella mér bara á það, labbaði inn daginn eftir og annar starfsmaður afgreiddi mig og lét mig hafa 5% afslátt.

Correct me if im wrong !
Fractal Design Meshify C * MSI Z170A Tomahawk AC * Intel Core i7-6700 * 16GB Corsair Vengeance LPX 3200Mhz * Zotac GTX1080 AMP Extreme * 240GB Samsung Evo 850 SSD MASTER * 120GB Corsair SSD SLAVE * 3x2TB SG Barracuda HDD SLAVE* Noctua NH-C12P SE14
Skjámynd

tomasjonss
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 375
Skráði sig: Sun 28. Ágú 2011 18:20
Staðsetning: Þar sem loftið hættir að vera jarðneskt og jörðin fær hlutdeild í himninum
Staða: Ótengdur

Re: *Hugmynd* Vaktin.is félagskort

Póstur af tomasjonss »

Þetta á ekki að vera neitt erfitt.

Ég var með skákklúbb þar sem var borgað félagsgjöld og í staðinn var 5% afsláttur í Pennanum og 10% á þessum veitingastað og eitthvað annað annarstaðar.

Fyrirtæki horfa á þetta sem beitu, þeir vita að fólk mun ekki nota þessi afsláttarkort af eilífu eða alla daga, þetta er líka tækifæri fyrir fyrirtæki að fá nýja ánægða viðskiptavini án þess að punga út háum fjárhæðum. Þetta er winwin í flestum tilvikum

EDIT:

Í flestum tilvikum er líka gerður árs samningur við fyrirtækin, að ári liðnu detta einhver út og önnur koma í staðinn. Síðan eru önnur sem vilja halda samstarfinu áfram.
Skjámynd

Akumo
spjallið.is
Póstar: 453
Skráði sig: Fim 07. Okt 2010 19:12
Staðsetning: /viewtopic.php?f=9&t=26366
Staða: Ótengdur

Re: *Hugmynd* Vaktin.is félagskort

Póstur af Akumo »

Nei takk.
Svara